FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Hlutföll í PATROL

by Heiðar Örn Sverrisson

Forsíða › Forums › Spjallið › Vefsíðan › Hlutföll í PATROL

This topic contains 9 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Halldór Gunnlaugur Hauksson Halldór Gunnlaugur Hauksson 16 years, 12 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 04.06.2008 at 19:10 #202513
    Profile photo of Heiðar Örn Sverrisson
    Heiðar Örn Sverrisson
    Participant

    Langar að vita hvaða hlutföll menn eru að setja í Patrol 94 2,8. Er á 38″ dekkjum.

  • Creator
    Topic
Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)
  • Author
    Replies
  • 04.06.2008 at 20:40 #624010
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Ég er með 5:42 í mínum sem er ’95 á 38" MTZ. Þau eru í það lægsta en sleppur samt alveg, þó vélin snúist frekar hratt á 90 – 100 kmh eyðir hann ekki nema tæpum 12 á langkeyrslu.
    .
    Freyr





    05.06.2008 at 02:26 #624012
    Profile photo of Valgeir Stefán Sverrisson
    Valgeir Stefán Sverrisson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 278

    5:42 ekki spurning .
    2,8 vélin er fín á 3000 snúningum á Ca 95-100 á 38
    Henni veitir hinnsvegar ekkert af þessu hlutfalli í snjóakstri . Millikassinn er bara 2.02 og fyrsti gírinn í hærra lagi .
    Allavega mér finnst betra að fórna aðeins í hraða fyrir lægri gír .
    MBK V





    05.06.2008 at 08:53 #624014
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Mér finnst að menn ættu að skoða meira að setja 2.86:1 í lágadrifið í stað 5.42 hlutföll. Með því fæst að mig minnir lægri niðurgírun í fyrsta í lága heldur en ef notast er við 5.42. En þjóðvegaaksturinn verður áfram þægilegur og minni eyðsla þar. Kostnaðurinn við breytinguna er sennilega svipaður. Þetta á náttúrulega bara við 38", ef það á að fara í 44" er 5.42 náttúrulega málið.

    -haffi





    05.06.2008 at 10:31 #624016
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    sælir
    ég er búinn að eiga svona bíl bæði á org 1:4.62 hlutföllum og líka 1:5.42. Hann er náttúrulega skemmtilegri á lægri hlutföllum á fjöllum og þjóðvegaaksturinn truflaði mig aldrei satt að segja neitt sérstaklega.
    Aftur á móti ef þú ert að spá í kostnaði þá duga org hlutföllin alveg í snjóinn, smá meira juð á kúplingu en hann skilar sér.
    Ég er sammála Haffa að mörgu leiti en þó er spurning hvort niðurgírunin sé of mikil (ca 40%) á móti 17% með því að setja 1:5.42.
    kv
    Agnar





    05.06.2008 at 12:08 #624018
    Profile photo of Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 553

    Patrol veitti ekki af að vera með hvoru tveggja þ.e.a.s. 5,42 í drifum og 2,86:1 í millikassa. Það er staðreind að menn drífa mun betur eftir því sem gírun er lægri. Litlar vélar eyða yfirleitt minna ef þær eru ekki píndar á lágsnúning. Kúplingar endast líka mun skemur ef bílar eru mjög hátt gíraðir. Samkvæmt nokkuð nákvæmum útreikningi þá ætti Patrol á 38" með 5,42:1 drifhlutfalli að vera snúast 2680 snúninga á mínútu. Það miðast við að dekkið standi 38". Á upphaflegum dekkjum og hlutföllum er hann að snúast 2830 sn/mín á 90km/klst.
    Þetta miðast við 2,8TD sem kom yfirleitt á 4,62:1 hlutföllum.

    kv,

    HG





    05.06.2008 at 12:51 #624020
    Profile photo of Sigurður Freysson
    Sigurður Freysson
    Participant
    • Umræður: 5
    • Svör: 94

    Ef þú ferða að skipta um hlutföll á annað borð þá er 5.42 ekki spurning, það er fínt fyrir 38. Ég fann aldrei fyrir því á mínum gamla á þjóðveginum að snúningurinn væri eitthvað að trufla mig, bara rúllaði ljúft (allavegana eins og þeir nú geta).
    Ef það er orðinn svona mikill munur á háa og lága getur maður þá ekki lent í því að vera í rauða botni í lága, en ná honum ekki á "flug" í háa?
    5.42 fyrir 38 er margprófað og bara virkar.





    05.06.2008 at 14:49 #624022
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    það var afar sjaldgæft að hægt væri að skipta í háa á mínum gamla á 5.42 þannig að það verður ekki "vandamál".
    Aftur á móti myndi ég hafa miklar áhyggjur af því að vera á bíl sem væri á 5.42 og með 2.81 í millikassa ef færi væri gott 😉 …… Þú værir bara ekki með !
    kv
    Agnar





    05.06.2008 at 22:24 #624024
    Profile photo of Heiðar Örn Sverrisson
    Heiðar Örn Sverrisson
    Participant
    • Umræður: 9
    • Svör: 36

    Takk fyrir upplýsingarnar. Hvar fær maður 5,42 hlutföll á góðu verði.





    05.06.2008 at 23:06 #624026
    Profile photo of Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 553

    Misjafnt hvað menn kalla gott verð en hlutföll í Patrol eru með þeim dýrari. Kosta um 58.000- stk fullu verði. Hvað varðar lægra lágadrif þá er skrítið hvað menn eru ragir við það. Algengt er í Toyota að hlutfallið sé 2,57:1 og í mörgum Amerískum er það 2,7:1. Breyting við að fara úr 2.02:1 í 2,86:1 er, svona á manna máli, að þá ertu komn með 1. og 2. gír fyrir neðan 1. í háa drifi í staðin fyrir að vera bara með 1. í lága fyrir neðan. Ekki stór breyting þar á en munar miklu í vondum færum. Þeir vita sem reynt hafa og nokkur dæmi um að menn séu að nota 3.74:1.

    kv,

    HG





  • Author
    Replies
Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.