Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
28.11.2008 at 00:36 #633732
GM notaði Muncie SM 465 í beinskiptu bílana. Hann kom í stað Muncie SM 420 sem var notaður frá 1947-1967. (skv einhverjum heimildum á vefnum)
Hutföllin í SM 465 eru: 1. gír 6.55, 2. gír 3.58, 3. gír 1.70 og 4. gír er 1:1
Það má alveg lifa með þessum kassa ef vélin er að skila þokkalega, þá þarf sjaldan að skipta um gír.
Ég er með SM 465 í mínum Suburban og það er orginal kassinnn. Mér fannst hann mjög erfiður þegar 6.2l vélin var í en eftir að 6.5 var sett í þá er þetta svo sem í lagi. Hins vegar vantar stundum einn gír í viðbót fyrir ofan.
Svo eru NV4500 kassarnir álitlegir. ekki alveg ein lágir í 1. gír (Önnur týpan 5.61, hin 6.34) en það þarf að nota Dual Mass svinghjól með þeim. Sama á við um ZF-S6-650 beinskipti kassinn sem er á DuraMax og 8.1L bensín vélinni.
Kveðja
Hjalti
19.08.2008 at 16:42 #202806Í fréttablaðinu sunnudaginn 20. júlí skrifaði Kristján Möller samgöguráðherra athyglisverða grein um skoðun ökutækja undir fyrirsögninni : Dýrt að gleyma bílaskoðun.
Upphaf greinarinnar er svona:
„Kristján Möller skrifar um eftirlit með ökutækjumÞað kom fram í vetur að 25 þúsund óskoðuð ökutæki voru skráð hér á landi. Þetta er um 10 prósent af bílaflota landsmanna og allt of hátt hlutfall. Ennfremur hefur komið fram að á undanförnum árum hafa tíu óskoðuð ökutæki tengst banaslysum.
Nú stendur yfir heildarendurskoðun umferðarlaga í samgönguráðuneytinu. Þrátt fyrir það lagði ég fram breytingu á umferðarlögum sem samþykkt var í vor þar sem gert er ráð fyrir því að eigendur bíla séu sektaðir, trassi þeir að færa bíla sína til skoðunar á réttum tíma. Þetta var gert vegna þess að það er mikilvægt öryggismál að bílarnir í umferðinni séu í lagi. Með því að draga úr fjölda óskoðaðra ökutækja er unnt að gera eftirlit lögreglu með skoðun ökutækja skilvirkara. Ég skora því á ykkur, sem vitið uppá ykkur þennan seinagang, að fara nú með bílinn í skoðun.
Fjöldi bíla stóraukist
Í lagabreytingunni sem samþykkt var í vor er gert ráð fyrir að ráðherra geti ákveðið „gjald allt að 15.000 kr. sem eigandi (umráðamaður) ökutækis skal greiða við skoðun hafi ökutæki ekki verið fært til skoðunar á réttum tíma,“ eins og sagði í frumvarpinu. Verði gjaldið greitt innan tiltekins frests getur ráðherra ákveðið að það skuli lækka um helming. Sé gjaldið hins vegar ekki greitt við skoðun, eins og krafist verður, getur það hækkað um 100%, samkvæmt ákvörðun þar um. Gjald vegna vanrækslu á skoðun bifreiðar getur því hæst orðið 30 þúsund krónur.
Samhliða þessu er gert ráð fyrir að eftirlit með ökutækjum á vegum úti verði aukið með meiri samvinnu eftirlitsmanna Vegagerðarinnar, lögreglunnar og skoðunarstöðva. Þegar er komin nokkur reynsla á slíka samvinnu í átaksverkefnum og lofar hún góðu.“
Tilvitnun lýkur.Enn á ný er farið að þjarma að bifreiðaeigendum og nú í formi sjálfvirkra sektargreiðslna og meiri innkomu í ríkiskassann.
