Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
09.05.2005 at 17:56 #522356
Þetta tókst frábærlega. Hátt í klukkutíma var lestin að renna framhjá Alþingishúsinu með flautublæstri og sú fjölmiðlaumfjöllun sem þegar er komin hefur verið mjög góð. Glanni var flottur á Rás 2 þarna upp úr kl. 17.
10 prik til Glanna, Helenu og Einars Elí.
Kv – Skúli
09.05.2005 at 13:01 #522344Þetta var flott frétt og okkar maður kom vel út. Það er hægt að hlusta á fréttatímann á netinu með því að fara hérna:
http://www.bylgjan.is/template12.asp?PageID=2043Kv – Skúli
06.05.2005 at 11:56 #522218Það má nefna að einmitt nýrri ritnefnd Setursins bíður spennandi verkefni sem er að leggja góðan grunn fyrir útgáfuna. Vísa þar í ágætan þráð sem Ofsi setti af stað um Setrið. Samkeppnin á auglýsingamarkaði hefur aukist og gengið frekar erfiðlega að fá inn auglýsingar sem gerir það að verkum að það er sjálfsagt að staldra við og spá í hvort hægt sé að gera hlutina með öðrum hætti. Hins vegar kom það berlega í ljós á þræðinum sem ég nefndi að margir vilja fá sitt Setur. Það hljóta að vera margir með frábærar hugmyndir um hvað sé rétt að gera í þessu, hvort sem er að breyta útgáfunni eða skapa núverandi útgáfu betri grunn og þá er bara málið að bjóða sig fram í nefndina og koma hugmyndunum í framkvæmd.
Kv – Skúli
04.05.2005 at 12:58 #522164Kortið yfir lokuð svæði er komið upp hjá Vegagerðinni (http://www.vegagerdin.is/vefur2.nsf/Fil … alendi.jpg). Skyggðu svæðin eru lokuð fyrir umferð og Dómadalsleið er á skyggðu svæði. Nú sýnist mér lítið annað að gera en að bóna. Þó halda þeir Húsafellsleiðinni á Langjökul opinni, þannig að í verstu fráhvarfsköstunum er hægt að renna þangað. Rétt að hafa þetta kort í bookmark.
Kv – Skúli
03.05.2005 at 09:50 #522124Þessi síðasta tillaga að skoðanakönnun er góð. Í gegnum árin þegar allt á vefnum var opið fyrir hverjum sem er og hægt að logga sig inn í algjörri nafnleynd, heyrðust oft þær raddir að þetta ætti aðeins að vera fyrir félagsmenn. Þó komu yfirleitt mótbárur á að spjallið væri aðeins fyrir félagsmenn, því utanfélagsmenn hafa oft komið með ágæta punkta. Nú er myndaalbúm lokað og læst ásamt smáauglýsingum en þá heyrist talsverð gagnrýni á það. En þá vaknar spurningin, geta allir tekið þátt í könnuninni eða eru það bara félagsmenn? Ef allir geta tekið þátt er niðurstaðan kannski sjálfgefin.
Annað sem hefur komið upp í umræðu er það hvort taka eigi burt þann möguleika að birta bara notendanafn á vefnum þannig að á spjallinu sjáist alltaf fullt nafn. Fullt nafn er alltaf á bak við hvert notendanafn og ef einhver eys hér upp meiðyrðum yfir einstaka menn eða gerir hér eitthvað sem er yfir öll strik er alltaf hægt að rekja viðkomandi. Hins vegar sjá lesendur ekki hvern um er að ræða og geta því verið að rökræða við menn sem fela sig bak við grímu. Á að banna mönnum að fela sig með þessum hætti?
