Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
28.01.2004 at 19:38 #486220
Ég átti lengdan Toyota DoubleCab og var á 38" hvursdags en 44" notaði ég í alvöru ferðir. 38" virkaði ágætlega en stundum virkuðu þau alls ekki.
Eftir að ég fékk mér 44" þá fór að verða gaman í aðstæðum sem ég vildi helst ekki lenda á á 38". Í mjög djúpum og erfiðum lausasnjó hafði 44" algera yfirburði, einnig í krapa og vatnsveseni.
Í venjulegu færi þar sem allir gera keyrt þá er ekkert unnið með 44", en þegar virkilega fer að reyna á þá tel ég að maður sé miklu betur settur á 44"
Eins og Freyr kom inná þá er afturhásingin á Toyota Hilux ekki nægilega öflug í þetta til lengdar. Að vísu lenti ég ekki í neinu veseni með hana, enda var aðeins búið að eiga við hana.
hjalti
12.01.2004 at 16:01 #484042Þeir hjá Jeppasmiðjunni á Ljónsstöðum hafa verið að gera við skiptingar með ágætum árangri.
Fáðu verðtilboð því viðgerðir á sjálfskiptingum eru oft kostnaðarsamar.
Það gæti jafnvel borgað sig að kaupa nýja/uppgerða skiptingu frá U.S.A. nú þegar dollarinn er okkur hagstæður
Hjalti
06.01.2004 at 09:30 #483394Jeppar á fjöllum var gefin út af Ormstungu 1994 að mig minnir. Eftir því sem ég best veit þá er hún uppseld hjá forlaginu og ófáanleg í bókabúðum. Þó er um að gera að spyrjast fyrir um þetta ef menn kíkja í bókabúð.
Hjalti
08.12.2003 at 22:49 #482258Til hamingju með Chevrolettinn þinn og velkominn í hópinn.
Stál og stansar hafa reynst mér vel þá sjaldan að þarf varahluti í chevrolet hásingar.Þar sem að þú ert líklega með 10 bolta framhásinguna og 44" dekk þá tel ég að þá ættir þú ekki að eyða pening í að laga hana, heldur reyna að finna þér Dana 60 strax.
Ég er búinn að fara í gegn um þetta og þess vegna á ég til töluvert endurnýjaða 10 Bolta framhásingu með loftlæsingu.
Þú mátt hringja í mig ef þig vantar hásingu eða upplýsingar.
kveðja
Hjalti
sími 8922950
03.12.2003 at 16:42 #481928Ég vil benda ykkur á eftirfarandi síðu þar sem meðal annars er sagt frá muninum á GMC og Chevrolet
http://www.thehistoryofcars.com/gmc_truck.html
Fyrir ykkur sem eigið eldri Chevrolet trukka (1947-1991)
þá eru ágætar vef-verslanir sem eiga flesta varahluti í þessa bíla. Sú sem ég hef góða reynslu af er http://www.chevyduty.com.og einnig er til http://www.lmctruck.com sem hefur hluti í Chevrolet, GMC og Ford, t.d. Bronco, Pickup og Ranger
Hjalti
og svo þetta:
"This is a response to the "Christian Environmentalist"
that ask the question, what would Jesus drive?I believe Jesus would have driven a diesel Suburban for the size and economy. He certainly would not have driven a tiny, solar powered anything. Remember, Jesus was a carpenter; he would need to carry his tools and supplies. When he took out the third seat and folded the second seat he would have a little over 8’x 4′ of cargo space. He also had the 12 Disciples to haul around so he would actually have 2 Suburbans. He could carry 16-18 people and still have cargo room for their gear. You can bet it would be 4×4, because they went to many out of the way places. For the environmentalist to say Jesus would have driven a battery powered matchbox just means they don’t have a real good idea of what he did for a living or the idea of Jesus in a manly full size SUV goes against their cause. I believe Jesus is our savior and was a man of action while on earth, therefore a full size SUV would have been a perfect fit, you decide.
