FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Þorvaldur Sigurðsson

Þorvaldur Sigurðsson

Profile picture of Þorvaldur Sigurðsson
Virkur síðast fyrir 9 years, 5 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 101 through 120 (of 373 total)
← 1 … 5 6 7 … 19 →
  • Author
    Replies
  • 09.06.2010 at 17:53 #695662
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Didda!
    Hvar fannstu þessa veðurspá?





    28.05.2010 at 22:55 #694880
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Ég er búinn að sjá að hann hlýtur að vera að grínast. Tæplega dytti einhverjum með fullu viti í hug í alvöru að skrúfa öxulinn saman með 16 mm bolta. Það yrði amk. sjón að sjá í hvert skipti sem viðkomandi dytti í hug að bakka.
    Ja, þú ert nú meiri brandarakallinn Atli!!





    28.05.2010 at 21:38 #694874
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Dettur þér í alvöru í hug að sjóða öxulinn saman? Og nota til þess gamlan rútilvír sem er búinn að blotna mörgum sinnum? Þá ættirðu að hafa piparsósu með honum?





    21.05.2010 at 07:06 #694080
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    „En ef þú átt grasmótor þá máttu fara hvaða leið sem er,hvort sem það er rollustýgur gaunguleið eða bara beint af augum…. Sé bara ekkert af því að keyra einhverja rollustýga…“
    Er þetta ekki vandamálið í hnotskurn? Er líklegt að ástandið breytist á meðan svona sjónarmið eru algeng? Eða amk. þykja svo eðlileg að menn humma ekki við að setja þau fram opinberlega?





    09.05.2010 at 13:30 #693262
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Þeir sem selja silunganet um þessar mundir eru helstir Heimavík sem sennilega er bestur og billegastur og svo Ísfell. Í Ellingsen myndi ég ekki fara til að fá silunganet þótt þar sé margt gott á boðstólum.
    Og svo gæti ég kannski selt þér silunganetaslöngur ef þú átt gömul rifin net með þokkalegum teinum. Þá sparast talsverður peningur því teinarnir kosta sitt og ástæðulaust annað en endurnýta þá.





    03.05.2010 at 18:59 #692602
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Er vandinn ekki sá að hjólabúnaðurinn hæfir hvergi svona stórri kerru? Amk ef þú ætlar að setja eitthvað hlass í hana. Reyndar kemur ekki til þess því væntanlega má kerran þín ekki vega nema 750 kg með hlassi, eða sem svarar svona 250 – 300 lítrum af möl. Myndirðu setja eina og hálfa tunnu af möl aftan á hilux? Þú gætir svosem reynt að fá hana skráða til að stækka leyfilegt hlass en þá þarf að hafa bremsur og svoleiðis skemmtilegheit. Að vísu gæti það líka aukið gleði þína því, ef ég man rétt, óskráð kerra má ekki dragast hraðar en á 60 km hraða miðað við klukkustund.
    Ef þér dettur hins vegar í hug að skjólborðafylla kerruna af möl myndi hún taka, ef skjólborðin eru 30 sm, 2,5 tonn. Séu skjólborðin hins vegar 40 sm yrði hlassið 3,2 tonn. Ætli flestir hiluxar yrðu ekki komnir á rassgatið með svoleiðis hlass? Og ögn farið að kárna um legurnar í mazda pikkuppnum?
    Ætli væri kannski skynsamlegt að endurskoða valið á hjólastellinu?





    01.05.2010 at 17:32 #692218
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    „Er ekki hægt á þessari tækniöld að hafa upphafsmann við þráðin svo maður þurfi ekki að LENDA í því að opna eitthvað sem MHN startar ?

