FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Þorvaldur Sigurðsson

Þorvaldur Sigurðsson

Profile picture of Þorvaldur Sigurðsson
Virkur síðast fyrir 9 years, 6 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 161 through 180 (of 373 total)
← 1 … 8 9 10 … 19 →
  • Author
    Replies
  • 15.09.2008 at 22:28 #202921
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Af því mhn hefur svo gaman af spurningaleikjum er hér ein sem fengur væri í að hann svaraði. Með því eru þó ekki aðrir útilokaðir ef svo vel vildi til að þeir lumuðu á vitneskjunni. En semsagt: Hverju hvíslaði Óðinn í eyra Baldri?





    14.09.2008 at 08:55 #629316
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Vandamálin liggja ekki hjá krónunni heldur því að undanfarin ár hefur þjóðin lifað í gegndarlausu neyslufylliríi, langt um efni fram, sem tengist því ekkert hvort við höfum krónu eða evru. Neyslan hefur síðan verið fjármögnuð með lánum hvar sem þau hefur verið að fá og þegar kemur að skuldadögum er bara tekið nýtt lán. En nú er það allt í einu ekki hægt því að í útlöndum liggur fjármagn ekki á lausu allt í einu og skyndilega þarf að fara að borga lánin. Jafnvel má rökstyðja að við núverandi aðstæður sé heppilegra að hafa krónu en evru vegna þess að fjárhagsvandanum má svara með lækkandi gengi til að draga úr viðskiptahalla. Hefðum við evru væri sá kostur ekki í stöðunni og þá langlíklegast að langvinnt og alvarlegt atvinnuleysi, eins og er landlægt í evrulöndum, yrði ofan á.
    Anga af þessari lánsfjárþurrð má sjá í háu eldsneytisverði hér því nú er miklu dýrara en áður að fjármagna eldsneytiskaup. Og þá dettur mér þjóðráð í hug: Ef bifreiðaeigendur greiddu nú allir eldsneytiskaupin fyrirfram til ársins er enginn vafi á því að verð myndi lækka verulega. En; erum við tilbúin til þess??
    En sem sagt: Efnahagsvandinn er af því sprottinn fyrst og fremst að við eyddum um efni fram og það kemur því ekkert við hvað aurarnir heita sem við réttum á milli okkar.





    08.09.2008 at 18:33 #628814
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Eitt af markmiðum Ferðaklúbbsins 4×4 er náttúruvernd, sbr. þessa klausu sem tekin er af vef Umhverfisnefndar: "Annað markmið sem klúbburinn hefur sett sér er að gefa gott fordæmi um umgengni og verndun landsins með jákvæðri eftirbreytni og umræðu um náttúruvernd. Til að vinna að þessu markmiði var sett á fót umhverfisnefnd innan klúbbsins sem á undanförnum árum hefur staðið fyrir ýmsum náttúruverndarverkefnum."
    Það vekur því furðu þegar ýmsir þeir sem hafa skrifað á þennan þráð ná ekki andanum af hneykslun yfir því að einhverjir, sem að þeirra mati ættu kannski best heima í samtökunum Saving Iceland, sem eru að ýmissa skoðun hreinræktuð hryðjuverkasamtök, skuli hafa skoðun á náttúruspjöllum. Og til að kóróna málflutning sinn krefjast þeir hinir sömu þess að málfrelsi þeirra sem láta sig náttúruna varða skuli heft sbr. eftirfarandi: "það er í lagi að tala um hultina á réttum forsendum EN þetta er ekki umhverfisvendurar sina kluppur" "og hætti þersu skít kasti strax" að maður minnist ekki á þessi orð: "Nu er nog komið af þessu helv…. bulli herna, það mætti halda að herna a þessari siðu 4×4 seu aðilar i Saving Iceland farnir að raða rikjum bölvaður OFVERNDARTONN og ofstæki."
    Ég sé ekki annað en málflutningur þeirra sem rætt hafa með eftirsjá eftir ósnortinni Hamragarðaheiði sé hins vegar bara býsna hógvær og málefnalegur, enda er það í samræmi við það sem ég hélt vera eðli og tilgang klúbbsins sem ég gekk í fyrir nokkrum árum, alveg burtséð frá því að vitaskuld er umdeilanlegt hvort verið er að fórna minni hagsmunum fyrir meiri, eða öfugt, með þessari vegagerð í heiðinni.
    Lifið svo heil
    Þ