Þeir sem verða fyrir barðinu á þessu er fólkið sem á fullt í fangi með að eiga og reka bíla,
hefur ekki efni á að aka um á nýjum eða nýlegum bílum. Ekki kom fram í greinni að vikmörk á bílaskoðun yrðu lengd til að koma á móts við hert viðurlög. Ýmislegt í lífi fólks getur valdið því að skoðun dregst. Það tekur stundum langan tíma að fá varahluti. Fólk veikist, er í vinnu fjarri heimahögum eða dvelst í útlöndum. Sumir taka bíla sína af skrá hluta úr ári. Geta þeir þá átt á hættu að vera sektaðir í hvert skipti sem þeir koma með bíla sína í skoðun.Það eru fyrir hendi reglur um skoðun ökutækja og ökumenn mega eiga von á að lögregla stöðvi þá ef skoðun hefur verið vanrækt. Þetta er að mínu mati næg svipa á ökumenn til að mæta með bíla sína í skoðun.
Þó að 10 óskoðuð ökutæki hafi tengst banaslysum á undanförnum árum þá kemur ekkert fram hjá hæstvirtum samgönguráðherra um að lélegt ástand ökutækjanna hafi orsakað þessi slys.
Kveðja
Hjalti
09.03.2008 at 23:21 #615914Mér sýnist þú nú gerast full hörundssár. Þessu með nafnlausus skrifin var hvorki beint að þér eða Stóra Bjór. Það var hins vegar innlegg frá einhverjum sem kallar sig Hans sem að þessari athugasemd var beint gegn. Reyndar er það innlegg í pistli sem Stóri Bjór setti inn. Jafnframt var þessu beint gegn öllum þeim sem hafa skrifað nafnlaust inn á vef Ferðaklúbbsins og þeir taki það til sín sem eiga.
Hjalti R-14
09.03.2008 at 19:55 #615906Eftir að hafa lesið þennan þráð þá langar mig til að leggja orð í belg.
Ég vil byrja á að minna þá sem skrifa opinberlega, á þennan vef sem og annars staðar, að gæta kurteisi, fara rétt með staðreyndir, líta í eigin barm og lesa efni yfir áður en það er birt. Í hita leiksins er auðvelt að missa frá sér lítt ígrundaðar yfirlýsingar og kröfur á aðra og gleyma eigin aðkomu. Jafnframt þarf að virða sjónamið annarra sem að svona máli koma, eða eru dregnir inní þau, því það er ekki bara ein hlið á neinu máli.
Fólk upplifir sömu atvikin á mismunandi hátt og túlkar samræður á mismunandi veg. Það er því sjaldan til hinn eini sannleikur.
Jafnframt er það þannig að hver og einn ber ábyrgð á sínum gjörðum og viðbrögðum. Það er ekki hægt að kenna öðrum um. Ákveði einhver að bregðast illa við tilteknum atvikum þá gerir hann það.
Hann getur líka ákveðið að bregðast með öðrum hætti við og reyna að leysa málið á jákvæðan hátt fyrir alla aðila.Varðandi mál það sem þessi þráður snýst um þá sé ég ekki annað en að Snorri Ingimarsson geri heiðarlega tilraun til að varpa ljósi á atburðarásina og leita skýringa.
Hans hlið á þessu máli fellur greinilega í grýttan jarðveg hjá ferðalöngunum og sýnist mér þeir ekki taka neitt mark á hans frásögn, þrátt fyrir að
hann tali við báða aðila málsins og fái fram sjónarmið beggja. Þessi viðbrögð ferðalanganna finnst mér bera vott um hroka og óbilgirni.
Ég tel að fulltrúar jeppahópsins opinberi sjálfa sig, því svona málflutingur segir meir um þá sjálfa heldur en þá sem ráðist er að.
Svo finnst mér áberandi að ferðalangar skrifa ekki undir nafni, en nafngreina endurtekið þá sem þeir ráðast að.
