Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Jeppamenska eru fyrir idjótar
This topic contains 27 replies, has 1 voice, and was last updated by Bergur Kristinn Guðnason 16 years ago.
-
CreatorTopic
-
29.04.2010 at 01:30 #212435
Það er nú svo að ég er að fá nóg af þessari jeppa dellu og er á því að gefa skít í hanna , og snúa mér að vera anntisti á þessa anskotans jeppa . Þetta er bara fyrir ydjóta sem þola ekki konuna og hennar raus sem á rétt á sér hvað þetta sport ef sport skall kalla. Að vera að eiða tíma í þessar bölfaðar druslur sem gera ekkert nema svekkja mann, maður valla búinn að laga eitt þegar annað kemur í ljós þetta er keðjuverkandi ánskotti . Og þær konur sem taka þátt í þessari jeppa mensku, það eru konur sem eru undirgefnar mönnum sínum til gera allt þeim til hæfis. Enda hefur það sínt sig þær eru notaðar í að elda mat það sama og þær gera heima til að þóknast manninum. Svo maður snúi sér aftur að þessu bílbeglum það er sama hvað þær heita þær þola ekki að maður tagi smá á styrinu eða gefi svoa smá inn, þá fer vélinn að væla og gírkassin bragga og bresta + það drifinn losa tennur, hér má bæta meiru við þið geti haldið áfram þessu rugli .
Það er tíma skegga að vera í þessar dellu.KV ,,,,,MHN
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
29.04.2010 at 09:02 #692168
Hvað er " idjótur " ???
Fáðu þér bara Toyotu þá ertu laus við að " drifin losi tennur, eða taki tennur " og allt .
😉
29.04.2010 at 11:07 #692170[quote="Danfox":8ole1clr]Hvað er " idjótur " ???
Fáðu þér bara Toyotu þá ertu laus við að " drifin losi tennur, eða taki tennur " og allt .
;)[/quote:8ole1clr]Það er nú algjör óþarfi að ráðast á skrifhátt les- og/eða skrifblindra manna sem reyna að lífga aðeins upp á tilveruna !
Og þetta varðandi Toyota, þá er nú nóg að lesa fréttirnar undanfarið til að sjá að þær koma bara hálfkaraðar/gallaðar út úr verksmiðju 😀 Og hver man ekki eftir elgsprófinu á sínum tíma líka 😉
Skárra væri að fá sér LandRover, þú veist þó að það á eftir að klára að ganga frá honum 😀Bara smá pointer og skot á þennan Toyota "sértrúarsöfnuð".
ps. ég er ekki að segja að önnur tegund sé neitt skárri, því eins og Magnús segir, þá bilar þetta drasl alltaf á endaum og fer oftar en ekki eftir meðferð eiganda frekar en tegundum.
29.04.2010 at 11:55 #692172uss þetta er bara gaman
þó að menn eigi 1 og 1 slæman dag hvað er það
Hitt bætir þetta allt upp..
29.04.2010 at 12:08 #692174Það er alveg sama hvort þetta er jeppi eða fólksbifreið, Toyota, Patrol, Musso eða hvað það nú allt heitir, allt bilar þetta, þessi keðjuverkandi bilunartíðni er óþolandi, á einn VW Touareg 2006, ef eitt bilar þá fer eitthvað annað seinna, sannreint og kostar helling.
Sammála efsta ræðumanni nema hvað að þetta á sér ekki einslíka við jeppa heldur allar bifreiðar, og þetta með konurnar, hættulegt að koma með þesskonar umræðu hér inn. Þetta kallast að eiga sameiginlegt áhugamál hvort sem þér líkar það betur eða verr.
Takktakk
29.04.2010 at 12:29 #692176
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Sæll Magnús.
Það verður sjónarsviptir ef þú hverfur úr félagsskapnum jafn litrík og skemmtileg
persóna og þú ert. Ég er hinsvegar sannfærður um að þetta sé eitthvert gaman eða glens hjá þér
og konan þín sé jafn erfið og áður eins og konur okkar flestra.
