FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Jón Hörður Guðjónsson

Jón Hörður Guðjónsson

Profile picture of Jón Hörður Guðjónsson
Virkur síðast fyrir 9 years, 3 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 61 through 80 (of 360 total)
← 1 … 3 4 5 … 18 →
  • Author
    Replies
  • 03.04.2009 at 23:04 #645120
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Er hann með innspítingu eða blöndung? Þetta minnir nefnilega svolítið á blöndungsísingu.
    .
    Það er yfirleitt barki frá pústgrein í lofthreinsara til að koma í veg fyrir hana en ég lenti í því með Súkku að þennan barka vantaði og þá lét hún akkúrat svona (hef samt aldrei lent í þessu með amerískar V8 blöndungsvélar).
    .
    Ef hún er með innspítingu þá á þetta náttúrulega ekki við.
    .
    JHG





    28.03.2009 at 13:20 #644350
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Ég keypti þær á ebay fyrir nokkrum árum síðan á ca. $50 (+flutningur og gjöld) en þetta eru allavegana tvær bækur (minnir að þær séu þrjár en ég hef bara þurft að nota eina þeirra og langt síðan ég leit á þær). Sú sem skiptir mestu er Service manual en. Þessar bækur eru gerðar af Jeep og eru MIKLU betri en Haynes og Chiltons.
    .
    En ég yrði sáttur við 3.000 kr. fyrir allan pakkann.

    kv. Jón H.
    898-0375





    28.03.2009 at 00:26 #644346
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Þig vantar ekki orginal (frá Jeep) viðgerðarhandbækur fyrir 1993 Grand Cherokee fyrir lítið?





    25.03.2009 at 16:50 #644322
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Það að breyta bílum heima í skúr hefur ekki lagst af en það er rétt að þegar nóg var af seðlunum þá voru margir sem létu breyta fyrir sig. Það hefur líka kannski opnað sportið fyrir fjölbreyttari flóru fólks (sem er jú jákvætt).
    .
    Og þó þetta fólk hafi kannski ekki skort þekkingu þá eru ekki allir sem hafa aðstöðu eða tíma til að liggja undir bíl (já eða finnst það bara ekki skemmtilegt).
    .
    Persónulega finnst mér skemmtilegra að gera sem mest sjálfur (þ.e. það sem ég get gert), mér finnst ég einhvernveginn verða tengdari þessu. Hluti af gamninu hjá mér er að pæla, skrúfa og verða drullugur (óx víst aldrei uppúr því…..).





    23.03.2009 at 15:14 #204083
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Ég er að fara að breyta mínum Blazer K5 og er aðeins að pæla. Bíllinn er eins og er með Dana 44/12 bolta með 4.88 hlutföllum og læsingum. Ég á Dana 60 og 14 bolta fljótandi sem eiga að fara undir hann. Þær hásingar eru báðar með 4.10 hlutfalli (ólæstar eins og er).
    .
    Vél 6.2 dísel
    Skipting TH400
    Millikassi NP241
    .
    Upphaflega planið var að setja 4.88 hlutföll í nýju hásingarnar (ásamt læsingum) og láta lága drifið duga þegar maður þyrfti á að halda. Nú get ég fengið í hann skriðgír (2:1) fyrir vinnuskipti sem er mjög freistandi.
    .
    Þá fór ég að pæla hvort það væri kannski skinsamlegt að halda 4.10 hlutföllunum eða hvort ég ætti að halda mig við planið og fá mér 4.88 hlutföll (á þau reyndar til í 14 boltann).
    .
    Verkið er enn á skipulagsstiginu svo það væri gott að fá ábendingar og tillögur :)





    20.03.2009 at 12:38 #643932
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Jamm, vona það líka. Kíki örugglega til ykkar í sumar þegar næsta verkefni byrjar.





    19.03.2009 at 23:09 #204067
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Mér var bent á nýja síðu sem er eins og facebook fyrir bílakalla. Hún heitir http://www.racebook.is og virðist vera góð til að hýsa myndir og fleira. Allavegana er hún auðvelld í notkun :)





    19.03.2009 at 16:49 #643922
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Kannki maður fari að skipta við ykkur aftur. Skipti svolítið við ykkur fyrir 10 árum en eitt skiptið varð ég fyrir þvílíkum dónaskap frá starfsmanni ykkar að ég hef ekki stigið fæti inn hjá ykkur síðan (já, ég veit að ég er langrækinn og viðkomandi starfsmaður örugglega löngu hættur….).
    .
    En gott mál, kannski maður prófi aftur að versla :)





    14.03.2009 at 21:20 #643436
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Ætli ég haldi mig þá ekki við 44", bíllinn er í svipuðum þyngdarflokki og Pattinn og bíllinn er þegar breyttur fyrir 44".
    .
    Takk fyrir svörin :)
    .
    kv. Jón H.





