Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
18.07.2008 at 01:14 #626142
Hann er rennisléttur og flottur, keyrði hann á föstudag.
Freyr
16.07.2008 at 15:38 #626102Það skiftir máli hvort neminn er staðsettur fyrir framan eða aftan túrbínu. Það er töluvert hitafall þegar loftið fer í gegnum túrbínuna. Veit að einhverjir toyota jeppar hafa mælst 730°C fyrir framan túrbínu orginal frá framleiðanda (mælt af tæknimönnum sem voru að smíða afgasmæla).
Freyr
15.07.2008 at 22:20 #626092Ég myndi ekki hika við að fara. Síðustu sumur hefur vatnsmagnið í mörkinni minnkað ár frá ári (minni jöklar) og þetta er orðið greiðfært nær allt sumarið. Fyrir utan örfáa stóra rigningardaga er þetta ekkert mál. Endilaga láttu menn ekki hræða úr þér líftóruna með einhverjum tröllasögum, farðu bara varlega og ef þér lýst illa á hinkraru bara eftir næsta jeppa eða rútu sem fer yfir og metur svo hvort þú viljir halda áfram eða snúa við. Og eitt mjög gott ráð ef mönnum lýst illa á vötnin: vera snemma á ferðinni og þá er vatnið í lágmarki.
.
Góða skemmtun
.
Freyr
15.07.2008 at 22:09 #626078Spíssar eru hreint ekki svo slæm ágiskun, hljómar bara nokkuð líklegt. En í stað þess að hlaupa í dýrar framkvæmdir eru þrjú íblöndunarefni sem ég myndi prófa á tankinn áður en ég færi í kostnaðarsamar aðgerðir. Bell Aid spíssahreinsir f. diesel, spíssahreinsiefni sem er selt í Stillingu í gulleitum brúsa og að lokum sjálfskiftiolía. Efnin blandist skv. fyrirmælum framleiðanda og ég myndi nota 1 – 2 lítra af ssk olíu miðað við 90 ltr. tank.
.
Prófaðu næst þegar þú setur hann kaldann í gang að hlusta á vélina – ef það tikkar í henni en hverfur þegar hún hitnar getur það verið vegna stirðra spíssa sem jafna sig þegar vélin hitnar.
.
Freyr
14.07.2008 at 20:48 #626034Tvennt dettur mér í hug og bæði tengist það maskínunni. Hún getur verið laus og einnig getur verið komið slag í hana. Til að athuga los á henni leggstu einfaldlega undir jeppann og horfir á festingarnar fyrir maskínuna meðan einhver tekur á stýrinu fyrir þig (gætir þurft að fjarlægja plasthlífar undan honum til að sjá þetta). En til að meta slagið borgar sig að fá fagmann til að meta það (best að fara í umboðið). Það er hægt að herða slagið úr þessum maskínum upp að vissu marki.
Freyr
13.07.2008 at 17:36 #626018Er einnig að spá hvernig orginal loftinntakið hefur komið út. Þolir að sjálfögðu ekki að fara á kaf en þolir það vel allann venjulegan gusugang???
Freyr
13.07.2008 at 16:09 #202662Fyrir stuttu síðan keypti ég mér ’95 Patrol og er með nokkrar spurningar.
.
Veit að það hefur verið vesen með driflokurnar, hvaða lokur hafa komið vel út??? (Hef ekki áhuga á að setja lok frá Ægi).
.
Svo hafa menn verið að beygja framhásingarnar þar sem liðhúsin mæta rörinu. Gerist það bara í „óeðlilegum átökum“ eins og stökkum o.s.frv. eða er þetta að gerast í venjulegri hálendiskeyrslu og snjóakstri (er með 38″ MTZ á 14″ felgum).
.
Ég setti í hann nýjan vatnskassa með þykkara elementi en nú um helgina var ég að keyra í sandi og þá reis hitamælirinn upp meðan hann var í háadrifinu. Ég á eftir að setja trekktina á viftuna (var aldrei gert eftir að hann var boddýhækkaður um 2″), gerir trekktin gæfumuninn eða eru þeir að hita sig þó hún sé til staðar.
.
Get ég hert á hjólalegum með venjulegum verkfærum eða þarf ég einhverja sérstaka toppa? Ef svo er, hvar fæ ég þá?
.
Freyr
17.06.2008 at 02:12 #618472Er ekki hægt að setja þessar myndir inn í myndasafnið hér á síðunni, a.m.k. þær myndir sem efstar voru???
