Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
07.10.2009 at 09:02 #659868
Ég rakst á þann rauða á beit rétt hjá Flúðum síðasta vetur í frekar döpru ástandi.
05.10.2009 at 11:32 #660134Lenti í því með F250 2000 módel að hann festist í parki. Ástæða þess var að pera í þriðja bremsuljósi var farin.
01.09.2009 at 00:24 #206181Ég sé að klúbburinn hefur ýmislegt dót til sölu (könnur, húfur og fána), eru einhverstaðar myndir af þessu dóti?
kv. Jón H.
24.08.2009 at 15:06 #655190Veit ekki með aðstöðu en þú getur losað þig við allar olíur/spilliefni hjá Sorpu.
kv. Jón H
23.08.2009 at 11:40 #653654Hugmyndin er allavegana komin fram svo að stjórn klúbbsins (eða einhverjar nefndir) getur metið hvort þetta sé eitthvað sem sé þess virði að kanna nánar.
kv. Jón H.
09.08.2009 at 22:25 #653650Það er örugglega rétt en hugmyndin var sú að verkfærið borgi sig upp á skömmum tíma og notendur væru í raun að borga þetta. Þá myndi safnast upp eign hjá félaginu og kannski tekjustofn, hefur ekkert með landsbyggðarpólitík að gera.
Það má vera að þetta sé ekki raunhæft fjárhagslega eða vegna einhvers annars en vona að hugmyndir verði ekki skotnir niður ár röngum forsendum.
kv. Jón Hörður
09.08.2009 at 14:49 #653646Kannski, en ég var meira að hugsa um þetta sem fjáröflun fyrir klúbbinn. Eiga þeir eitthvað úrval af verkfærum til að gera við bíla?
08.08.2009 at 22:20 #205664Ég fékk þá (kannski óraunhæfu) hugmynd í höfuðið að 4×4 gæti átt ákveðin verkfæri sem félagsmenn eru ekki alltaf að nota en gætu haft hag að því að leigja frá klúbbnum gegn sanngjörnu gjaldi.
Sem dæmi, þvinga til að skipta um spindilkúlur, kostar um 100 dollara í USA en fæstir hafa fyrir því að kaupa hana, en væru kannski til í að leigja fyrir 2.000-3.000 kr. helgina (sparar honum vesen og pening við að verða sér útum þetta og þvingan borgar sig upp fyrir 4×4 á stuttum tíma).
Þessi hugmynd byggist reyndar á því að það sé starfsmaður hjá 4×4, sem gæti afgreitt þetta í hjáverkum, en ég veit ekki hvort það sé svo.
Þetta þyrfti ekki að vera stórt í sniðum (þó það gæti svo sem orðið það) en gæti samt verið aukin þjónusta við félagasmenn og skilað einhverjum krónum í kassann.
Eins og ég sagði þá er þetta kannski óraunhæft en stundum geta vitlausar hugmyndir skilað einhverju sniðugu, allavegana sakar ekki að spjalla um það
kv. Jón H.
26.07.2009 at 22:59 #652486Takk fyrir það, ætli maður skelli ekki milligírnum í, þarf bara að finna út hvort að ég lendi í vandræðum með framskaptið útaf bitanum sem heldur skiptingunni þegar millikassinn fer aðeins aftar.
25.07.2009 at 18:55 #205412Ég er með Blazer K5 með 6.2, TH400 og NP241, hlutföllin eru 4.88:1 og er bíllinn breyttur fyrir 44″ en er á 38″. Ég hef ekki verið með milligír en nú býðst mér milligír í bílinn fyrir vinnuskipti. Ég er að hugsa um að skella honum í þó ég hafi aldrei saknað milligírs (var reyndar með spræka 350 í bílnum þegar hann var á skrá síðast) og er að velta því fyrir mér hvort það sé ekki þess virði. Væri gaman að heyra frá þeim sem hafa reynslu af þessu.
kv. Jón H
20.07.2009 at 16:08 #651998Ég held að það teljist seint mannréttindabrot að takmarka farþegafjölda hjá ungum ökumönnum, sérstaklega þar sem að ég hef alltaf litið á það sem forréttindi að fá að aka en ekki mannréttindi (ef það væru mannréttindi þá þyrfti fólk varla að taka próf til að öðlast þau).