    13.03.2009 at 23:42 #643430
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Er mikill munur á drifgetu á 44" vs 46"?





    13.03.2009 at 17:18 #643422
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Takk fyrir, þannig að það gæti munað svona 10-20 kg per dekk.
    .
    Bíllinn er með 6.2 lítra GM díselvél og planið er að setja dana 60/14 bolta fljótandi undir, þær hásingar ættu að þola hvor dekkin sem er. Bíllinn er reyndar með kanta fyrir 44" svo maður myndi spara í þeirri deildinni ef maður færi þá leið.
    .
    Nú er maður bara að velta fyrir sér kostum hvors fyrir sig, kostnaður og hvort það þurfi mikið meira afl til að snúa þeim.





    13.03.2009 at 14:41 #643360
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Er það á hreinu hvort maður þurfi að sína bæði kortin? Eins og ég sagði í öðrum þræði þá hafa bensínafgreiðslumenn ráðlagt mér að láta renna báðum kortunum í gegn til að fá afsláttinn.





    13.03.2009 at 13:13 #204024
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Ég er með gamlan Blazer K5 sem ég breytti einhverntíma fyrir 44″ en hef aðallega verið á 38″. Nú er ég að fara að taka hann inn í yfirhalningu og þá er upplagt að hugsa hlutina uppá nýtt.
    .
    Er mikill munur á drifgetu á 44″ og 46″ á ekki þyngri bíl (ekkert léttmeti en samt léttari en margir….)?
    .
    Eru hver er þyngdarmunur á 44″ og 46″?
    .
    Kv. Jón H.





    06.03.2009 at 22:46 #642578
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    1) Efast um að þú viljir kaupa nýjan vask, spurning hvort píparameistarar eigi ekki til svona notað fyrir lítið (annars bara barnaland 😉 )
    .
    2) Keypti mínar rúllur á tilboði í Byko í fyrra.
    .
    4) Þú færð þá varla ódýrari en hjá Vöku
    .
    5) Guðmundur Arason, Málmtækni





    04.03.2009 at 11:09 #642330
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Fyrst það er farið að tala um Skeljung, ég hef notað viðskiptakortið/félagsskírteini síðan þau voru gefin út en svo sagði afgreiðslukona mér á bensínstöð að ég þyrfti að framvísa báðum kortum (þ.e. rauða og gráa) til að fá fullan afslátt. Er eitthvað til í þessu?
    .
    kv. Jón H.





    20.02.2009 at 14:30 #641538
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    og svo er verið að kvarta yfir þessum greyjum í skilanefndunum…….





    20.02.2009 at 09:53 #641534
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Takk fyrir þetta, ég nennti ekki að rúlla í Hraunbæinn en geri það í dag. Þannig að það má hluta verðið á þessum brúsa svona niður:
    .
    4×109=436 kr.
    Brúsi ca. 100 kr. (sem er örugglega ofmat)
    Vinna við að setja á brúsa 1.964 kr.
    .
    JHG





    20.02.2009 at 09:27 #641476
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Sammála, var félagi þar í mörg ár en þegar ég þurfti á þeim að halda þá var enga hjálp að fá.
    .
    JHG





    20.02.2009 at 09:25 #203861
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Í gærkvöldi var ég að dunda mér í skúrnum og þurfti smá lögg af steinolíu. Þar sem að Skeljungsstöð er rétt hjá mér þá rúllaði ég þangað.
    .
    Sú stöð var ekki með steinolíu á dælu en bauð uppá 4 lítra brúsa en hann kostaði 2.500 kr. Það er 625 kr. á líterinn!
    .
    Ég er ekki alveg með það á tæru hvað líterinn kostar á dælu en er fullviss um að hann er lægri en þetta og er í raun stórhneisklaður.
    .
    JHG
    .
    p.s. setti þetta á innanfélagsmál þar sem að mér fannst ekki við hæfi að vera að gagnrýna styrktaraðila klúbbsins á opnum spjallvef.





    06.05.2008 at 00:02 #622220
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Fyrst að aðalfundur ákvað þetta þá verður það víst að vera svo. Ég var búinn að vera jeppamaður lengi og hafði ekki fundið þörf hjá mér að verða félagsmaður. Síðan fór ég að skoða vefinn og spjallið og það varð til að ég gerðist félagi og hef verið það í nokkur ár.
    .
    Ég hef grun um að nýskráningar verði ekki eins margar og þær gætu verið fyrst spjallinu verður lokað en eins og ég sagði áður, fyrst að aðalfundur ákvað þetta þá er lítið við því að gera.
    .
    JHG





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 61 through 80 (of 360 total)
← 1 … 3 4 5 … 18 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.