Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
21.11.2016 at 21:19 #941079
Takk fyrir það Sigurður. Ég kunnu nú alveg að leita að þessu en aðalatriðið er að það vantar megnið af þræðinum. Koma bara fyrstu 12 síðurnar af guð má vita hve mörgum og því sést ekki þegar bíllinn var kláraður til að mynda. Það var það sem ég var að vísa í, þ.e. að gögn töpuðust við transfer af gamla yfir á nýja vefinn
21.11.2016 at 11:44 #941074Ef ég má leggja í púkkið þá finnst mér agalegt að flottir þráðir eins og ultimate build töpuðust við uppsetningu nýju síðunnar. Það hefði átt að eyða mun meira púðri að varðveita flottar heimildir eins og þann þráð. Einnig þykir mér þessi nýji vefur vera skelfilega hægvirkur og skrifa ég það á vondan búnað sem þetta er hýst á því vefurinn sem slíkur er ekki svona flókinn.
En hvað varðar breytta hegðun fólks á svona síðum á það er þetta nær alls staðar svona að facebook hefur tekið stóran þátt af áhugamannaheimasíðum og er það einfaldlega útaf því að fólk er vant þeim platform og facebook leggur gríðarlega mikið upp úr „ease of use“ sem fólk kann vel við. Mörg dæmi um minnkandi notkun hérlendis eins og t.d. ljosmyndakeppni.is, bland.is etc.
21.11.2016 at 11:39 #941073Flott vídeó frá þér Elvar eins og alltaf. Pant fá að koma með næst! 😉
Mér sýnist nýji kagginn vera virka helvíti vel bara og eyðslan flott miðað við tímann sem þið voruð á ferð
20.11.2016 at 10:45 #941059Aðeins að vekja upp þennan góða þráð. Ég var að rekast á nýja gerð af nagoya 701 loftnetinu (na-701c) sem er tjúnað fyrir 155MHZ.
Gæti verið áhugavert að nota þetta fyrir handstöðvar á 4×4 tíðnunum í stað standard 701 sem er tjúnað fyrir 143MHZ.
https://www.amazon.com/Authentic-Genuine-NA-701-SMA-Female-BaoFeng/dp/B01AX3AYOK?th=1 (Veljið na-701c týpuna)
18.11.2016 at 13:08 #941052Ég verð að biðja umsjónarmenn litlunefndar að passa betur upp á þær upplýsingar sem fólk slær inn á skráningarformið því það er ekki gefið upp að þessar upplýsingar verði gerðar opinberar eins og er gert í þessum þræði við skráningu. Ég hef engann áhuga á því að allir í heiminum fái aðgang að emailinu mínu og símanúmeri. Hysjið upp um ykkur buxurnar og lagið þetta! Það er alveg hægt að sýna þáttakendur og upplýsingar um bíla án þess að gefa upp restina.
11.01.2016 at 09:15 #935801Ég hef alltaf svakalega gaman af svona þráðum! Hefur greinilega verið virkilega vel heppnuð ferð og ég hendi hrósi á litlunefndina fyrir skipulagninguna. Synd að hafa ekki komist með
17.12.2015 at 14:12 #935371Svo það sé á hreinu þá er ég einungis að gagnrýna þessa þvingun á dekkjastærð. Vinna nefnda er framkvæmd í sjálfboðavinnu og allir sem hana vinna eru stórmenni í minni bók.
Áhyggjur mínar snúa að því að ekki sé nægilega tekið tillit til stórs hóps jeppamanna sem mögulega hefur ekki tök á svona stórum jeppum.
Fæstir hlaupa í að fá sér 44+“ bíl nema raunverulega hafa áhugann og viljann til að standa sig betur í ferðum / ná lengra. Ef þessir fá aldrei að komast í ferðir þá fá þeir sér seint 44″ bíl.
16.12.2015 at 10:35 #935358Ég taldi að nýliðaferðin væri hugsuð fyrir nýliða í klúbbinum sem væru komnir á meira breytta bíla, t.d. 38″ breytta. Litlanefndin á að vera fyrir óbreytta og lítið breytta jeppa þó svo að 38″ bílar og stærri fari reglulega með sökum þess að lítið er um skipulagðar ferðir almennt á klakanum.
Það sem ég hef áhyggjur af er að þeir sem nýir eru í starfinu fælist frá þar sem ekki er hægt að taka þátt í neinu nema vera á risadekkjum. Nú eru gríðarmargir 38″ bílar á götunum sem geta gert heilmikið en klúbburinn virðist vilja dismiss-a alla þessa bíla.
Ég geri mér grein fyrir að færið upp í Setur getur verið krefjandi en maður hefur nú líka séð 35″ bíla fljóta þarna uppeftir án mikilla vandræða…
Ég er í það minnsta þeirrar skoðunar að halda eigi nýliðaferð í 38″ lágmarki en miða ekki við svona ofboðslega létta bíla sem hámarksþyngd fyrir 38″.
Kannski ætti að miða við flotstuðul í staðinn og hleypa 35″ súkkunum með…?
15.12.2015 at 13:11 #935322Hvað er málið með þetta risadekkjablæti sem er í yfirstjórn félagsins?
Ef nýliðar geta ekki farið í nýliðaferð nema að vera á risajeppum eða ofurléttum jeppum á 38″ er þá ekki tilgangur þessarar ferðar orðinn frekar rýr?
Nú er ég á lc90 á 38″ sem telst frekar léttur dísel bíll en ég kemst ekki með í ferðina miðað við þessi skilyrði. Ég hef þó oft drifið meira en aðrir meira breyttir.
