Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
16.12.2009 at 20:10 #671940
Snjöll hugmynd. Styð hana.
12.12.2009 at 22:55 #671180Ég er með legusett í svona í bókahillu hjá mér og í því er allt sem við á að éta; legur, slífar, pakkdós og feiti. Keypt í Fálkanum minnir mig. Og ég hef oft skipt um svoddan í l200 og aldrei verið nein vandræði.
08.11.2009 at 09:45 #665684Sagðirðu ekki að skiptingin væri nýupptekin? Þá ferðu auðvitað á verkstæðið sem tók hana upp og lætur það laga þetta. Ný upptekin skipting á að haga sér eins og ný skipting og ef ekki hefur eitthvað mistekist. Það er mál þess sem verkið vann. Sé svo upptektarmaðurinn eitthvað tregur er fjöldi lögfræðinga þess albúinn að ná fram rétti þínum; enda geturðu auðvitað lagt fram reikninga fyrir verkinu er það ekki?
30.10.2009 at 23:37 #66418014.10.2009 at 12:15 #661958Ætli sé ekki best að henda dekkjunum. Hvað gerist ef hliðin fer úr 38" dekki á ferð? Mun bíllinn láta að stjórn? Hvert fer hann? Hversu margir slasast?
Þetta svar er ekki til að vera með leiðindi í garð fátækra námsmanna heldur til að minna á að með líf og limi er ekki skynsamlegt að fúska með spreybrúsa; jafnvel þótt á þeim standi Puncture Pilot.
26.06.2009 at 12:47 #650592Ef þú veist hvernig á að herða boltana ertu amk. með hluta af svarinu. Ef lokaherslan er að herða ákveðinn gráðufjölda er öruggt að boltarnir eru einnota. Ef ekki eru líkur til að þá megi nota aftur. En eru nútíma jappneskir bílar ekki nærri örugglega með einnota bolta? Svo vita þeir í Kistufelli þetta alveg örugglega.
06.06.2009 at 21:57 #648508Er þetta ekki alveg dæmigert fyrir stíflaða hráolíusíu?
Það sakar ekki að prófa.
31.05.2009 at 09:11 #648282Það væri örugglega spennandi að gera þessa tilraun. Láttu samt einhvern annan leggja bílinn sinn til og fylgstu með úr fjarlægð.
Hvert skyldi vera þjappþol blöndunnar sem í strokknum er? Nú myndast mikill hiti á þjappslaginu. Metan, eða Sorpugas, er nothæft í staðinn fyrir bensín. Af því leiðir að það hlýtur að vera næstum jafn eldfimt og bensín. Mundi það ekki bara byrja að brenna þegar stimpillinn væri kominn hálfa leið upp? Og afleiðingum af því þarf ekki að lýsa.
Ég held að spennan við þessa tilraun væri ekki fólgin í því að finna út vinnsluna í bílnum með búnaðinn tengdan heldur í því hvort, og þá hversu mikið, vélin brotnar þegar skrúfað væri frá gasinu.
Og þó. Kannski virkar þetta eins og própaninnspýting. En kannski ekki. Vogun vinnur, vogun tapar.
23.05.2009 at 17:10 #648094Ef þetta er maður, sem ég efast um, þá a: Hann lítur út eins og bátur, mjög sérkennilegur þó, og b: Hann er dauður.
11.05.2009 at 19:47 #647280Kannski ég dragi þetta til baka. Samt er ég ekki sannfærður og held að það sé ástæða fyrir því að tvöfaldir liðir eru yfirleitt ekki, amk. svo mér sé kunnugt, hafðir á báðum endum.
11.05.2009 at 09:59 #647274Þá er ekkert sem stýrir stefnu drifskaftsins og því afar líklegt að það fari að sveiflast að eigin geðþótta, svona eins og snúsnúband. Og þá er ég hræddur um að sumir færu að finna fyrir titringi.
