Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
10.04.2014 at 11:04 #456361
Seld
10.04.2014 at 09:08 #456357Til sölu Kemppi Mineka 130 einfasa rafsuða. Ölflug og góð suða sem sýður td. auðveldlega basa 3.25
Verð: 25.000
Sigurþór s: 861-4262
Viðhengi:
19.11.2013 at 20:51 #438754Sælir,
Ég er að spá í lítilli fartölvu til að nota í jeppanum og keyra með hand gpstæki. Vita menn hvort Intel Atom 1.66 GHz örgjörvi dugi vel til? Tölvan er 10″ Acer Aspire One með 2 Gb vinsluminni og keyrir á Win 7.
11.09.2013 at 08:51 #378911Sæll,
Skemmtilegir bílar báðir tveir en ég er með LC 120 diesel og faðir minn átti svona bensínbíl í mörg ár.
Bensínbíllinn hjá honum (2003 árg) var að eyða í snattinu milli 14,5 og 15,5l./100 og fór niður í 11 í langkeyrslu, nei það er ekki grín og margmælt.
Dieselbíllinn hjá mér (2007 árg) er að eyða ca. 11-12,5 sem er alltaf nokkuð blandaður akstur þar sem ég bý á Suðurnesjum og keyri mikið til Rvk.
Vinnslan í dieselbílnum hentar kannski betur ef þú ert reglulega að draga eitthvað þar sem hann togar betur á lægri snúning, en bensínvélin er mjög skemmtileg í þessum bílum og verulega snörp þar sem krafturinn kemur strax og þú vilt.Kv. Sigurþór
12.09.2012 at 23:01 #755769Einar Thòr, Bìlaverkstædi Einars Thòrs, Bæjarfløt 8 Grafarvogi. Toppvinna…
30.08.2012 at 23:46 #756923Ég á btw. 4.625 hlutföll af/fr til sölu fyrir slikk ef einhverjum vantar. Framhlutfallið er í köggli en afturhlutfallið er stakt.
Kv. Sigurþór 861-4262
20.09.2011 at 12:56 #737501Já ok, gott að heyra. Aldrei að vita nema ég hafi samband við þig!
Kv, Sigurþór
19.09.2011 at 23:47 #220462Sælir spjallverjar.
Mér langaði að heyra álit frá ykkur sem hafið reynslu af 6.7l Cummins vélinni sem tók við af 5.9l í Raminum 2007.
Ég er búinn að vera að lesa mjög misjafnar sögur af henni á spjallsíðum hjá þeim í ameríkuhreppi, sumir láta mjög vel af henni og aðrir bölva henni á alla kanta, EGR vesen ofl.En það væri gaman að fá að heyra ef menn hafa reynslu af þessum mótor og hvernig hann er að koma út í rekstri miðað við 5.9. En bíllinn sem um ræðir er Dodge Ram 3500 2007 árgerð ekinn 80.000
Kv. Sigurþór
16.05.2011 at 23:05 #730211Spurning hvort Runnerinn sé með fínsíu í olíuverkinu sem er stífluð? Það er allavega algengt í sumum tegundum og hún er þá væntanlega undir banjóboltanum þar sem olían kemur inn á verkið. Man ekki alveg hvernig þetta er á Runnernum en það er vert að tékka á þessu áður en þú ferð í stærri aðgerðir.
Kv. Sigurþór
15.05.2011 at 23:48 #730239Já ok, maður skellir sér þá kannski bara yfir jökul eins og þegar gosið var í gangi. Þetta er nú annars meiri forsjárhyggjan í þessu samfélagi okkar að stjórna umferð með svona hætti. Ég hefði haldið að það væri nær að leggja bara smá í að laga þennan veg upp Fimmvörðuhálsinn fyrir akandi umferð svo fólk kæmist þetta bara hver með sínum hætti. Og hinir sem vilja lappa gætu bara gert það áfram.
Kv. Sigurþór
14.05.2011 at 23:51 #730233Sæll Freyr.
Hvernig er að komast upp, gátuð þið farið upp hjá Skógum eða er allt þar "lok lok og læs" ennþá?
Kv. Sigurþór
07.05.2011 at 21:55 #724196Er nokkuð að frétta af vetnispælingunum Benni?
Kv. Sigurþór
25.04.2011 at 10:10 #727863Ef þú þarft að endurnýja rörin sem koma í plattann á tankinum þá hafa þeir í Vökvakerfum Dugguvogi verið seigir í að redda svoleiðis leiðinda krabbameinum.
