Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
23.04.2004 at 21:39 #499935
Sælir!
Þegar ég var að spekúlera í að kaupa sjúkrapúða í bílinn minn fór ég á bensínstöð og fékk að skoða einn. Mér þótti hann frekar lítilfjörlegur svo að ég spurði hvort hann væri fullnægjandi fyrir breyttan bíl, en bensíntittir vissu svosem ekkert hvað þyrfti að vera í honum svo að við höfðum samband við Frumherja og þeir sendu fax af reglugerðinni um hæl. Í ljós kom að púðarnir voru langt frá því að fullnægja skilyrðum hennar svo að ég fór með faxið í næsta apótek og þar settu stúlkurnar saman kassa handa mér sem kostaði, til þess að gera, sáralítið meira en púðinn á bensínstöðinni. Og upplýsingarnar eru semsé allar til, það er bara að fara á réttan stað!
Kveðja Þ
21.04.2004 at 22:23 #499690Já, svo er nú Guði fyrir þakkandi að á einkareknum fjölmiðlum er aldrei orði hallað, ævinlega tekið hlutlægt á málum og aldrei reynt að horfa framhjá því sem kemur eigendum og auglýsendum illa. Þvílíkt böl að þurfa að búa við ríkisfjölmiðil sem á, skv. lögum, að láta allar hliðar máls koma fram og bregst því við þegar allskonar sjónarmiðamenn telja á sig hallað og getur jafnvel haft bolmagn til að horfa framhjá hreinum hagsmunum stórra auglýsenda og kostenda sem af fádæma óeigingirni og mannræktarþrá veita okkur frelsi til að velja milli 27 tegunda af morgunkorni og 16 stærða af molasykri. Og vér Íslendingar fáum vonandi í framtíðinni að njóta þeirrar sælu að Baugstíðindi, sem einn frammámaður stærsta stjórnmálaflokksins kallar svo af sinni alkunnu smekkvísi, færi okkur sannleikann. Og fegurðin mun ríkja ein!
Ég hlakka til!
Þ
21.04.2004 at 12:10 #499537Sælir!
Í þessum pakka er ekkert nema græjur til að tengja saman tvo patrol millikassa og hvergi minnst á að kassinn sjálfur fylgi með. Reyndar er ekki heldur minnst á skiptistöng heldur bara ?brakket? fyrir skiptistöng. Hinsvegar bjóða þeir líka sinn eigin millikassa en ekki er minnst á verð á honum á síðunni sem tengillinn vísar á. En ef þið eigið auka kassa þá virkar þetta vafalaust.
Heilir; Þ
16.04.2004 at 22:49 #499082Nei!
þ
14.04.2004 at 22:02 #498751Sæll! Þú skalt prófa að fara á google.com og slá inn ?truck cap?. Þá koma ca milljón síður -smá ýkjur- um pallhús. Ef þú hinsvegar vilt skoða pallhús með eldhúsi, klósetti og hjónarúmi þá kemur ?camper? til greina. Og úrvalið er gríðarlegt.
12.04.2004 at 00:19 #497955Sæll!
Til eru nokkrir L200 bílar á 38" dekkum en sjálfur ek ég á einum 36". Í þeim er sama drif og kram og í pajero sport þannig að ekkert ætti að vera því til fyrirstöðu að breyta sportinum. Minn bíll er með lækkuð hlutföll, þeir hjá bílabúð Benna selja þau, og arb læsingu að aftan sömuleiðis frá Benna. Að framan er til íslensk læsing, algrip, og hillir undir læsingu frá arb. Það sem mér dettur í hug að vanti í sportinn eru kantar en það getur ekki verið stórt tæknilegt vandamál. En annars vita Heklumenn ugglaust allt um þessi mál, eða geta upplýst hverjir búa yfir þekkingunni.
Libbðu heill:
Þ
02.04.2004 at 19:22 #494956Sælir!
Til að gefa eðlisfræðileg komment á þetta apparat þá er auðvitað alveg rétt að þegar vatn sýður eykur það rúmmál sitt ca 1600 sinnum. Orkan til þess að sjóða þetta tiltekna vatn fæst hinsvegar úr bensíninu sem brennt er í mótornum og nýtist það þá ekki á meðan til þess að snúa honum. Og af því að það er afar einfalt eðlisfræðilegt lögmál að ekkert gerist með 100% nýtni, alveg sama hvað þeir segja sem eru rétt að verða búnir að finna upp eilífðarvél, er ljóst að orkutapið í þessu er meira en gróðinn. Framleiðendur sambærilegra verkfæra segja líka að sogið í vatnsglasinu verði svo mikið að hluti þess sundrist í súrefni og vetni sem síðan brenni í vélinni. Til þessa efnahvarfa þarf gífurlega orku og þar gildir það sama, orkan til þessa fæst úr bensíninu og tapið er meira en gróðinn eins og sést á því að það borgar sig alls ekki að nota olíu til að kljúfa vatn og fá vetni til að knýja bíla. Þessi vatnsspraututækni var hinsvegar notuð á lokadögum stórra stimpilmótora í flugvélum, þegar þeir voru komnir í kannski 28 strokka. Þegar komið var í mikla hæð, og þá erum við að tala um 20000 fet, og búið að stilla aflið á jafnt álag sem ætlunin að halda næstu klukkutímana var blandan þynnt þar til naumast týrði. Þá varð bruninn hægari og ýtti því lengur á stimpilkollinn og þar með náðist meira tog úr mótornum og hægt að hafa skrúfuskurðinn grófari. En af því bruninn stóð lengur yfir hitnaði allt heila móverkið þangað til það bráðnaði. Til að koma í veg fyrir það var sprautað vatni inn til að kæla brunann og koma í veg fyrir úrbræðslu. -Þessir mótorar voru svo keyrðir alveg á tampi alla leiðina og mér skilst að það hafi verið jafnvel algengara að DC-7 flugvél næði ekki yfir hafið með alla mótorana gangandi.- En um leið og farið var að keyra með breytilegu álagi var skrúfað fyrir vatnið. Þetta gat sem sé virkað í flugvél við gríðarlega sérstakar aðstæður sem bílar geta ekki komist í en í bílum er þetta í besta falli skaðlaust.
Hér með vona ég að það sjáist að ég er ekki að fimbulfamba um eitthvað sem ég hef ekki vit á en auðvitað get ég ekki komið í veg fyrir að aðrir trúi að eitthvað fáist fyrir ekki neitt.
Og megi svo sumarið verða snjólétt!
Þ
02.04.2004 at 19:22 #502271Sælir!

