Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
05.03.2009 at 18:33 #642498
Ef hann verður of mikill verður bíllinn þungur í stýri en hins vegar afar vakur þegar bakkað er. Fari spindilhallinn í 90 gráður hættir bíllinn alveg að beygja.
01.03.2009 at 10:54 #621742Ef háttvirtur héráundanskrifari hefði lesið póstinn sem hann svaraði hefði hann séð að þar var rætt um bíl sem fór af 35 þumlungum upp á 41. Það reiknast færustu stærðfræðingum til að vera hækkun upp á u.þ.b. 6 þumlunga, miðað við breidd þumalfingurs Hinriks 8. Þeir sömu fræðingar tóku svo þessa sex og deildu með tveimur og fengu út þrjá sem var útkoman úr dæmi Braga.
Að sönnu er það trúlega rétt að bíll sem fer af 41 tommu á 44 hækki um 1,5 tommur en það er allt annað dæmi sem hvergi kom fram hjá Braga.
20.02.2009 at 22:17 #641576Á í alvöru að vera hægt að svara þessu? Hvað ætli margir staðir á almannafæri séu 2×4? Eða 16,5×7,2? Og stóð í upphaflega póstinum að þeir yrðu að vera blautir? Og er það vegna rigningar? Eða eru þetta einhverskonar ílát?
18.02.2009 at 15:09 #641342Logey við Vesturvör í Kópavogi (beint á móti Ora) er með afbragðs verkfæri á fínu verði. Keypti þar fínan loftlykil (fyrir kreppu) á tæpan 15000 kall. Og flottan lofthjöruliðstopp á 2300 en samskonar kostaði rúmlega 8000 í N1 og allsherjarolíusíulykil fyrir topplykil fyrir slikk og… Nú get ég ekki komið þar lengur inn því ég veit aldrei hvenær ég á að hætta að sanka að mér.
13.02.2009 at 21:40 #640834Getur verið að lágadrifið sé 1:227? Vantar ekki kommu þarna einhvers staðar?
09.02.2009 at 10:43 #640374Nú á ég að sönnu dakota 4,7 frá 2004 en ekki durango. Þetta eru þó sambærilegir bílar. Er skemmst frá því að segja að í blönduðum akstri fara um 18 lítrar á hundraðið en með ítrustu varkárni, rétt eins og ekið sé með egg undir tánni, fara rúmir 14 á langkeyrslu. Þá er aldrei farið yfir 90 og ekið þannig að hann rétt lafir með óverdrævið á. Sé hvass meðvindur fer hann niður fyrir 14, en lítið.
24.01.2009 at 15:42 #638800Það væri sannarlega athyglivert að sjá Patrol með afturdrif úr zetor. Það væri þó ekki sérlega lipur gripur. Framdrifið í zetor er hins vegar ekki portal og ætli einhver myndi ekki kvarta undan kílóafjöldanum á því eða drifhlutfallinu. En ef komið væri afturdrif úr dráttarvél í bílinn væri hann hvort eð er orðinn ókeyrandi þannig að hitt myndi sennilega ekki breyta miklu.
29.12.2008 at 17:49 #635720Það er ekkert til sem er ókeypis, ekki einu sinni bylgjan. Ef bíleigendur borga ekki skoðunargjald beint verður aurunum náð einhversstaðar annarsstaðar með hækkuðum skatti.
26.12.2008 at 18:48 #635424Í blaðfjöðrun er eitt sem getur bilað. Um það er fljótlegt og auðvelt að skipta. Í loftpúðum getur bilað: a púðinn, b dælan, c ventlar, d stýringar, e rofar, f loftslöngur, g stífur, og örugglega eitthvað fleira.
Annars vegar er afar einfaldur búnaður og hins vegar flókinn. Og í flóknum búnaði er fleira sem getur bilað.
21.12.2008 at 12:00 #635024Þetta er víst bíllinn minn!
Það þýðir ekkert að bæta við skilyrðum þegar langt er komið og breyta þar með forsendum. Það sem lagt er til grundvallar í upphafi verður eitt sér að duga til að skera úr:) Og það á við um minn bíl upp á punkt og prik. Að vísu á það líka við, lauslega áætlað, 469 aðra bíla en það er ekki mér að kenna.
19.12.2008 at 20:35 #634994Nei! Þetta er án alls vafa gamli bíllinn minn mmc l200 oi887. Einhver glæsilegast bíll sinnar tegundar og í stuttu máli passa öll atriði sem Magnús telur upp við hann. Er það mér virkilegt gleðiefni að Magnús skuli hafa rekið augun í þennan gæðagrip sem ég tala helst ekki þurreygður um síðan hann gekk úr minni eigu.
