Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
24.11.2012 at 17:16 #760935
Mikið er gott að vita að Hrollurinn fær gott viðhald, svona menningarverðmæti meiga ekki glatast.
Kv – Skúli
21.10.2012 at 22:02 #759603Þetta er réttur skilningur hjá þér. Þegar Vegagerðin setur upp skilti sem stendur á Ófært og Impassable (ekki impossible heldur impassable eða ófær) þýðir það einfaldlega að vegurinn er ekki þjónustaður eða ruddur og getur allt eins verið ófær. Þannig skilti eru við alla hálendisvegi allan veturinn, en þér er heimilt að fara veginn á eigin ábyrgð (hvað sem það þýðir). Þetta er allt annað en þegar stendur Lokað og kringlótta merkið allur akstur bannaður er uppi. Það kemur upp á vorin þegar leysingar byrja og þá er beinlínis bannað að fara um vegina.
Kv – Skúli
10.10.2012 at 19:58 #758707Veit til þess að svona vél hafi gengið 500 þús km án þess að vera opnuð, enda sterkbyggð og með almennilegar stærð á legum. Mín er komin yfir 200 þús og ekki annað að sjá en hún eigi mikið eftir (í Defender). Það þarf að passa upp á að skipta um tímareim á réttum tíma (80 þús.) þar sem allavega sum eintök eiga að éta þær upp. Held að þetta sé eini veikleikinn. Reimarnar litu samt ágætlega út hjá mér þegar við skiptin en ég er á þriðju reiminni. Ég setti 3" rör án kúta og við það jókst torkið enn frekar, eyðsla minnkaði en eðlilega hávaði jókst. Hefði kannski verið betra að setja opinn kút á rörið. Maður þarf bara að passa að leyfa túrbínunni að stoppa áður en maður drepur á eftir akstur á fullum damp því þegar mótstaðan í rörinu minnkar er túrbínan lengur að stoppa og missir smurningu þegar drepið er á vélinni. Vélin frekar sparneytin, mín er að eyða 12-13 lítrum á 38 tommu dekkjum.
Held að drifbúnaður sé talsvert svipaður á Disco og Defender af þessari árgerð. Öxlar mættu vera sterkari en á móti má segja að það er ágætt að hafa veikasta punktinn þar frekar en í drifunum, enda auðvelt verk að skipta um öxla. Það er líka stór kostur við Landrover að varahluti er almennt hægt að fá á mjög góðu verði hjá BSA í Kópavogi og alveg frábær þjónusta sem maður fær þar. Það er eiginlega stærsti kosturinn við að eiga Landrover.
Kv – Skúli
09.10.2012 at 21:27 #758701Er þetta 4 cyl vélin Tdi300? Ef svo er þá býr hún já yfir leyndardómi, torkar mjög skemmtilega og því skemmtileg sem jeppavél. Ekkert sú sprækasta upp og þú ert kannski ekkert mikið í frammúrakstri í Kömbunum, en á fjöllum er hún fín. Eða er þetta 5 cyl vélin, Td5?
Kv – Skúli
08.10.2012 at 22:24 #758609Hér er umfjöllun um atvikið:
[url:2a1n19t1]http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/10/08/matti_engu_muna_ad_thad_yrdi_storslys/[/url:2a1n19t1]
17.09.2012 at 09:56 #757691Er með MickeyTompson MTZ undir Defender 110 (rétt rúm 2 tonn tómur) og nokkuð ánægður með þau. Grípa vel og éta sig vel áfram og hreinsa sig vel. Þarf samt að hleypa vel úr þeim til að fá þau til að leggjast vel, samt ekki of mikið þannig að þau nuddist ekki að innan. Ágætt keyrsludekk, en vissulega frekar breið sem eykur álag á legur o.fl.
Kv – Skúli
07.09.2012 at 22:07 #757327Steinmar spyr hvernig menn ætla að skilgreina hugtök en það er einmitt það sem er gert í lagasetningunni og er algengt að lagabálkar byrja á því að hugtök sem eru notuð eru skilgreind. Merking þeirra þarf því ekki endilega að vera eitthvað sem mér finnst þau þýða heldur er skilgreint hvað þau þýða í umræddum lögum. Hér er merkingin því eins og Hjalti benti á:
"Óbyggð víðerni skulu vera a.m.k. 25 km2 að stærð og að jafnaði vera í a.m.k. 5 km fjarlægð frá mannvirkjum og öðrum tæknilegum ummerkjum, svo sem raflínum, orkuverum, miðlunarlónum og uppbyggðum vegum."