    27.08.2008 at 20:30 #628252
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    "Sælir veit af einum á AK sem tók afturköggull og bræddi við fram-ás á patrol 4,2."
    Í hvora áttina fór bíllinn eftir þessar æfingar?





    09.08.2008 at 08:30 #627072
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Góðir hálsar!
    Gleymið því ekki að drifskaftsbremsan er innan við mismunadrifið. Af því leiðir að ef annað hjólið hefur ekki viðspyrnu snýst hitt. Þannig er mjög vafasamt að lyfta bíl með svoleiðis bremsu og ætlast til að hitt hjólið sé fast. Þetta veit ég af biturri reynslu eftir að ég missti gamla rússann hans pabba hérumbil ofan á mig, en hann var einmitt með slíkum búnaði. Um leið og hjólið lyftist skreið hann af stað og á það sem fyrir var.
    Sem sagt; þetta er stórhættulegur búnaður og sennilega ekki að ástæðulausu að framleiðendur hafa almennt miklu flóknari og dýrari búnað úti við hjól.





    29.06.2008 at 10:29 #625112
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Kaninn brúkar gjarnan mjórri felgur en við hérna og þar fara menn jafnvel niður í 8" felgur fyrir 35" dekk. Þau bunga þá meira út yfir felgurnar en eiga líka að haldast betur á þeim. Ég er þeirrar skoðunar að 35 á 9 tommurnar sé ekkert mál.





    29.06.2008 at 01:09 #625108
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Undir hvað?





    21.06.2008 at 23:43 #624158
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Hvar tekur þessi græja brennsluloftið? Ef hún tekur það inni í vagninum eru líkur til að fleira verði dautt að morgni dags, ef þú lætur loga yfir sofandi fólki, en bara þetta kaupamál. Og mundu að kolmónoxíðeitrun er ótrúlega lúmsk.





    19.06.2008 at 21:52 #624606
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Nú átti ég rauðan l200 í mörg ár. Það var hinn besti bíll. En þegar ég þurfti að skipta um drif í honum reyndust 1:5,28 drif illfáanleg og rándýr.





    11.06.2008 at 21:56 #624270
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Hitt er svo að það er útbreiddur misskilningur að Skaftáreldarnir séu stærsta gos veraldar á sögulegum tíma. Þannig var Eldgjárgosið árið 940, eða svo, talsvert stærra eða allt að 19 rúmkílómetrar. Ástæða þess að það hefur ekki notið sannmælis er það m.a. að Skaftáreldahraunið liggur ofan á því að talsverðu leyti og því höfðu fyrri tíðar menn ekki tækifæri til að átta sig á umfangi þess og svo hitt, sem er afar undarlegt, að um það er afar lítið, og nánast ekkert, getið í heimildum frá þessum tíma.
    Síðan hafa menn sem ekki vildu að bækur þeirra úreltust líka verið að hártoga hvað er sögulegur tími. Þannig hélt einn því fram að sögulegur tími væri á Íslandi eingöngu eftir 1117 þegar menn fóru sannanlega að skrifa á móðurmálinu og því hefði allt sem fyrir ritöld gerðist orðið á forsögulegum tíma.
    Margt má skemmta sér við að diskútera.





    04.06.2008 at 18:51 #623972
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Sá slípirokk sem hægt er að brúka sem bónvél í evróprís á Granda í gær. Kostaði eitthvað á milli fimm og sex þúsund minnir mig.





