Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
06.02.2011 at 11:18 #718660
Er nokkuð að frétta af færð þarna uppfrá?
Kv. Sigurþór
07.11.2010 at 22:17 #709398Snilldarbílar! Þetta er týpan sem ég myndi fá mér ef ég fengi mér 120 Cruiser. Hef nokkra reynslu af þessum bílum og hef náð 11l/100km í langkeyrslu með sparakstri og upp í 15-16 max í drætti með fellihýsi og í snattinu og alltaf nóg power!
VX týpan er líka með skemmtilegri innréttingu en GX og LX bílarnir og einnig er loftpúðafjöðrunin góður kostur. Bætir í púðana við hleðslu.Kv. Sigurþór
01.11.2010 at 15:33 #708596Nei hann reykir varla ef hann missir olíu, hann færi frekar að reykja ef það vantaði boost/stífluð loftsía oþh.
Sjálfsagt að byrja á því að skella í hann nýrri olíusíu og prófa svo…Kv. SÞ
02.10.2010 at 12:26 #704916Sæll Gunni.
Ef ákoman á kambinn er góð með þessu backlashi sem þú ert búinn að ná kemstu alveg upp með 12-22 hundruðustu… Aðallega mikilvægt að hún sé sem næst því að vera eins og hún var áður því þú ert með notað hlutfall ekki satt?
Kv. Sigurþór
15.08.2010 at 14:00 #699972Hehe, pósturinn frá Frey var ekki kominn þegar ég byrjaði að pikka… En einmitt! 😉
15.08.2010 at 13:58 #699970Það er ýmislegt sem þú getur kannað, en það hefur td. komið fyrir að lítil sprunga hefur myndast í lokinu á hráolíusíunni sem veldur því að verkið dregur falskt loft.
Þú getur prófað að tengja framhjá síunni með slöngum og hafa hann þannig í 1-2 daga. Kemur væntanlega fljótlega í ljós hvort hann verði eitthvað skárri.En hvað er hann ekinn? Spurning hvort honum veitti ekki af ventlastillingu og einnig að kanna þjöppuna.
En með hitunina þá getur þetta legið þar þótt þú sért búinn að skipta um glóðarkerti. Það eru 2 hitunargreinar á honum, ein löng sem liggur á öll kertin og önnur stutt á 3 aftari. Hann hitar öll kertin fyrir startið á löngu greininni og svo er eftirhitun á þeim aftari í hátt í mínútu minnir mig. Einangrunarskinnurnar verða að vera til staðar á milli þeirra. Ef eftirhitunin er óvirk getur það lýst sér svona eins og þú lýsir.
Það eru 2 reley fyrir hitunina undir lokinu við innra brettið hægramegin í húddinu og það hefur gerst að sveri vírinn að fjöðrinni inni í releyinu hefur morknað í sundur og þá jafnvel hægt að glóða hann á aftur en best að skipta um það. Þú getur tengt 2 voltmæla, einn á hvora hitunargrein og sett bílinn í gang. Það eru minnir mig 12 volt á forhituninni og 6 volt á eftirhituninni.
Einnig er talva sem stýrir hitunarferlinu staðsett hægamegin við fætur framsætisfarþegans. Ef hún er tekin úr og opnuð er stundum hægt að sjá rofna lóðningu eða spannskrænu á brettinu. Þessi talva kostar arm og legg í umboðinu, en ef hún er keypt notuð þarf að bera saman plöggin á henni því þær eru ekki allar eins. Það eru 3 plögg á henni minnir mig.
Gaman að fá að fylgjast með og heyra hvernig gengur.
Kv. Sigurþór
06.08.2010 at 06:32 #699412Það væri í hæsta máta óeðlilegt ef púði myndi springa út við þessa aðgerð hjá þér! Það gera þeir ekki nema fái signal frá höggskynjara, nú og kannski ef air-bag tölvan væri biluð.
Kv. Sigurþór
03.08.2010 at 23:33 #699358Fer kannski aðeins eftir því hvaða týpu af Pajero þú ert með.
En við að fara úr 33" í 35" ertu með sömu breidd og ert aðeins að auka radíus dekkjana um 1" og boddýlift er óþarflega mikil aðgerð fyrir ekki stærri dekk en þetta, þ.e.a.s. ef 33" sleppur sæmilega.
Mér finnst líklegt að snyrtileg úrklipping ætti að duga þér. Einnig getur þú skrúfað beygjustoppið aðeins út til að minnka klippinguna.Ef ekki dugar að klippa hóflega úr getur þú skrúfað hann aðeins upp að framan á klöfunum og sett 3 cm. upphækkunarklossa á gormana að aftan (fást hjá Hellu í Hafnarfirði), þá ætti þetta að vera alveg skothelt hjá þér.