Hvað varðar réttritun hjá þér þá var Laxnes ekki skárri. Síðan eru framámenn klúbbsins
þeir eru varla læsir eða skrifandi miðað við viðbrögð við einföldum spurningum hér á
spjallþræðinum.Kveðja Sigurður.
29.04.2010 at 13:21 #692178Hvernig er það MHN – ert þú nokkuð búinn að vera í jeppamennsku undanfarið.. ??
Síðast þegar ég gáði þá varstu á fjórhjóli með blæju… Spurning um að hætta í fjórhjólunum og fá sér jeppa

Benni
29.04.2010 at 13:31 #692180[quote="Bragi":224kctjs]Og þetta varðandi Toyota, þá er nú nóg að lesa fréttirnar undanfarið til að sjá að þær koma bara hálfkaraðar/gallaðar út úr verksmiðju 😀 Og hver man ekki eftir elgsprófinu á sínum tíma líka 😉
[/quote:224kctjs]Ég lét nú ekki elgsprófið þvælast fyrir mér þegar ég keypti mér Hilux. Enda engir elgir á Íslandi!
29.04.2010 at 14:57 #692182Alveg er ég innilega sammála Magnúsi, þó það hafi tekið mig hartnær 30 ár að komast að þessari sömu niðurstöðu. Það er miklu nær að safna bara frímerkjum, enda næstum allir hættir að nota þau hvort sem er.
Mín reynsla af bílum er sú að það gildir einu hvað draslið heitir, allt bilar þetta og venjulega þegar verst stendur á. Ég verð bara að segja það í fullri hreinskilni að ég hreinlega skil ekki hvað fólk sér við að hoppa og skoppa á misónýtum jeppatíkum út um allar koppagrundir, það er alveg sama hvert maður fer, alltaf þarf maður að koma sér heim aftur í gráan hversdagsleikann, þaniiig að það er bara best að vera heima…………Huganlega gætir einhverrar öfundar í garð þeirra sem enn eiga jeppa og búa á enn á klakanum.
Kv. Steinmar
P.S.
Það er best að hætta sér ekki út á hálar brautir með athugasemdum um konur, enda eiga þær allt gott skilið.
29.04.2010 at 15:07 #692184[quote="ssjo":2wvoqaj8][quote="Bragi":2wvoqaj8]Og þetta varðandi Toyota, þá er nú nóg að lesa fréttirnar undanfarið til að sjá að þær koma bara hálfkaraðar/gallaðar út úr verksmiðju 😀 Og hver man ekki eftir elgsprófinu á sínum tíma líka 😉
[/quote:2wvoqaj8]Ég lét nú ekki elgsprófið þvælast fyrir mér þegar ég keypti mér Hilux. Enda engir elgir á Íslandi![/quote:2wvoqaj8]
Nei, við erum bara með "Killer Sheep" og lausar bikkjur út um allt og svo maður gleymi ekki staurblindu rudolfunum fyrir austan ;D
29.04.2010 at 16:32 #692186Er þetta ekki allt spurning um að velja og hafna.
Er þetta ekki eins og með konuna stundum er gaman og stundum er ekki gaman.En þó að þessi mikið reyndu seu að hverfa frá jeppamensku taka bara nyjir og ferskir strákar við.

29.04.2010 at 18:06 #692188ég hef aldrei hitt skemmtilegan gáfaðann mann. svo er þetta þá bara ekki ágætis sport til að vera í 😉
29.04.2010 at 19:30 #692190Vissulega verður maður að velja og hafna. Í dag er ég í þeirri stöðu að vera námsmaður í útlöndum og get þess vegna ekki tekið þátt í jeppamennskunni eins og ég gerði hér áður. Fyrst eftir að ég flutti var þetta svolítið erfit og söknuðurinn gerði vart við sig. Eftir því sem tíminn leið bar minna á einkennum, en núna undanfarið hafa þau gosið upp aftur, kannski vegna umbrota náttúrunnar, kannski er maður líka farinn að gleyma hvað mikið maður var búinn að fá nóg af þessu.
