Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
21.04.2009 at 23:14 #645180
363.000,- íslenskir dollarar !!!
Það er bara allt of mikið fyrir hárblásara.
Hef þyrluóðan Vestmannaeyjing grunaðan um ágóðasjónarmið.
Spurning um að athuga með samsvarandi Garrett túrbínu, glænýja jafnvel….
21.04.2009 at 22:58 #642250Það er líka hægt að versla suðubeygjur ef það er mjög krappt. Hef notað ryðfrítt með góðum árangri á þennan máta, svo endist það sennilega bara ansi vel…
21.04.2009 at 22:50 #646220Alveg sjálfsagt að hampa þeim sem gera vel við okkar sport
Lítur út fyrir að Ísfell sé staðurinn til að versla spotta, ekki algengt að finna það sem mann vantar á verði sem er ca. 1/3 af því sem almennt gerist.
Á sama hátt er sennilega óviðeigandi að nafngreina "ripoff" viðskipti á sama þræði.
Takk fyri þetta
Grímur
20.04.2009 at 23:11 #646166Ég sé nú enga sérstaka meinbugi á því að setja Rover (Patrol) stífur að framan undir þennan bíl, nema þá kannski að boddíið er þá að taka að hluta til upp þvingun við misfjöðrun. Veit bara ekki hversu viðkvæmur Cherokee er fyrir því. Gæti alveg verið að hann sé með 4-link til að sleppa við það, en það finnst mér samt ekkert sérstaklega líklegt.
Að lengja afturstífur er líka bara hið besta mál.Varðandi afturskaftið og tvöfaldan lið langar mig að benda á lausn sem Freysi útskýrði fyrir mér:
Pinjón og öxull úr millikassa þurfa ekki endilega að vera samsíða með einfalda liði, það er líka hægt að halla hásingunni með pinjóninn upp.
Sama gráða á horninu milli pinjóns og skafts annars vegar, og svo á milli skafts og millikassaöxuls hins vegar. 180 gráður eru milli þessara horna þannig að snúningshraða-aflögunin núllast út.
Þetta hefur það í för með sér á hækkuðum bílum að hvor gráðan fyrir sig er mun minni en annars, sem getur komið sér sérstaklega vel ef skaftið er stutt.
(Vegna þess að krossinn við pinjón liggur ofar en í hefðbundinni útfærslu….)
17.04.2009 at 23:33 #645752Vandaverk og ekki….ég gat farið inná greinina á frekar hentugum stað, þannig að ryksuga, bréf og slatti af kæruleysi kom þessu í kring hjá mér.
Það er sennilega öruggara að setja bara T á turbohosu, ég bara nennti ekki að græja það, en sé eftir því vegna þess að nippillinn er full lítill (3/8" gengja með stút fyrir 10mm slöngu). Ég stækka þetta einhvern daginn.
Ég hef nú ekki orðið var við olíusmit, en auðvitað er það möguleiki, grunar samt að drullan sem safnast með tímanum í turbolagnirnar sé nú ekkert svakalega mikið per rúmmeter af lofti….mínir útreikningar benda allavega til að bínan þurfi að leka alveg svakalega þarna út til að það skipti einhverju máli. (2.5 rella dælir allavega 200 rúmmetrum af lofti á klukkustund, sennilega nær 500 þegar allt er á fullu)
Ventlasystemið mitt er mjög einfalt, einn 3-way handloki(kúluloki, 1/2") til að blása í/hleypa úr. Svo einn kúluloki fyrir afturdekkin, og annar fyrir framdekk(sama og felgulokarnir, 1/4"). Allt lagt í 10mm, stofnarnir að 3-way lokanum þurfa að vera sverari. Mælir fyrir fram/aftur.
Það er kostur að geta lokað líka milli hægri/vinstri, ég er búinn að komast að því. Næsta system verður með eitthvað svoleiðis.Allavega, þetta er ferlega þægilegt, þrusa bara í dekkin á gjöfinni þegar maður er laus úr skaflinum. Engin hætta á að sprengja neitt, bínan getur það ekki. Ekkert rafmagns-kveiki-bíði-vesen.
Eini ókosturinn er að það er pínu asnalegt að pumpa í kyrrstæðan bíl, með vélina á 3000 snúningum. Með sverari lögnum verður það ekkert vandamál, þar sem maður getur verið löngu búinn að pumpa í flestum tilfellum.
