Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › 44″ vs 46″
This topic contains 28 replies, has 1 voice, and was last updated by Guðmundur Guðmundsson 17 years, 8 months ago.
-
CreatorTopic
-
14.02.2007 at 14:37 #199682
AnonymousSælir, ekki veit einhver um mynd þar sem 44″ trxus og 46″ thompson standa hlið við hlið. Og vitiði hvernig 46″ hafa verið að reynast.
Kv Kristinn -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
14.02.2007 at 17:21 #580358
það er einn á 46" hér fyrir austan á ford liner
og ég gat ekki betur séð að þau væru að virka mjög vel eða eins og einn ferðafélaginn á 44" orðaði það "hann tók mig svo vel í rassgatið að það blæddi úr"
annars var Patrol að standa sig mjög vel ólæstur og "bara" á 38"
kv Heiðar U-119
14.02.2007 at 17:45 #580360Ég veit nú ekki um mynd af dekkjunum en það veit ég að 46" er að reynast mun betur en TRX-us dekkin bæði á malbiki og í snjó.
Kv. Davíð
14.02.2007 at 20:00 #580362Sælir félagar.
Þegar ég breytti mínum fína Pajero 2,8 á 44 tommur var ég að horfa á gróf 44 tommu dekk og var skíthræddur um að bíllinn myndi ekki hafa kraft í þessi hjól. Þess vegna ákvað ég að fá mér DC.
En hvað halda menn um 46 tommu hjólin nú, þau virðast vera mjórri en DC 44. Halda menn að Pajeróinn myndi snúa þessu betur eða verr en hann gerir í dag ?
Kv
Palli
14.02.2007 at 20:08 #580364Finnst þér að Pæjan ráði við 80 kg í viðbót?
Þetta verður þú bara að meta sjálfur, en ég get lofað þér því að bíllinn verður töluvert mikið betri í akstri, þó ég stórefist um að han sé eitthvað slæmur hjá þér núna.
Enn þetta með 80 kg verður þú að meta hvort er í lagi, kannski þú getir tekið eitthvað af sjálfum þér á móti þessari tölu?
LG
14.02.2007 at 20:24 #580366Sælir mér langar að spurja ég er með ’91 4Runner V6 bensín á 38" en er að fara að setja hásingu að framan og lóló eflaust en það sem ég er að velta fyrir mér ef ég fer útí að stækka dekkin (sem mig langar) hvort er þá meira vit í að fara í 44 eða 46" og hvaða hlutföll ætti ég að fara á er á 4:88 en fer væntanlega í 5:29 eða 5:71
endilega kommentið á þetta hjá mér
kv Davíð og litli rönnerinn
14.02.2007 at 21:15 #580368Sælir strákar ég er á 4 tonna econoline og eg var á
44" trexus sem að eg var nokkuð sáttur við svo ákvað ég að prufa 46" og það er eins og svart og hvitt.
Hann svínvirkar á þessu helvítis bíllinn
ENN;;;; ég var svo óheppinn að ég lenti á hoppudekki og fjallasport neitar að bæta tjónið þannig að ég mæli ekki með að þið kaupið af þeim dekk nema fá það skriflegt að þau bæti það vegna þess að það er ekkert að marka hvað þau segja.
14.02.2007 at 21:22 #580370sælir ég er búinn að vera með traxus 44×21" þau eru svipuð og 46" þegar er búið að skera þau talsvert en 46" er miklu betri akstus dekk þau ellta ekki vegrásir hæðarmunur á 44 og 46 eru 8 cm en ég mæli með því að 46" sé skorin það lækkar hávaðan í þeim um ca50%
og taka mun betur á ég er á öðrum gángnum af 46" það er það besta sem völ er á í þessum stærðar flokki allavegana undir bíla sem eru 3,5 tonn og þingri
14.02.2007 at 22:26 #580372Það er ekki spurning að 46" hefur miklu betra flot heldur en 44" Trxus. Það sem þarf aftur á móti að hafa í huga er hvaða felgustærð passar undir bílinn.
44" Trxus eru til fyrir 17" felgur sem passar betur undir nýrri ameríska ofurtrukka á meðan 46" MT dekkin eru bara til í 16 og 16,5" felgustærðum. Enginn heilvita maður tekur 16,5" stærðina því þær felgur eru kónískar og affelgast mjög auðveldlega við lítinn loftþrýsting.
14.02.2007 at 23:09 #580374Eru 46" ekki líka til fyrir 15" felgur, finnst einhvernvegin að ég hafi séð það einhverstaðar.
Þetta með virknina á þessum dekkjum þá hef ég ekki orðið var við annað en að menn séu mjög ánægðir og veit ekki til þess að það sé algengt með "hoppidekk" og að fjallasport hafi "skelt á nefið" á þér kemur pínu á óvart í það minnsta hef ég ágæta reinslu af þeim sem þar vinna.