Sem betur fer er stöðug nýliðun í hópi jeppamanna og það kemur maður í manns stað og maður finnur sér bara nýtt áhugamál, eða það hef ég allavega gert, þó að ég hafi reyndar dustað rykið af áhugamálum sem lengi höfðu verið kæfð niður.Ferðamennska er fyrir alla, bæði konur og karla. Það skiptir engu máli hvað aðferð eða faratæki er notað, þetta er spurning um að njóta þess sem maður er að gera og láta ekki einhverja gamla/unga svartsýnisseggi eyðileggja sportið.
Með ósk um gott ferðasumar til handa öllum gömlum ferðafélögum og líka hinum sem eru að stíga sín fyrstu skref í dellunni.
Kv. Steinmar
29.04.2010 at 19:45 #692192Það næsta sem gerist er að þú kemur heim og ferða að grenja í mönnum um að fá að keyra tourista á Ford Econoliner.

29.04.2010 at 20:02 #692194[quote="Hlynur":2xniv7wu]Það næsta sem gerist er að þú kemur heim og ferða að grenja í mönnum um að fá að keyra tourista á Ford Econoliner. :)[/quote:2xniv7wu]
Einhvernveginn er ekki ég ekki svo viss………… en maður á aldrei að segja aldrei
29.04.2010 at 20:06 #692196Svo má auðvitað hætta að væla og skrá sig í öskuhreinsunina …. þar vantar duglegt fólk … en hentugra að hafa það á Íslandi, amk á laugardaginn…..
Kv. Óli
29.04.2010 at 22:50 #692198[quote="mhn":1wryviss]Og þær konur sem taka þátt í þessari jeppa mensku, það eru konur sem eru undirgefnar mönnum sínum til gera allt þeim til hæfis. Enda hefur það sínt sig þær eru notaðar í að elda mat það sama og þær gera heima til að þóknast manninum.
KV ,,,,,MHN[/quote:1wryviss]nú fórstu gjörsamlega yfir mín þolinmæðismörk, á hverju ertu eiginlega ? það má nú alveg segja ýmislegt um mig en aldrei skal ég viðutkenna að ég hafi tekið þátt í jeppamennsku því ég sé undirgefin !!!!! og ég elda mat heima hjá mér og á fjölllum afþví mér finnst það gaman EKKI til að þóknast manninum ( enda er honum vorkunn )
Lesblinda eða skrifblinda er engin afsökun fyrir því að skrifa hvert einasta orð vitlaust það eru til ýmis hjálpartæki í dag td puki.isEr ekki hægt á þessari tækniöld að hafa upphafsmann við þráðin svo maður þurfi ekki að LENDA í því að opna eitthvað sem MHN startar ?
Kveðja Lella
29.04.2010 at 23:25 #692200Vóóóóóóó mar, er EINHVER á fýlunni???
29.04.2010 at 23:29 #692202[quote="Lella":1mibcraz]Er ekki hægt á þessari tækniöld að hafa upphafsmann við þráðin svo maður þurfi ekki að LENDA í því að opna eitthvað sem MHN startar ?[/quote:1mibcraz]
Það virðist vera sem að þú sért á eitthvað sterkari lyfjum en MHN þar sem það kemur skýrt fram undir titli þráðarins hver er upphafsmaður/kona hans.
kv/AB
29.04.2010 at 23:39 #692204Agnar ég er að meina að það sé sýnilegt á forsíðunni ÁÐUR en maður opnar þráðin og ef MHN er á sterkari lyfjum en ég vil ég gjarnan fá að vita hvað lyf það eru því ég vil fá þau 😉
kv Lella
30.04.2010 at 16:25 #692206Jeppamenska eru fyrir idjótar
1, 2 af[b:2km55cm5] mhn [/b:2km55cm5]» 29 Apr 2010, 01:30 í Allt annað 19 1570 af Lella
29 Apr 2010, 23:39
Frú Helena! Hér kemur glögglega fram hver hóf þráðinn. Svona upplýsingar koma fram við hvern einasta þráð sem hafinn er á þessu spjalli. Þarf ekki annað en opna augun. Kannski er það of erfitt?
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
