FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Þorvaldur Sigurðsson

Þorvaldur Sigurðsson

Profile picture of Þorvaldur Sigurðsson
Virkur síðast fyrir 9 years, 6 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 281 through 300 (of 373 total)
← 1 … 14 15 16 … 19 →
  • Author
    Replies
  • 04.02.2005 at 20:27 #515598
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Sæll Theódór!
    Mig langar í 4 stk radial mudder.
    Með vinsemd og virðingu;
    Þorvaldur Sigurðsson 8916968





    03.02.2005 at 10:35 #514880
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Hvað á að bíða lengi eftir að einhver annar taki þetta að sér. Þið getið sent póst endalaust og ekkert mun gerast þangað til einhver lítil gul hæna (án þess að ég vilji móðga neinn) segir: ég skal sá hveitinu. Þangað til gerist ekkert; steiktar gæsir fljúga ekki upp í jeppamenn fremur en aðra!
    Sem sé; hver ykkar ætlar að taka af skarið?
    Þ





    28.01.2005 at 18:12 #514938
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Sæll!
    Að sönnu er að mörgu leyti gott að hafa stafræna mæla. Þeim fylgir þó verulegur galli þegar um er að ræða aðvörunartól; það þarf nefnilega að túlka upplýsingarnar í huganum. Mælirinn lítur nánast eins út þegar hann sýnir 151 gráðu og þegar hann sýnir 197. Sé maður hinsvegar með hefðbundinn mæli sér maður og skynjar strax þegar nálin er komin upp undir rauða strikið. Það er engin tilviljun, eða skortur á framsækni, að olíuþrýstingsmælar, snúningshraðamælar eða bara hraðamælar og armbandsúr eru gamaldags með vísi, heldur hitt að þá skynjar maður hættuna fyrr. Hinsvegar hef ég ekki hundsvit á sjálfskiptingum, en myndi aldrei viðurkenna það. Og úr því að þú fórst að horfa á leikinn aftur er það sennilega þér að kenna að Rússar unnu. Vertu svo vænn að fara á fjöll á morgun (eða er ekki leikur þá?)
    Góða ferð
    Þ





    25.01.2005 at 18:11 #514366
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Ævinlega er nú gaman að taka þátt í skynsamlegum skoðanaskiptum. Og úr því að maður frá hiclone er nú farinn að leggja orð í belg er ýmislegt sem mig langar til að vita.
    ?Túrbínan kemur fyrr inn vegna þess að í stað ca. 90° skerhorns loftsins undir beinu loftflæði, breytist beint flæði í hvirlfæði [svo] með önnur skerhorn, túrbínan þarf minna afgas til að snúast og kemur þess vegna fyrr inn.? Semsagt ef vökvi (og loft er vökvi)kemur inn á dælu í sömu stefnu og hann fer út þá vinnur dælan léttar, eða hvað? Ætli túrbínuhönnuðir viti ekki af þessu því auðvelt virðist að breyta loftstút túrbínunnar? En þarf túrbínan ekki sjálf að eyða orku í að snúa upp á vökvann (loftið)? Er þá ekki skynsamlegra að sleppa þessum millilið því í þeim öllum myndast varmi og þar með orkutap?
    ?Einnig eykst fyllingargráða túrbínunnar í flestum tilfellum vegna minni höggmótstöðu við loftið.? Þú verður að fyrirgefa en þetta skil ég alls ekki. Hvað er fyllingargráða? Myndast högg þegar blöð túrbínunnar berja loftið? Eru þau högg mælanleg í NM eða pundfetum? Hvað ætli þau valdi mörgum prósentum í orkutapi?

    ?…og í stuttu máli þá hef ég lent í bensínvél sem eyddi meiru eftir Hiclone, en flestar bensínvélar taka nokkuð vel við Hiclone.

    Væri það ekki að æra óstöðugan ef ég kæmi með allar þær prófanir?? Væri ekki rétt að birta allan sannleikann en ekki þann hluta hans sem hentar hverju sinni?