26.11.2008 at 21:48 #633622Þetta gætu líka til dæmis verið hlutar af leiðinni til tunglsins, mislangir þó. Svo gæti líka verið að þetta væri spölur sem ljósið færi á einhverjum sekúndupörtum sem ég nenni ekki að reikna út.
08.11.2008 at 23:02 #632456Bara til að koma því til skila að apparatið með kólfinum gjörðinni botninum bolnum barminum kórónunni og hangir í ramböldum heitir ekki bjalla. Það heitir klukka. Svo þarf svoleiðis svosem ekki að vera í kirkju. Þannig skrifaði Dóri Guðjóns einu sinni bók. Og hún hét ekki Íslandsbjallan.
24.10.2008 at 08:31 #631542I Kor. 13.11
18.10.2008 at 22:51 #618096Hvað eru íbúðareigendur að skipta sér af því hvort að menn séu að brjótast inn hjá nágrannanum eða ekki? Ég sé ekki að það komi þeim neitt við og það myndi fjúka ægilega í mig ef að einhver kallfauskur myndi klaga mig við að fara inn um kjallaraglugga. Ekki það að ég sé nógu vitlaus til að taka áhættuna á því að láta sjá mig við svoleiðis.
05.10.2008 at 20:13 #630548Væri ekki rétt að hér kæmi fram hvaða tegund barðarnir væru og hvernig þeir litu út og hversu stórir þeir væru og og..
04.10.2008 at 23:08 #630466Í lögum nr. 50. frá 1987 segir: "22. gr. [Eigi má aka fram úr öðru ökutæki rétt áður en komið er að vegamótum eða á þeim. Heimilt er þó að aka fram úr öðru ökutæki ef skilyrði til framúraksturs eru að öðru leyti fyrir hendi og
a. ökutækin eru á akbraut með tveimur eða fleiri akreinum í akstursstefnu þeirra,
b. aka skal hægra megin fram úr vegna ökutækis sem beygt er til vinstri,
c. umferð á vegamótum er stjórnað af lögreglu eða með umferðarljósum, eða
d. umferð hefur forgang gagnvart umferð af hliðarvegi, sbr. 2. mgr. 25. gr.]1)" Í 2. málsgrein 25. greinar eru síðan talin upp þau tilvik sem veita forgang gagnvart umferð af hliðarvegi og er þar m.a. minnst á heimreiðar og í 1. málsgreininni er minnst á bið- og stöðvunarskyldu. Samkvæmt þessu dygði ekki einu sinni að hjólið væri götuskráð því ekki má beygja í veg fyrir frammúrakandi umferð, og skiptir þá ekki máli hvers konar ökutæki verið er á, ef það sem ætlunin var að fara inná hefur minni rétt en vegurinn sem ekið er eftir. Þá batnar ekki málstaðurinn ef ekki var gefið stefnumerki til vinstri. Þetta veit ég svo á eigin skinni því þetta kom fyrir spúsu mína fyrir nokkrum árum og var þó örugglega ekki um að ræða að tryggingafélagið ætlaði að svindla á henni því þá vann hún hjá því og var bara vel kynnt þó ég segi sjálfur frá.
En með því að ég er þónokkuð þrár datt mér í hug að skoða veginn og þegar í ljós kom að frammúrakandinn hafði ekið yfir óbrotna línu til að taka fram úr slapp ég við mikið argaþras og óhamingju auk peningaútláta. En jafnvel slíkt tilvik mun ekki bjarga manni sem ekur á ólöglegu ökutæki; torfæruskráð hjól átti ekki að vera þarna og þar við situr.
Hvað varðar ógötuskráðar kindur er það ekki svo að þær séu alltaf í rétti. Um þær gilda ýmsar reglur og fer eftir því hvort lausaganga búfjár er bönnuð á svæðinu, hvort um er að ræða tilkynntan rekstur eftir vegi, hvort fé er rekið snögglega inn á veg og svo framvegis. Þó hvílir alltaf sú skylda á ökumanni að aka nægilega hægt þegar ökutæki nálgast búfé á eða við veg sbr. 36 grein laganna.
17.09.2008 at 21:44 #629466Er þetta ekki orðið ágætt?
17.09.2008 at 20:08 #629460Það var að sönnu Höður sem drap Baldur en Höður var ekki einherji; Þeir Baldur voru bræður og synir Óðins.
16.09.2008 at 13:56 #629450Hvernig átti mig að gruna að hér svindluðu menn með því að gúggla?
En þeir sem ekki gúggluðu fá þá að vita að þetta veit enginn því Baldur var dauður þegar Óðinn hvíslaði og Óðinn kann að þegja yfir leyndarmáli. Ég var þó að vona að mhn vissi þetta því hann er alþekktur fræðasjór og hefði það leyst mikið vandamál í þjóðlegum fræðum. En nú verður það sennilega óleyst úr því hann var ekki viðstaddur, illu heilli.
-
AuthorReplies