This topic contains 11 replies, has 1 voice, and was last updated by Björn Oddsson 19 years ago.
-
CreatorTopic
-
23.07.2007 at 18:19 #200561
Sælir allir, ég er að pæla í hvar ég gæti mögulega fengið öflugt 12v kælibox sem væri 35 -40 lítrar að stærð… ég á eitt 25 lítra og það er ekki nógu stórt hreinlega, ég er búinn að hringja út um allan bæ og þetta er allstaðar uppselt þannig að mig vantar fleiri hugmyndir um hvar ég gæti fengið þetta…
kv Axel Sig… -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
23.07.2007 at 21:51 #593812
Ég keypti 40 lítra kælibox í Elko fyrir ca. tveimur vikum. Á heimasíðu þeirra sagði að þau væru uppseld en samt voru þau til á Smáratorgi þar sem ég keypti mitt. Vera má að ég hafi keypt það síðasta.
Svo var Húsasmiðjan líka að auglýsa 35 lítra box í blaði sínu um daginn en kannski er þetta allt farið.Kv. Sigurbjörn.
23.07.2007 at 22:25 #593814Eina sem ég veit er að þessi box eru Allt of dugleg að klára rafgeyma á bestu bílum… Borgar sig ekki að hafa þau tengd nema bíllinn sé í gangi.
24.07.2007 at 00:08 #593816ég keypti 35 lítra box í Húsasmiðjunni Súðavogi fyrir 2 vikum síðan sem er mjög gott box, hægt er að láta það slökkva sjálft á sér þegar lækkar á rafgeyminum. Það var einnig til 40 lítra. Verðið á þessu var um 10 þús krónur (frekar dýrt en virkar og kælir mjög vel).
kv
AB
24.07.2007 at 22:13 #593818Ég keypti fyrir stuttu 45l. box í Húsasmiðjunni, eftir nokkrar rannsóknir. (skoðaði t.d. í Elko og líkaði ekki vel) Samskonar box fást á nokkrum stöðum, t.d. í Útilegumanninum, en verðið er lang best í Húsasmiðjunni. Boxið hefur verið notað nokkrar helgar og hefur reynst mjög vel. það er 12v. og 230v. sem hefur sýnt sig að er mikill kostur.
Ég verð þó að viðurkenna að sjá svolítið eftir því að hafa ekki splæst í box sem gengur líka fyrir gasi, en þau fást víst hjá Skorra og kosta ca. 30 þús.Kv. Emil
25.07.2007 at 09:56 #593820Öll þessi Byko, Húsasmiðju, eða Rúmfatalagers box eru óskaplega orkufrek á 12V, svo orkufrek að þau eru ónothæf. Undirritaður brá á það ráð að setja "pressu" box í FORDinn sinn, þar hefur það virkað fínnt undan farin ár.
Með þessari kæliaðferð er afl notkun uþb 1/10 af því sem þessi "venjulegu" box eru að draga, og munar ekkert um að láta þetta standa á batteríinu yfir nótt.
Sölustaður fyrir þetta er td http://www.rotor.is í Hafnafirði.Hérna er td svona ferðabox:
http://www.waeco.com/en/258_499.php?PHP … ede86c8264
Kveðja
SBA
25.07.2007 at 11:01 #593822Compressor coolers for truckers – the heavy-duty champions
The ice-cold services provided by these cool professionals are much sought-after everywhere: on board motorhomes and boats, in cars and trucks, at work and at leisure. Even deep-frozen food can be stored without any problems at temperatures as low as minus 18°C (CF series). All CoolFreeze compressor coolers are equipped with high-tech Danfoss BDF compressors. And that means: extraordinary performance at minimum power consumption, superbly silent running, reliable operation even on a tilt, problem-free operation at 12/24 volts.
39 lítra box.. en viktar 20 kg …dáldið þungt.
http://www.waeco.com/en/258_500.php?PHP … ede86c8264
25.07.2007 at 13:05 #593824Þessi pressubox nota svipað mikið af rafmagni og ódýru boxin meðan þau eru í gangi, svona álíka mikið og ein aðalljósapera. Pressuboxin eru hinsvegar ekki í gangi nema ca. 20% af tímanum sem þau eru í sambandi. Væri þá ekki snjallasta (ódýrasta) lausnin að tengja ódýru boxin við hitastýringu sem myndi slökkva á þeim við t.d. 3 gráður og kveikja aftur við t.d. 6 gráður… Svona svipaður búnaður og slekkur á þeim þegar spennan á rafgeyminum fer niður fyrir ákveðið lágmark. Kannski er þetta til, ég hef reyndar ekki rekist á það.
–
Bjarni G.
25.07.2007 at 20:05 #593826lítið mál að mixa termostat í boxið en efast um að ódýru boxin nái niður í 3 gráður…. kannski raunhæfara að stilla á svona 7 – 8 gráður…
26.07.2007 at 00:21 #593828Emil og Bjarni, þið ættuð nú að fara að klára bílana ykkar í stað þess að vera að dunda ykkur við að mixa einhvern stjórnbúnað í kæliboxin ykkar. Við búum á Íslandi og því þarf ekkert að kæla boxin yfir nóttina, þið setjið þau bara út fyrir tjaldið…
Var í Þórsmörk nóttina sem leið og þar fór hitinn niður að frostmarki um nóttina, burrrrrrr
kveðja
Agnar
26.07.2007 at 00:34 #593830Þeir komast ekki út úr skúrnum, minn er fyrir.
-haffi
30.07.2007 at 14:07 #593832Sælir
Yfirleitt dugar næturkuldinn til þess að halda nægum kulda í venjulegum boxum yfir daginn.
Getið þið sagt mér hver er með "igloo" kæliboxin. Þau eru ein af þeim fáu sem raðast vel í bíla? [url=http://www.robbinssports.com/sporting-goods-store/images/igloo-fifty-four-quart-sports-ice-chest.jpg:32pgypm5][b:32pgypm5]Mynd hér[/b:32pgypm5][/url:32pgypm5]
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
