Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
23.02.2016 at 15:57 #936624
Fór þessa leið síðast í haust og veit ekki til þess að það það séu uppi hugmyndir um að loka henni. Að vísu smá brölt á köflum en ekki verri en margt annað.
15.02.2016 at 22:08 #936525Gilið þar sem þrengingin er milli steinanna heitir Þvergil. Veit ekki nafnið á litla gilinu sem farið er ofan í þarna fyrst þegar ekið er frá Mosum.
26.01.2015 at 14:24 #77630920.01.2015 at 21:06 #776206Í sjálfu sér er þetta ekki svo mikið sem krafa er gerð um að sé í sjúkrakassanum, en ég hef reyndar alltaf sett aðeins spurningamerki vð að vera með lyf (verkjatöflur) að staðaldri í bílnum. Hef þær hins vegar alltaf með í ferðum.
Annað sem ég er alltaf með í bílnum og er það sem ég hef oftast þurft að grípa til og það eru grisjur með brunageli (Burn-Free). Mín reynsla er að þetta virki gríðarlega vel og skiptir miklu við slæmum brunasárum.Vildi bara benda á þetta, því eins og ég segi hefur þetta komið oftar en einu sinni í góðar þarfir hjá mér. Og svo það sé á hreinu þá er ég ekki að selja þetta og ekki frændi minn heldur.
21.07.2014 at 16:42 #770102Stundum hefur maður heyrt um grjótharða fjöðrun, en aldrei vitað til þess fyrr að hægt sé að taka því bókstaflega. En alltaf gaman að heyra sögur af svona reddingum, það eru engin takmörk fyrir því hverju menn taka upp á.
17.07.2014 at 16:32 #770049Gæti verið athyglisvert að skoða niðurstöður úr könninni hér á vefnum sem er væntanlega hugsuð til að sjá hversu meðvitaðir félagsmenn eru um Skeljungssamninginn. Ein spurning fannst mér þó mjög ruglingslega sett upp og það er þessi um hvað ræður því hvar menn versla. Þar er merkt við 3, 2 eða 1 en röðin í spurninginni er með öfuga númeraröð (3,2,1) en fyrir neðan þar sem merkt er við er röðin rétt (1,2,3). Auk þess er 3 það sem er mikilvægast en 1 minnst mikilvægast. Væri eðlilegra að merkja 1 við það sem er í fyrsta sæti. Það þarf semsagt að lúslesa spurninguna til að að átta sig á hvernig á að svara, en svona könnun svara menn yfirleitt á hlaupum. Efast því um að mikið verði að marka niðurstöðuna á þessari spurningu.
Kv – SkúliViðhengi:
25.06.2014 at 19:25 #769596Vefur Vegagerðarinnar hefur raunar svarið við þessu. Dómadalsleið og Nyðra Fjallabak er orðið fært og þá væntanlega jafn fært fyrir Kia eins á öðrum tímum sumars. Syðra Fjallabak ennþá lokað og samkvæmt upplýsingum sem ég hef er snjóblásari og hefill að vinna í að opna vegi á því svæði.
16.06.2014 at 22:32 #769479Reyndi einu sinni við þennan slóða síðla sumars, tilefnið var ferlun á honum fyrir LMÍ og F4x4. Vaðið á Austari-Jökulsá reyndist dúandi sandbleyta þannig að ég þakkaði fyrir að komast aftur að sama bakka. Þetta var á 38 tommum, þannig að 33 tommu patti með fellihýsi held ég að sé tæpast málið þarna.
Fellihýsi, er það annars ekki eitthvað sem fólk notar á malbiki.
19.03.2014 at 23:14 #454317Læk á tvö síðustu innlegg. Greinilegt á því sem Óskar segir að innan klúbbsins er tekið á því með réttmætum hætti ef menn sýna af sér ólíðandi hegðun. Það er vel og einhver opinber aftaka er ástæðulaus viðbót þar á.
Greining Hjartar á blaðamennsku DV er líka nákvæmlega beint í mark, þeirra markmið er oft fyrst og fremst að næra kverúlantana sem lifa og hrærast í athugasemdakerfinu þeirra og þá skiptir engu hvort einhver glóra er í skrifunum. Jafnvel þegar DV er að hengja stjórnmálamenn eða útrásarvíkinga tek ég því með fullum fyrirvara, hvað þá þegar venjulegt fólk á í hlut.
17.03.2014 at 23:24 #454247Sé að það hefur ekki verið mjög fjörleg umræða um þetta mál en það er klárlega stórt hagsmunamál fyrir klúbbfélaga. Til að spurningu Jóns (þó seint sé) þá var Sveinbjörn formaður fulltrúi SAMÚT í þessum samráðshóp. Samráðið var þó ekki eins og maður hefði viljað sjá það því umræðan þar mátti aðeins vera um útfærslu á þeirri niðurstöðu sem ráðuneytið var búið að ákveða, þ.e. náttúrupassa í þeirri mynd sem hefur verið í umræðunni síðustu daga.