David"
07.11.2003 at 09:05 #479778Sælir
Oziexploerer er gerður fyrir GPS vinnslu og er með stuðning fyrir flestar gerðir GPS tækja.Til að fá fulla útgáfu af Oziexplorer er best að fara inn á heimasíðuna, http://www.oziexplorer.com og finna "Registration"
eða þá þetta: http://216.218.220.254/eng/register.htmlÞarna er hægt að kauða fullt leyfi fyrir 75$
Hjalti
06.11.2003 at 10:10 #479768Sæll
Það er auðvelt að nota NOS/Geo kortin í Ozi Explorer
Til þass að geta það þarftu að vera með fulla útgáfu af Ozi, ekki Demo.Aðferðin er eftirfarandi:
Opnar OziExploere
Velur
File
Import Map
All BSB or NOS/GEO charts on a CD or in a foldergefur síðan upp slóðina að kortunum og velur staðsetninguna að MAP skránum fyrir Osi
og smellir á ImportÞegar þessu er lokið ferð þú aftur í
File
Load from file
Load Map file
og þá velur þú kortin sem þú vilt skoða.Einnig er sniðugt að velja
File
Configuration
og haka við: Load last Map
og Set last Zoom and PositionGangi þér vel
kveðja
Hjalti
21.10.2003 at 09:56 #478308Sæll
Ég hef nokkra reynslu af Toyota Landcruiser FJ40. Með öflugum vélum og stórum dekkjum reyndust gömlu millikassarnir frekar illa. Hef átt þrjá FJ40 bíla. Ég braut tvo eða þrjá svona kassa og þetta varð ekki til friðs fyrr en stóri millikassinn var kominn í. Ég lenti reyndar ekki í almennilegum hremmingum með þetta fyrr en í síðasta FJ40 bílnum mínum. Það sem gerðist var að millikassahúsið brotnaði í tvennt.
Sá bíll var með 4ra gíra kassa, 4.9:1 í fyrsta gír. Sá kassi reyndist mjög vel, en ekki millikassinn.Þetta endaði með því að að ég fékka bæði gírkassa og millikassa frá partasölu í USA, Sá kassi var með 3.55:1 í fyrsta gír. ég flutti úttaksöxulinn úr honum yfir í kassann minn og skrúfaði allt dótið í.
Eftir þetta varð aldrei neitt vesen með millikassann.Þessi jeppi var á 38" dekkum, læstur að aftan og framan og með nokkuð spræka Crysler V8 360 cu.in. vél.
Ég tel að þú ættir að leggja töluvert á þig til að fá sterkari millikassa. Þyngdin á þessu skiptir minna máli en öll óþægindin og kostnaðurinn sem fylgir því að að brjóta millikassa í vondum aðsæðum á fjöllum uppi.
kveðja Hjalti
22.08.2003 at 12:11 #475752VHF kerfið sem Ferðaklúbburinn hefur yfir að ráða er orðið býsna öflugt og spannar nánast allt landið.
Fjarskiptanefndin og Siggi Harðar eiga heiður skilinn fyrir þetta frábæra framtak.Í báðum kerfum eru dauði svæði. Mín skoðun er sú að þessi kerfi koma hvorgugt í stað hins og maður kemst ekki
upp með að sleppa VHFinu ef maður vill vera með í leiknum.Ef þú hins vegar ert einungis að hugsa um VHF og NMT sem öryggistæki þá tel ég þessi kerfi styðja hvort annað, þ.e.
gott að hafa bæði. Í flestum tilfellum ætti hvort um sig að hafa næga útbreiðslu til að þjóna þessum þörfum.
Enginn getur heyrt í NMT ef ekki næst samband við endurvarpa en nálægir VHF notendur geta heyrt
neyðarkall þó ekki náist í endurvarpa.Mín skoðun er að eiginleikarnir séu svo mismunandi að bæði VHF og NMT eru nauðsynleg tæki fyrir jeppaferðamenn.
Hvað með UHF, Hafa einhverjir prófað það á milli bíla. ?
Getur UHF komið í stað CB ?
Þessar stöðvar eru sagðar draga ca. 3 kmkv Hjalti
20.08.2003 at 15:59 #475738Það er mikill munur á eiginleikum síma annars vegar og á talstöðvum hins vegar.
Í stórum dráttum er munurinn þessi:
Símana notum við til að ná sambandi við tiltekið númer og aðeins einn aðili, sá sem hefur tiltekinn síma /númer, getur svarað og heyrt samtalið. Engir aðrir eiga að geta hlustað á samtalið eða lagt eitthvað til málanna.Talstölvarnar eru þess eðlis að margir geta heyrt þegar við notum þær, og allir þeir geta svarað sem eru að hlusta á rásina sem við erum að nota.
