Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
06.07.2011 at 08:02 #733017
Ég held svei mér að maður verði að fara þessu svakalegu leið eftir að hafa heyrt allar þessar svakalegu lýsingar.
Kv.
05.07.2011 at 00:34 #732781Grímur, vökvinn er mjög slímkendur og seigur eða um 3000cst.
Hlynur, veit ekki hvað olli þessu stoppi. Ef til vill hefur bara helst syfja yfir bíl og bílstóra.
Kv.
03.07.2011 at 23:21 #732775Náði ekki í þig Gísli Þór, þannig að ég keypti bara rándýra síliconið hjá Toyota á föstudag.
Ég er búinn að þessu Gísli Viðar, þannig að ég veit bara af þessu næst.Grímur, ég er með viftuspaða úr V6 4Runner, enn hann er með hring utan um spaðana.
Ef viftan er í lagi, þá getur spaðinn ekki skemmt vatnskassan þegar framendinn fer á kaf.
Það er búið að gera vísindalega rannsókn á því, m.a. um helgina:
http://www.youtube.com/watch?v=JwiNUYeg_AQ
Það er líka bara töff að hafa org. kælinguna ef hún virkar – sem hún gerir reyndar yfirleitt.Annars gerði ég við helvítis kúplinguna. Það reyndis vera minna mál enn það leit út fyrir í fyrstu.
Hún svínvirkaði og hitastigið á vélinni er dásamlegt á eftir.
01.07.2011 at 09:28 #732959Það á ekki að hafa aukatanka tóma – nóg að hafa nokkra dropa í þeim
Koma ekki allflestir bílar með tanka smíðaða úr svörtu?
Amk. veit ég ekki um nenn sem kemur með tank úr áli eða riðfríu.Kv.
Atli E.
sem hefur alltaf smiðað alla tanka í bílana hjá sé úr svörtu, hvort sem þeir eru bensín eða dísel.
01.07.2011 at 09:11 #732769Takk fyrir það Gamli.
Er reyndar búinn að kaupa rándýran mjöð hjá Toyota sem ég er ekki búinn að setja á því að fjöðrin er föst
Er þetta drasl ekki bara ónýtt þá?
Ef þú átt svona mjöð á lager, þá er ég alveg til í að kaupa svona af þér.
kv.
Atli E.
28.06.2011 at 15:46 #219590Góðan daginn.
Hvar fæ ég silicon á viftuna mína?
Þetta er til í Toyota enn skammturinn kostar 2 kassa af bjór.
Væri til í að borga 1 kassa af bjór og drekka hinn sjálfur.kv. Atli E.
20.06.2011 at 11:01 #732295Á til slitið.
Kv. Atli E.
774-8088
26.05.2011 at 15:18 #729971Þá kemur sér vel að eiga gamlan Wrangler sem hægt er að halla höfði að þegar mest á reynir 😉
23.05.2011 at 21:58 #730623Sé ekki betur enn að þetta sé Hjörtur Jaki að syngja með mér á þorrablóti, augnabliki áður enn hann féll í súrtrogið.
kv. Atli E.
23.05.2011 at 21:55 #730645Mikill hiti (70°+) og loftræsting þurrka.
t.d. blásarinn sem ég kom á þig.
kv.
16.05.2011 at 19:35 #730297Hahahahahahaha….
Gæti reyndar véltrúað VG og Jóhönnu til þess…
15.05.2011 at 18:18 #730253Maður fölnar og skelfur við tilhugsunina…
14.05.2011 at 09:38 #730207Hæ.
Hvítur reykur = ekki næg olía.
Mjög líklega stífluð hráolíusía.
Ef þú hefur grun um að það sé einhvað annað enn olía á auka tanknum, þá er bara að fylla hann af olíu og splæsa í smá ísvara til öryggis. – svo lengi sem þú ert viss um að það sé ekki nokkrir lítrar af vatni á tanknum, enn þá hefði hann væntanlega steindrepið á sér.
Kv. Atli E.
11.05.2011 at 17:17 #729991Er þetta ekki svar við fyrri hluta?
[img:x4tovsh2]http://a2.sphotos.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-ash4/228247_108888212533235_100002361694665_94656_6563700_n.jpg[/img:x4tovsh2]
Þetta telst kannski sem einelti :-S
Kv.