Kv – Skúli
02.05.2005 at 22:35 #522010Ég held að öll þau varnaðarorð sem Arnþór setur fram eigi vel rétt á sér. Mín niðurstaða er samt ekki sú að þetta þýði að rétt sé að hverfa frá öllum hugmyndum um eigið húsnæði heldur að það þarf að skoða vel hvort klúbburinn standi undir fjárfestingunni og hvort það setji öðrum þáttum starfseminnar skorður. Það eru auðvitað til dæmi um víti sem þarf að varast og Ýmir kannski gleggsta dæmið. Munurinn er hins vegar að Karlakór Reykjavíkur telur félagsmenn ekki í þúsundum. Það er því ekki sjálfgefið að við lendum í sömu gryfju. Félagsheimili fyrir klúbbinn getur lyft starfinu heilmikið upp og opnar á ýmsa möguleika. Ég held t.d. að það sé staðreynd að fimmtudagskvöldin líði svolítið fyrir aðstæður í risinu, þó svo reynt hafi verið að lyfta þeim upp með reglulegum myndasýningum. Það að hafa aðeins afnot af einskonar félagsheimili þó á reglulegum grunni sé, setur því ákveðnar skorður hvað hægt er að gera til að skapa stemningu í kringum starfið. En vissulega þarf að skoða vel í þessu sambandi hvort klúbburinn standi undir þessu og hvort þetta taki of mikið power úr starfseminni. Það er líka alveg rétt að við höfum örugglega góða möguleika á auknu samstarfi við FÍ sem getur leyst úr ýmsu varðandi húsnæðismálin á mjög hagkvæman hátt. Þetta er allavega ákvörðun sem þarf að taka að vel athuguðu máli.
Lúther, skýrslan er svo nýlega komin fram að ekki hefur verið tekin afstaða til þess hvaða ákvörðun verður lögð fram á aðalfundi. Nefndin leggur til að stjórn skipi bygginganefnd til að vinna málið áfram eins og kemur fram í lok skýrslunnar. Ég get hins vegar ekki svarað sem stendur hvað verður lagt til að stjórn fái mikið umboð til að taka ákvarðanir. Fyrst er væntanlega að sjá hvort möguleiki sé að fá fyrirgreiðslu hjá borginni varðandi lóð, því það er líklegt að lóð undir svona byggingu á frjálsum markaði dagsins í dag getur vegið þungt í heildarkostnaði.
Kv – Skúli
02.05.2005 at 10:35 #520964Það er alveg ljóst að það hefur farið fyrir brjóstið á mörgum að hægt sé að ferðast á tiltölulega hagstæðan hátt með því að kaupa dísel upptíning og borga bara 140 þús eða svo í þungaskatt á ári.
Þetta málþing var í sjálfu sér ágætt og margt rætt og mörg sjónarmið sem komu fram. En ég er á því að við megum ekki láta umræðuna um utanvegaakstur innan okkar raða drukkna í gagnkvæmum fordómum milli mismunandi ferðahópa eða sleggjudómum sem við verðum fyrir hér og þar úti í samfélaginu. Það hefur alltaf verið eitt af aðalsmerkjum klúbbsins að berjast gegn utanvegaakstri og því miður er langur vegur frá því að það hafi unnist einhver sigur í því. Ég hef allavega bæði séð ljót dæmi um utanvegaakstur eða ummerki eftir slíkt í mínum ferðum og nokkuð viss um að fleiri þekki það. Og ekki eru það alltaf útlendingar eða mótorhjólamenn sem þar hafa verið á ferðinni þó þessir hópar séu mest í umræðunni. Ég held að þessi hugarfarsbreyting sem varð fyrir 20 árum þurfi stöðugt sitt viðhald. Við ættum að hamra járnið í því núna meðan það er heitt og umræðan í gangi, en auðvitað þurfum við líka að leiða aðra sem að þessu máli koma inn á réttar brautir, eins og í þessu 50 cm. ákvæði í reglugerðinni. Það auðvitað er alveg útúr kortinu og myndi gera mikinn skaða fyrir alla þessa baráttu.Kv – Skúli
02.05.2005 at 10:32 #522000Ég sé enga mynd, er hún dottin út eða er eitthvað að hjá mér.
Kv – Skúli
01.05.2005 at 19:31 #520134Sælir. Veiðikortið býðst félögum í 4×4 klúbbnum með 20% afslætti eða á 4000 kr. Endilega notfærið ykkur það.
