This topic contains 12 replies, has 1 voice, and was last updated by Sigurður Egill Stefánsson 15 years ago.
-
CreatorTopic
-
22.04.2011 at 22:52 #218693
Jæja ekkert um fréttirnar af fólki sem verið er að aðstoða af kjalvegi, hvernig bílar voru þar á ferð .
Svæðið fljótt að breitast fínt færi á fimmtudag þegar skálanefnd var á ferð. -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
23.04.2011 at 07:24 #728605
Já það væri gaman að frétta meira af þessu.
Einhverjir vitleysingar að missa sig útaf þessu á Facebooksíðu slysavarnafélagsins.
http://www.facebook.com/update_security … Landsbjorg
23.04.2011 at 10:33 #728607Jæja þá eru Logi og félagar á heimleið úr Setrinu og fara um Kerlingafjöll er að fylgjast með þeim á depli.is
[url:29okvaqw]http://depill.is/LiveTracking.aspx[/url:29okvaqw] voru komnir framhjá jökulánni við fossin
23.04.2011 at 11:15 #728609Eru komnir á góðan skrið á kjalvegi
23.04.2011 at 12:51 #728611Hvaða nafn er depillinn með ? þessi linkur virkar ekki

23.04.2011 at 12:58 #728613setur
23.04.2011 at 13:00 #728615[quote="Krilid":oy1jyy0a]setur[/quote:oy1jyy0a]
Já takk, fékk líka sms frá Loga með nafninu.
En hér hér er s.s. réttur linkur http://depill.is/setur
23.04.2011 at 14:46 #728617sælir linkurinn virkar þegar depillinn er í sambandi
23.04.2011 at 18:24 #728619Sælir félagar, erum komnir í bæinn. Ferðin gekk vel en það er kominn blámi ansi víða og eitthvað um spilvinnu á heimleiðinni. Vorum ekki í neinum vandræðum sem heitið getur en það kæmi mér ekki á óvart þó að kjalvegi yrði lokað á næstunni. Á Bláfellshálsi keyrðum við fram á átta hjóla trukkinn frá vélsleðaleigunni á kafi í krapa, mikill mokstur i gangi og snjótroðari til að reyna að draga hann upp en lítið gekk, búnir að slíta spottann nokkrum sinnum og ekkert að gera nema moka meira frá ferlíkinu. Það er annars mökkur af snjó uppi við Setur, leiðin frá Kerlingarfjöllum og þangað enginn farartálmi, reyndar ein krapafesta þar hjá okkur en þegar haldið er frá Kerlingarfjöllum byrjar baslið. Svæðið kringum Árbúðir meira og mínna orðið á floti og þurftum við víða að keyra ofar í landslaginu þegar við fórum gegnum það svæði og þræða víða. Ókum svo fram á 33" Pajero jeppa sem var á kafi í krapa um 2-300 metra ofan við afleggjarann að Kerlingarfjöllum, tékkaði á honum en hann hafði verið skilinn þarna eftir og enginn í honum. Sennilega er þetta einn af bílum hópsins sem björgunasveitin sótti þarna uppeftir í gær, hafa sjálfsagt ekki verið aðstæður til að koma honum í bæinn. Annars bara fín ferð, leiðnda veður og blint á fimmtudag og föstudag en síðan alveg rjómaveður í dag. Kv. Logi Már.
23.04.2011 at 19:49 #728621Smá sýnishorn frá ferð skálanefndar í dag ofan úr Setri í dag Myndskeiðið sýnir farartálma sem margir þekkja á leiðinni upp í Kerlingarfjöll.
Rúnar Sig[youtube:380ffm6j]http://www.youtube.com/watch?v=lUbM2AKA0Bs[/youtube:380ffm6j]
24.04.2011 at 14:18 #728623væri til í að sjá myndir úr túrnum hvernig var ástandið annars á skálanum
24.04.2011 at 20:05 #728625Ástandið á skálanum er bara gott utan þess að það er ekkert rafmagn. Hægt er þó að hafa 12 volta ljós á skálanum með því að tengja bílrafkerfi á skálann með þar til gerðum tengibúnaði sem er bæði fyrir klemmur á rafgeymi og spiltengi og er inni í skálanum. Ekki er hægt að nota klósettin í skálanum þar sem það er vatnslaust en kamarinn úti á Setu er alltaf til þjónustu reiðubúnn og ekkert að því að nota hann. Hiti og eldunaraðstaða er í góðu lagi í húsinu þannig að ef menn sætta sig við að þurfa að skíta í kamar og taka með sér vatn eða bræða snjó er ekkert að því að gista. Reikna svo með að SBS setji inn myndir á síðuna áður en langt um líður en sá ágæti ljósmyndari var með í ferðinni. kv. Logi Már.
25.04.2011 at 11:28 #728627ok takk fyrir þetta Logi már
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