    ?Hiclone er upphaflega hannað til að minnka útblástursmengun frá bílum. Ástralir tóku mun seinna við sér varðandi mengunarkröfur en t.d. Evrópubúar. Þegar juku kröfurnar á sínum tíma stóðu þeir uppi með stóran hluta bílaflotans sem ekki stóðust mengunarprófanir, td. Patrol 4,2 lítra.? Ber að skilja þetta sem játningu um að nýlega hannaðar vélar hafi ekkert með hiclone að gera?
    ?Við það að hvirfla loftinu inn á strokkinn bætist loft/eldsneytisblöndunin,…? Hvenær blandast eldsneytið og loftið? Í bensínbílum í blöndungi eða soggreininni væntanlega. Hefur bensíngjafarspjaldið sem stendur mismunandi mikið langsum eftir straumstefnnu loftsins engin áhrif til að stöðva snúning loftsins? Í nýmóðins ?lean burn? bensínvélum er gert ráð fyrir að loft/bensínblandan fari ekki út í hvern krók og kima brunahólfsins og er því dregin inn í það undir sérstöku horni og lögun stimpilkollsins látin móta brunann. Sé nú svo að enn sé snúningur myndaður af hiclone á blöndunni þegar kemur að innsogsventlinum mun þessi aukasnúningur ekki trufla brunann sem vélin er hönnuð fyrir? Er líklegt að það auki afköst vélarinnar?
    Í dísilvélum er loftið dregið inn í brunahólfið og sé hiclone í rásinni þá væntanlega með snúningi. Síðan er því þjappað saman þetta frá 18 falt og upp í 22 falt. Er ekki líklegt að svona samanþjöppun dragi verulega úr snúningnum? Síðan rétt í þann mund að þjappslagi lýkur er eldsneytinu sprautað inn í strokkinn og kviknar í á augabragði. Ætli sé mikill tími til að snúningur bæti blöndunina?
    ?Hér eru linkar að nokkrum prófunum og umsögnum.
    Prófanirnar eru í öllum tilfellum gerðar af hlutlausum aðilum að viðstöddum aðilum frá Hiclone ltd og viðkomandi viðskiptavini.? En; prófanirnar eru gerðar að beiðni hiclone og birtar af söluaðilum. Við fáum aldrei að vita neitt um aðrar hugsanlegar niðurstöður. Það er almennt viðurkennt þegar kennd eru vísindaleg vinnubrögð að aðrar niðurstöður rannsókna en þær sem unnar og birtar eru af sjálfstæðum aðilum sem engin fjárhagsleg tengsl hafa við framleiðendur og þeir aðilar ráða sjálfir tilhögun rannsóknanna ber ekki að nota í ritum sem tekið er mark á í vísindaheiminum.
    Sem sagt; ég held áfram að vera efasemdamaður á allt sem gerir kraftaverk og skapar orku úr engu, jafnvel þótt um sé að ræða monní bakk garantí.
    En hver lifir sæll í sinni trú
    Þ





    22.01.2005 at 20:32 #514332
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Úr því skorað var á okkur efasemdamenn að kíkja á google þá gerði ég það. Að sönnu tek ég gjarnan því sem sölumenn með varúð, og þeir eru allmargir á þeim þráðum sem birtast, segja um ágæti sinnar vöru, þ.á.m. þeim sem ehardar vísar til. En úr því hann bendir á þráð fra suðurhvelinu þá væri ekki úr vegi að skoða þennan hérna: http://www.exploroz.com/Forum/Archive/2004_6/17541.asp
    Lifið enn heilir
    Þ





    22.01.2005 at 19:30 #514328
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Kannski er þetta allt gott og blessað með niðurstöðurnar frá ?Tækniþjónustu bifreiða í Hafnarfirði?. En óneitanlega væri blaðið dáltið meira traustvekjandi ef það væri ekki svona kruklað. Og síðan fylgir engin greinargerð frá ?Tækniþjónustu bifreiða í Hafnarfirði? þannig að hvergi er getið um hvað gert var. Hvað snertir 1080 m spotta, sem skv. Val var reyndar ekinn 9 sinnum sem gerir þá tæpa tíu km, og ehardar gerir lítið úr, enda þurfi miklu lengri vegalengd til að áhrifin komi fram, hvað má þá segja um mælingu í afl- og togprófunartækjum? Ber að skilja það svo að bíllinn sé svo klukkustundum eða dögum skiptir í bekknum? Og að hiklone þurfi að þroskast til að þau sönnu áhrif komi fram? Einhvern veginn finnst mér þetta ekki sannfærandi rök og hallast að því að Valur Sveinbjörnsson hafi einmitt hitt naglann á höfuðið. Og af því að ég hef talsverða reynslu af vísindalegum rannsóknum og þekkingu á því hvernig þær ber að framkvæma, þótt ég sé bara bókmenntafræðingur, þá sé ég ekki betur en Valur sé hvergi á villigötum með aðferðir sínar. Vísindalegar rannsóknaraðferðir snúast nefnilega ekki um það hvernig menn upplifa hlutina heldur um beinharðar staðreyndir byggðar á mælingum.
    Lifið svo heilir, hver í sinni trú!
    Þ