    Kveðja Lella“

    Frú Helena! Ég biðst auðmjúklega afsökunar á því að hafa ekki lesið út úr þessari athugasemd að þú vildir hafa upplýsingarnar á forsíðunni. Að vísu er hvergi minnst á forsíðu í athugasemd þinni. Það breytir hins vegar ekki því að ég las þetta ekki úr athugasemdinni. Sýnir þetta að ég er andstyggilegt karlrembusvín sem ekki les hugsanir. Ég á þetta að vísu sammerkt með þorra kynbræðra minna en samt; ég hefði átt að gera mér grein fyrir þessu. Heimska mín er þvílík að ég hélt að það hlyti að duga að við hvern einasta þráð sem upp kemur þegar spjallinu er flett eru upphafsstafir eða netnafn þess sem hann stofnaði. Væri á þann hátt unnt að forðast alla þræði sem einhver tiltekinn limur félagsins hefði stofnað.
    Úr því svo er nú ekki, og brýna nauðsyn ber til að hafa allar tiltækar upplýsingar alls staðar, þannig að blásaklaust kvenfólk, sem sumt þar að auki hefur lýst því yfir að það muni aldrei framar renna sjónum yfir þetta spjall, hvað þá drepa fingri á lyklaborð til tjáningar á því, steyti ekki auga sitt við steini verður auðvitað að reka alla vefnefndina, stjórn klúbbsins og loka vefsíðunni án tafar. Þá verður líka að loka öllum skemmtigörðum, gangstéttum, veitingahúsum, skólum, sjúkrahúsum o.s.frv. til að enginn kvenmaður geti nokkurn tímann rekist á nokkuð það sem hneykslast mætti á. Sömuleiðis væri líka æskilegt að skylda alla karlmenn sem líklegir væru til að valda hneykslun til að ganga með þokulúður sem þeyttur væri á þriggja sekúndna fresti og sömuleiðis með rautt viðvörunarljós sem gæfi frá sér leiftur sem sýnilegt væri úr 2000 metra fjarlægð í góðu skyggni miðað við að sólmiðja sé amk. 3 gráður fyrir neðan sjóndeildarhring. Líklega væri þó betra að loka þá alfarið inni eða jafnvel gelda þá.
    Kæra Helena! Að öllu þessu er ég reiðubúinn að vinna. Heldurðu ekki að þú værir þá hugsanlega til með að forláta þessa svívirðilegu karlrembu og heimsku að halda að þú gætir fundið upplýsingar um þá þræði sem Mhn stofnaði til með því að gá þar sem þær er að finna og hafa verið aðgengilegar frá því nýja útlitið kom á vefinn?
    Þinn einlægur Þorvaldur





    30.04.2010 at 16:30 #691214
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Þarf virkilega enginn að endurnýja?





    30.04.2010 at 16:25 #692206
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Jeppamenska eru fyrir idjótar
    1, 2 af[b:2km55cm5] mhn [/b:2km55cm5]» 29 Apr 2010, 01:30 í Allt annað 19 1570 af Lella
    29 Apr 2010, 23:39
    Frú Helena! Hér kemur glögglega fram hver hóf þráðinn. Svona upplýsingar koma fram við hvern einasta þráð sem hafinn er á þessu spjalli. Þarf ekki annað en opna augun. Kannski er það of erfitt?





    20.04.2010 at 20:39 #691212
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Sérlega sterkar og endingargóðar!





    19.04.2010 at 18:37 #212223
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Óuppsett silunganet (slöngur) Möskvi 40 mm leggur; 80 mm heilmöskvi, girni 0.40 mm, dýpt 35 möskvar sem gerir ca. 2,3 m í felldu neti, lengd ca. 25 m í felldu neti. Möskvastærð og girni miðað við reglugerð um silungsveiði í sjó. Verð 2500 kr. stk. Nú er passlegt að fara að huga að vorinu, skera af gömlu druslunum og setja upp ný.
    Uppl. 8916968.





    14.04.2010 at 20:10 #690664
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Maður veltir fyrir sér hugarfarinu á bak við svona spurningu. En sennilega er svarið: Til þess að þeir sem aldrei gera mistök og allt geta, kunna og vita fari sér ekki að voða.





    03.04.2010 at 21:11 #688982
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    „en það sem mér fanst mest pirrandi að einum og hálfum tíma seinna sá ég lest bíla keira jökulinn frá fljótshlíðini að gostöðvunum.“
    Á hvaða leið skyldu þeir hafa verið? Og hvaða jökull ætli sé á milli Fljótshlíðarinnar og gosstöðvanna?