Kv -Skúli
30.04.2005 at 17:48 #521970Skýrsla húsnæðisnefndar finnst mér mjög athyglisverð lesning og ég treysti þeim sem að henni eru fullkomlega til þess að vera að leggja upp fyrir okkur dæmi sem er fullkomlega raunhæft. Þeir þekkja þær forsendur sem þarf að gefa sér í þessu og ef sú forsenda sem snýr að leigukostnaði er vanmetin (sem ég veit svosem ekkert um) þá er það bara til að styrkja niðurstöðurnar eins og Jón Ebbi bendir á. Ég er allavega viss um að núverandi leigukostnaður er ekki vanmetinn þarna.
Eins og þeir benda á er viðbótarkostnaður umfram aðrar lausnir algjörlega í eignamyndun fyrir klúbbinn. Þá eigum við bara eftir að svara þeirri spurningu hvort klúbburinn geti staðið undir þeim kostnaði og hvort vilji félagsmanna sé til þess að leggja í þann kostnað. Um það verður væntanlega fjallað á aðalfundinum. Reyndar hef ég alla trú á því að verði skipaður húsnæðishópur til að vinna í þessu máli, muni hann geta fundið ýmsar leiðir til að lækka þann kostnað. En ákvörðunin þarf samt að byggja á því að við klúbburinn standi ekki í greiðsluerfiðleikum og geti staðið undir ákvörðuninni hvernig sem kaupin gerast á eyrinni.
Kv – Skúli
29.04.2005 at 22:26 #521946Vegurinn inn að Langjökli frá Húsafelli er rauðlitaður sem þýðir ófært, en þá fyrir venjulega bíla. Það er hins vegar ekki lokað (guli hringurinn) eins og er á flestum öðrum leiðum, en þar sem það er er beinlínis allur akstur bannaður.
Kv – Skúli
29.04.2005 at 20:14 #521938Núna er náttúrulega kominn þessi vortími þegar hálendisleiðir eru lokaðar og örugglega mjög hæpið að fara á Skjaldbreið, enda búið að vera mjög hlýtt. En er ekki ennþá hægt að komast á Langjökul um Húsafell?
Kv – Skúli
28.04.2005 at 10:20 #521770Margt athyglisvert í þessu. Sérstaklega punktar 1, 3, 5 og 6 því það er líklegt að menn sem lítið fara upp fyrir Ártúnsbrekku átti sig ekki á þessu. Ég hef minni áhyggjur af þessu með að víkja af einbreiðum vegi eða leggja til hliðar við veginn. Ef einhver myndi ætla að framfylgja því út i ystu æsar yrði fljótt allsherjar katastrófa í gangi og skv. gömlu reglugerðinni og lögunum er þetta í sjálfu sér bannað en engum dottið í hug að túlka það með þessum hætti eða framfylgja. En það væri verra ef hægt verður að hengja menn fyrir að þræða sig aðeins upp með ám til að leita að vaði, eða finna færa leið gegnum jökulruðning.
Kv – Skúli
26.04.2005 at 15:11 #521778Heimsóknir síðustu daga hafa verið á bilinu 3500 til 5000. Ég hef ekki aðgang að tölum frá því á sama tíma fyrir ári en frá nóv og til dagsins í dag er þetta á þessu róli.
Ég veit samt ekki hvort hægt sé að álykta að það að fáir tjái sig um þetta hérna á vefnum þýði að lítill áhugi sé á málinu.
Kv – Skúli
26.04.2005 at 09:41 #521764Ég get fullvissað Benna um að þó við hlæjum að þessu 50 cm ákvæði þýðir það ekki að við sofnum á verðinum gagnvart því. En við höfum ástæðu til að ætla að þetta fáist út. Til skýringar á þessu ferli þá vann Umhverfisstofa drög að þessari reglugerð og þar var lögð sú skilda á herðar ferðamanna að meta aðstæður og m.a. hvort snjódýpt sé nægjanleg og aðstæður þannig að akstur valdi ekki skemmdum. Eins og Eik segir fannst þeim sem gengu frá reglugerðinni í ráðuneytinu að þetta þyrfti að vera þanngi að að hægt sé að skera úr um á hlutlægan hátt hvort aðstæður séu í lagi eða ekki. Feillinn liggur hins vegar í því að skilyrðið sem er sett skiptir í flestum tilfellum litlu máli í þessu og svo því að snjór liggur ekki í jafnþykku lagi yfir hálendið heldur er misþykkur og ekki hægt að ferðast á löglegan hátt um hálendið ef þetta fer í gegn. Þessu gera starfsmenn Umhverfisstofu sér grein fyrir (ég ræddi við lögfræðinginn þar) og að því ég best gat séð á kynningafundinum áttuðu starfsmenn ráðuneytisins á að þeir væri á villugötum. Þó ég sé vissulega oft bjartsýnn þá er bjartsýni mín núna byggð á einhverju.
