Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
04.12.2002 at 23:47 #464846
OK. mig langar smá ofan í djúpar sprungur.
04.12.2002 at 23:32 #191852Á hvaða jökul væri helst að skella sér á um helgina ef vél viðrar. Ef einhver veit um sæmilegt færi væri gaman að fá að heyra um það.
Kv. Atli
p.s. Mig langar ekkert ofan í djúpar sprungur.
28.11.2002 at 23:45 #464668flott mynd.
25.11.2002 at 23:26 #464600Eru einhverjar verulegar sprungur sem gætu jafnvel gleypt heilan hilux eða bara saklausar sem taka bara eitt hjól. kv.og takk Atli
24.11.2002 at 23:39 #191818Hvurnig er það, er ekki hægt að hlaða þessum punktum beint niður af GPS-síðuni á Fugawi eða í Garmin tæki, eða þarf maður að handskrifa þetta allt niður.
p.s. er langjökull ekki hundleiðinlegur núna eða ætli það hafi snjóað eithvað þarna uppi.(langar yfir sem fyrst)
Kv. Atli
18.11.2002 at 16:45 #191799Er einhver sem hefur lent í vandræðum með að hlaða niður „trökum“ (track) úr GPS tæki í Fugawi 3. Hjá mér virkar það stundum og stundum alls ekki, sem er mjög vont. Á þessu er engin sjánleg skýring né hegðunar munstur, og þeir hjá Aukaraf eru afar daufir fyrir þessu. Ef einhver kann skýringu við þessu, þá væri gaman að heyra góð ráð. takk, Atli.
13.11.2002 at 22:41 #464162Tjarnarver er neðst af margumrætum Þjórsárverum. Ferðaskipan ekki áhveðið, þetta er ekki eingöngu skemtiferð, en ég sé ekkert trúber til forátu, né góðu fólki. Nánara skipan síðar. Kv. Atli
13.11.2002 at 10:26 #464156Sæll Jón. Við Kolli þurfum að fara inn í Tjarnarver á laugardag, þér er meira enn velkomið að fara með okkur, það væri gaman að sjá þig.
kv. Atli E.p.s. Það var um 15 cm jafnfallinn snjór inn í Setri fyrir rokið sem er búið að vera.
13.11.2002 at 00:01 #464166Ég er bæði lengdur og á loftpúðum.
Með bæði sjálfvirka og handvirka stýringu. Þér er velkomið að skoða og spyrja.
Atli s.864 6119
04.11.2002 at 19:35 #191769Hvernig hafa menn verið að leysa smurninginn á A/C dælum. Ég vil með einhverjum ráðum koma hæfilegu magni af olíu í dæluna og ná svo olíunni úr loftinu aftur og helst að endurnýta olíuna á ný.
Mér þætti væntum að lesa einhverja slungna lausn á þessu vandamáli. Með von um viðbrögð kv. Atli
29.10.2002 at 17:20 #191754Var það ekki hægt hérna í gamladaga að skrúfa upp CP-talstöðvar þannig að í þeim heyrðist um fjöll og fyrnindi, það væri gaman að vita hvort þetta sé hægt í dag.
29.10.2002 at 17:13 #191753Hver getur ljáð mér ferllana um lítið þekkta slóða ofan Hreppafjalla t.d. Sultarfit – Setur og ef til vill fleirra, enn og ef þessir ferlar eru á 4×4 vefnum hver og hvernig næ ég þeim út.
Kv. Atli, með hugan ofan Hreppafjalla
29.09.2002 at 23:04 #191705Er ekki orðið tímabært að stofna hollvinasamtök um þá subaru XT bíla sem eftir eru í landinu og jafnvél SVXinn líka rétt eins og gerist í öðrum löndum?
29.09.2002 at 21:51 #463416Þetta eru sjaldséðir bílar og varla hægt annað enn að finna hann, sérlega þannan lit.
Sálfur á ég enn gráan og veit að það eru ekki margir XT bílar eftir (ég held að það hafi verið fluttir inn um 15 stk og þar af eftir á götunni þrír). Ef einhverjir XT eigendur og áhuga menn lesa þetta þá vil ég gjarnan komast í samband við þá því ég held að það verði að bjarga þeim fáu bílum sem eftir eru og forða þeim frá brottajárni.Einnig ef einhver áhugalaus XT eigandi vill losna sinn má hann endilega hafa samband í Knarrarholt@uppsveitir.is
Með von um að sá stolni finnist og það náist að koma höndum yfir aðra XT bíla sem eiga undir högg að sækja.
Kv. AtliE.
15.09.2002 at 12:58 #462990Felgurnar eru 125 mm að innan kv.Atli
18.08.2002 at 22:07 #462800Fjaðrabúðin Partar er feiknar góð búð með feiknar góða þjónustu. Þar færð þú að vita allan sannleikan um púðan sem kemur til með að passa best undir bílinn þinn. Svo keypti ég hæðarstýringu hjá E.T. og allt góðu lagi með það. Gangi þér vél. Atli
14.07.2002 at 10:30 #191601Hvurnig er það jöklaflakkarar, hefur einhver farið yfir eða upp á Hofsjökul nýlega, eða er hann yfirleit fær á sumrinn og er hann ekki mikið sprunginn ef hægt væri að komast á hann.
-
AuthorReplies