Freyr
07.06.2008 at 04:17 #624200Þar er svosem hægt að prófa tvígengisolíu og ssk. olíu í tankinn, en það kæmi mér á óvart ef þetta hyrfi við það. Ég er bifvélavirki og vann hjá Ræsi í 3 ár (2,9 í Musso er ættuð frá Bens) og var þá oft kringum bíla með sambærilega vél og í Musso. Ég man ekki betur en að hver einasta vél af þessu tagi hafi hljómað svona.
.
Freyr
06.06.2008 at 19:33 #624196Svona er bara gangurinn í þessum mótor, þú getur ekkert gert til að losna við þetta. Sjálfur á ég eitt stk. ’86 Bens (með sama mótor og er í mussonum) sem ég kynntist fyrst þegar ég gerði við hann fyrir um 4 árum síðan þegar ég vann hjá Ræsi, hef svo sjálfur átt hann í rúm tvö ár. Gangurinn í honum hefur alltaf verið mjög grófur en það kemur ekki að sök – hann er alveg að detta í hálfa milljón km. og það er á orginal vél, ekki einu sinni verið skift um heddpakkningu. Félagi minn á Musso ’97 og það er sama tikkið í honum = Svona er þetta bara. Ekki eyða tíma og peningum í þetta nema þú sért atvinnulaus milljónamæringur.
.
Freyr
05.06.2008 at 19:54 #624072Sem Rúnar segir hér að ofan. Náði í relay út í bíl og það sem ég sagði hér ofar er vitlaust, afsakið.
Freyr
05.06.2008 at 03:24 #624058Allar likur á því að hann hlaði illa hjá þér. Lág spenna á kerfinu veldur því oft að hin ýmsu viðvörunarljós loga og villukóðar koma í tölvur, það á við um mjög margar tegundir.
Freyr
05.06.2008 at 03:19 #624064Stýringin er gegnum 15 og 30 en stóri straumurinn gegnum 86 og 87. Ég set vanalega stýristrauminn inn á 15, og jörð á 30. Síðan set ég + frá geymi gegnum öryggi inn á 86 og svo frá 87 til notanda.
Freyr
04.06.2008 at 20:40 #624010Ég er með 5:42 í mínum sem er ’95 á 38" MTZ. Þau eru í það lægsta en sleppur samt alveg, þó vélin snúist frekar hratt á 90 – 100 kmh eyðir hann ekki nema tæpum 12 á langkeyrslu.
.
Freyr
02.06.2008 at 19:27 #62325602.06.2008 at 17:29 #202504Hversu hár má afgashiti vera án þess að hann rústi vélinni?
.
Hvar er best að staðsetja afgashitamæli (ég myndi veðja á að setja hann fyrir framan túrbínu).
.
Hvar fæ ég ódýra afgashita- og boostmæla???
.
Freyr
02.06.2008 at 14:47 #623834Ef ég væri að þessu þá myndi ég setja alla samstæðuna niður í einu, og ég myndi hafa á henni pústgreinar, startara o.fl. Því meira sem er á pakkanum sem þú kemur fyrir í bílnum því færri verða "æ fokk hvernig á ég að koma þessu fyrir????????" mómentin 😉 En um leið þarf líka að hugsa um að koma hlutunum ekki þannig fyrir að það þurfi að rífa vélina úr til að skifta um startara o.s.frv…….
Freyr
02.06.2008 at 14:26 #623832Getur gert hvort sem er, alla samstæðuna í í einu eða fyrst vél o.s.rfv. En ef þú byrjar á að koma vélinni vel fyrir gætirðu lent í veseni með að koma skiftingu og kassa fyrir.
Freyr
01.06.2008 at 21:57 #623770Það eru góðar líkur á því að háspennukeflið sé að angra þig, þegar það klikkar gerist það oft með þessum hætti – í lagi með kalda vél en vonlaust með hana heita.
Freyr
05.05.2008 at 02:23 #622160Það er gott að vera með múffu (lið) á milli grindar og vélar, þannig að hristingurinn frá vélinni sé ekki leiddur beint í grindina og valdi þannig spennum í pústinu og um leið kanski banki og óhljóðum þegar pústið slæst til. Þannig að ef fyrsta festing eftir túrbínu er í grind er gott að setja múffu þar á milli, annars milli fyrstu og annarrar festingar.
Freyr
-
AuthorReplies