Forsíða › Forums › Spjallið › Klúbburinn › Bílabingó › Reply To: Bílabingó
08.02.2015 at 00:25
#776677
Logi Már, það lítur út fyrir það að við förum á puttanum þar sem „gráni gamli „er ekki ferðafær frekar en Wagoneerinn hvenær sem það nú verður. Við þurfum að snapa okkur far hjá einhverjum,svo að mannskapurinn fái að borða. Við getum ekki látið formanninn skera ketið, það er ekki góð reynsla af því. 😉 (mikróskurður). Svo ætlar Kristján að efna loforð um 12 ára Whisky með kaffi. Ég átta mig ekki á hvað er verið að blanda dass af kaffi við Whisky. Það hlýtur einhver að taka okkur með þar sem við erum með ketið og bassann.
Kv Rúnar