    17.03.2010 at 18:35 #678370
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Þa er einfalt að ganga úr skugga um það. Taktu olíulokið af og prófaðu. Settu samt tusku yfir opið svo subbuskapurinn verði ekki yfirþyrmandi í vélasalnum.





    11.02.2010 at 10:45 #682272
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Er hilux vél keyrð 370000 km ekki í þannig ástandi að spíssahreinsir breytir litlu? Ætli þurfi ekki að skoða eitthvað fleira, svosem að skipta um stimpla, legur, dýsur, knastás, olíuverk eða í stuttu máli; endurbyggja vélina frá grunni? Það eru engin kraftaverkaefni til, þrátt fyrir hjartnæmar auglýsingar, sem gera gamla vél að nýrri.





    11.02.2010 at 10:40 #682620
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Hafir þú samband við veðurstofuna eiga þeir allt sem þig langar til að vita um þessi efni 150 ár aftur í tímann.





    04.02.2010 at 22:01 #680714
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    „En hvernig stendur á því að engin hættir sér út í þá umræðu sem ég tiltek ítrekað sem megin ástæðu skrifa minna, að koma til móts við þá félaga sem standa afar illa þessa dagana og hjálpa þeim til þess að vera áfram í klúbbnum?“

    Og hvernig ætti það að þínu mati að fara fram?
    Ein leiðin væri sú að gefa verulegan afslátt af félagsgjöldum til bágstaddra. Þá mætti hugsa sér að fella þau niður. Sumum myndi henta að greiða með afborgunum.
    Hvernig ætti að velja þá sem nytu aðstoðar? Hverjir ættu að velja þá sem nytu aðstoðar? Væri nóg að sækja um? Þyrftu menn að sýna fram á litla greiðslugetu? Fengju menn afslátt í hlutfalli við fjölskyldustærð? Þvermál hjólbarða? Einhverjar aðrar hugmyndir? Hverjar?





    04.02.2010 at 11:00 #680686
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Án þess að til standi að gera lítið úr fjárhagsvanda heimilanna er það mín skoðun að það megi vera orðið verulega slæmt ástand til að hafa ekki efni á því að greiða 6000 krónur á ári til klúbbsins. Og, ef maður ber það saman við matarkörfu vikunnar, eins og síðasti ræðumaður, verður gjaldið hvorki meira né minna en 115,38 krónur á viku. Myndi sú upphæð ráða úrslitum um afkomu fjölskyldunnar? Og á dag færu þá 16,4 krónur, eða sem svaraði verði einnar brauðsneiðar án smjörs, til klúbbsins. Þeirri upphæð væri síðan hægt að ná ríflega til baka með því að slökkva á tölvunni í tvo tíma yfir blánóttina.





    11.01.2010 at 16:27 #675442
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Hringdu í umboðið eða umboðsverkstæðið og spurðu þá hvort vélin sé þannig að ventlar geti rekist í stimpla. Það liggur nefnilega fyrir í hönnun vélarinnar. Og ef ventlar geta rekist í eru nánast engar líkur á öðru en það hafi gerst ef bíllinn hefur verið á akstri þegar reimin fór. Svo þarf að taka ögn meira en ventlalokið til að sjá framan í ventlana; heddið verður að fjúka. En eins og sagt var: vélina á merki, reimina í og svo þjöppumæla og þá sést hvar kötturinn liggur í grasinu.





    10.01.2010 at 00:47 #675436
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Það er afar erfitt að gefa eitt fast verð á viðgerðina. Ef ekkert hefur skemmst er hægt að setja nýja tímareim í og keyra bísperrtur. Hafi ventlar rekist í stimpla þarf að taka heddið af, skipta um þá sem skemmdust, og það gætu verið mismunandi margir- allt frá einum og upp í alla-, og slípa svo þá sem settir eru í nýir og kannski alla. Hugsanlega hefðu ventlastýringar skemmst líka með tilheyrandi vinnu við að skipta. Þetta eru sem sagt tveir pakkar, minni og stærri og sá stærri gæti komið í nokkrum mismunandi útgáfum.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 101 through 120 (of 373 total)
← 1 … 5 6 7 … 19 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.