FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Þorvaldur Sigurðsson

Þorvaldur Sigurðsson

Profile picture of Þorvaldur Sigurðsson
Virkur síðast fyrir 9 years, 5 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 373 total)
← 1 … 4 5 6 … 19 →
  • Author
    Replies
  • 12.04.2011 at 10:57 #726815
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    „ég vissi að menn gætu verið ósamála þarna fyrir norðan en svona mikið að á þarf að heita 4 nöfnum eða meir“
    Já, það er margt skrýtið í kýrhausnum. Í Reykjavík þekki ég eina götu sem vestast heitir Tryggvagata, svo Hverfisgata, verður síðan að Laugavegi og endar svo sem Suðurlandsbraut.
    „Þar sem menn hafa búið við Konuríki og hafa verið eins og Rakka kvenna, ef svo er þá skilur maður þetta nafna rugl fyrir norðan“ Hvað er þá með karlana í Mekka karlmennskunnar þar sem búa bæði Þykki og Bubbi, að ógleymdum MHN? (grín)





    12.04.2011 at 08:37 #726811
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Nú skaltu bara trúa mér. Þessi á heitir fjórum nöfnum. Hún kemur upp í Svartárbotnum langt frammi á heiðum upp af Skagafirði. Þaðan heitir hún Svartá út fyrir Vindheimamela, næstum út að Varmahlíð, en þar er bærinn Húsey. Skammt framan (innan) við Húsey skiptir hún um nafn og heitir Húseyjarkvísl. Sem slík rennur hún, algerlega fossalaus, út undir Glaumbæ. Þar skiptir enn um og hún heitir Glaumbæjarkvísl. Yzti hlutinn, áður en hún rennur í Héraðsvötn, heitir síðan Dæld. Reyndar kalla Skagfirðingar hana svona í daglegu tali Húseyjarkvísl frá Húsey og norður úr en það breytir því ekki að formlega ber hún þessi fjögur nöfn. Hitt er fjarstæða að Reykjafoss sé í Húseyjarkvísl sem rennur afar lygn um sléttlendi; ætli fallið sé ekki um það bil fimm metrar á þessum ca. 13 km og afar aflíðandi.
    Þetta skaltu allt hafa fyrir satt og leiðrétta hverja þá bók og netsíðu sem öðru heldur fram. Sérstaklega skaltu krota í þá bók sem segir að Svartá renni í sjóinn því það gerir hún alls ekki; eins og margsinnis hefur verið tíundað rennur áin, undir öðru nafni þó, í Héraðsvötn.
    Lifðu svo heill.





    11.04.2011 at 22:57 #726807
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Jæja!
    Þessi kort breyta því samt ekki að Svartá heitir Svartá talsvert út fyrir Vindheimamela.
    Hins vegar sannar þessi umræða líka að netið er fullt af bulli og ber að taka varlega. Amk er ég hræddur um að fornvinir mínir á Reykjum og Fitjum yrðu eitthvað skrýtnir í framan ef þeir væru fræddir á því að áin sem þeir hafa fyrir augunum daglega héti Húseyjarkvísl.
    Nú ættir þú, ágæti Magnús, að taka þér Byggðasögu Skagafjarðar í hönd og fræðast um þetta í eitt skipti fyrir öll.
    Netið má vera gott. Prentaðar bækur eru þó betri og kannski er vitneskja heimamanna býsna góð líka.





    11.04.2011 at 22:13 #726803
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Efri myndin er af Ullarfossi í Svartá í Bárðardal og sést þar glögglega stöðvarhús virkjunar þeirra Bárðdæla. Tærnar á myndinni þekki ég ekki. Og ætli hin sýni ekki veiðimann nokkurn sem keypt hefur veiðileyfi dýrum dómum í Gullhyl og er skammt neðan við margnefndan Reykjafoss. Til vinstri sést svo inn að laxastiganum sem Indriði heitinn pabbi Arnalds byggði með ærnum tilkostnaði og skilaði svosem einum laxi upp fyrir fossinn. Eru því uppi ráðagerðir um að breyta stiganum í virkjun.
    Svo er annað. „….heitir eftir það Húseyjarkvísl. Hún fellur neðan við Varmahlíð og til Héraðsvatna skammt fyrir innan Glaumbæ.“
    Þetta er ekki rétt heldur. Húseyjarkvísl fellur til Héraðsvatna fyrir [b:3pc9kqh2]utan[/b:3pc9kqh2]Glaumbæ og munar það nokkrum kílómetrum. Og það þarf ekkert að deila um þetta við mig því það vill svo til að hún fellur í Héraðsvötnin rétt framan við suðurlandamæri búgarðsins þar sem ég ólst upp og átti ég ekki fá spor þar um í mínu ungdæmi í misljósþolnum erindagerðum. Sýnir þetta dæmi að wikipediu er ekki sérlega vel treystandi.