11.05.2011 at 12:58 #729967Það er kannski betra að Birkir svari því, enn eftir því sem ég kemst næst þá er hann í topplagi – fyrir utan skemmd í brettakannt.
Eins og allir sannir jeppakallar vita, þá er óbrotinn brettakanntur bara fyrir homma og grænmetisætur – táknmynd þess að menn hafi aldrei á fjöll komist.kv.
11.05.2011 at 09:59 #729961Sammála því.
Væri líka til í að henda fleiri myndum inn á albúmið okkar.
Enn því miður þá hefur það bara alls ekki gengið nóg og vel.
Virðist alltaf taka óratíma að græja það, á meðna það tekur bara 1-2 mín að græja það á FBkv. Atli E.
11.05.2011 at 09:00 #729957[quote="freyr":3rjeukyh]ég er með eina spurningu: Af hverju var ekki mokað frá vinstri hliðinni og einnig framan við bílinn til að losa um hann og minnka skemmdir og draga úr átökunum við að ná honum upp, jafnvel að moka líka undan hægri hliðinni til að minnka hallann (að því gefnu að hann hafi ekki verið á ís og vatn undir)?Freyr[/quote:3rjeukyh]
Það var ekkert vinstramegin nema fljótandi krapi og þar fyrir neðan um 2m djúpt vatn. ef við hefðum brotið ís undan bílnum, þá hefði hann farið ofan í, á bóla kaf og lílega á hliðina eða toppinn.
Enda var gatið á ísnum akkurat passlegt fyrir 1stk Overland.Ástæðan fyrir því að þetta gerist er sú að á fimmtudegi fyrir páska þá er einmitt hvíti snjóbíllinn (sem dregur Overland upp síðar) á leið inn í Laugar.
Hann keyrir út á ísinn og fer niður. Bjsv. menn ná snjóbílinum upp með sínu dóti og mannskap.Þegar við förum innúr, þá lítur þetta ekkert ílla út, þannig lagað.
Ég er t.d. nokkuð viss um að ég hafi bara ekið yfir þetta á stóru-ferðinni á leiðinni innúr, enda leit þetta bara út eins og smá krapi á miðjum vegi.
Linda sagðist líka vera nánast 100% viss um að gamli Wrangler hefði farið þarna yfir líka.Enn Birkir tekst með einstökum dugnaði að setja Overland á hlið þarna ofan í.
Þá höfum við sem vorum á undan, líklega ferið búin að brjóta þetta upp aftur þannig að enginn burður var í ísnum.Þegar við vorum búin að brasa þarna innfrá í nokkrar mínútur, þá kemur einmitt hvíti snjóbíllinn að, og út úr honum stekkur vasklegur drengur og segist vera réttur til að aðstoða okkur, því hann hefa búið til gatið á fimmtudag.
Þegar búið var að spenna snjóbílinn framan við Overland, og 4Runner´anna þvert á til að halda overland á réttum kili, þá gekk þetta bara furðu vel, Sérstaklega þegar búið var að tjakka hann upp og reka planka undir.
Bílstjórinn á snjóbílnum og annar félagi hann voru ótrúlega vaskir að hjálpa, nærgætnir við bíl og menn.
Það er engin spurning, að án þeirra þá hefði þetta verið stór mál að ná bílnum upp, því aðstæður voru mun verri enn þær líta út fyrir að vera á mynd.Kv. Atli E.
10.05.2011 at 22:12 #218965Þið megið ráða hver spurningin er.
[youtube:2i2sz3f3]http://www.youtube.com/watch?v=WaUkMSV98ig[/youtube:2i2sz3f3]
Njótið tónlistarinnar.
Kv. Atli E.
05.05.2011 at 09:15 #729573Ha? fékkst þú glóðakerti fyrir 13.000kr?
Á hvaða sér díl ert þú?
Skilst að það séu sömu kerti í LC90 og Hilux.
kv.
04.05.2011 at 16:24 #729557Það er þá orðið langt síðan.
Verðimiðin á 1stk glóðarkerti í dag er um 9000kr. +/-
Því miður er umboðið ekki ódýrast
Kv. Atli E.
-
AuthorReplies