Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
29.04.2010 at 14:57 #692182
Alveg er ég innilega sammála Magnúsi, þó það hafi tekið mig hartnær 30 ár að komast að þessari sömu niðurstöðu. Það er miklu nær að safna bara frímerkjum, enda næstum allir hættir að nota þau hvort sem er.
Mín reynsla af bílum er sú að það gildir einu hvað draslið heitir, allt bilar þetta og venjulega þegar verst stendur á. Ég verð bara að segja það í fullri hreinskilni að ég hreinlega skil ekki hvað fólk sér við að hoppa og skoppa á misónýtum jeppatíkum út um allar koppagrundir, það er alveg sama hvert maður fer, alltaf þarf maður að koma sér heim aftur í gráan hversdagsleikann, þaniiig að það er bara best að vera heima…………Huganlega gætir einhverrar öfundar í garð þeirra sem enn eiga jeppa og búa á enn á klakanum.
Kv. Steinmar
P.S.
Það er best að hætta sér ekki út á hálar brautir með athugasemdum um konur, enda eiga þær allt gott skilið.
18.03.2010 at 12:54 #678752Þessi frétt á mbl.is er ekki mikils virði. Ferðin var kláruð og nefndir skálar eru ekki austan við Vatnajökul.
Kv. Steinmar
P.S. Sít í sófanum í Danmörku
31.01.2010 at 13:49 #680422Það eru mestar líkur á að stöðurofinn sem er á skiftigaffalhúsinu, á framhásingunni, sé annaðhvort ónýtur eða vírarnir slitnir. Hef sjálfur lent í þessu og þá voru vírarnir slitnir. Það er hægt með lagni að skifta um víra, en þeir eiga það til að slitna alveg við rofann og þá er ekki annað að gera en opna efsta hluta rofans með hníf eða öðru beittu áhaldi svo maður komist að vírendunum og lóða draslið saman.
Svo er bara að setja einhverja hlíf framan við þetta svo þetta gerist ekki aftur. Aðalástæðan fyrir því að þetta gerist er sú að snjór og ís klippir vírana í sundur.
Kv. Steinmar
29.01.2010 at 20:52 #679958Prófaðu að tala við Ægi á Rennverkstæði Ægis, sími 587 1560. Hann hefur skipt um miðjur í kúplingsdiskunum, sem er tiltölulega einföld og haldgóð breyting. Það er líka möguleiki að sjóða saman tvo öxla, en ekki eins sterkt þar sem það verður alltaf einhver brothætta í kringum suðuna, jafnvel þó efnið sé afspennt og allt gert eftir kúnstarinnar reglum.
Kv. Steinmar
28.01.2010 at 14:59 #679696Það eru miklar líkur á því. Talaðu við Magga felgubreikkara á Höfðanum, hann getur svarað þessu og ef hann telur að þetta sé hægt getur hann gert það.
Kv. Steinmar
23.01.2010 at 10:17 #677410Meðan slagið er ekki meira en svo að hjólin rekast ekki í túrbínuhúsið er ekki ástæða til að hafa áhyggjur. Ég get því miður ekki sagt þér eitthvað mál á þessu þar sem ég hef hingað til látið fingurtilfinningu og reynslu segja mér til um efri mörk á hliðarslaginu.
Þó get ég sagt að slagið er "töluvert" þar sem rýmdin á legunum þarf að vera næg til að taka við hitaþenslu og smurolíufilmunni sem ber legurnar við keyrslu. Það er kannski ráð að tala við einhvern sem hefur reynslu af að endurbyggja túrbínur. Menn sem vinna við þetta getur svarað betur en ég.
Kveðja Steinmar
23.01.2010 at 10:08 #678612Ef stendur til að fara sömu leið og árið 2000, þá er nokkuð víst að þú kemst ekki á einum tanki alla leið. Síðasta eldsneytissala er í Hrauneyjum og sú næsta ekki fyrr en austur á Héraði. Án þess að ég vilji sverja fyrir það, myndi ég áætla; að fyrir utan tankinn væri lágmark að hafa aukalega ca. 60- 100 lítra. Þetta er nátturulega bara ágiskun, og það fer eftir veðri og færi hvað maður fer með mikið eldsneyti.