01.04.2004 at 20:10 #495187Sælir!
Það mætti líka skoða svissinn. Þar getur verið sambandsleysi og sömuleiðis þar sem stýristraumurinn kemur inn á startarann. Ekki er óþekkt á lödum að traumskórinn þar sé losaralegur og gefi bara straum þegar honum sýnist. Prófaðu að taka vírinn af og kanna hvort kemur straumur þegar lyklinum er snúið í startstöðu.
Og góða skemmtun
Þ
01.04.2004 at 20:10 #502508Sælir!

30.03.2004 at 14:05 #494929Sælir!
Þegar ég sá skilaboðin hérna að ofan fór ég á google og spurði þá um aquatune. Þar komu upp ýmsir möguleikar og sérstaklega fannst mér athygliverð grein sem var þriðja í röðinni. En, lesi menn ekki beinar auglýsingar um þessa græju, kemur fram hjá flestum sem þarna fjalla um mál að þetta geri sama gagn og segularmband, voltakross og kínalífselixír.
En eigi menn meiri peninga en þeir þurfa er þetta sjálfsagt ágæt leið til að koma þeim í lóg vilji þeir ekki taka hval í fóstur.
Ég ætla bara að kaupa eitthvað annað fyrir mína aura og get hellt vatni niður um blöndunginn hjá hverjum sem er, alveg gratís.
Bless Þ
30.03.2004 at 14:05 #502244Sælir!