    11.04.2011 at 21:27 #726797
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Magnús. Ég er fæddur og uppalinn í Skagafirði. Ég byggði brú á Svartá við Vindheimamela. Ég byggði brú á Svartá hjá Gilhaga. Ég [b:21bnhymd]veit[/b:21bnhymd] að fossinn sem þú sýndir er í Svartá í Skagafirði og heitir Reykjafoss. Maðurinn sem seldi mér íbúðina sem ég bý í átti fossinn í sínu ungdæmi.
    Sennilega er Ullarfoss sem þú komst með í Svartá sem rennur í Skjálfandafljót í Bárðardal. Ég þekki það þó ekki því ég var bara í brúarvinnu í vestanverðum dalnum.
    En Reykjafoss veit ég hvar er.





    11.04.2011 at 11:47 #726793
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    „Þessi foss er í áni Húseyjarkvísl sem rennur í Skagafirði“
    Þetta er ekki rétt. Í Húseyjarkvísl er enginn foss. Þessi foss heitir Reykjafoss og er í [b:35n48xy9]Svartá[/b:35n48xy9] í Skagafirði.





    08.04.2011 at 14:11 #726757
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Ertu ekki örugglega að grínast? Datt þér í hug í alvöru að sjóða tennurnar í?





    07.04.2011 at 11:35 #726647
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Hótel Örk er í Hveragerði, en Fossá er í Færeyjum.





    30.03.2011 at 15:53 #724174
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    „pps. Í ljósi þess hve FÍB var duglegt við að skjóta þetta niður er fyndið að lesa þessa frétt hér http://fib.is/?FID=2718 …Rangur“

    Hvers vegna er það fyndið? Þetta er algjörlega raunhæft dæmi. Í staðinn fyrir að eyða stöðuorkunni, sem bíllinn hefur öðlast með því að klifra upp brekku, með hemlunum er loftpressa látin koma í stað hamlara. Loftið sem hún þjappar á kút á niðurleið má svo nota til að starta vélinni, þannig er stórum skipsvélum startað, eða til að létta undir með vélinni á leið upp næstu brekku. Þetta virkar. Í Frakklandi gerðu menn tilraun með að nota stórt svinghjól sem náði snúningi á leið niður en skilaði orkunni á leið upp. Það virkar líka.





    22.03.2011 at 21:49 #724472
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Mikið hlakka ég til þegar enginn þarf að taka ábyrgð á sjálfum sér og allt sem fyrir kemur er öðrum að kenna. Ættum við ekki bara að taka upp bandaríska kerfið, þar sem ekki má einu sinni snýta sér á almannafæri því þá gæti einhver kvefazt og kært viðkomandi? Og þá er vissara að hafa vænar tryggingar.





    20.03.2011 at 12:30 #724114
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    http://www.fuelsaving.info/hydrogen.htm





    13.03.2011 at 08:53 #723080
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Hefurðu nokkuð skoðað veðurspána?
    Suðurland
    Vaxandi suðvestanátt, 10-15 síðdegis en 13-20 seint íkvöld. Dálítil él en slydda síðdegis. Talsverð rigning í nótt og á morgun. Frost 0 til 10 stig, en hlánar síðdegis. Hiti 2 til 7 stig í nótt og á morgun.
    Spá gerð: 13.03.2011 06:24. Gildir til: 14.03.2011 18:00.





