Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
29.11.2016 at 21:14 #941110
Ekki málið, alltaf gaman að getað hjálpað.
Versla allt á partsouq.com algjör snilld.
19.11.2016 at 00:25 #941057Einnig hægt að taka þá úr og mæla þá. Þessi skemmdi sýndi voðalega lítið miðað við hina.
19.11.2016 at 00:24 #941056Þetta er að öllum líkindum einn af þremur skynjurum sem eru í millikassanum, lenti í þessu og eftir smá googl fann ég að einn af þessum skynjurum á það til að fara. Minnir að það sé efsti, var til hjá BL og skipti um, eftir það hætti þetta.
getur kastað á mig maili ef þú vilt spyrja meir, aron@113.is
14.03.2016 at 10:46 #936968Þó ég hafi ekki verið félagi í klúbbnum lengi þá byrjaði ég fyrst að fylgjast með f4x4.is fyrir um 10-11 árum síðan. Maður sóttist aðallega í myndaalbúmin enda voru félagsmenn mjög virkir í því að setja inn myndir af ferðalögum sínum. Í dag er þetta alveg dautt og eru umræður á henni líka að deyja út finnst mér.
Svo maður spyr sig, hvað er hægt að gera til að vekja upp áhuga félagsmanna og annara til að deila meiru með hinum.
Er þú einn núna í vefnefndinni eða ?
Kv.
Aron Frank
14.03.2016 at 09:38 #936966Sæll, ein spurning.
Á ekki innanfélagsmál flokkurinn á spjallinu að vera læstur þeim sem ekki eru félagsmenn? Ég komst allavega þar inn án þess að vera búinn að skrá mig inn.
Kv.
Aron Frank
22.07.2015 at 13:15 #909200Sæll,
Þú getur reiknað þetta sirka svona.
Brettakanntar: 180.000 + sprautun (60-100.000)
Dekk: 50.000 kr. stk. = 200.000 kr.
Felgur: 40.000 kr. stk. = 160.000 kr.
Vinna: Myndi giska á 300.000 +-
Annað: Hjólastilling og tilfallandi kostnaður: 50.000 kr.= 950.000 kr.
Miðast við að allt sé keypt nýtt, aðeins viðmið.
23.04.2013 at 04:32 #765551Sæll,
Það sem þarf að gera til að koma honum á 35" er 40mm hækkun fjöðrun að framan og aftan og smá úrklippa úr hjólaskálinni að framan.
18.01.2013 at 22:35 #762761Takk þetta er reddað.
18.01.2013 at 16:13 #225397Sá ekki ferðina fyrr en nú. Get ég sent einhverjum mail og skráð mig enn?
31.08.2012 at 10:32 #756925Sæll,
hefði áhuga á þeim fyrir "rétt verð", er með hásingar undan 4.2 dísil eru það samt ekki sömu hásingar og undir 2.8 bílnum og passar s.s. ?
Mættir jafnvel senda mér mail á aron@argus.is með verðhugmynd ef þú gætir.
27.08.2012 at 13:48 #756993Myndi líka athuga hráolíusíuna í bílnum.
27.08.2012 at 13:45 #757043Sæll,
Algengast er að menn fari í 10" breiðar felgur fyrir 35" dekk þar sem þau eru 12,5" breið. Hinsvegar hafa menn farið í 12" breiðar felgur en þá ertu kannski í aðeins meiri hættu á að affelga í einhverjum tilfellum. Þó ég þekki nú ekki til breytinga á Troopernum myndi ég halda að þú þyrftir sirka 40mm hækkunarklossa (fást í Málmsteypan hella) og sennilega smá úrklippu.
27.08.2012 at 13:39 #756921Þakka ykkur fyrir frábær svör.
22.08.2012 at 23:23 #224171Sælir félagar,
Getur einhver hér frætt mig um hvaða hlutföll eru orginal í Nissan Patrol 4.2 árg 91-95 sirka. Eru þau 4.88 ?
Fyrirfram þakkir,
Aron
13.02.2012 at 02:35 #749938Sæll,
Pétur nokkur á þennan bíl og er að smíða hann. Getur fengið upplýsingar hjá honum í síma 693-3777[img:7rn7kt30]http://www.icemoto.is/lc100.jpg[/img:7rn7kt30]
[img:7rn7kt30]http://www.icemoto.is/lc1002.jpg[/img:7rn7kt30]
[img:7rn7kt30]http://www.icemoto.is/lc1003.jpg[/img:7rn7kt30]
29.09.2009 at 15:14 #659326Getur fengið H4 Xenon perur 2stk í pakka á 8500 kr. í N1.
28.09.2009 at 15:47 #659010Fór inn í landmannalaugar á laugardagsmorgun, þá var færðin góð í byrjuninni á landmannaleið en fór svo að þyngjast og þegar maður nálgaðist landmannahelli var engan vegin fólksbílafært þangað innúr. Mikið hefur skafið í veginn. Á sunnudaginn fór ég svo heim og var þá færðin enn þyngri, svo ef þú ert á óbreyttum jeppa þá er mjög líklegt að þú komist ekki inn eftir.
[img:2kcrgcnt]http://nitro.is/Annad/Aron/landm/navara.jpg[/img:2kcrgcnt]
[img:2kcrgcnt]http://nitro.is/Annad/Aron/landm/navara2.jpg[/img:2kcrgcnt]
[img:2kcrgcnt]http://nitro.is/Annad/Aron/landm/navara3.jpg[/img:2kcrgcnt]
26.05.2009 at 08:35 #648024Ekki svo ég viti nei.
25.05.2009 at 09:27 #648020Straumur skoðaðu þessa síðu http://www.dimsport.com/ þetta er fyrirtækið sem framleiðir kubbinn minn. Pantaði hann á netinu.
Þeir gáfu upp sirka 30 hestöfl og 18% aukningu í tog. Satt að segja kom kubburinn mér á óvart, bílinn eyðir minna og er mun skemmtilegri í akstri.
Kubburinn kostaði mig sirka 50 þús.
23.05.2009 at 15:11 #648008Það er D44 að aftan í þessum bílum. Framdrifið er frekar veikt í þessum bílum og er skipt um það þegar bílarnir eru settir á 38". Snillingarnir á Ljónstöðum hafa verið að smíða D44 köggul í orginal köggulinn að framan í þessa bíla. Það er hvorki til læsing né lægri hlutföll í framdrifið á þessum bílum.
Ég er sjálfur með svona bíl 2007 árgerð á 36" dekkjum. Kemur vel út, skemmtilegur mótor og ekkert klikkað. Er sjálfur með orginal framdrifið og er það ekkert mál hingað til, fékk mér að vísu tölvukubb í hann og varð hann skemmtilegri eftir hann. Hann er að eyða innanbæjar hjá mér sirka 14-15 lítrum en ég keyri aldrei í einhverjum sparakstri. Bílinn fór niður í 10 lítra á hundraði þegar ég skrapp til Akureyrar um daginn
-
AuthorReplies