    19.01.2005 at 10:09 #513804
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Sæll!
    Áður en þú gleypir það sem herrarnir hér á undan hafa sagt skaltu skoða það sem ég stal af vef Háskólans.
    Spurningin í heild var sem hér segir:
    ?Þorsteinn Vilhjálmsson prófessor svaraði um daginn spurningu minni um 2 jeppadekk. Samkvæmt svarinu breytist ummál dekkjanna, getur það verið?
    Spyrjandi vísar hér í svar við spurningunni Ef mismikið af lofti er í tveimur jafnstórum jeppadekkjum fara þau þá sömu vegalengd með jafnmörgum snúningum? Í svarinu er (vísvitandi!) ekki tekið svo til orða að ummál dekkjanna breytist, heldur er eingöngu talað um vegalengdina sem hjólið færist í einni umferð enda er það hún sem skiptir mestu gagnvart spurningunni sem þarna var til umræðu. Þó er sjálfsagt ekki langsótt að túlka svarið eins og spyrjandi gerir. En lykilatriðið í svarinu er þessi setning:
    Vegalengdin sem dekkið fer í einum snúningi ræðst af virkum geisla eða radía dekksins, það er að segja fjarlægðinni frá miðju öxuls eða snúningsáss niður á veginn.
    Þegar lítill þrýstingur er í dekkinu er þessi virki geisli lítill eins og flestir vita; dekkið leggst þá saman að hluta og felgan sígur nær veginum. Þegar þrýstingur er aukinn með því að dæla lofti í dekkið vex þessi virki geisli. Ef við pumpum þar til dekkið verður mjög hart snertir það undirlagið nánast aðeins í einum punkti enda er þá komin á það bunga eftir miðjum slitfletinum allan hringinn. Þegar það veltur snertir það aðeins veginn á mjórri ræmu eftir miðjum fletinum.

    Dekkjaviðgerðarmenn munu kannast við að dekk sem eru yfirleitt með miklum þrýstingi slitna einmitt mest á svona rönd. Dekk sem eru oftast með litlum þrýstingi slitna hins vegar mest á jöðrum slitflatarins.

    Spyrjandi getur sannfært sig um ummálsbreytingu dekks með því að taka það undan bíl, mæla ummálið með hentugu málbandi og dæla síðan lofti í dekkið þar til það er orðið vel hart og fyrrnefnd bunga hefur myndast. Mæling á ummáli sýnir þá greinilega aukningu sem getur numið nokkrum sentímetrum.

    Hins vegar er vert að undirstrika enn og aftur að þessi ummálsbreyting á lausu dekki er ekki aðalatriði máls heldur breytingin á geislanum sem áður var nefndur og þar af leiðandi á færslunni sem verður í hverri umferð hjólsins. Þessi geisli er mældur þar sem raunverulegt hjól situr undir raunverulegum bíl og hann ræður raunverulegri færslu. Hins vegar er ástæðulaust að tengja hann við eitthvert tiltekið ummál enda er þetta raunverulega dekk undir bílnum yfirleitt talsvert aflagað eins og við þekkjum.?