Mín reynsla af þessu er að fyrir 35" dekk, þá er þetta algert möst. Til að drífa eitthvað á svoleiðis skífum þarf að fara með loftið niður í voða-voða lítið á köflum, en má samt oft ekki vera of lítið. Að hitta á þennan "soft-spot" er heljarinnar kúnst með loppna putta, mæli og hettur, en ekkert mál innan úr bíl. Fyrir stærri dekk er þetta sjálfsagt bara mjög hentugt líka, gefur heljarinnar "auka" drifgetu þar sem hægt er að stilla nákvæmlega eftir færinu sem er undir þá og þá stundina. Ég hef bara ekki prófað þetta sjálfur á alvöru dekkjum, en það er alveg klárt að ég fer helst ekki á fjöll án svona búnaðar eftir að hafa prófað.
kv
Grímur
17.04.2009 at 02:40 #645732Ég snittaði nú bara fyrir nippli á soggreinina hjá mér, og setti 1 stk einstefnuloka á lögnina þaðan. Bínan er að blása 18psi þegar allt er á fullu, sem dugar til að smella öllum 4 35" dekkjunum úr 2psi í 5 á ca 20 sekúndum. Það er engin þörf fyrir loftdælu í túrbóbíl sem er með bilaða túrbínu….og svo blæs þetta bara eins og lagnirnar bera
Ég þarf reyndar að svera þetta aðeins upp, finnst hann vera aðeins of lengi að skjóta í skurðarskífurnar, er með 10mm polyurethane slöngur í þessu öllu, en þyrfti að setja ca 18mm í stofninn til að hafa þetta gott.Annað dæmi: F-350 blæs allavega 35 psi….það er alveg nóg í hvaða jeppadekk sem er…..
Svo er ég með rafmagnsdælukríli svona til að setja í malbiksþrýsting…
mín 2 cent
Grímur
17.04.2009 at 02:30 #645892Ég mengaði mína annars ágætu TOYOTU með Patrol maskínu. Passaði ótrúlega vel í þetta verkefni, þurfti að mixa glussann aðeins til, en mig minnir að rillurnar á öxlinum uppí stýri hafi verið þær sömu og TOYOTA rillurnar.
Minnir að ég hafi notað a.m.k. eitt original gat í grindinni, smíðað hin 3 og svo styrkti ég allan pakkann yfir í hina hliðina til að fá ekki vinding á grindina(það var ótrúlega mikið af sprungum í grindinni eftir original maskínuna).Þetta er náttúrulega alveg argasta guðlast, en það er hitt og þetta nothæft úr DATSUN þegar vel er að gáð
kv
Grímur
17.04.2009 at 02:12 #645792Ég er með 500W breyti, sem er gefinn upp fyrir 1000W peak. Sennilega er allt of grannt að honum hjá mér, þyrfti að beintengja með almennilegum vír til að gera þetta raunhæft. Allavega, mér finnst ekkert að því að hafa straumbreyti sem ræður við lítinn slípirokk. Svoleiðis verkfæri er alveg rosalega fjölhæft og að mínu mati næstum nauðsynlegt apparat. Því miður slær minn út við 500W rokkinn sem ég á(púlsar honum áfram en nær ekki snúning), en ég ætla að prófa að leggja sverara að breytinum til að sjá hvað gerist.
Ef það gerir ekkert (sem ég á nú frekar von á), þá er ekkert annað að gera en að fá sér stærri breyti eða minni slípirokk. Veðja samt frekar á stærri breyti…..Ég prófaði þessa Byko-græju einusinni, bræddi úr henni við fartölvuna eina saman. Mæli ekki með neinu innan við 200W fyrir svona smádót.
Ég get ekki verið sammála því að það sé einhver pissukeppni að vera með meira en 300W inverter. Þetta er bara spurnig um að geta hagnýtt sér alvöru græjur sem hvort sem er eru til á heimilinu eða í skúrnum. Hinn möguleikinn er að vera með rafstöð, en þær geta alveg ótrúlega lítið miðað við þyngd, umfang, stærð og verð. Kýs frekar inverter að svo komnu.
kv
Grímur
14.04.2009 at 00:26 #645670Mér finnst 5° nú frekar lítið fyrir…tjah, eiginlega hvaða dekkjastærð sem er. 10° er nær lagi fyrir 44".
Spurning um þverstífugúmmí, alveg týpískt vandamál.
Spindlar…geta verið svolítið lúmskir og hegðað sér akkúrat svona.
Svo auðvitað hjólabil, gott að prófa sig aðeins áfram með það, en "smá innskeifur" virkar oftast ágætlega, gott að muna líka að þegar allt hlaup leggst saman, þá breytist þetta allt saman ef þú slysast útá veg í framdrifinu….Það var ágætis þráður hérna einhvers staðar með öllu þessu útlistuðu.
mín 2 cent
kv
Grímur
11.04.2009 at 13:44 #645064einu gleymdi ég, það er TPS (Throttle Position Sensor) á kvikindinu, sem mér finnst vera ansi glöggt merki um eitthvað tölvugimmikk.
Ég hef prófað að aftengja þetta meira og minna, án þess að finna neina breytingu, þannig að mig er farið að gruna að þetta sé hálfgert "piggyback" kerfi, sem hefur verið sett til að troðast í gegn um einhverja mengunarreglugerðina, en er til algerra vandræða þegar það bilar(sem er trúlega tilfellið).