    03.06.2008 at 20:49 #623922
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    "SVO HEITIR ÞETTA FÝRKANTRÖR, EKKI PRÓFÍLAR. Læriði íslensku í gvöðanna bænum…"
    Og hér sannast að gamansemi Íslendinga teygir sig býsna langt. Þarna segir hinn ágæti Samúel feikna fyndinn brandara sem ég er þó ekki alveg viss um að allir hafi skilið. Gamansemin felst í því að Samúel segir að danska og íslenska séu sama fyrirbærið, en "fýrkantrör" heitir einmitt "firkantrör" á dönsku en "prófílrör" á slæmri ensku. Það er þó nokkuð samdóma álit fræðimanna að danska og íslenska séu ekki það sama, jafnvel þótt þær séu af sömu rót runnar og íslenskan ekki komin jafn langt á þroskabrautinni og danskan. Á íslensku myndi þetta beislissmíðaefni sennilega kallast "pípa með ferningslaga þversniði" og mætti kannski styttast í "ferningspípa". Skora ég á beislissmiði að biðja um slíkt næst þegar þeir afla sér efnis.
    Það er svo annars umhugsunarefni um framhaldið þegar dönskusletturnar eru orðnar svo rótgrónar að þær greinast ekki frá ástkæra ylhýra málinu. En minnumst samt þess fornkveðna að á íslensku má alltaf finna svar og að á Íslandi er til orð um allt sem er hugsað á jörðu.
    Að svo mæltu þakka ég títtnefndum Samúel fyrir þann skammt af gleði sem hann veitti inn í mannlífið.





    30.05.2008 at 18:16 #623750
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Ef þú skoðar kort vegagerðarinnar á vegag.is sérðu merki á Arnarvatnsheiðarveginum. Það er kringlótt og gult með rauðri bryddingu. Þetta er merkið B01.11. Það, ásamt rauðum lit á veginum yfir Arnarvatnsheiðina, táknar að þar er öll umferð ökutækja bönnuð. Af því leiðir að enginn má aka um veginn. Hins vegar er sennilegt að enginn muni fetta fingur út í það þótt þú röltir þarna inn úr. En í uppsveitum Borgarfjarðar býr fjöldi manna sem ekki teldi það eftir sér að taka upp símann og hafa samband við sýslumanninn í Borgarnesi ef þeir hefðu vitneskju um ferðir vélknúinna ökutækja þarna.
    Og þá er það bara nestið og nýju skórnir því sektirnar fyrir svoleiðis bíltúr eru býsna háar.





    20.05.2008 at 10:50 #623086
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Er ekki ráð að tala líka um módelflug á þessari síðu? Og alveg er ég sannfærður um að margir limir klúbbsins hafa áhuga á mótorhjólum, fluguveiði, skyttiríi, frímerkjasöfnun og svo framvegis. Eigum við ekki að hafa það með á spjallinu? Eða hvað?





    04.04.2008 at 13:46 #619268
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Um það er útilokað að segja enda hafa menn ekkert til samanburðar en, eins og kunnugt er, er hver tegund hjólbarða seld í mismunandi stærðum og enginn sem sér þessa mynd getur séð hvort valið var úr stafla af stærstu sortum eða minnstu.





    19.03.2008 at 15:05 #618002
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Það þarf auðvitað enga stjarneðlisfræðinga til að skilja að aukið loftflæði sem fylgir þessum þvottasíum stafar af því að þær eru opnari en orginal síurnar. Því fylgir þá vitaskuld að þær hleypa stærri ögnum í gegnum sig. Og stærri agnir valda meira sliti á vélinni, soggrein, ventlum, strokkum og hringjum. Til að vinna gegn agna (sandkorna) flæðinu eru síurnar olíubornar og olían sogast með tímanum inn í soggreinina og sest á það sem þar er, t.a.m. loftflæðiskynjara, og truflar boðin sem frá þeim berast auk þess að skítur sest í olíuna sem þar er.
    Vilji menn prófa hvort svona síur geri gagn gætu þeir valið lognrigningardag, tekið loftsíuna úr bílnum, ryksogið síuhúsið vandlega og spyrnt svo. Því að ef opin sía er betri en þétt hlýtur engin sía að auka aflið enn meira. Ef þessi tilraun gefur ekki meiri kraft en þvottasía er kraftaukning frá henni komin út fyrir mörk eðlisfræðinnar og þá þarf miðil eða prest til að skýra meintan mun.