Að mínu mati kemur sími ekki í stað talstöðvar eða öfugt.
Kveðja
Hjalti
20.08.2003 at 12:58 #192812Á dögunum var ég beðinn um að leiðbeina fjarskiptalausum jeppaeiganda um val á talstöð. Á ekki bara að sleppa CB-inu og fara strax í VHF?
Er vit í að kaupa VHF handstöð til að nota í staðinn fyrir CB. Hvað draga slíkar stöðvar ef þær eru notaðar inni í bíl án útiloftnets. Er nauðsynlegt að hafa útiloftnet fyrir þær
Ef þið hafið reynslu af svona stöðvum þá væri gaman að heyra af því.
Hjalti
19.08.2003 at 09:07 #475690Raför Eyjarslóð 9 seldi Storno símana hér áður fyrr og hafa veitt þjónustu fyrir þá.
Prófaðu að hringja í þá í síma 5523424hjalti
24.03.2003 at 16:46 #471394Á vef Sjóvá Almennra er að finna skilmála vegna kaskótryggina ökutækja:
http://www.sjova.is/files/clauses/149/2002_6_28_Kaskótrygging%20skilmáli.pdf
Einnig þetta:
Sérákvæði í skilmálum vegna Utanvegakaskó
Þrátt fyrir ákvæði gr. 2.12. skilmála gildir vátryggingin í akstri utan vega.Eigin áhætta vátryggðs í sérhverju tjóni er kr. 325.200
Hámarks björgunar-og flutningskostnaður úr óbyggðum er kr. 180.200
Hámarksbætur vegna tjóns á viðtækjum og hljómtækjum eru kr. 45.000.
Útgáfudagur var 1. mars 2002.
Vátryggingin endurnýjast 1. mars ár hvert.
trúlega er þetta eitthvað svipað hjá hinum tryggingafélögunum
hjalti
06.03.2003 at 12:01 #467930Á heimasíðu Garmin er hægt að sækja hugbúnaðaruppfærslur fyrir Garmin tækin. Nýjasta útgáfan fyrir 162 er V3.10.
Hugsanlegt er að uppfærsla á þessum hugbúnði geti lagað þessa galla.
Þetta er á http://www.garmin.com/support/download.jspÞó að þessi vandamál leysist ekki hjá ykkur þá eru ýmsar aðrar leiðréttingar komnar inn sem réttlæata alveg að uppfæra hugbúnaðinn.
Síðustu leiðréttingar á 162 hugbúnaðinum:
Changes made from version 3.05 to 3.10:Implemented position Auto Averaging support.
Added support for Australian and European tides.
‘Track Log Full’ message is now displayed when the Track Recording Mode is set to ‘Fill’ and there is no more space left to record track points.Added support for extended (non-English language) character display on the map.
Added new metric version of Nautical units that underflows distance measurements to meters instead of feet.
Elevation units no longer overflow to a larger unit of measure when the value gets large. For example, if you are using Statute units and your elevation rolls over from 999 ft to 1000 ft, the unit will now display 1000 ft, rather than 1.0 kft.
Corrected problem on the Tide page where the Find position reference is always set to ‘Other Position’ when the Find key is pressed when the ‘At’ station field is highlighted. The reference is now based on the position of the station if a valid station has been selected
Hjalti
30.11.2001 at 11:02 #457752Sæll Glanni
Þú átt væntanlega bókina sem fylgdi tækinu þínu, þ.e.
Garmin 126/128 Owner’s Manual and Reference.Í bókinni á bls. 59 er teikning af tengingunum.
Pinni 1 = (Red) 10-40 volts DC
Pinni 2 = (Black) Ground
Pinni 3 = (Blue) NMEA Out
Pinni 4 = (Brown) NMEA In
Pinni 5 = (White) No Connection
Pinni 6 = (Green) No Connection
Pinni 7 = (Yellow) Alarm LowEf þú átt ekki bókina þá getur þú sótt hana yfir Netið til Garmin (http://www.garmin.com)
Hjalti
-
AuthorReplies