Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
10.12.2015 at 15:57 #935243
Til eru ágætar græjur sem settar eru inn í vatnskassahosu til að hita kælivatnið. Virka fínt. T.d. þessi: http://www.amazon.com/Kats-14600-Lower-Radiator-Heater/dp/B000I8XD1M/ref=pd_sim_sbs_263_5?ie=UTF8&dpID=31PfgjygHrL&dpSrc=sims&preST=_AC_UL160_SR160%2C160_&refRID=1JV8DN3WZ7D7E2H944B8
16.03.2015 at 10:59 #77749605.02.2015 at 18:18 #776545Sem ég segi; báðar ljóshærðar og sennilega eru báðar sveitungar frænku sinnar. Hins vegar var bara önnur ljóshærð í mínu ungdæmi.
03.02.2015 at 21:19 #776509Önnur þeirra er Agnetha úr Öbbu en hin er sveitungi óþekktrar náfrænku sinnar.
15.01.2015 at 18:38 #776118Ég held að þetta sé innar í Djúpinu. Þetta sé við Skötufjörð, í Fossahlíð með Eyrarhlíð í baksýn.
21.08.2014 at 19:23 #770887Þetta er þarft framtak. En þó er ég svona að velta fyrir mér hvort það sé alveg í samræmi við staðreyndir máls að halda því fram að bílar frá Íslandi hafi komist á norðurpólinn? Svo er ufsilon í leyti.
17.08.2014 at 21:00 #770699Skónefurinn býr í Afríku, svona ca. í miðjunni og er fenjakvikindi.
26.07.2014 at 18:25 #770133Þarna er ýmislegt úr leðri og svo dálítið af rafi. Ætli sé ekki meiningin að nudda rafið með leðrinu og fá þá rafurmagn?
26.05.2014 at 18:07 #768888Já, passar ekki að þetta sé leiðin milli Reykjavíkur og Egilsstaða?
24.05.2014 at 20:04 #768779Er þetta ekki leiðin milli Reykjavíkur og Egilsstaða um Spreingisand?
22.05.2014 at 23:25 #768764Og hvar er sú Fjarðará? Þær eru nefnilega allmargar á landinu.
22.05.2014 at 23:24 #768763Hér með skipti ég um skoðun; þaöð er nefnilega ekkert spurningarmerki í innleggi Magnúsar og þá er ég lens.
22.05.2014 at 23:22 #768762Ég held að þetta sé spurning frá MHN. Til sönnunar þessari skoðun minni má nefna að innlegg hans inniheldur spurningarmerki.
28.10.2013 at 10:43 #379480Tja, úr því síðast var minnst á Dauðahafið og Tíbet veðja ég á að þetta sé á öðrum þeirra staða. Semsagt; maður á floti í Tibet eða Dauðahafinu.
27.10.2013 at 20:31 #379473Á þeim báðum sjást þrír bílar og vegur. Gulir litir eru áberandi. Bílarnir stefna til hægri.
22.10.2013 at 08:51 #379454Þetta hljómar vel alltsaman. Samt var eitt sem ég hjó eftir. Hvalbakurinn. Verður hann ekki að vera úr stáli? Hann þjónar nefnilega sem eldvörn ef kviknar í vélarrúminu. Þá væri ég ekki til með að hafa plast lekandi ofan á lappirnar á mér.
17.10.2013 at 08:46 #379448http://zipautorepairshops.com/category/asian-auto-parts-stores/suzuki-parts-stores/location/pennsylvania/bradford-county/west-leroy/
Skoðaðu þetta þegar þú kemur westur og allt mun gefast þér.
16.10.2013 at 14:06 #379441Sá ljóti var notaður á tunglinu (og er rafmagnsbíll). Hinir flugu til tunglsins við höggið af árekstrinum.
16.10.2013 at 10:33 #379437Sennilega eru þetta alltsaman rafmagnsbílar?
15.10.2013 at 22:22 #379405Þessir drangar eru ekki í Höfða. Þeir eru við Kálfaströnd. Myndasmiðurinn er hins vegar staddur í Höfða og tekur myndina yfir sundið að Kálfaströnd. Þetta má glögglega sjá á myndinni sem leynist bak við þessa slóð og eru drangarnir til hægri á myndinni: http://www.ismennt.is/not/jonasg/0landid/jg02/myvatn04/myv0011886.jpg
-
AuthorReplies