Kv – Skúli
25.04.2005 at 23:09 #521732Eiginlega er ég algjörlega ósammála þér þarna Jóhannes. Mér finnst t.d. hið besta mál að tekið sé á ríðandi umferð um hálendið, enda oftar en einu sinni séð moldarflag þar sem áður var gróið svæði eftir að hestastóð fór um. Ég hef að vísu ekki nógu mikið vit á grasmótoraferðum til að gera mér grein fyrir hvort þessar tillögur séu raunhæfar og framkvæmanlegar, en það er löngu orðið tímabært að taka á þessu. Reikna með að Landsamband hestamanna fari yfir þetta og gerir þá breytingatillögur ef þarf. Eins er sjálfsagt að reiðhjólin lúti einhverjum reglum, þó sjálfsagt hafi þau ekki verið stórt vandamál á við blessaðar bykkjurnar. Ég fatta hins vegar ekki alveg afhverju torfæruhjólin eru ekki inni.
Eina breytingin hvað okkur varðar er að vísu alveg útúr kortinu og nógu langt frá öllum raunveruleika til þess að það ætti að vera nánast formsatriði að fá því breytt. Þar á ég við þessa 50 cm reglu. Við skilum bara inn umsögn og bendum á að hvorki sé framkvæmanlegt að framfylgja þessu né heldur að þetta sé það sem raunverulega skiptir máli. Með björgunarsveitirnar þá er í gildi sama eða sambærileg undanþága og var áður. Og 8. greinin er óbreytt frá fyrri reglugerð (var þar 4. grein). Eins og þetta er þarna er ferlið svo þunglamalegt að það er ekki hægt að beita því, þar sem ef aðstæður kalla á að svæðum sé lokað eru allar líkur á að aðstæður séu orðnar allt aðrar þegar lokunin tekur gildi. Þess vegna hefur þessu aldrei verið beitt, hvort sem það er jákvætt eða neikvætt. Vegagerðin getur náttúrulega lokað leiðum, en þá bara á grundvelli aurbleytu á slóðum og ef menn fylgja því að aka aðeins utan vega á frosinni og snævi þakinni jörð og meti aðstæður af ábyrgð á þetta ekki að vera neitt vandamál.
Ég hefði að vísu viljað sjá að refsirammanum væri breytt þannig að hægt sé að beita einhverjum alvöru viðurlögum við náttúruskemmdum. Það var t.d. fáránlegt að útlendingarnir sem þeystu um allar trissur í nágrenni Herðubreiðarlinda í fyrra slyppu með að borga skitnar 15 þús. fyrir að valda stórfelldum skemmdum á landinu okkar.
Kv – Skúli
23.04.2005 at 23:53 #520946Eins og Einar og Ofsi segir hefur klúbburinn þessa reglugerð til umsagnar og er planið að nokkuð stór hópur komi að því að vinna þá umsögn, þ.e. stjórn, umhverfisnefndin og slóðahópurinn sem taldi eitthvað milli 10 og 15 manns. Meginathugasemd okkar verður að sjálfsögðu við þessa 50 cm skilgreiningu og í ljósi þess að umhverfisstofa og auðvitað allir sem þekkja til vetraraksturs sjá í hendi sér að sú skilgreining sé óraunhæf, hlýtur að vera að það ákvæði fáist út.