Kv. Sigurþór
20.04.2011 at 20:22 #728015Þessir Pajeroar sem komu eftir 2000 virðast líka hafa verið settir saman með saltvatni á gengjum í stað smurefna. Ég hef hjólastillt þá ófáa eftir breytingar og maður er að sjá kannski 2-3 ára gamla bíla með alla stillibolta (og fleiri til) alveg kolryðgaða og pikkfasta, jafnvel þannig að fóðringarhólkar snúast frekar inni í gúmmíinu heldur en að boltinn snúist í hólkinum. Svo eru þeir margir búnir að tapa af sér öllu kælivatni vegna þess að miðstöðvarrörin fyrir miðstöðina afturí eru gegnumryðguð alla leið undir bílnum, en þau eru úr örþunnu skæni.
Allavega svona pikklesar og fleiri myndu forða mér frá því að eignast nokkurntíman svona bíl, þótt ég eigi eldri týpuna af Pajero, en þeir tveir eiga nánast ekkert sameiginlegt.Kveðja Sigurþór
12.03.2011 at 06:18 #722904Skil hvað þú átt við, og það er rétt að álag á stýrisenda eykst einnig líka við aukinn spindilhalla. En það sem átt er við er sérstaklega álagið á spindillegurnar þegar verið er að beygja, og þetta ágerist svo líka mikið með útvíðari felgum (sem fylgir alltaf breyttum bílum). Þannig ertu í raun að vega bílinn upp í loftið á hjólinu sem er innar í beygjunni með spindilleguna sem veltipunkt vegna þess að hjólin eru farin að fara meira upp og niður í beygjum. Þetta sést eins og bíllinn sé að snúa upp á sig þegar þegar beygt er.
Eins finna menn þetta í akstri með því að bíllinn er rásfastari eftir því sem spindilhallinn er meiri og verður líka þyngri í stýri. Þegar stýrinu er sleppt eftir beygju þýtur það í miðstöðu vegna þess að þungi bílsins leytast við að halda þeim í miðstöðu með tilheyrandi vogarafl á spindillegurnar.
Ég hef séð þetta á mörgum bílum og sumir sem fara í einhvern ýktan spindilhalla af því að bíllinn verður svo rásfastur og stabíll í akstri (jafnframt þungur í beygjum) setja bara öflugan stýristjakk svo það sé léttara að beygja en ganga mun fyrr á spindillegurnar.
Mér finnst allavega best að fara milliveginn sem er þetta 4-6°
Kv. Sigurþór
11.03.2011 at 05:11 #722898Sæll.
Það fer nú bara eftir því hvernig og hvað mikið þú ætlar að hækka hann upp! Ef þú boddýhækkar bílinn td. 10cm þarftu ekki að lyfta honum mikið á gormum og þar af leiðandi ekki að síkka mikið í stífuturnum. En ef þú ætlar hinsvegar að setja 10cm klossa á gormana og hækka minna eða ekkert á boddýi þá þarftu lágmark að síkka stífurnar um það sama eða helst aðeins meira til að halda þokkalegum spindilhalla.
Bíllinn verður hundleiðinlegur í akstri ef spindilhallinn minnkar í breytingunni og sérstaklega á 44" DC sem verða seint talin góð keyrsludekk. Orginal spindilhallinn á LC 80 er 2,5°-3° og hann má ekki vera minni á svo mikið breyttum bíl, gott væri að fá hann upp í 4-6 gráður. Ef hann fer mikið yfir það ertu farinn að setja fullmikið álag á spindillegurnar. En svo gætirðu líka sparað þér síkkun með því að nota offset-fóðringar í stífurnar þar sem þær tengjast hásingunni, Stál og Stansar voru að selja svona fóðringar á sanngjarnan pening með 2°offset minnir mig. Svo skaltu einnig fara beint í stýristjakk ef hann er að fara á 44" hjá þér, þeas. ef þú ert ekki kominn með hann nú þegar.Kv. Sigurþór
10.03.2011 at 05:12 #722608Ef þér duga 4.625/1 hlutföll þá á ég par af þeim fyrir þig á lítinn pening.
Kv. Sigurþór 861-4262 / 851-2086
15.02.2011 at 18:57 #719882Ég myndi mesta lagi fara í 6000K, helst 4300K. 8000K og yfir gefur hundleiðinlega og alltof bláa birtu. En það er rétt með dreifinguna að hún verður oft verri með Xenon perum og á sumum bílum alveg út úr kortinu! Ég var með þetta td. á Volvo XC 90 og það svona rétt slapp.
Kv. Sigurþór
13.02.2011 at 17:22 #719786Já, Fjallasport breytti þessum vínrauða og Agnar sem vann þar lengi átti hann á tímabili. Hann gæti sjálfsagt sagt ykkur allt um þessa aðgerð.
Veit ekki með Wagoneer hásingar, er það þá Dana 30 eins og Cherokeeinn var með? Held að Dana 44 sé málið undir þessa bíla svo styrkurinn á framdrifinu sé í samræmi við afturdrifið, en það er nokkur sterkt á Troopernum.Kv. Sigurþór
13.02.2011 at 11:11 #719780Þessi vínrauði á 44" er á Dana 44
-
AuthorReplies