Í ljósi þess hvað menn gátu nú farið á sínum tíma með samstarfi og lægni á 35-38″ þá skil ég ekki þessa risabíla þvingun í allar ferðir sbr þessa og stórferðina. Er ekki eðlilegra að segja t.d. að bílar yfir 2600kg þurfi að vera á meira en 38″ svo mengið verði aðeins stærra af 38″ bílum?
27.11.2015 at 13:41 #934895Það var verið að senda póst í tengslum við ferðina á alla skráða þáttakendur.
Tvísýnt er um færi á svæðinu svo ferðaplan hefur verið á smá reiki en það verður kynnt í fyrramálið.
Mæting á morgun kl 8:30 skv venju á Stöðinni.
25.11.2015 at 17:04 #934851Það er ekki fyrirhugaður kynningarfundur um ferðina en gögn verða send í seinasta lagi á morgun fimmtudag.
19.11.2015 at 21:39 #934672Skráning er hafin í Nóvemberferð litlunefndar sem verður farin þann 28.nóv og er ferðinni heitið á Skjaldbreiður eða í það minnsta á svæðið þar í kring
Ferðin verður nánar kynnt þegar nær dregur en skráningu má finna að neðan:
12.04.2015 at 23:16 #778985Þetta er mjög áhugavert.
Ég er með svipaða talstöð uv82 en á henni er annað loftnet. Ég keypti svo Nagoya na-701 loftnet útfrá ánægju manna á netinu en það virðist tjúnað inn á 144MHZ sömuleiðis (kvartbylgju). Það væri áhugavert að prófa fleiri loftnet og sjá hvað er að virka best með svona stöðvum því loftnetin skipta jú gríðarlegu máli.
Er mjög flókið að mæla þetta?
22.02.2015 at 12:46 #776942Frábær ferð! takk kærlega fyrir mig. Engar alvarlegar bilanir, æðislegt veður og góður félagsskapur. Svo sem ekki við öðru að búast enda Toyotur í meirihluta 😀
19.02.2015 at 13:20 #776883Glæsilegt! Þetta verður án efa frábær ferð miðað við veðurspá, ískalt og lítill vindur
31.01.2015 at 10:04 #776408er ekki kjörið að leita til Tryggva hjá stýrivélaþjónustunni eða Bílabúð Benna varðandi dælurnar sem þeir eru að selja á um 30þ og athuga með hópdíl. Menn tala í öllu falli mjög vel um þessar dælur og þær eru gefnar upp í kringum 160l/m.
12.01.2015 at 13:25 #776085Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki tekið eftir þessu tuði gagnvart litlum bílum í öllum þeim ferðum sem ég hef tekið þátt í seinustu 3 ár hjá litlunefndinni. Almennt séð hefur allt verið gert til að liðsinna fólki en í þau skipti sem bílar hafa verið skildir eftir hefur yfirleitt verið um að ræða bilanir eða önnur vandræði og fólki alltaf gefnir kostir sem og fólki alltaf skutlað tilbaka og fylgt að þjóðvegi. En svo er líka allt í lagi að gefa bílum séns í byrjun ferðar og ef færið reynist erfitt þá geta menn fengið að fljóta með öðrum eða snúið við, það er nú það sem menn gera að staðaldri í eigin ferðum.
Einnig er mikil fjölbreytni í bílstjórum og getu þeirra, t.d. var eftirminnilegt þegar óbreyttur grand cherokee fór inn í laugar á meðan margir stærri bílar (35″), ég þar á meðal, áttu í vandræðum vegna máttleysis / vankunnáttu / trega við úrhleypingar o.s.frv.
En það er rétt að litlanefndin er ætluð minni bílum og það þarf að plana ferðirnar með það í huga enda hefur verið rætt að fara ferð síðar á árinu þar sem stærð dekkja verði takmörkuð.
Hvað mig varðar þá hefur litlanefndin alltaf staðið sig til fyrirmyndar og hjálpað öllum sem þurftu hjálp og þakka ég þeim fyrir það. Ég er búinn að læra helling á þessum ferðum svo keep up the good work!
05.10.2014 at 00:43 #772084Ég vill leggja inn í þennan þráð. Seinustu 2 ár hef ég verið mjög hrifinn af UltraGlozz þar sem það endist mjög vel en upp á síðkastið hef ég verið mjög hrifinn af Shield frá Armor All en það hefur reynst ótrúlega endingargott þó það sé pínu leiðinlegt í þurkkun. Perlar allveg endalaust lengi.
Ég viðurkenni að ég hef ekki reynt mjallarbónið vegna erfiðleikasagna
Áður notaði ég Sonax hard wax á veturna og carnauba á sumrin.Mínar 2 krónur
22.09.2014 at 12:42 #771807Ég er að velta fyrir mér hvort litlanefndin hafi ákveðið að sleppa haustferð þetta árið. Það var fínasta ferð farin í fyrra og ég var eiginlega farinn að hlakka til næstu ferðar Ég heyrði reyndar að það hefði oft verið dræm mæting þegar ekki væri snjór en það virtist ekki raunin í fyrra í það minnsta.
Væri gaman að heyra hvernig planið hjá litlu verður fyrir restina af 2014Er Síðumúlinn kannski svona fyrirferðarmikill?
17.02.2014 at 16:39 #452338Af forvitni, hvað er það sem stærri bílar gera sem veldur minni bílum meiri vandræðum? Eru það djúp för eða of breið för t.d…? Hefði haldið að stærri bílar með meira flot væru í sjálfu sér ekki að skemma fyrir þeim minna breyttu? En það er greinilega ekki svo..
-
AuthorReplies