Með utanvegaakstur, þ.e. raunverulegan utanvegaakstur þar sem menn keyra á auðri jörð og skilja eftir sig för, þá er það örugglega ýkt mynd að þetta sé stórfellt vandamál miðað við þann fjölda sem er að ferðast um hálendið. Það eru hins vegar nokkur tilfelli þekkt, m.a. voru tvö mjög slæm tilfelli sem komu upp síðasta sumar. Þó ekki væri nema eitt tilfelli þá væri það of mikið því afleiðingarnar sjást oft áratugi á eftir jafnvel þó reynt sé að laga eftir það. Frá upphafi hefur það verið eitt af aðalmálum klúbbsins að berjast gegn utanvegaakstri og þess vegna vill klúbburinn vera þátttakandi í allri viðleitni til að sporna gegn þessu. M.a. fór umhverfisnefndin í vettvangskönnun á Fjallabak síðasta sumar til að skoða skemmdir þar. Eins leggjum við talsverðan pening í stikun vegslóða, merkingar, skilti og allskonar áróður gegn utanvegaakstri og markmiðið með þessu öllu er ekkert minna en að þetta verði óþekkt vandamál. Við erum hins vegar ekki komin á þann punkt ennþá, því miður.
Auk þess er þátttaka okkar í aðgerðum gegn utanvegaakstri mikilvæg af því við höfum innsýn í ferðalög á hálendinu, vitum hvernig þau ganga fyrir sig og höfum því betri þekkingu á því hvað þarf að gera og hvaða aðgerðir þarf, en um leið þurfum við að koma í veg fyrir að farið sé í aðgerðir sem ekki skila árangri en setja hömlur á ferðalög þeirra sem ferðast á ábyrgan hátt. Dæmi um það er þessi 50 cm skilgreining sem skiptir engu máli gagnvart náttúruskemmdum en gerir vetrarferðir í raun óframkvæmanlegar. Sem betur fer virðast starfsmenn umhverfisstofu gera sér grein fyrir því, þó einhverjir starfsmenn ráðuneytisins sem að málinu komu átti sig ekki á hvernig hlutirnir virka í raun.
Kv – Skúli
22.04.2005 at 18:42 #521660Rétt að taka fram að Lúther ber alla ábyrgð á þessum texta og á heiðurinn á þessari spennandi uppákomu. Mitt hlutverk var bara að skella inn textanum og veit ekki meira en hver annar lesandi. My mistake var að setja ekki inn rétt nafn undir fréttina.
Kv – Skúli
22.04.2005 at 16:21 #521626Þorsteinn þetta er náttúrulega snilld, en n.b. þetta er LAND ROVER spjall og við náttúrulega vitum að þeir eiginleikar sem tilheyra Rovernum eru kannski ekki allra.
Kv – Skúli
22.04.2005 at 14:32 #521620Þetta með hebresku röðina var tilvitnun í annan þráð, en rangt hjá mér að sú hugmynd hafi komið frá Glowe þó hann hafi að vísu tekið undir það. Það leiðréttist hérmeð. En væri hún tekin upp væri ég vís með að enda hverja ræðu á að leggja til að sú uppsetning yrði aflögð, líkt og Kató gamli. Þetta með tilvísun neðst á þráðunum líkt og var í gamla spjallinu er örugglega ágæt hugmynd. Ég reyndar notaði það ekki á gömlu síðunni því það vísaði manni eiginlega á vitlausan stað, nefnilega upphafssíðu í þeim efnisflokki sem þráðurinn tilheyrði. Efst var hins vegar vísun í upphafssíðu spjallsvæðisins, en hér hefur maður alltaf slíkan link efst, sem er kostur.
Með að skipta upp þráðum. Ég dett stundum inn á Landrover forum sem er með svona fyrirkomulag og það finnst mér frekar leiðingjarnt. Vill bara sjá þetta allt strax, enda sjaldan sem þræðirnir verða svo langir. Rétt eik, ég var með modem og var frekar latur við að fara inn heima þó það kæmi fyrir. Það var þó ekki langir spjallþræðir sem voru hindrun, nema hvað ég forðast tækniþráðinn um Pajero (enda ekkert áhugavert í honum) og þráðinn um "sjálfstætt fjöðrunarsvið" (eða var það ósjálfrátt fjöðrunarsvið?). Að öðru leiti voru svona hreinir textaþræðir fljótir upp, svo fremur sem menn hafi ekki verið að troða myndum inn í þá. Aðallega er bara svo leiðinlegt að þurfa að standa í að hringja inn!
-
AuthorReplies