Kv. Sigurþór
29.07.2010 at 07:00 #698938Koppafeitin er eiginlega algjört möst í þessa aðgerð! Getur sparað mikla gremju (og mínútur;)
Kv. SÞ
26.07.2010 at 18:30 #698926[quote="cruser 90":3sbfr1bc]Takk fyrir þetta ég verð að sjá hvort ég hafi ekki plás fyrir aftan hásinguna en ég snéri pönnuni á vélini út af togstaung og stíris staung en hallin er nánast lóðréttur en það fer eftir því hvað ég er með mikið í púðunum[/quote:3sbfr1bc]
Vonum að þú hafir átt við að hallinn sé frekar nánast láréttur, frekar en lóðréttur! Hehe.. 😉
Kv. Sigurþór
26.07.2010 at 18:26 #698320Verð að taka undir með Frey þarna með stífleikann, þetta er svoldið velja og hafna dæmi. Nema þú settir hann kannski á loftpúða. En sæmileg millilending hjá þér væri kannski að setja hann á OME Ástralíu gormana frá Benna sem eru prógressívir og nokkuð stífa Koni dempara.
Ég setti svona gorma undir 38" Patrol ´99 (um 2,5 tonn) sem ég var með og þeir gáfu 5cm lift miðað við orginal gormana og voru aðeins stífari en orginal, sem Pattinn má svo sem alveg við.
Kosturinn við Koni demparana er svo að þú getur stillt þá á þann stífleika sem hentar þér!
Kv. Sigurþór…
25.07.2010 at 07:11 #698916Ég er myndi frekar halda mig við 6°í spindilhalla. Sama og ég er með í Hilux sem ég setti á hásingu. Mönnum hættir til að teygja sig ansi langt í auknum spindilhalla til að fá meiri rásfestu í hjólin þegar undiliggjandi orsök vandamálsins liggur kannski í öðru. Með of miklum spindilhalla ertu líka farinn að setja aukið álag á spindillegurnar.
En klárlega skaltu setja stýristjakkinn á millibilsstöngina aftan við hásingu og þéttan og góðan stýrisdempara á togstöngina. Er nokkuð mikill halli á skástífu og togstöng hjá þér?
Þegar þú ert kominn með þetta svona myndi ég halda að málið leystist nokkuð farsællega hjá þér!
Kv. Sigurþór
29.05.2010 at 01:53 #694840Ég er með einn stuttan beinskiptan ´91 árg. á 35" og hann er að eyða 15l./100km. í blönduðum akstri.
Þetta eru alveg ágætis bílar eins og þessi langi ´95 árg sem þú ert að spá í. Ekkert gallalausir frekar en nokkur annar bíll, en fínt að ferðast í þeim og með frekar lága bilanatíðni. Bensínvélin hefur mér fundist koma betur út í viðhaldi en 2.5 diesel þótt hún eyði vissulega eitthvað meira. Mjög hljóðlát og kemur þeim ágætlega áfram.Kv. SÞ
09.04.2010 at 16:41 #688816Takk fyrir það, þetta er by the way stórglæsilegur bíll hjá þér!
Kv. Sigurþór
09.04.2010 at 09:38 #688812Smá forvitnisspurning þessu tengt. Hvað er Grand Cherokee með 4,7 V8 á 38" að eyða í blönduðum akstri?
Kv. Sigurþór
19.03.2010 at 22:27 #687230Eðlilega, kreppan tekin á þetta! 😉
17.03.2010 at 22:53 #687222Nohh, bara verið að græja upp plássið Indriði! Ég er kominn með fína Kempi pinnavél sem ég legg í púkkið! 😉
12.03.2010 at 23:17 #686692Það er algjör viðbjóður að vera með þetta inni í bíl og þú ættir að reyna allt annað áður en þú ferð að koma aukatank fyrir í skottinu. Ef bíllinn er boddíhækkaður er pláss fyrir 90 lítra aukatank vinstramegin við drifskaftið ef þú færir pústið í miðjuna.
Kv. Sigurþór
07.03.2010 at 09:33 #686168Var ekki Nesradíó með Tait?!
Kv. Sigurþór
27.02.2010 at 23:49 #685378Hlutfallslega [i:1qrdli7s]meira[/i:1qrdli7s] að aftan átti að standa þarna einhversstaðar! =)
-
AuthorReplies