Það er ýmislegt í þessum hugmyndum sem vert er að hafa áhyggjur af, en veigamest í því er að þetta gengur þvert á almannarétt og eiginlega hlýtur að gera hann ómerkann. Ég setti í dag pistil um það inn á vef Útivistar, leyfi mér að linka á hann hér.
http://www.utivist.is/gaman-med-utivist/nanar/382/hvada-tud-er-thetta-um-almannarett
Kv – Skúli
04.03.2014 at 09:50 #453622Endurvarpar 4×4 eru lykilatriði í dag fyrir öryggi í hálendisferðum og mjög víða eini möguleikinn til að ná sambandi. Frásögn Jóns hérna efst er ein sönnun þess og ég veit um annað svipað dæmi. Þá var líka um að ræða skíðagönguhóp á Vatnajökli, í því tilfelli frá Útivist. Fararstjóri ákvað að breyta plani og koma niður annars staðar en upphaflega var gert ráð fyrir og kom skilaboðum um það ég gegnum endurvarpan við Háskerðing í skálann við Strút. Örugglega til margar svipaðar sögur. Þessi uppbygging klúbbsins er tvímælalaust ein af stóru vörðunum í starfinu. Frumkvæðismenn í þessu eiga heiður skilið en þar fór að sjálfsögðu fremstur Siggi Harðar sem vann ómetanlegt starf fyrir klúbbinn og gerði það að verkum að þessi uppbygging kostaði smápeninga miðað við það sem eðlilegt hefði verið. Einnig Eðvald Geirsson sem var lengi formaður fjarskiptanefndar.
22.02.2014 at 17:25 #452802Held að svona umræða hafi komið áður hér, en annars er ég á því að maður skilgreinir ekki jeppa, maður keyrir þá. En ef Jimny er ekki jeppi þá er gamli litli Jeep það ekki heldur og þá eru nú skilgreiningarnar komnar í hring.
17.02.2014 at 14:28 #452336Ágæt áminning á að vera ekki einbíla á jöklum, þó ekki sé nema til að það þurfi ekki að ræsa út björgunarsveitir til að losa menn úr festum. Og svo auðvitað að vera með á hreinu hvernig menn athafna sig á sprungusvæðum.
06.02.2014 at 23:17 #451476Þetta er náttúrulega eðall að hafa sérstakann grillskála við Setrið til að nota í vonum veðrum. En er það virkilega til í dæminu að menn hafi verið að bræla inni í skála af því þeir þori ekki út í goluna með grillið? Það flokkast ekki undir að vera góðir ferðafélagar og fjallamenn. Stundum hefur maður þurft að gera snjóhús fyrir grillið eða reisa skjólvegg, en að bræla inni í skála er óþolandi.
17.01.2014 at 13:43 #444297Þetta er mjög flott framtak, ég er til í eina svona stöð. Hvað heitir hún, hvaða týpa er þetta?
Kv – Skúli
23.07.2013 at 12:18 #766873Kærar þakkir
Kv – Skúli
22.07.2013 at 13:40 #226338Þið sem þekkið Vikrafellsleið afturábak og áfram, hvort er skemmtilegra að fara hana til austurs eða vesturs? Er hún fær öllum jeppum síðsumars eða eru einhverjar hindranir sem geta verið erfiðar óbreyttum? Eitthvað sem vert er að hafa í huga þegar farið er með óbreytta jeppa þarna?
Kveðja – Skúli
23.01.2013 at 21:25 #760965Tók þessu sem upphitaðri framrúðu og fór því að velta fyrir mér örlögum viftunnar góðu. Gott að vita að hún sé í lagi og ekki þurfi annað en að endurnýja teipið. Bara haltu þig við teipið, ekki fara í eitthvað skrúfuvesen.
Landróver með rafmagnsupphalara, það er hrollvekjandi tilhugsun (eða Hrollvekjandi tilhugsun!).
21.01.2013 at 22:45 #760957Landrover rafmagnsrúður eru örugglega ágætar, en vert að hafa í huga að Landróver og rafmagnsbúnaður er yfirleitt ekki góð blanda þannig að þú skalt ekkert sérstaklega gera ráð fyrir að þetta dót virki. En hvað, var litla rafmagnsviftan sem ég sá einhvern tíman hjá þér upp á mælaborðinu búin að gefa upp öndina? Allt frá því ég sá þennan eðalbúnað hefur mér dreymt um svona græju í Breska heimsveldið.
Kv – Skúli
11.01.2013 at 23:51 #762545Dóri er þetta ekki bara tilhugsunin um að selja Landann sem leggst svona illa á sálina. Vissulega rétt að lífleikinn hefur stundum verið meiri hérna, en hárrétt sem Bragi segir að það eru spjallverjar sjálfir sem skapa hann. Ofsi átti nú til hérna einu sinni að henda inn einhverri vitleysu bara til að láta menn rífast um það. Nú er hins vegar orðið svo fjandi þreytt að rífast um Patrol vs. Toy og enginn nennir lengur að tala um Ferðafrelsi hér, enda komin sérstök Facebook síða fyrir þann nördaflokk. Í ofanálag ekki hægt að velta fyrir sér hvaða 38 tomma er best því það er bara ein tegund á markaðnum. Vantar held ég eitthvað nýtt til að nördast yfir, er það kannski núna spurningin um valið á milli Ford og Sprinter, það gæti kannski æst einhverja!
Kv – Skúli
-
AuthorReplies