    18.03.2008 at 22:36 #617666
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Ég er búinn að spekúlera í marga daga hvað er svona merkilegt við kellingar og þá staðreynd að þær hafa rass, eins og reyndar flest fólk; í fljótu bragði man ég ekki eftir undantekningu. En hvernig kellingar með rass tengjast því að sumir eru fljótari en aðrir og sumir festa sig og þurfa spotta og… er mér, sem sagt, hulin ráðgáta. En svo rann upp fyrir mér ljós! S. Það vantar s. Það er hægt að skella í rassinn á þeim sem hann hafa. Þetta voru þá ekki rass-kellingar heldur rass-skellingar. Hvernig sem það tengist því að sumir eru fljótari en aðrir og sumir festa sig og þurfa spotta…og nú fer fyrir mér eins og Þórbergi sáluga þegar hann velti fyrir sér hvernig finnska orðið "servistikuntalo" væri myndað. En Þórbergur gat ekki haldið aftur af hugrenningunum. Ekki ég heldur. Í frægu kvæði eftir Jónas heitinn segir um rjúpuna: "Kastar hún sér í keltu/ konunnar í dalnum." Kelta er staðurinn sem konur hafa smábörn í sem þær sitja undir. Hvernig líta þá rasskelltur út? … Ég er farinn að sofa.





    24.02.2008 at 10:17 #614906
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Þú ættir að kíkja á þessa síðu:
    http://www.arbusa.com/alac/215109.pdf
    en þar kemur fram að ekkert sé fáanlegt í 2005 bílinn en árinu eldri bíll geti, með nokkrum æfingum, notið góðs af svona læsingum. Annars er svosem ekki óhugsandi að þeir hjá umboðinu hafi glætu um þessi mál og hvort, og þá hvernig, mætti leysa þín mál.





    18.02.2008 at 20:49 #614494
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Áður en fleiri halda því fram að ég sé bullari, sem mér sárnar svona frekar, þá ætla ég að biðja þá að líta á þessa vefsíðu sem ég gróf upp. Þar sést glögglega gír- og millikassi úr pajero, bæði 2,6 l og 3 l. Á myndunum sést sömuleiðis glögglega að kassinn og millikassinn eru sambyggðir að því leyti að gírstangarhlutinn af gírkassanum er fastur á og steyptur með millikassanum og þeir verða ekki öðruvísi aðskildir en með slípirokk eða sleggju. Og nákvæmlega eins og 2,6 l kassinn var kassinn í mínum gamla L200 sem smíðaður var 1994. Það veit ég vegna þess að við mágur minn roguðum honum með allskyns tilfæringum bæði frá og að vélinni oftar en einu sinni. Hafi þessu sýstemi verið breytt síðar er það gleðilegt en lógír við þennan gírkassa fylgja verulegar breytingar, það er ljóst.
    http://www.pajero4x4.ru/Manual/manual-trany.pdf





    18.02.2008 at 13:58 #614484
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Það gleður mitt gamla hjarta að sjá að allt í einu lifnuðu menn við og svöruðu. En að ég hafi ruglast á MMC og ísúsu er ekki rétt. Að sönnu reif ég kassann undan mínum L200 bíl oftar en einu sinni og það kom allt í einu stykki og boltað mjög kirfilega saman. En ef nú er unnt að taka millikassann frá gleðst ég fyrir hönd þeirra sem nú eiga þess kost sem ég átti ekki.
    Og sagði ekki Ari sálugi: En hvatki er missagt er í fræðum þessum þá er skylt að hafa það heldur er sannara reynist. ?





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 161 through 180 (of 373 total)
← 1 … 8 9 10 … 19 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.