Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
19.02.2011 at 20:59 #720502
Takk fyrir frábæran dag.
kv
Þórðut Ingi
k-725
Starex
17.02.2011 at 09:15 #718856Ég komst ekki á fundinn i gær varðandi ferðinni,
hvað kom fram þar?
hvaða leið verður farinn?kv
Þórður Ingi
29.09.2010 at 21:34 #704616Ég var að panta tíma fyrir bílinn minn í Hjólastillingu hjá pitstop Hafnarfirði þar kostar þetta 9750.
20.09.2010 at 20:14 #702866Ég var búinn að skrá mig í ferðina á laugardag, ég verð að afskrá mig þar sem ég þarf að vinna þennan dag. kem bara með næst.
kv
Þórður Ingi
28.03.2010 at 08:59 #211725Veit einhver hvernig uxahryggir eru núna er að spá i að fara uxahryggir úr Borgarfirði í dag.
kv
Þórður Ingi
27.02.2010 at 10:03 #685090Þetta eldsnytisverð er orðið rugl, Ég er í þeirri stöðu að búa í Skagafirði en vinna í Hafnarfiðri og er þvi mikið á ferðinni milli landshluta, Það stóð til hjá mér að fara heim um hverra helgi en mál hafa þróast þannig að ég fer ekki nema aðra til þriðjuhverrja helgi norður til að mánaðarlauninn fari ekki öll í olí og benslín. Ég er með tvö bíla, konan er með jeppan fyrir norðan og ég er með fólksbíl í bænum Ég er með ca 70-90 þúsund eldnsytiskostnað í hverrjum mánuði, þetta er allt og mikið.
16.02.2010 at 23:28 #683382Norska veður síðan stiðst við erlend verðurtungl þau sömu og íslenskar spár stiðjast við. Þær spár sem birtast á t.d stöð 2 ruv og mbl ásamt veðurstofu íslands eru elrend veðurtungl og veðurspá er reiknuð út frá þeim gögnum. Það sem norska síðan hefur framyfir t.d belging og mbl að síðan reiknar út staðhætti og tekur mið af landslagi eins og fjallendi og fleira sem skiptir miklu máli hvernig veður er að viðkomandi stað.
31.01.2010 at 21:47 #680290Ég votta ættingjum konunar innilegrar sammúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum.
kv
Þórður Ingi
29.09.2009 at 22:24 #658800Varðandi framdrifið þá lenti ég í þessu í fyrra og þá kom ljós að rafbúnaðurinn fyrir drifið var undir affall slöngunni fyrir miðstöðina, ég lét breyta þessari afstöðu og hefur þetta verið í góðu lagi síðan.
29.09.2009 at 07:59 #658792ég er með minn á orginal felgun á 31" og er í fínu lagi. ég skar aðeins úr drullusökk á framan. kemur mjög vel út
28.09.2009 at 18:17 #658784Ég er með starex 2006 árg og eru þetta góðir bílar. ég er búinn að eiga minn í rúm tvö ár og er búið að keyra hann 90.000 og hef ég ekki þurft að gera neitt við hann. ég hef verið mikið í miklum snjó og hefur hann farið allt sem ég hef ætlað mér að hann fari. ég er með 31" undir honum.
kv
Þórður Ingi
07.09.2009 at 07:53 #206297Veit einhver hvort felgur undan nýrri gerð að Hilux passi undir Hunday Starex.
kv
Þórður Ingi
07.08.2009 at 08:20 #652144Ég á magellan tæki með íslandskorti frá Aukaraf, Ég er ekki ánægður með kortið og tækið og þó að tækið sé ekki nema tæplega tveggja ára þá fékk ég mér nýtt garmin taki og er það miklu betra og kortið margfalt betra.
28.07.2009 at 23:15 #652432Þetta var flott sumarhátið og var hoppukastalinn vinnsæll hjá mínum börnum á föstudagskvöldinu. Ég gat því miður ekki verið alla helgina þar sem andlát varð í fjölskyldunni á laugardagsmorgun og varð ég því að fara skyndilega suður.
kv
Þórður Ingi
20.07.2009 at 12:52 #651994Mér líst vel á þessar tillögur um að ökumaður þarf að hafa náð 20 ára aldri til að aka breytttri bifreið. Eins að bílprófsaldurinn verði hækkaður í 18 ár.
20.07.2009 at 00:08 #205318Hefur einhver farið kjöl um helgina? Hvernig er vegurinn, er búið að hefla hann.
kv
Þórður Ingi
25.06.2009 at 15:36 #650496Vonandi verður góð mæting og mikið fjör á sumarhátíðinni á Höfn í sumar. Ég er búinn að skipulegja sex daga ferð um landið með fjölskylduna kringum þessa helgi til að gera gott ferðalag úr þessu í leiðinni.
skjáumst sem flest á Höfn í sumar
17.06.2009 at 16:25 #649930Hér á Íslandi mætti vera skráningarskylda á kerrum og þær skoðaðar reglulega. Eg er með nýlega kerru og væri ekki á móti þvi að þurfa að skrá hana og fara með í skoðun
17.06.2009 at 11:47 #649922Skoðunarskylda er af því góða og dregur úr þeirri hættu að hálf ónýtir vagnar séu í umferð.
Svo má herða eftirlitði miklu betur á vegum úti á þessum eftirvögnum
17.06.2009 at 08:29 #649918Það hefði átt að vera komið fyrir löngu að tjaldvagnar, felllihýsi og hjólhýsi væru skoðunarskyld og fagna ég því að þessi tæki séu skoðunarskyld. Ég hef séð fellihýsi sem ekki ætti að vera í umferðinni þar sem hjólabúnaður var í mjög slæmu standi og geta slíkir vagnar valdið stór slysi. Með því að hafa þessi tæki skoðunarskyld er hægt að taka slíka vagna úr umferð. Svo ætti einig að taka hart á þvi hvernig bílar draga þessi stóru hýsi, það hafa komið á tjaldstæðið til mín stór fellihýsi og hjólhýsi þar sem smá bílar eru að draga, og oft á tíðum er vagninn of þungur miðað við þyngd bílsins og þar með má þessir smá bílar ekki draga þessa sóru vagna, Ég vona að lögreglan muni sjá sér fært að vera út á þjóvegum í sumar og stoppa þessa litlu bíla með sóru hýsinn og banna þeim að halda áfram ef bilinn er ekki nógu stór til að draga þessi tæki.
-
AuthorReplies