Semsagt svæði sem er t.d. 24 km2 en uppfyllir öll önnur skilyrði er ekki óbyggð víðerni, ef uppbyggður vegur liggur í gegnum svæðið er það ekki óbyggð víðerni en ef slóði sem fylgir landinu sker svæðið hefur það ekki áhrif.
Kv – Skúli
06.09.2012 at 11:22 #757317Þetta er góður punktur Hjalti. Í þrengstu skilgreiningu á "ósnortnum víðernum" er ekki gerður greinarmunur á lítt sjáanlegum vegslóða og raforkuveri, en þessi skilgreining á "óbyggðum víðernum" virðist samkvæmt þessu taka tillit til þess að frumstæð vegslóð veldur ekki sömu truflun og Suðurlandsvegur. Þetta er mikilvægt.
Kveðja – Skúli
30.08.2012 at 10:41 #757091Góð grein hjá Hafliða, við erum örugglega mörg hér sem minnumst Freysa með hlýhug. Mér er mjög minnistætt þegar ég leitaði til hans fyrst af því mig vantaði ferla á Jökulheimaleiðinni. Þekktumst þá ekkert og ég bara einhver græningi sem ekkert vissi eða kunni. Ég fór til hans inn í Toyota á Nýbýlaveginum þar sem hann var með skrifstofu í einu horninu á hæð sem var tóm að öðru leiti. Þaðan fór ég út uppfullur af fróðleik og með fjöldann allan af ferlum, það stóð aldrei á því að Freysi gæfi sér tíma til að miðla af þekkingu sinni.
Kveðja – Skúli
21.08.2012 at 22:54 #756835Tek undir samúðarkveðjur til fjölskyldunnar, missir þeirra er mikill. Hann var tvímælalaust í hópi þeirra sem hafa lagt hvað mest af mörkum í þróun jeppamennskunnar. Það var alltaf gaman að spjalla við Freysa og gott að leita ráða hjá honum, óspar á upplýsingarnar.
Kveðja – Skúli
25.07.2012 at 19:07 #755763Skálinn við Bræðrafell er beint í vestur frá Herðubreið. Styðsta leið frá akvegi í skálann er frá veginum sem liggur að uppgönguleiðinni á Herðubreið. Það hefur raunar ekki breyst því þaðan er styttra heldur en frá Vikrafellsleið. Munar reyndar ekki miklu, en aðeins styttra frá Herðubreiðarveginum.
Kv – Skúli
17.07.2012 at 16:54 #755909Skálinn er þar og er örugglega opinn en ég held að hann myndi seint teljast þokkalegur til gistingar. Eiginlega þarf að vera fjandi vont veður til að maður fari að leggjast þar til hvílu. En það er athyglisvert kort þar upp á vegg sem sýnir fyrri tíma hugmyndir um virkjanalón í Þjórsárverum sem hefði gárað þarna upp undir skáladyrnar.
Kv – Skúli
01.07.2012 at 12:53 #755439Held ég geti sagt að þetta hafi verið vel heppnuð ferð og heilmikið sem við komumst yfir að laga. Sérstaklega kom á óvart hvað náðist að gera við ljótustu förinn í mýrinni, því þó seint sé hægt að jafna þetta að fullu tókst að gera þau minna áberandi og opna á möguleika fyrir náttúruna að græða sjálf sárið. Maður verður hins vegar alltaf jafn hissa þegar maður sér svona för, hvernig mönnum dettur í hug að fremja svona skemmdarverk. Skammt frá voru önnur för úti í mýrina, líklega nýleg. Þau enduðu greinilega með festu.