29.03.2004 at 10:43 #501916Sæll!
Kannski er þvingun í læsingunni þegar þú ert búinn að nota hana. Þá væri reynandi að beygja í báðar áttir á víxl þegar rofinn hefur verið settur í ?af? stöðu ef aðstæður leyfa. Ef það virkar ekki er sennilega ekki annað í stöðunni en fara í drullugallann, kannski er skítur í henni eða hugsanlega svarf, hverju Guð forði. Vinylvettlingar eru staðalbúnaður í svona aðgerð. Góða skemmtun
Þ
29.03.2004 at 10:43 #494610Sæll!

26.03.2004 at 12:35 #500689Sælir!
Ég á dálítið bágt með að skilja að hæklón ýri eldsneytinu í dísilvél. Það sem það á að gera er að láta loftið sem kemur inn á soggreinina snúast og þar með ætti eldsneytið auðvitað að blandast því betur. En, olían blandast ekki þar eins og alkunna er heldur þegar skrúfloftið hefur verið dregið inn í strokkinn og þjappað þar um 1800%. Þá, og ekki fyrr, kemur olían saman við það. Og á sama andartaki byrjar blandan að brenna svo ekki gefst neinn óratími til blöndunar og það mætti segja mér líka að snúningur á lofti sem hefur þjappast svona væri svona dálítið farinn að hægja á sér. Staðreyndin er nefnilega sú að enginn sem lýsir ágæti græjunnar hefur sýnt fram á raunverulega rannsókn á virkni hennar. Þótt mönnum finnist vera munur verður að bera saman nákvæmlega sambærilegqar aðstæður, s.s. bíl, veður, veg, dekk, aksturslag o.s.frv. og það sem skiptir kannski mestu máli, ökumaðurinn má ekki vita hvort græjan er í bílnum eða ekki. Farið þið nú sem hafið sett þetta í bílana ykkar til piltanna í Borgarholtsskóla, fáið að setja bílinn í mælibekkinn þeirra og prófið hann með og án hæklónsins. Hver veit, kannski verðið þið voðalega glaðir!
En ég spyr alltaf: Hvers vegna er svona dót, -sem kostar örugglega ekki meira en 500 kall að smíða, það eru nefnilega til vélar sem það gera á svona 5 sekúndum stykkið-, ekki staðalbúnaður í heimi sem hefur sívaxandi áhyggjur af olíuskorti? Og þá er ekki mjög raunhæft svar að tala um samsæri olíuframleiðenda, olían klárast í tíð barnanna okkar. Og þá mun enginn geta búið til 49" dekk þegar allt hráefnið verður upp urið.
Góða skemmtun
Þ
26.03.2004 at 12:35 #493414Sælir!

19.03.2004 at 15:58 #499329Sæll
Í Kebblavík er, eða var til skamms tíma amk., fyrirtæki sem heitir Rhinoklæðning eða eitthvað svoleiðis.
19.03.2004 at 15:58 #492069Sæll
Í Kebblavík er, eða var til skamms tíma amk., fyrirtæki sem heitir Rhinoklæðning eða eitthvað svoleiðis.
18.03.2004 at 16:20 #491380Sælir!
Áður en menn fara að hrópa feikna húrra yfir gróðanum á útsölunni er rétt að skoða þetta dæmi betur. 2595 dalir eru fyrir algerlega berrassaða vél, án túrbínu og ekki einu sinni olíuverk. Ætli menn að fá vél sem fer í gang verður að snara út 3950 dölum og þá lítur þetta kannski öðruvísi út. En kannski er það gott verð?
Þ
18.03.2004 at 16:20 #498149Sælir!