Er ekki lágmarkskurteisi að setja nafn sitt undir slík skrif?Ég tel að komast hefði mátt hjá þessum árekstrum ef ferðalangar hefðu kynnt sér gistimöguleika í Kerlingarfjöllum fyrirfram því á
heimasíðunni www. kerlingafjöll.is var sett inn tilkynning þann 17.2. 2008 um að vélsleðamótið 2008 yrði haldið í Kerlingarfjöllum helgina 29-2.mars. og því líklegt að lítið yrði um gistipláss þar þessa helgi.Hjalti R-14
09.03.2008 at 19:55 #615904Eftir að hafa lesið þennan þráð þá langar mig til að leggja orð í belg.
Ég vil byrja á að minna þá sem skrifa opinberlega, á þennan vef sem og annars staðar, að gæta kurteisi, fara rétt með staðreyndir, líta í eigin barm og lesa efni yfir áður en það er birt. Í hita leiksins er auðvelt að missa frá sér lítt ígrundaðar yfirlýsingar og kröfur á aðra og gleyma eigin aðkomu. Jafnframt þarf að virða sjónamið annarra sem að svona máli koma, eða eru dregnir inní þau, því það er ekki bara ein hlið á neinu máli.
Fólk upplifir sömu atvikin á mismunandi hátt og túlkar samræður á mismunandi veg. Það er því sjaldan til hinn eini sannleikur.
Jafnframt er það þannig að hver og einn ber ábyrgð á sínum gjörðum og viðbrögðum. Það er ekki hægt að kenna öðrum um. Ákveði einhver að bregðast illa við tilteknum atvikum þá gerir hann það.
Hann getur líka ákveðið að bregðast með öðrum hætti við og reyna að leysa málið á jákvæðan hátt fyrir alla aðila.Varðandi mál það sem þessi þráður snýst um þá sé ég ekki annað en að Snorri Ingimarsson geri heiðarlega tilraun til að varpa ljósi á atburðarásina og leita skýringa.
Hans hlið á þessu máli fellur greinilega í grýttan jarðveg hjá ferðalöngunum og sýnist mér þeir ekki taka neitt mark á hans frásögn, þrátt fyrir að
hann tali við báða aðila málsins og fái fram sjónarmið beggja. Þessi viðbrögð ferðalanganna finnst mér bera vott um hroka og óbilgirni.
Ég tel að fulltrúar jeppahópsins opinberi sjálfa sig, því svona málflutingur segir meir um þá sjálfa heldur en þá sem ráðist er að.
Svo finnst mér áberandi að ferðalangar skrifa ekki undir nafni, en nafngreina endurtekið þá sem þeir ráðast að.
Er ekki lágmarkskurteisi að setja nafn sitt undir slík skrif?Ég tel að komast hefði mátt hjá þessum árekstrum ef ferðalangar hefðu kynnt sér gistimöguleika í Kerlingarfjöllum fyrirfram því á
heimasíðunni www. kerlingafjöll.is var sett inn tilkynning þann 17.2. 2008 um að vélsleðamótið 2008 yrði haldið í Kerlingarfjöllum helgina 29-2.mars. og því líklegt að lítið yrði um gistipláss þar þessa helgi.Hjalti R-14
04.03.2008 at 22:33 #616158Ég er með
Hjalti R-14
05.02.2008 at 09:45 #612380Hann Þór Ægisson setti nokkrar myndir úr þorrablótsferð Fúlagengisins inn á myndasafnið.
Hjalti R-14
15.09.2007 at 10:56 #597164Einhvers staðar á ég til eitt stykki af milliplötunni sem þeir Guðni Ingimarsson og Jónas Jónasson framleiddu hér um árið. Ef þið hafið áhuga þá skal ég grafa hana upp.
Hjalti, sími 8922950
07.05.2007 at 09:04 #563996þá eru á næsta ári liðin 25 ár frá stofnun Ferðaklúbbsins 4×4.
