This topic contains 5 replies, has 1 voice, and was last updated by Þorsteinn Svavar McKinstry 20 years ago.
-
CreatorTopic
-
24.07.2006 at 22:36 #198282
Sælir félagar, nú er komið að því að líta aðeins upp úr vinnunni og nýta sumarið í einhverjar ferðir. Ætla að fara á Snæfellsnesið um næstu helgi en veit sama og ekkert um svæðið, sennilega það svæði landsins sem ég hef minnst farið um á og væri mikið til í að fá ábendingar um staði sem gaman er að fara á og skoða á nesinu, eitthvað merkilegt hlýtur að vera á þessum skaga eða hvað ???
Kv. Axel Sig…
R-3099 -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
24.07.2006 at 23:24 #556752
Hvað er það sem þú hefur áhuga á að skoða? Sögustaði, landslag, fara í veiði.
Það er allt þarna til staðar og ef það er um að ræða helgarferð, þá ráðlegg ég þér að fara að hótel Búðum og fá smá leiðsögn þar og gista þar fyrstu nóttina.
Fara síðan daginn eftir út í Dritvík og svæðið þar í kring eða kíkja á Búðarhraun þar sem Axlarbjörn drap víst einhven slatta af fólki.Síðan eru það náttúrulega Gufuskálar, Hellissandur, Ólafsvík, Grundarfjörður og Stykkishólmur.
Mæli samt með því að kíkja við í Bjarnarhöfn og skoða hákarlasafnið hjá Hildibrandi, en þar hefur verið byggt upp einstakt safn með stórmerkilegum munum frá fyrri tíð.Frá Stykkishólmi er svo hægt að skreppa að morgni út í Flaty og eyða parti úr degi þar, en þar er eins og tíminn hafi staðið í stað í rúma hálfa öld eða meira. Góð leiðsögn er um eynna og fróðleiksfúsum fjársjóður.
Annars er af nógu að taka fyrir þá sem hafa augu og eyru opin fyrir umhverfi sínu og fólkinu í kringum sig.
25.07.2006 at 08:40 #556754skarðsvík sem gott er að borða nesti í og sjá verðbúðir þar rétt hjá, hellana verður maður að skoða, kaffihúsið niður við fjöruna á hellnum einnig helgiskrínið sem er þar rétt hjá eftir að hafa borðað bestu fiskisúpuna á landinu, rauðfeldargjá en hana er hægt að ganga ansi langt inn, sandarana, það er mjög skrýtinn þjóðflokkur eins og OFSI ber með sér, sjóminjasafnið á hellissandi, pakkhúsið í ólafsvík og svo ótal margt fleira á þessum göfuga stað.
25.07.2006 at 09:17 #556756Ef þér finnst gaman að ganga þá er stórmerkilegt að fara gangandi í gegnum Berserkjahraun sem er ófært hraun en þar er gata gerð af sögufrægum Berserkjum. Við götuna er dys þar sem Berserkirnir eiga að vera dysjaðir.
25.07.2006 at 11:43 #556758sælir
Það er líka rosa flott tjaldsvæði við Berserkjahraun, þegar þú kemur niður úr skarðinu þá beygirðu til vinstri (Stykkishólmur til hægri) og strax út af veginum, ekur síðan í gegnum Berserkjahraunið, um leið og þú kemur út úr því hinum megin eru grasflatir við hraunjaðarinn sem gaman er að gista við. Engin hreinlætisaðstaða er á staðnum.
Góða ferð
Agnar
26.07.2006 at 01:18 #556760Snæfellsnesið er skemmtilegt að heimsækja. Þar er að finna fjölbreytta náttúru, jarðfræði og mannlíf. Fyrst þarf að ákveða hvorn hringinn á að fara og hvort taka sig á upp fyrir hvern dag eða skoða út frá einum stað. ef gera ætti lista yfir það sem maður verður að sjá gæti hann litið þannig út í réttsælis röð:
1. Eldborg fallegur gosgígur líklega gosið síðast f. u.þ.b. 1000 árum gönguleið frá Snorrastöðum 1-2 tímar*
Ekki gleyma að benda á Skyrtunnu, Hest og Sátu og segja börnunum söguna af skessunni eða rifja hana upp fyrir sjálfum þér.
2. Gerðuberg fallegt stuðlaberg akfært
3. Ölkelda heilsubætandi sopi fyrir þyrsta ferðamenn
4. Búðarkirkja og ströndin (hvítur sandur)
Axlar Björn bjó á Öxl og myrti næturgesti sína og faldi líkin í tjörn rétt hjá bænum (fyrsta bændagistingin?)
5. Sönghellir Jeppafær slóði upp hjá Stapafelli
6. Arnarstapi höfnin, fuglabjargið, stuðlaberg, Bárður Snæfellsás og jafnvel ganga að Hellnum.
7. Hellnar, þar er nú búið að opna skemmtilegt safn um Snæfellsþjóðgarðinn.
8. Lóndrangar
9. Djúpalónssandur akfært sérð allt á 40 min göngu smá hringur en getur einnig gengið ínn í Dritvík 1-2 tímar* með öllu
10. Hólahólar hægt að aka inn í stóran gíg
11. Gufuskálavör / Írskrabrunnur menjar um sjósókn og búsetu Írskra munka.
12. Þorvaldarbúð við Gufuskála/Hellissand safn tileinkað sjómönnum og sjósókn
13. Ingjaldshóll Þar er talið að Kristófer Kólumbus hafi dvalið einn vetur og aflað sér heimilda um Ameríku.
14. Frá Ólafsvík má komast upp á Jökulsháls og reyndar yfir til Stapa F570 (Sönghellir)
15. Fróðárheiðin suður yfir til Búða. Heiðin vetvangur margra dulafullra atburða og sagna. draugagangur og tröllasögur við hvert fótmál.
16. Búlandshöfði frábært útsýni til Vestfjarða og yfir breiðafjörð.
17. Kirkjufell við Grundafjörð skemmtilega jökulsorfið nánast yddað fjall. Illkeift en fallegt. Undir Kirkjufelli stendur Kvíabryggja fangelsi án rimla og girðinga. Þar er maturinn víst svo góður að það hvarlar ekki að nokkrum manni að flýja.
18. Berserkjahraun þar sem berserkir ruddu braut og voru svo heygðir. fallegir slóðar sem ná að botni Selvallavatns ágætis tittavatn fyrir börnin og aðra óþolinmóða veiðimenn.
19. Bjarnarhöfn heilsa uppá Hildibrand og fjölsk. skoða safnið og kirkjuna, smakka hákarl og harðfisk.
20. Stykkishólmur og jafnvel eyjaferð og bragða á því sem hafið hefur upp á að bjóða.Fara t.d. vatnaleiðina til baka og stoppa á útsýnisstaðnum yfir Selvallavatni og Berserkjahrauni
Þetta er aðeins brot af því sem gaman er að skoða. Snæfellsnesið er eins og kennslustofa í jarðfræði fyrir þá er hafa áhuga á slíku þá er nesið sögusvið Eyrbyggju og fl Íslendingasagna. Athugaðu að það getur verið sitthvort veðrið sunnan- og norðanmegin á nesinu og eins brjálað veður í Grundarfirði og logn og blíða í Hólminu.
*háð ástandi og þjálfun göngumanna
Góða ferð og góða skemmtun
Þorsteinn Svavar McKinstry
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