Það kom einhverntíma í rökum fyrir þessu að þetta hefði gefist vel í öðrum löndum (þó ég þekki ekki sjálfur hvaða lönd það eru). Ef rannsóknir sína að það sé öryggisatriði fyrir þessa krakka og aðra að takmarka notkun þá verður að kanna þann möguleika (það eru mannréttindi að geta verið öruggur).
Persónulega finnst mér varhugavert að reynslulausir ökumenn geti fengið að aka hvaða tæki sem er, hvort sem það er 300 hp sportbíll eða jeppi á 46 tommu dekkjum. Hef samt engar áhyggjur af krökkum á aflvana 33" jeppum (var sjálfur á suzuki fox en jók reyndar við aflið í honum) þannig að það er spurning hvort að mörkin ættu að vera við hversu mikil breytingin er frekar en hvort hann sé breyttur eða ekki (en það er líklegast ómögulegt og bíður upp á endalausar túlkanir).
En hvað sem öðru líður þá hefði ég verið brjálaður útí svona breytingar þegar ég var 16-17 :o)
07.07.2009 at 14:39 #651234Sæll Sveinbjörn og takk fyrir skýr svör! Ég ætlaði alls ekki að fara að koma að stað einhverjum leiðindum, var bara spurt fyrir forvitnis sakir.
Kkv. Jón Hörður R-3244
06.07.2009 at 17:41 #651230Sorrý ef ég setti þennan þráð á rangan stað, mig langaði bara að forvitnast um húsnæðismál en vil helst ekki að þetta fari í rifrildi um fjármál klúbbsins (já eða eitthvað annað rifrildi).
Kv. Jón Hörður
06.07.2009 at 14:34 #205082Það hefur alltaf sprottið upp reglulega umræða um að klúbburinn eignist sitt eigið húsnæði. Draumurinn væri húsnæði þar sem það væri hægt að hafa fundi og jafnvel viðgerðaraðstöðu eða geymslu fyrir dót klúbbsins. Það má vel vera að þau mál séu í einhverju ferli en ég er forvitinn að vita hvort það sé eitthvað verið að skoða hvort það borgi sig að fjárfesta í svoleiðis núna?
Það ætti að vera ódýrara að fara að stað núna en þegar þenslan var á fullu.
Á móti kemur að það er eflaust erfiðara að fá fjármagn núna, hvort sem það er styrktar eða lánsfjármagn.
kv. Jón Hörður
P.s. verð að viðurkenna að ég þekki ekki til fjárhagsstöðu klúbbsins, kannski eru svona pælingar algjörlega óraunhæfar….
29.06.2009 at 10:54 #650606Fyrst spurt er um eyðslu þá get ég aðeins miðað við hvað minn Blazer K5 án yfirgírs með 4.88 hlutföll á 38" var að fara með. Hann var að jafnaði að fara með 22-24 á hundraði miðað við skikkanlegan akstur (engan kellingaakstur samt). Það skipti engu hvort ég væri í langkeyrslu eða blönduðum akstri þar sem að bíllinn var á um 2500 rpm á 100 km hraða (lág hlutföll og enginn yfirgír). Ég pældi aldrei í hvað hann eyddi í hjakkinu en það var ekkert svakalegt (en mælt sem lítrar á hundraði hefur eflaust verið mikið án þess að það hafi truflað mig).
Og ég mældi eyðsluna þannig að ég fyllti tankinn alltaf og setti lítratölu og mílutölu í excel skjal þannig að þetta voru ekki tölur útí loftið (hann eyddi reyndar gott meiru þegar ég fékk hann, eftir að ég var búinn að laga bensínleka, skipta um kerti og þræði þá datt hann niður í eyðslu).
Vélin var með Edelbrock Q-jet (var þá almennt að vinna á litlu hólfunum en opnaði stóru hólfin við inngjöf) en það má vera að Holley dp hefði skilað hærri eyðslu.
26.06.2009 at 22:50 #650440Menn hafa verið að blása helling á þessar vélar og gert allan andskotann við þær, menn þurfa ekki að leita lengi til að finna helling um það. Þjappan er frekar há miðað við að blása inná hana (~21) þessvegna blása menn yfirleitt ekki mikið inná þær án þess að lækka þjöppuna (minnir að 6.5 td hafi verið um 18). En með Banks kerfinu sem gefur 60 hp þá hafa þær reynst mjög áreiðanlegar og ekkert vandamál með þær (fékkst jú orginal á þessum bílum og þeir bílar eru eftirsóttir í USA enn í dag). Ef menn ætla að blása verulega inná þær þá verður auðvitað að lækka þjöppuna.