Ég legg til að ný stjórn félagsins standi fyrir veglegri sýningu þar sem starfsemi Ferðaklúbbsins sem og bílar félagsmanna verði í öndvegi.Hjalti R-14
13.04.2007 at 10:08 #587688um gerð og búnað ökutækja er að finna þær reglur sem gilda um breytingar á jeppum
Þessa reglugerð er að finna á vef Umferðarstofu, http://www.us.is
Ég hvet alla sem eiga breyttan jeppa til að kynna sér þessa reglugerð.Hjalti R-14
15.03.2007 at 14:21 #584632er hægt að slá inn bílnúmer og fá grunn-upplýsingar umm bílinn. t.d:
Skráningarnúmer: Ö3673
Fastanúmer: KD742
Tegund: TOYOTA
Undirtegund: 4RUNNER
Litur: Hvítur
Fyrst skráður:Hjalti
24.11.2006 at 15:18 #566710ég tel að þessi vegakortaútgáfa verði aldrei tæmandi og til þess eins fallin að skerða ferðafrelsi ásamt því að færa yfirvöldum á silfurfati tæki til að klekkja á saklausu fólki sem er á ferð um landi í lögmætum tilgangi.
Að mínu mati ætti ferðaklúbburinn að berjast með kjafti og klóm fyrir því að fá náttúruverndarlög breytt til fyrra horfs.
Það vantaði ekki frekari bönn í gömlu náttúruverndarlögin. Það sem vantaði var að fylgja þeim eftir og kenna fólki að bera virðingu fyrir landinu og bera ábyrgð á gerðum. Að þessu hefur Ferðaklúbburinn unnið frá upphafi. Ef ekki var hægt að fygja eftir réttlátum náttúruverndarlögum , þá er ekki frekar hægt að fylgja eftir ofurbönnum.
Umhverfiráðherra sagði í ræðu sinni að lög mættu ekki brjóta í bága við réttlætiskennd fólks. Við hljótum að vera sammála því og þess vegna verður að standa þannig að málum að við getum ferðast um landið án afskipta þyrlusveita yfirvalda enda sél tilgangur ferðainnar lögmætur og valdi ekki landspjöllum.Hjalti R-14
23.11.2006 at 20:48 #56918223.11.2006 at 19:21 #199035Ég vil vekja athygli á fyrirspurn Dagnýjar Jónsdóttur til umhverfisráðherra þar sem Dagný spyr hvernig ráðherra hyggist taka á þeirri óvissu sem ríkir umhvernig ráðherra hyggist draga úr óvissu sem ríkir um skilgreiningu vega vegna banns við utanvegaakstri.
Hérna er umræðanHjalti R-14
24.10.2006 at 12:52 #564760Kíki á Fransson
Þetta er nú allt að leysast.
Nýjustu útgáfur af Mapsource geta unnið með ISN93. Þar er hægt að slá inn punkt með xy hnitum og senda það yfir í GPStæki sem þá að leiða mann á réttan stað.
Landmælingar eru líka að reyna að koma Cocodati í gagnið aftur.
Þar sem nýjustu Garmin tækin (60CX) geta einnig unnið með ISN93 (og birt xy gildin) þá er sniðugt að láta Des vita af þessu.
hjalti
21.10.2006 at 18:33 #564752Landmælingar bjóða upp á vefþjónustu þar sem maður getur varpað hnitum á milli kerfa, en hún er reyndar ekki virk núna.
Það sem mig langar að gera er að skilgreina ISN93 bæði í OziExplorer og einnig í Garmin tækið mitt. Til þess að geta það þarf ég dx dy da og df gildi fyrir ISN93.
Ef einhver veit hvaða gildi þetta eru þá væri gaman að fæa þetta uppgefið.Hjalti
20.10.2006 at 20:56 #198781Kvöldið.
Í OziExplorer og einnig í mörgum GPS tækjum er hægt að skilgreina User DatumÉg þarf að vinna með nokkra punkta sem mældir voru í ISN93
Hefur einhver upplýsingar um hvernig á að skilgreina Datum fyrir ISN93?
kveðja Hjalti
03.10.2006 at 09:03 #562128Þarnaer hafsjór af fróðleik um 6.2, 6.5 og Duramax vélar
Meðal annars er að finna allt um glóðarkerti.
