This topic contains 14 replies, has 1 voice, and was last updated by Valgeir Stefán Sverrisson 17 years ago.
-
CreatorTopic
-
02.03.2009 at 19:56 #203949
á einhver púst eða veit hvar er ódýrast að fá 2.5-3″ púst undir Patrol 2001 ,fékk tilboð uppá 130þús að smíða 2.5″ undir bílinn og finnst það alltof mikið,þannig að ég er opin fyrir öllu og ég veit að patrol er ekki með góðar vélar:)
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
02.03.2009 at 23:07 #642228
spjallaðu við Hólmar i fjöðrini i skeifuni.
Hann smíðaði fyrir mig og er ég mjög sáttur við þá vinnu.
02.03.2009 at 23:20 #642230Pústverkstæði Einars á smiðjuveginum.
Hefur alltaf verið lægstur þegar ég hef látið smíða 3"púst undir hjá mér
03.03.2009 at 09:16 #642232Fékk tilboð í kringum áramótin frá BJB í smíði á pústi fyrir 2,8. (þetta er yfirleitt til á lager hjá þeim) og þá var þetta í kringum 70-80þús m vsk ef ég man þetta rétt.
03.03.2009 at 12:27 #642234Búinn að kanna málið betur hringdi útum allt og pústverkstæðið ás eru ódýrastir 40þús fyrir2.5".takk fyrir hjálpina
03.03.2009 at 14:35 #642236Fékk þá á sínum tíma til að smíða 2,5" undir Pajero. Voru þá ódýrastir og skiluðu góðri vinnu!!!
l.
03.03.2009 at 19:37 #642238Ég er núbúinn að fá 3" pústkerfi frá þeim undir pattann.
Það verslar enginn heilvita maður við pústverkstæði Einars á smiðjuveginum, enda er hann yfirlýstur andstæðingur björgunarsveita og samkeppnnisaðili þeirra í fjáröflunum.
03.03.2009 at 20:25 #642240Eða sleppa bara öllu kútarugli og hafa bara 2,5" rör afturúr, allavega voru gömlu díselvélarnar hljóðlátar, kemur bara smá trukkahljóð en ekkert mikið meiri hávaði. Í pústkerfum eru það kútarnir sem eru lang dýrastir.
04.03.2009 at 16:45 #642242er einhver gríðarlegur munur að vera með 2.5" eða3" undir bílnum fyrir utan stærðina
04.03.2009 at 22:18 #642244Streymishraðinn í pípu minnkar í öfugu hlutfalli við þvermálið í öðru veldi og þrýstifall í pípu og staðal fittings er í hlutfalli við straumhraðann í öðru veldi.
Að fara með pústþvemálið úr t.d. 1,8" í 2,5" minnkar hraðan um helming og þrýstifallið um 3/4 eða í fjórðung af því sem áður var. Að fara úr 1,8" í 3" minnkar það í 1/8 hluta þess sem áður var.
Ekki síður mikilvægt að vera með beina kúta eða jafnvel enga.
Þetta er samt eins og annað örugglega trúaratriði.
mbk.
l.
21.04.2009 at 17:13 #642246Er það þess virði að smiða undir Patrol 1996 2.8L 3" púst ef 2.5" er fyrir. Er einhver munur á þessum stærðum á þessum bílum??
Hringdi á tvo staði og þar kostaði þetta milli 70 og 80 þúsund kall…..
Er með intercooler og fæ mér cyklon fljótlega fyrir túrbínu og intercooler.Kv Hagalín
21.04.2009 at 18:24 #642248Ég smíðaði pústið mitt bara sjálfur eins og allt annað. Ég saga 15° í báða enda og sýð svo saman aftur og til að breyta stefnu þá sný ég samsetningunum, og punkta saman. Í endann ríf ég allt undan og sýð uppá borði. Þetta gefur manni fullan sverleika alla leið en minnkar ekki niður úr 2.5" og í 2" í beyjum eins og þetta kemur út úr beyjuvélum. Lögn er aldrei sverari heldur en mesti flöskuhálsinn, fáránlegt að selja 2" kerfi sem 2.5", eða það finnst mér í það minnsta.
Ef menn vilja spara sér aur þá er ég tilbúinn til að smíða undir hvaða bíl sem er.
elliofur@vesturland.is
21.04.2009 at 22:58 #642250Það er líka hægt að versla suðubeygjur ef það er mjög krappt. Hef notað ryðfrítt með góðum árangri á þennan máta, svo endist það sennilega bara ansi vel…
22.04.2009 at 00:43 #642252ég skipti úr 2.5" með túpu og kút yfir í opið 3" frá túrbínu.. munaði alveg heilum helling í vinnslu. Munaði alveg um heilan gír upp brekkur.
Reyndar borgaði ég nú bara 10 þús fyrir rörið, hvort það er 70-80þus kr virði er þitt að velja 😉
22.04.2009 at 01:38 #642254Sammála Ella , þetta er svakalegt að sjá púst sem beygt er í vélum . Dregst saman um 1-1.5 " í beyjunum . 5 cm bútur við túrbínuna í orginal málinu . Pústið er ekki sverara en þrengsti hluti þess .
Smíðaði 3,0" (alla leið )undir Patta 93 2,8 með 8 cm boddýhækkun .
Ein víð beyja frá túrbínu aftur að hásíngu !
síðan 4 x 45gráðu suðubeyjur yfir hásingu og engin kútur .
Góð útkoma .
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