Spurning hvort maður getur ekki bara strippað þetta allt af og stillt uppá nýtt "manual". Ég er allavega alveg búinn með þolinmæðipillurnar
Svo á ég ágætis 2.4 Hilux mótor einhvers staðar í skúrnum sem fer ofaní ef þessi andast…engin giskukeppni um það hvernig hann virkar.kv
Grímur
09.04.2009 at 11:41 #645058það er gott að vita, samt er einhver rafmagnspúngur á þessu olíuverki(Bosch-copy), með slatta af vírum í, einmitt þar sem ég hefði búist við að finna magnskrúfuna.
Auk þess er skynjaradót hér og þar, vakúmstýring á því hvort olíuverkið fær "búst" merkið inn, EGR stýring og eitthvað fleira.Spurning um að komast yfir annað til að rannsaka þetta….
08.04.2009 at 20:43 #645394kannski er einhver búinn að anda aðeins of miklu stýreni að sér….
08.04.2009 at 17:59 #645052Ég var ekki búinn að yfirfara þessa fjárans ventla, kannski gæti það verið málið með Grasshopperinn minn, mér finnst einhvern veginn að hann hafi verið miklu sprækari fyrir ca 30.000 km síðan. Hlýtur að vera eitthvað svona dót sem er bilað, af nógu er að taka.
Veit einhver að hversu miklu leyti þetta olíuverk er tölvustýrt? Nenni eiginlega engan veginn að reverse-engineera þetta drasl ef það er einhver hérna sem þekkir þetta betur en lófann á sér.
Ef þetta er alger tölvu/mekaník-samkrullis-martröð þá borgar sig kannski að farga því öllu saman og setja 100% mekanískt olíuverk í staðinn….
08.04.2009 at 00:16 #645016Aulatrix sem ég hef notað, til að halda hlutum beinum við suðu, er að láta styrkingar passa 100% (snerta) áður en byrjað er að steikja. Ef svo er soðið þannig að ekki bráðni alveg í gegn þá heldur óbráðna efnið við. Þetta skilar náttúrulega ekki eins sterkri suðu og vel innbrennt.
Með sama lögmáli(en öfugt, þannig séð) er hægt að spenna til með því að sjóða í bil þannig að bráðin dragi saman hluti.
07.04.2009 at 23:49 #645414Hvað er verið að borga fyrir?
Einhvern veginn á ég ekki von á að það sé upplýsingagjöf og aðgengi jeppamanna að Vatnajökli.
Þetta minnir svolítið á girðingageðveiki níunda áratugarins þar sem hugmyndafræði friðunarsinna fjallaði um lítið annað en girðingar hér og þar, sem gerðu lítið annað en ryðga niður og verða að umhverfisspjöllum.kv
Grímsi
07.04.2009 at 23:44 #6453281:4.88 er ágætt fyrir 35" miðað við 1:1 millikassa(háa). Ég færi að velta þessu fyrir mér í 1:5.29/1:5.13 eða lægra.
07.04.2009 at 23:40 #645426Kannski að setja loftpúða með blöðunum….ekki besta lausn kannski, en gerlegt samt.
Ef þú setur auka blöð, þá er gamalt ráð að fylla fjaðrirnar með koppafeiti og pakka öllu saman inn í striga, þannig ná þær betri svörun í fína víbringnum sem fjaðrir ná oft ekki ósmurðar….kv
Grímsi
07.04.2009 at 23:35 #645446800 kg Firestone púðarnir eru alveg feikna skemmtilegir. Það þarf reyndar að setja fullorðins þrýsting í þá, en þeir þola það vel, ekkert plastbotna dót. Hef keyrt bíl sem var í 110psi fullestaður á þessu og fjaðraði mjög skemmtilega.
Ég tel víst að þessi fullyrðing mín gæti vakið umræður, en það er bara fínt. Hvet menn bara til að prófa. Of stórir púðar eru bara ekkert skemmtilegir, svagir og leiðinlegir. Ég hef nú ekki reiknað út hvernig stendur á þessu, en það er sjálfsagt mjög einföld skýring á því hvers vegna minni púðar virka betur en stærri í því sem við erum að gera.kv
Grímsi
07.04.2009 at 21:55 #645172…eða tregða, ekki þrýstiventill þannig séð. Þessi uppsetning nýtir viðnám í lögninni að wastegate pungnum og svo stillanlega tregðu til að regla. Einföld lausn, ég nota reyndar 2 stk. tregður og svo T, læt bara blása út, það er svo lítið sem blæðir ef maður er með tregðu frá soggreininni….
07.04.2009 at 20:59 #645410Minnir óneitanlega á leiðangur sem ég fór í (einbíla, ekki segja neinum frá) inn vélsleðaveginn, sunnan við Skjaldbreið og svo niður hjá Miðdal, í maí 1999. Þurfti að læðast eftir sköflum utaní brekkum og príla grjótbrekkur sem voru eiginlega eins og risavaxnir árfarvegir. Sunnan við Hlöðuvelli var stærðarinnar vatn….ekki séns að komast þar norðuryfir.
Eftir þetta skil ég hvaðan vatnið í Brúará kemur.kv
Grímur
-
AuthorReplies