14.02.2007 at 23:28 #580376
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
það er pottþétt til 46" mt fyrir 15" felgur, en hvaða felgu breidd eru menn að nota, dugar 17" fyrir þetta eða er 19" lágmark. ég var að ath með að flytja svona inn og hingað komið eru þau um 220þ, vitiði hvað gangurinn út úr búð kostar hérna? Ég held að það sé ekki spurning um að fara í 46" næst, ekkert sem maður þarf að gera hvort sem er til að koma þeim undir.
Kv Kristinn
14.02.2007 at 23:44 #58037880 kg er ekki neitt… hann verður allfaf léttari en Patrol, mætti þá setja rúmlega 4 ganga undir…
Svo má allaf henda kóaranum út…. og sætunum… og skilja eftir brauðið… eða …. bara sætta sig við þetta..
Ég hef bara áhyggjur af einu… að það sé erfiðara að snúna þessum 46 tommu hjólum… Ég er ekki með 400 hp, bara tæp 160…
Kv
Palli
14.02.2007 at 23:47 #580380tek undir með palla um hvort mótorarnir snúi þessu ég held að 4Runnerinn sé eitthvað svipaður og Pajeroinn í Hp en þó bensín (nema þinn sé bensín palli) hvað ráðleggja menn mér að gera þar að segja annað en hásing að framan og milligír sem er núþegar ákveðið
KV forvitni davíð
14.02.2007 at 23:52 #580382
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Er ekki bara að fara út í ÁTVR og kaupa 2 kassa af bjór, loka sig inn í skúr og fara að byrja að klippa, skera og sjóða? Maður smyr sig.
15.02.2007 at 11:45 #580384sælir ég er búinn að vera á 16×16" felgun bæði með trexus og 46" finn ekki fyrir mun á floti en eina baslið með þessar felgur er að þegar ar búið að hleipa niðrí 2-3 psi eiga þær til að snúast inní dekkjunum 46" ég fór með ca 30.000/- í balesesingar á síðasta ári nún er ég komin með nýar felgur samanskrúfaðar frá smára í skerpingu þannig að þetta vandamál er úti það ern nefnilega með þessa Forda þeir segja ekki bara ha þegar er gefið
15.02.2007 at 12:46 #5803864runner á 46"? hefur hann vélarafl í þetta svo menn séu sáttir við hann? hefur hann þyngdina til að bæla þessi dekk? er ekki þykkara í þeim en DC?
Og er 44 ekki feikinóg fyrir rúmlega 2 tonna bíl?
15.02.2007 at 14:50 #580388ég veit allavegana að það er einn 4Runner kominn á 46" dekk og var sá bíll að ég held á bílar&sport sýningunni blár að lit en ekki hef ég mikla trú á að Toyotu hestarnir séu að knúa hann áfram ég held nú að hann hafi farið í yfirhalningu með hlutum frá Ameríkuhrepp:D en þrátt fyrir það þá held ég að hann sé ekki mikið þyngri en minn fyrir utan bara þau kíló sem koma af dekkjum h´singum og mótor umfram minn svo gaman væri að vita hvernig sá bíll er að reynast í snjó. ef einhver veit eitthvað um það???? gaman væri líka ef að Ofsi mundi koma með komment um hvernig 44" 4Runner er þar sem hann ætti að vera þaulvanur sínum rönner og endilega koma með uppl sem gætu komið sér vel fyrir mig í mínum verðandi breytingum
Kv Davíð hinn litli
15.02.2007 at 15:47 #580390https://old.f4x4.is/new/forum/default.as … ingar/8492
Ég mundi halda að þín helstu vandamál, sé að skipta yfir í breiðari rör svo að þú gætir beygt.
Og til þess að reyna að hafa bílinn lægri...ég hélt að 46" væri breiðari, þá sérstaklega munstur, en 44DC
15.02.2007 at 15:48 #580392mér sýnist að flestir sættisig við lítið afl í þessum bransa
en þessi fouruner 46" er ekkert venjulegur bíll er torfærugrind með húsi 46" er ekki að virka vel undir honum hef ég heyrt trúlega of léttur krílið er á 46" og gengur mun betur en á DC líka þingri en3 tonn já enhver var að spirja um verð á 46" það er 70.000- með vsk án afsláttar
15.02.2007 at 15:58 #580394var nú reyndar búinn að heyra að hann hafi verið að svínvirka… hvernig er það, hann fór með benna og co í blauta túrinn í grímsfjöll, hvernig var hann að virka þar ?
Kristó
15.02.2007 at 16:04 #580396blái 46 runnerinn er með breikkaðar 80 cruiser hásingar og corvettu vél tjúnnaða ef ég man rétt, hann er töluvert þyngri en venjulegur. Ég ætla svo sem ekki að skifta mér mikið af þessu hjá þér, þú verður bara að hugsa þetta sjálfur. MT dekkin eru þykkari og þarf meira til að bæla þau og svo er vélin líka spurningarmerki, hún ætti í raun að segja til um hvaða dekk hún er að knýja..
einnig er hlutföll spurningarmerki, þar sem menn tala um að fara varlega á 5:71 á 38" til að brjóta þau ekki(vera ekki að draga mikið) hvað skeður þegar 46" er komið undir..
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.