    29.11.2010 at 16:16 #711998
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    En ætlarðu að aka bílnum með bæði hedd og pakkningu farna? Heldurðu ekki að þú þurfir að hafa með þér stóran brúsa af vatni?





    21.11.2010 at 19:06 #711096
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Og sparaðu ekki ryðolíu eða eitthvað þessháttar.





    18.07.2010 at 08:41 #698490
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Þetta er Jules Rimet styttan sem brúkuð var til að skeinkja þeim sem knástir voru í skjóðueltingaleik í veröldinni á tímabilinu 1930-1970. Þá var hún tekin úr umferð en dusilmenni nokkur tóku hana ófrjálsri hendi þann 19. desember 1983. Síðan hefur ekkert til hennar spurst.





    17.07.2010 at 17:44 #698482
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Asskoti hefur tognað úr Grímsey í seinni tíð! En þótt gott sé að koma þar er þetta ekki hún! Hinsvegar minnir þetta óneitanlega á Málmey á Skagafirði.





    27.06.2010 at 13:20 #696780
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    „Það er því næsta víst að fálkar hafa verið notaðir til veiða af Valhúsahæð.“
    Þetta er misskilningur. Það er staðreynd að af Valhúsahæð hefur aldrei verið stunduð veiði með fálkum og mjög ólíklegt að þar hafi verið veiddir fálkar. Þeir fálkar sem veiddir voru á Íslandi voru geymdir í Valhúsunum þar til skipsferð féll til Kaupmannahafnar og enginn fékk að nota þá til veiða. Fálkar voru nefnilega konungsgersemar og bannað með lögum að sauðsvartur almúgi notaði þá. Kóngurinn hinsvegar bæði brúkaði þá til sports og gaf þá öðrum stórhöfðingjum víðsvegar um álfuna og varð þetta með öðru til þess að á fyrri öldum var vor allranáðugasti arfaherra býsna voldugur, enda þóttu Íslandsfálkar öðrum betri og glæsilegri.
    En aumir undirsátar lengst norður í höfum voru ekki af þeim status að þeim væri slíkt sport heimilt.





    26.06.2010 at 21:33 #696776
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    passíusálmur nr. 51. En annars er næsta víst að á þessari hæð hefur aldrei verið stunduð fálkaveiði.





    13.06.2010 at 22:42 #696176
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Nú!! Vildirðu ekki fá útskýringu á fánunum?
    Jæja: Álandseyjar, Færeyjar, Danmörk, Finnland, Ísland, Orkneyjar, Norge, Sverige, Grænland, England, Bretland….
    Libbðu heill og enn má minna á hið fornkveðna að vilji menn fá ákveðið svar verður spurningin að vera í samræmi við það, sbr manninn sem spurði: Hvað er það á bíl sem endist betur ef það fær gott viðhald? Í ljós kom að hann vildi fá svarið [b:1fn08bm4]rúðuþurrkur[/b:1fn08bm4]. En hvað er það á bíl annars sem ekki endist betur með viðhaldi? Í því tilfelli hefði sennilega verið heppilegt að spyrja talsvert nákvæmara.





    13.06.2010 at 17:50 #696168
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    „Svo vill ég fá útskiringu á einnum fánna sem er þarna hver er hann“
    Eftir því sem ég kemst næst er Magnús að fara þess á leit að einn fáninn þarna verði útskýrður. Hann getur ekki um það hvern þeirra hann vill fá útskýrðan og þaðan af síður hvernig hægt er að útskýra fána. Ég veit þó sitt af hverju um einn fánanna. Íslenski fáninn er frá 1915. Litirnir í honum eiga að tákna haf, eld og ís. Þeir eru heiðblár, hárauður og hvítur. Þessi er þjóðfáni. Svo er til ríkisfáni og forsetafáni. Stangarreitirnir eru 1/3 af lengd stærri reitanna. Og úr því fram eru dregnir krossfánar vantar nokkra í þennan hóp. Þannig er ungmennafélagsfáninn ekki þarna, ekki skoski fáninn, ekki gríski konungsfáninn. Kannski vantar fleiri. En vafalaust upplýsir Magnús þetta alltsaman. Við hlökkum til!!!





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 373 total)
← 1 … 4 5 6 … 19 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.