Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
07.06.2008 at 16:21 #624212
Keypti svona tjald í fyrra, hjá IMP .. er að mörgu leiti sniðugt, feykilega mikið pláss, auðvelt og fljótlegt að tjalda og heldur vel rigningu en helsti gallin er sá að það þolir illa vind. Notaði það í c.a. viku í fyrrasumar, það er til sölu ef þú hefur áhuga (audunnpall@hotmail.com)
06.07.2006 at 09:39 #555824Minnsta málið…
Talaðu við þá hjá Samrás (Eyðistorgi), þeir framleiða hraðamælisbreyta í þessa bíla. Það tekur þig innan við klukkutíma að koma honum fyrir (þarf að lóða smá), síðan stilliru mælin bara með GPS og ferð á eitthvað af mælaverkstæðunum (td. Arctic Trucks) og færð þá til að fara í bíltúr með þér og votta breytinguna.
Annars myndi ég mæla með að skipta út drifhlutföllum líka, bíllinn verður mikið skemmtilegri í akstri, auk þess sem hann skiptir sér betur.
31.03.2006 at 13:37 #547934Ég er einn þessara manna sem ek um á vörubíl samkvæmt skilning Íslenskra laga. Ég er líka einn af þeim sem hef ekið um á jeppa nánast allan minn ökuferill. Ég byrjaði minn jeppaferli á Suzuki fox og skipti síðan yfir í Toyotu Hilux (38 tommu breyttan) sem ég ók um í mörg ár. Eftir því efnahagur jókst þá skipti ég yfir í Nissan Patrlol (líka 38 tommu breyttan) og ók um á honum í nokkur ár. Núverandi bifreið mín sem er Ford F-250 (38 tommu breyttur) er án efa sá bíll sem uppfyllir mína þarfir í ferðamennsku hvað allra best. Á síðari árum ferðast ég minna á veturna en þeim mun meira á sumrin, Fordinn kemur þannig út í samanburði við mína fyrri bíla að eyðslan er svipuð í Patrolnum en aflinu og þægindunum er ekki saman að líkja bæði í samanburði við Hiluxinn og Patrolinn. Ekki nóg með að það fari mun betur um ökumann og farþega heldur er plássið alltaf nóg fyrir allt dót sem manni langar að hafa með sér á fjöllum.
Að mínu mati er þessi umræða um réttlætinguna á margfalt hærra gjaldi í göngin komin langt út fyrir öll skynsemismörk. Í fyrsta lagi er mikilvægt að hafa gjaldflokka á svona veggjaldi gagnsæja (eins og Spölur hefur réttilega bent á) en ekki þannig að þurfi beinlínis að skoða skráningarskírteini bifreiðarinnar til að átta sig á hvar hún á heima. Starfs mín vegna hef ég ekið töluvert erlendis, bæði í Evrópu og USA og víðast hvar þar sem um marga gjaldflokka er að ræða eru einfaldlega taldir öxlarnir undir bílnum, þannig að þeir bílar sem raunverulega eru notaðir til að flytja farm borga hærra gjald en hinir. Ef hinsvegar lengdin er látin ráða gjaldflokki ökutækis á það sama yfir alla að ganga þannig að bifreiðar sem draga eftirvagn, eins og tjaldvagn, fellihýsi, hjólhýsi eða húsbíll sem er yfir 6m ættu hiklaust að greiða hærra gjald. Hvað með bíl sem dregur annan bíl? . borga þeir tvöfalt gjald eða er það bíllinn sem dregur sem ræður gjaldflokkinum? . myndi þá borga sig fyrir okkur pallbýlaeigendurnar að fá að hengja spotta í fólksbílinn fyrir framan?
Umræðan um að þeir sem borgi lægra hlutfall af aðflutningsgjöldum eigi bara hreinlega skilið að borga hærra veggjald fékk mig hreinlega til að missa allt álit að Speli eða þeim sem því fyrirtækis stýra. Hvað með leigubifreiðar, bifreiðar fyrir fatlaða eða sjúkra-/ björgunarbifreiðar eiga þær þá líka að borga hærra gjald? Speli kemur einfaldlega ekkert við hvaða gjöld viðkomandi einstaklingar borga til ríkisins í formi skatta eða aðflutningsalda. Ég velti því líka fyrir mér hvort ég hafi raunerlulega borgað hærri eða lægri aðflutningsöld til ríkisins heldur en sá sem keypti sér Toyotu Corolla eða VW Golf, því þrátt fyrir að prósentan sé lægri þá er innkaupsverðið á mínum bíl mun hærra þannig að upphæðin sem skilar sér til ríkisins er vafalaust hærri.
-
AuthorReplies