Vonandi verður betra færi núna heldur en síðast, þegar allt fór meira og minna í krapa ásamt frekar slæmu veðri.Kveðja Steinmar
07.01.2010 at 21:03 #675074Með því að lesa aðeins meira á fyrrnefndri síðu, rann upp fyrir mér að ég var heldur fljótur á mér við að draga ályktanir.
Að sjálfsögðu er hægt að kúpla út þeirri hásingu sem drifin er af PTO´inu og láta hina hásinguna um erfiðið, án þvingunar.
Eini gallinn við þetta fyrirkomulag er að skaftið fyrir aftari hásinguna verður langt og það gæti hamlað því hversu mikið fremri hásingin má fjaðra, en sjálfsagt er það bara spurning um að leysa málið, ekki satt ?
Kv. Steinmar
07.01.2010 at 20:47 #675072Á þessari síðu er líka ein útfærsla, frá Ástralíu; http://www.allisons.org/ll/4/LandRover/Perentie/
Þetta er reyndar gert við Land Rover, en það kemur ekki að sök í dreifbýli. Þarna nota þeir PTO´ið frá millikassanum til að knýja aftari hásinguna. Samt sem áður vantar mismunadrifið mill hásinganna og í venjulegum akstri finnst verulega fyrir þeirri þvingun sem verður.
Kv. Steinmar
07.01.2010 at 20:36 #675070Googlaði aðeins og fann þetta: http://www.roadranger.com/Roadranger/index.htm
Veit ekki hvort það hjápar en prufaðu að Googla: 6×6 axles
Kv. Steinmar
07.01.2010 at 20:26 #675130Nei
07.01.2010 at 20:21 #674968Það má kannski kalla þetta þróaða fjöðrun, að minnsta kosti virkar draslið. En þar fyrir utan er þetta handstýrt, svo ef ætlunin er að keyra rösklega á misjöfnu undirlagi þarf einn að stýra og annar að stjórna fjöðruninni. Það er hætt við menn þurfi að æfa sig svolítið til að ná tökum á þessu.
Kv. Steinmar
07.01.2010 at 20:17 #675066Ljónsstaðabræður hafa leyst svona mál með tiltölulega einföldum hætti; það er settur hálfur NP-203 millikassi á fremri hásinguna og í hann kemur skaftið úr millikassanum. 203 kassin er festur upp á endann og úr úttakinu á honum fer skaft í aftari hásinguna, málið leyst.
Með þessum búnaði er mismunadrif á milli afturhásinganna, sem hægt er að læsa, ásamt því að maður getur svo verið með læsingar í mismundrifunum á sjálfum hásingunum.
Icecool bíllinn hjá Gunna Egils á Selfossi er með svona búnaði og hefur virkað mjög vel. Það gætu verið einhverjir fleiri með svona búnað. Talaðu við þá á Ljónsstöðum eða hringdu í Icecool sjálfan og mæltu þér mót við Gunnar til að skoða hvernig þetta er útfært.
Það ætti í rauninni að vera hægt að nota hvernig hásingar sem er í svona smíði, en drif með gegnumgangandi pinjón eru vandfundin nema þá úr vörubílum.
Kv. Steinmar
31.12.2009 at 13:41 #673758Ég er sammála Hagalín: notaðu frekar original lokurnar. Ef þær eru farnar að svíkja, er tiltölulega lítið mál að sjóða innmatinn svo þær haldi. Superwinch lokurnar eru mesta drasl sem ég hef nokkurn tíman prufað sem driflokur á Patrol, þær eru ekki peninganna virði. Var með þetta á 38" Patrol, reyndar í túristakeyrslu, en það skiptir ekki öllu máli. Ef þú vilt lokur sem klikka aldrei, keyptu Ægislokur.
Kveðja
Steinmar
29.12.2009 at 18:48 #673448Það er ekki hægt að snúa þessum spindilkúlum. Það sem er hægt að gera er að færa þær neðan á spyrnuna, þeas. kúlan er sett neðan á spyrnu í stað þess að vera sett ofaní hana. Þessi aðgerð breytir ákaflega litlu, nema að það er mun þægilegra að skipta um spindilkúlu, en það er reyndar eitthvað sem sjaldan þarf að gera. Við þessa færslu færist kúlan ca. 4 mm niður.