Þú þarft að kaupa þér aðgang fyrir nokkra dollara á ári og getur marg borgað sig.Hjalti
03.10.2006 at 08:54 #562126Það eru til nokkrar gerðir og hafa mismunandi eiginleika. Orginal kertin voru að min minnir 6 volta og voru fljót að hitna en þoldu ekki langa hitun.
Einnig eru til 10 volta sem eru lengur að hitna en má hita þau lengiÉg fór í gegn um þetta fyrir ca 2 árum. Þá var hægt að fá þetta í Bílanaust og Vélum í Vatnagörðum.
Kertin voru næstum helmingi ódýrari þar.Ef þú kaupir 10 volta kertin þá gæti þurft að lengja hitunartímann.
Hjalti
22.09.2006 at 11:06 #560994Tek undir með þér Snorri.
Ég held að allir séu sammála um að við viljum ganga vel um landið okkar og viljum ekki landspjöll. Það er það sem reglur og lög um akstur utan vega eiga að segja til um. Lög og reglugerðir sem eru þannig úr garði gerð að ekki er mögulegt fyrir venjulegt skynsamt fólk að fara eftir, eru ekki til neins. Þannig finnst mér ástandið vera orðið núna.
Fram til 1999 var að mig minnir í náttúruverndarlögum bannað að aka utan vega þar sem landspjöll geta hlotist af.. Þetta hefur að mínu mati dugað vel, og hefur krafið ferðafólk til að íhuga havð er verið að gera hverju sinni.
Í náttúruverndarlögum frá 1999 er búið að þrengja verulega að ferðafólki og er nú hægt , í skjóli laga, að koma heiðvirðu og reynslumiklu ferðafólki sem ekki má vamm sitt vita í þessum málum. í veruleg vandræði fyrir akstur utan vega, og það jafnvel án þess að vikomandi sé valdur að landspjöllum.Sennilega gæti margumræddur sýslumaður á Selfossi ,skv. Þessu: http://www.logreglan.is/upload/files/Yf … og-reg.pdf, komið lögum yfir flesta sem fara í Þórsmörk ef hagræða þarf akstursleið yfir vatnsföllin á þeirri leið.
Lög og reglugerðir setja fólki skorður,
Sennilega hafa allt of margir atvinnu af því að búa til lög og reglugerðir , og það sem verra er, þetta heldur áfram og alltaf þarf að setja fleiri reglur svo þetta folk missi ekki vinnuna.
Það voru til góðar lög sem gerðu það sem þurfti.
Það skiptir ekki máli hvort utanvega akstur er bannaður, eða harðbannauð eða þá Svakalega mikið harð bannaður. Það sem gildir er hugarfar þeirra sem eru á ferð um landið og reglugerðarfargan breytir engu þar um.Það er augljóst að Ferðaklúbburinn þarf að bretta upp ermarnar og vinna að endurheimt ferðafrelsis landsmanna um eigið land.
Úr náttúruverndarlögum:
17. gr. Akstur utan vega.
Bannað er að aka vélknúnum ökutækjum utan vega. Þó er heimilt að aka slíkum tækjum á jöklum, svo og á snjó utan vega utan þéttbýlis svo fremi sem jörð er snævi þakin og frosin.
Umhverfisráðherra kveður, að fengnum tillögum [Umhverfisstofnunar],1) í reglugerð2) á um aðrar undanþágur frá banni skv. 1. málsl. 1. mgr., m.a. vegna starfa manna við landbúnað, landmælingar, línu- og vegalagnir og rannsóknir. Ráðherra getur í reglugerð, að fengnum tillögum [Umhverfisstofnunar],1) takmarkað eða bannað akstur á jöklum og á snjó þar sem hætta er á náttúruspjöllum eða óþægindum fyrir aðra sem þar eru á ferð.
Ólögmætur akstur utan vega varðar refsingu, sbr. 76. gr.Hjalti R-14
-
AuthorReplies