Kv – Skúli
29.06.2012 at 22:12 #755431Frábært að það bætist í hópinn, kannski ekki hægt að segja að það verði fjölmennur en samt öflugur og góður hópur sem fer af stað kl. 10 í fyrramálið frá Select. Öllum velkomið að bætast í hópinn en gott að hafa með skóflur og hrífur. Eftir að hafa leitað ráða hjá Guðjóni hjá Landgræðslunni var niðurstaðan að ekki væri ráðlegt að svo stöddu allavega að sá í sárin, því slíkar aðgerðir þurfa að taka verulega mið af þeim gróðri sem er þar fyrir. Í þessari ferð má segja að markmiðin séu:
1. Laga það sem við náum að laga.
2. Loka fyrir hættu á að menn elti villuslóðirnar.
3. Skoða og meta frekari aðgerðir.
Hlakka til að sjá ykkur.
29.06.2012 at 09:33 #755421Brottför er frestað til kl. 10. Þetta er til þess að fólk geti kosið sér forseta fyrir brottför en kjörstaðir opna kl. 9. Brottför Select kl. 10.
Kv – Skúli
01.06.2012 at 00:17 #754801Getraun: Hvað þarf margar Toyotur til að draga einn Landrover?
21.05.2012 at 23:27 #754365Ég hef ekki skoðað þetta nákvæmlega en allavega séð að það er örlítið hagstæðara fyrir mig að nota Skeljungsafsláttinn heldur en að nota ÓB lykilinn sem er á kippunni hjá mér. Allavega hefur það verið raunin þegar ég hef reiknað dæmið. Undantekning er fyrsta dæling með ÓB lyklinum, þá er extra afsláttur og þá tók ég eins mikið og ég gat, en það er ekki marktækt.
En ef menn eru að spá í samninga við önnur olíufélög þá er þessi afsláttur bara einn þáttur í samningnum við Skeljung og mér hefur heyrst þessi samningur ótrúlega hagstæður fyrir klúbbinn, svona þegar á allt er litið. Það byggir auðvitað á því að Skeljungur er að fá umtalsverð viðskipti út á samninginn. Hins vegar virkar svona samningar yfirleitt þannig að það gengur ekki að semja við fleiri aðila, þá er enginn ávinningur af því að semja við klúbbinn.
Kv – Skúli
16.05.2012 at 14:34 #739905Með fullri virðingu fyrir mikilvægi ferðafrelsis og umhverfismála, þá er starf tækninefndar eitt það mikilvægasta í klúbbstarfinu og þar hefur verið lyft Grettistökum í að díla við hann Opinbera Geira. Sérstaklega á það við á fyrstu árum klúbbsins en þeir vinningar sem nefndin vann þá hefur með reglulegu millibili þurft að verja fyrir árásum besservissara.
Frábær hugmynd að taka saman gögn um þessi mál, rannsóknir, úttektir og yfirlit yfir þær reglur sem eru í gildi. Við sem keyrum um á breyttum jeppum lendum alltaf öðru hvoru í því að ræða þessi mál og þá er gott að hafa allar staðreyndir á hraðbergi. Stærstu rangfærslunar eða þær mest sláandi í þessari grein um "lausatök yfirvalda" eru reyndar atriði sem snúa að gildandi reglum um bílabreytingar og viðkomandi hefi þvi ekki farið rangt með ef hann hefði kynnt sér þær áður en hann tjáði sig um innihald þeirra. Staðleysum er best svarað með staðreyndum eins og greinin frá okkar mönnum ber glögglega með sér.
Kv – Skúli
14.05.2012 at 21:21 #753565Þessi rauði myndi vissulega lagast mikið ef hvítir brettakantar væru draghnoðaðir á, það er auðvitað rétt. Og sveran og massivan stuðura framan á, sýnist þetta vera svona plastdrasl framan á honum eins og á einhverjum Toyota-tíkum. Veit samt ekki hvort hann myndi verða jeppi við það, ekki frekar en asni verður ekki hestur við það að vera járnaður.
Kv – Skúli
14.05.2012 at 12:04 #739895Snilld. Þessi grein á að vera skyldulesning fyrir alla sem hafa með þessi mál að gera, þarna eru hlutirnir settir í rétt samhengi. Snorri þessi er örugglega ekki síðasti besserwisserinn.
Kv – Skúli
-
AuthorReplies