26.04.2009 at 22:07 #646548Af því ég hefi smíðað fáeinar kerrur gæti ég lagt orð í belg með stærðina. Það hentar ágætlega að hafa ramma úr 50 mm vinkiljárni, eða áli ef smiðurinn er í aðstöðu til að sjóða það. Stærðina er best að hafa 1,25×2,47. Þessi stærð er valin vegna þess að þá passar standard krossviðarplata í rammann. Dýpið má ekki verða of mikið því þá hættir mönnum til að leggja miklu meira á kerruna en hún getur eða má bera. 30-40 sm er yfirdrifið. Kjósi menn að nota bílnöf og fjaðrir undir kerruna er betra að nota efnisprófílrör, etv. 60x60x5, í öxul. Það er nefnilega miklu auðveldara að festa fjaðrir á ferkantað rör en sívalt.
Kv. Þ
25.04.2009 at 08:07 #646472Heldurðu að það geti verið? Er ekki sýrustig hreinnar brennisteinssýru nálægt einum? Tæplega væru kókdrekkarar þessarar þjóðar jafn vel tenntir og raun ber vitni um marga þeirra, og sjá má í auglýsingum, ef kókið væri svona hrikalega súrt? Eða hvað?
23.04.2009 at 15:31 #646456Hvað er það þá sem étur ryðið?
17.04.2009 at 10:56 #645796Hversu stór er alternatorinn í þessum bílum? Þarf ekki að hugsa ögn um það?
14.04.2009 at 00:19 #645664Væri ekki ráð að fá Hannes Hólmstein til að tala um fyrir honum?
Er annars hugsanlegt að hjólabil hafi raskast við þetta mikla álag sem þú talar um, eitthvað bognað eða??
14.04.2009 at 00:12 #645680Nú var Jónas sálugi Hallgrímsson Norðlendingur og því ekki sérlega kunnugur málvenjum þeirra sem í nágrenni Skjaldbreiðar búa en hann hafði nafnið sem sé í karlkyni. Hitt mundi ekki fara fram hjá þeim sem kvæðið um Skjaldbreið les af athygli að Jónas beygði það Skjaldbreiður, Skjaldbreið. Af því leiðir að, eins og Aðalsteinn segir, hin föllin tvö verða Skjaldbreiði, Skjaldbreiðar.
Þeir sem fyrir sunnan búa höfðu svo nafnið flestir í kvenkyni og þá beygist það eins og Gerður. Skjaldbreiður, Skjaldbreiði, Skjaldbreiði, Skjaldbreiðar.
Sem sé kall eða kelling en ekki barn.
Nafnið þýðir svo breiður skjöldur og þarf ekki annað en líta á fjallið til að sjá hvers vegna.
Kv Þorvaldur cand. mag.
10.04.2009 at 18:18 #645062Sé olíuverkið í gallopper svipað og í l-200 er skrúfan aftan á því. Yfir henni er hlíf svona eins og flaska í laginu og stúturinn snýr beint aftur. Hlífin er plokkuð af með skrúfjárni og svo er 13 mm festiró sem þarf að losa og skrúfan er hreyfð með skrúfjárni. Skrúfaðu inn til að auka magnið og byrjaðu á kvarthring í einu, aktu hring og athugaðu breytinguna. Mundu að herða festiróna áður en prófað er. Hættu svo áður en hann fer að reykja stórkostlega eða skrúfaðu út ef svo fer. Mundu að eyðslan eykst og ending vélarinnar minnkar ef þetta er gert. Síðan er þetta auðvitað harðbannað og ekki mér að kenna þótt einhver fari að þessum leiðbeiningum.
Góða skemmtun
04.04.2009 at 16:25 #645128Það er ekki alveg óhugsandi að bensínblandan sé of feit. Finndu blöndustillingarnálina/loftskrúfuna og þegar bifreiðin er heit skaltu skrúfa nálina út, með bílinn í gangi. Skrúfaðu varlega þar til þú heyrir að dregur niður í bílnum og þá skrúfarðu agnarögn inn aftur.
28.03.2009 at 21:42 #644686Hjá Leó í Höfnunum er einhversstaðar spjallað um sabbsjálfskiptingar og ef ég man rétt lýsir einhver bilun sér svona. Þú getur leitað á síðu hans, leoemm.com, að grein sem heitir saab sjálfskipting í verkfalli.
Sérlega góða skemmtun!
-
AuthorReplies