Með orginal stimplum þarf að halda pústhitanum undir 900 F (ef ég man rétt) og mikilvægt er að skipta um damperinn ef hann er farinn að skemmast (ef ekki þá fer sveifin úr balange og það er það sem að stútar þessum vélum). Sumir hafa sett styrkingu við höfuðlegubakkana (ekki mikið mál, hægt að kaupa það tilbúið) en fæstir hafa séð ástæðu til þess. Ef gúmmíið við damperinn er farið að morkna þá á að skipta um hann (ódýr trygging, keypti minn á 70 USD). Líklegast hefur það verið málið þegar legubakkarnir hafa skotist í gegnum olíupönnuna því að þetta hefur valdið því að sveifásar hafa brotnað. Þannig að það er ekki blásturinn sem veldur því heldur úr sér genginn damper.
En allavegana þessar vélar hafa reynst mjög vel bæði í orginal formi og þegar það er búið að peppa þær upp.
Því miður get ég ekki hjálpað þráðarhefjanda, læt þá sem að vita eitthvað um Patrol sjá um það (vil ekki tjá mig um eitthvað sem ég hef ekki hundsvit á).
26.06.2009 at 11:36 #650598Með góðan vatnskassa, vatnslás sem virkar og rétt stilltan mótor þá sé ég ekki afhverju það ætti að vera hitavandamál. Ég var með 350 með 272 ás (svolítið heitur) í Blazer K5 (reyndar aðeins léttari og á 38") og var með þriggja elementa kassa og það var aldrei hitavandamál. Það er svo hægt að fá stærri kassa að utan. Ég efast um að vélar sem að hita sig ekki í klettaklifri í 40 stiga hita fari að hita sig mikið í kulda í vetrarferðum :o)
26.06.2009 at 11:30 #650434Ég er með 6.2 sem er uppgefin 155 hp þannig að 140 er ekki rétt tala. Þær fengjust svo með Bank forþjöppu frá framleiðanda (reyndar bara GMC) og skv. heimasíðu banks:
"In 1989, GM selected Banks as the 6.2L factory-turbo option, and remained so until GM released their own 6.5L turbo-diesel. To this day, Banks Sidewinder out-performs GM’s 6.5L factory-turbo or any other turbo. Banks’ ultimate upgrade for 6.2L workhorses provides best gains of +60 hp and +115 lb-ft torque".
Það er ekkert mál að setja forþjöppu á þá, bæði með að kaupa Bank kerfið eða setja af 6.5 bíl. Einnig voru fleiri framleiðendur (t.d. ATS) en sumir þeirra voru að skila betri árangri en Banks.
Þessi Subbi hefur líklegast verið með mjög háum hluföllum því að 6.2 stendur alveg fyrir sínu og alveg skiljanlegt að menn skoði þann möguleika.
04.05.2009 at 08:49 #647062B20 og B20 er ekki alltaf það sama.
.
Í gamla daga átti ég langa súkku með 1300 mótor.
.
Ég setti ofaní hana B20A og bíllinn varð miklu skemmtilegri. Síðan stútaði ég henni og áskotnaðist þá B20B sem var tveggja blöndunga ameríkuútgáfa sem var uppgefin um 120 hestöfl (mig minnir að B20A hafi verið í kringum 80 hp). Þá fór nú að verða virkilega gaman.
.
Mig minnir að þjappan hafi verið hærri en það var allavegana heitari knastás. Síðar setti ég í vélina annan ás, einn stóran blöndung og ljósnemakveikju. Bíllinn dúndurvann með þetta dót í húddinu
13.04.2009 at 10:17 #645634Það ætti að skila einhverju. Ég var svolítið á 7,3 lítra Powerstroke og þetta dúndurvann. Svo var skemmtilegt þegar eitthvað bílatímarit (held að það hafi verið Diesel Power) var að velja 10 bestu díselvélarnar þá komst 7,3 (sem er í raun sama vél og 6,9) á listann en nýja vélin sem Ford notaði komst ekki á hann.
.
JHG
-
AuthorReplies