Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
04.04.2005 at 22:44 #520376
….er bara ljómandi efnilegt
Til HamingjuKv. Atli E.
02.04.2005 at 08:44 #520310Sæll Elvar, hvernig ganga annars jeppamál hjá þér?
Ég er farinn að sakna þín á fjöllum :-/
Kv.Atli
p.s. ég ætla ekki að lesa yfir og leiðrétta
01.04.2005 at 16:38 #520224Neibb, dekkin rekast hvergi í stýfura, eða boddý.
Kv. Atli E.
01.04.2005 at 16:15 #520218Sorry, þetta datt bara svona upp úr mér….
Vona að mér verði fyrirgefið :o)
Kv.Atli E.
01.04.2005 at 12:43 #520204Kv. Atli
31.03.2005 at 20:10 #520140Sælir.
Þessi klafabúnaður er stór góður að mörgu leiti, en samt er ég búinn að setja hásingu undir 2 klafabíla.
Ég er alls ekki sammála því að klafar séu rusl, þeir henta t.d. mjög vel í borgarakstri og á malbikuðum, sléttum vegum.
Hér kemur skýring á því, hví ég setti mína bíla á hásingu.
Hilux fór á hásingu vegna þess að flestir stýrisendar, spindlar og upphengjan var orðið ónýtt af sliti, eftir frekar stuttann tíma í notkun, en reyndar við slæmar aðstæður.
Það kostaði MIKIÐ af peningum að kaupa allt þetta dótt í klafana og reyndist þegar upp var staðið ekkert mikið dýrara að setja hásingu undir og fá þá sterkari hjólabúnað að framan.4Runner fór á hásingu vegna fyrri reynslu af klöfum, og að auki var ég búinn að sjá það út að ef að maður setti hásingu undir í upphafi, þá þyrfti ekki að hækka hilux/4Runner upp á boddýi, sem ég tel vera mjög gott að komast hjá.
Einu vankantar sem ég sé við þessa framkvæmt er sú að maður getur átt að hættu að fá "jeppaveikina" í bílinn, "sportbíla" eiginleikarnir hverfa og jeppa stemning kemur í staðinn.
Annars er nánast sama hvað annað þú telur upp, hásingin hefur alltaf eitthvað fram yfir klafana.
Kv. Atli E.
23.03.2005 at 12:25 #519608Ég vil bara koma því á framfæri að búið er loka eftirfarandi leiðum hér á mínusvæði.
Gljúfurleit-Gnúpverjaafréttur er lokaður við Sandafell.
Háifoss inn af Hólaskógi er lokað, leið inn að Sultarfit og fl.
Hallarmúli inn Skáldarbúðarhaga er lokað, leið inn að Sultarfit.
Klettur, leið inn á Sultarfit er lokuð
Ég geri ráðfyrir að svipað sé ástatt í Hrunamannahrepp.
Þetta þýðir að allar leiðir inn á hálendi milli Hvítár og Þjórsár séu lokaðar!
Kv. Atli E.
22.03.2005 at 13:03 #519480Er ekki mest gaman hjá þessum björgunarsveitum þegar menn fá að gera eitthvað skemmtlegt eins og svona, og allir fynnast heilir og óslasaðir.
Það vill oft gleymast að þeir sem eru í björgunarsveitum eru þar vegna þess að þeim langar í svona slark ferðir til að bjarga einhverjum og taka frí úr vinnu með glöðu geði til að sinna þessu áhugamáli sínu.
kv. Atli
18.03.2005 at 15:44 #519322Hér er myndin:
http://kjolur.f4x4.is/photoalbum/view.p … 3&offset=0
Bestu þakkir fyrir hjálpina
Kv. Atli E.
18.03.2005 at 12:33 #519314Það er einmitt málið.
Óli var að tala við mig og langar til að sjá myndina.
Þessvegna er ég að leita… fyrir hann
Kv. Atli E.
18.03.2005 at 12:19 #519310Það passar.
kv. Atli
18.03.2005 at 11:32 #195700Man einhver eftir myndinni af traktor inn á Gnúpverjaafrétt með tvo vagna aftan í sér?
Þessi mynd var set hér inn á netið, að mig mynnir í um mitt haust.
Traktorinn er blár og vagnarnir báðir dökk-brúnleitir.
Upplýsingar vel þeggnar.
kv. Atli E.
17.03.2005 at 20:42 #519250Ég notaði Rover gorma sem kostuðu 11715 kr. hjá BSA.
Hækkaði bílinn ekki upp á boddý en notaði bara langa gorma.
Þeir eru að koma vel út, en man ekki hvaða litur var á þeim.