Engu að síður má svosem ýmynda sér að það sé hægt að setja klossa á milli spindilkúlu og spyrnu og lengri bolta sem halda kúlunni, eins og maður gerði á Lödu Sport hér áður fyrr. En eins bent er á, kemur sú aðgerð ekki að gagni nema að síkka neðri spyrnuna.Kv. Steinmar
29.12.2009 at 15:11 #673444Sæll
Mér vitanlega er ekki hægt að "snúa" klöfunum í Trooper, en aftur á móti er hægt að síkka þá á svipaðan hátt og hefur verið gert við Musso. Með síkkuninni heldur maður sama halla á framöxlum og stífum og hefur upprunalega fjöðrunarsviðið. Það eru einungis neðri klafarnir sem eru síkkaðir, þeir efri eru á sama stað áfram og sett upphækkun á liðhúsið ásamt styrkingu.
Ég gerði þetta við Trooperinn sem ég átti og þetta kom vel út, stórbættir aksturseiginleikar og betri fjöðrun. Mér vitanlega hefur þetta ekki verið gert við aðra Troopera, en þetta eru nokkur ár síðan svo það er möguleiki að einhver annar hafi gert svona.
Þetta er töluverð vinna, tók mig um það bil 80 tíma + aðkeypta vinnu hjá rennismið. Efniskostnaður var hverfandi, í það minnsta miðað við vinnuna sem fór í þetta.
Því miður á ég ekki neinar myndir af þessu, þær töpuðust af harða diskinum.Kveðja
Steinmar
03.12.2009 at 23:04 #669982Hvernig á þetta að virka á mjög breiðum felgum ? Þetta virkar sjálfsagt fínt þegar menn aka um á skurðarskífum, þar sem er nóg af hríslum til að hnýta í, en ég get ekki séð að þetta virki á breyttum jeppa einhversstaðar í miðjum snjóskafli eða krapapytti.
Kv. Steinmar
26.11.2009 at 20:24 #668884Þetta er að öllum líkindum keflablásari af Volvo Penta vél. Þeir virkuðu þannið að vélartölvan virkjaði þá við ákveðið álag á lágsnúningi. Þegar álagið minnkaði og afgastúrbínan byrjaði að byggja upp þrýsting í soggreininni, var keflablásaranum kúplað út og afgastúrbínan tók við að þjappa loftinu inn á grein.
Jæja, að spurningunni, eða öllu heldur einhverskonar svari………..
Ef þú notar þetta á innspýtingarmótor er alveg möguleiki að nota blásarann, en ég efa stórlega að þetta sé nothæft með blöndungsmótor. Hugsanlegur ókostur gæti verið að þetta skili ekki nógu loftmagni við hásnúning og svelti þar með mótorinn.
Ég segi bara að; það sem er ekki hægt tekur bara aðeins lengri tíma.
Gangi þér vel.
Kv. Steinmar
26.11.2009 at 11:32 #668816Vanalega er ádreparinn á svona vél, segulspóla sem straumi er hleypt á þegar þú svissar á bílinn. Það þýðir að þú tengir sviss-straum á spóluna, getur líka notað svissinn til að stjórna spólurofa sem aftur stjórnar segulspólunni.
Þetta er venjulega þannig að það er standandi straumur á segulspólunni sem opnar fyrir olíuna og þegar svissað er af, hleypur segullokinn til baka og drepur á vélinni.
Segullokinn er, ef ég man rétt, staðsettur á olíverkinu.Kv. Steinmar
26.11.2009 at 11:27 #668784Talaðu við Ægi á Renniverkstæðinu, hann er búinn að smíða mikið af öxlum fyrir okkur jeppakalla í gegnum tíðina. Þessir öxlar gefa innfluttum öxlum ekkert eftir og eru náttúrlega íslenskur iðnaður og handverk.
Kv. Steinmar
-
AuthorReplies