Liturinn segir til um stífleika og gerð. það eru til ótal útgáfur af Rover gormum og hlýtur einhver að henta þér.Kv. Atli
17.03.2005 at 18:01 #519246Ég hef gert þetta tvisvar.
Hér eru myndir af verkinu.
http://www.uppsveitir.is/knarrarholt/rorunhilux.htm
http://www.uppsveitir.is/knarrarholt/4R … tingar.htm
Ef þig langar að spyrja eitthvað varðandi þetta, þá er þér velkomið að hafa samband við mig.
Kv. Atli E.
17.03.2005 at 12:47 #519022Til Toylet.
Að sjálfsögðu eiga bændur það land sem þeir eiga og hafa 100% umráðarétt yfir því, rétt eins og þú átt húsið og lóðina þína.(þ.a.s. ef þú átt svoleiðis).
Flestir bændur sem ég þekki gera ekki athugasemd við það þó að það sé gengið/ekið um þeirra land, svo lengi sem það veldur ekki skemdum á landi/gróðri.
T.d. verðum við öll eiginlega alltaf að fara í gegnum einkalönd þegar við ætlum til fjalla, og hef ég ekki heyrt í neinum landeigenda kvarta yfir því, nema að ílla sé um gegnið.
En því miður er orðið mikið til af landeigendum sem búa ekki á sínum jörðum/landi (oft á tíðum sterk efnað fólk úr þéttbýlum) sem setur upp ramgerð hlið með hengilás á og skilti sem stendur á "óviðkomandi bannaður aðgagnur".
Þetta fólk gerir þetta sennilega vegna þess að það er hrætt við skemdaverk á landi og eignum.
Það er mjög eðlilegt að loka fyrir afgang vélknúina ökutækja og hestaumferð þegar útlit er fyrir það að náttúru- og/eða eingnaspjöll verði vegna ítrekaðs átroðnings. Það er ekki hægt að leyfa einum og svo banna öðrum.
Grasi gróinn brekka getur þolað einn bíl á viku án þess að það sjá á henni, en kannski ekki einn bíl á dag.
t.d. veit ég að það er bannað að aka niður Laugaveginn eða blómagarð í Breiðholtinu á beltagröfu, vegna þess að hún mundi vinna skemdir á umhverfi sínu.
Ég held að allir sem eiga eignir reyni eftir fremsta megni að forða þeim frá skemdum, hvort sem það er land, mannvirki eða annað.
Ég er reyndar hvorki bóndi né landeigandi.
kv. Atli E.
14.03.2005 at 12:11 #195666Hvar væri helst að finna sér 350 innspýtingarvél úr letta?
Vitið þið hvað maður getur fengið svona mótor á og eru ekki allavega til 2 útgáfur af innspýtangar vélinni?
Ég hringdi nefnilega í dag í ríkisskattstjóra og spurði um olíugjaldið því að maður var búinn að heyra svo margar útgáfur af því máli og hann sagði:
45 kr. + 24.5% vsk. + kannski 1-2 kr. álagning frá olífélögunum.
Samtals: ca. 57.5 kr. sem bætist við hvern líter!!!!
þannig að hver líter verður dýrari í olíu en bensín líterinn.
Kv. Atli E
08.03.2005 at 18:26 #518448Ég er búinn að gera þetta oftar en einusinni.
http://kjolur.f4x4.is/photoalbum/view.p … ionid=2533
Ef þig físir að vita meira um málið, þá mátt þú hringja í mig í síma 893-4426 og ég skal leiða þig í sanleikan um þessi mál
Ég nenni ekki að skrifa ritgerð um þetta.Kv. Atli E.
07.03.2005 at 21:44 #195617Veit einhver hvernig maður platar tölvu í ssk. 4Runner í „overdrive“ í lágadrifinu?
Ég á ekki teikningar af þessu, en það hefur alveg örugglega einhver gert svona, allavega var þetta ekkert má í LC90, þegar maður vissi hvað átti að gera 😉
Kv. Atli E.
sem vill komast hraðar í lágadrifinu
02.03.2005 at 17:37 #518066Hljóðið virðist mér mjög gott, alla vega ekki verra en úr tölvum sem maður er að nota þetta við.
Sem sagt ég er rosalega ánægður með þennan búnað
Kv. Atli
02.03.2005 at 15:39 #518060Ég keypti svona tæki hjá Radíoraf og það virkar alveg rosalega vel, og að auki er alveg súper þjónusta
http://www.radioraf.is/dvd1.htm
http://www.pyleaudio.com/EL/PLMD2.jpg
Kv. Atli E.
-
AuthorReplies