    Svo fjölmörg voru þessi orð og ég á fremur bágt með að trúa því að menn sem hafa einhverntímann hleypt úr finni ekki að bíllinn fer hægar þegar þvermál, eða öllu heldur radíus (geisli) hjólsins minnkar alveg burtséð frá beltisfræðum. Í sambandi við þau má þó geta þess að þeir sem séð hafa jarðýtur vita að því minna sem drifhjólið er í þvermál því hægar fer ýtan burtséð frá lengd beltisins. Í urhleyptu dekki fer baninn nefnilega aldrei réttan feril heldur í allskonar fellingum sem bæta fyrir þvermálsminnkunina.
    Lifðu svo heill!
    Þ





    16.01.2005 at 23:07 #513694
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Sæll!
    Í mínu ungdæmi var talsvert gert af þessu og ég minnist t.d. þess að bifreiðasmiðja JRJ í Varmahlíð þótti afkastamikil og vandvirk. Þar var hilux eiginlega breytt í 4runner löngu áður en þeir fóru að flytjast. Sömuleiðis var til að þeir breyttu 2ja hurða hilux í fjögurra áður en áhafnarklefabílar urðu veruleiki hér á klakanum. Þú ættir að slá á þráðinn þarna norður og kanna málin ef þú hefur áhuga á þessu á annað borð.
    Og libbðu heill
    Þ





    16.01.2005 at 12:24 #506726
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    ?Verðið er ca. fjórfalt það sem fæst fyrir dótið sem var tekið úr, ef það selst.?

    Og nú eru auðvitað næstum allir með krónutöluna á hreinu, er það ekki?
    Ég held að Óli Hall eigi sér vænlega framtíð sem pólitíkus!
    En ég var reyndar að verða dáltið forvitinn en verð að viðurkenna að vegna meðfædds gáfnaskorts neyðist ég þá til að biðja einhvern annan að útskýra fyrir mér hvað hann átti við.
    Kv Þ





    08.01.2005 at 17:00 #512934
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Gulur!
    Mér sýndist égsjá Heiðar á brautinni svona um hálffjögurleytið og fór mikinn. Því geri ég ráð fyrir að hann hafi komist heilu og höldnu heim og kannski setur hann d 60 undir að framan eftir þessa reynslu.
    Þ





    23.12.2004 at 17:41 #511442
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Vegna þess sem síðasti rithöfundurinn sagði þá bendi ég á nauðsyn þess að lesa það sem ætlunin er að fjalla um. Ehardar er augljóslega að fjalla um olíukyntar miðstöðvar sem, í minni sveit allavega, hita kælivatn vélarinnar og þar með hitnar vélin. Loftkældar vélar væri líka hægt að hita með slíkri miðstöð en þá væri notaður blásari til að miðla varmanum til vélarinnar. Og ég er viss um að ehardar notar bláa mjólk út á maísflögurnar enda vísindalega sannað að hæfileg fita í mat einangrar tauga og hugsanabrautirnar þannig að ekki slær út og hugsun verður skýr og skynsamleg. Megi sem flestir drekka slíka mjólk.
    En nú er skatan komin í pottinn og hamsatólg eykur líka á skýrleikann. Verði okkur öllum að góðu!
    Þ





    23.12.2004 at 12:20 #511434
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Gleymdi í gleði minni að setja síðuna inn! En hér er hún!!www.autoenginelube.com/





    23.12.2004 at 12:14 #511432
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Sælir/ar!
    Til að bílar fari íu gang í þessum bölvuðum kuldum er auðvitað best að hita þá með forhitara á vatnið og sömuleiðis má fá búnað til að hita olíupönnuna. En þá er vandamálið, eins og hér hefur komið fram, að olían hefur yfirgefið sinn stað. En Kaninn, og vafalaust fleiri, hefur fundið ráð við þessu; þeir dæla olíunni af stað áður en startað er og minnka með því vélarslit um allan helming að eigin sögn, og er svosem engin sérstök ástæða til að efast um þetta. Skoðið bara þessa síðu og síðan má vafalaust finna margar aðrar með svipuðum búnaði. Sá sem setti þetta í sinn bíl væri vafalaust búinn að auka endingu vélarinnar mjög rösklega og að því mér skilst virkar þetta líka uppi á reginfjöllum.
    Og munið stórhríðarspána!
    Þ





    22.12.2004 at 19:14 #511496
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Aldeilis eru húsin á Húsavík lágreist ef meters snjór færir þau í kaf. Maður spyr sig bara hvort þeir sem í þeim búa standi út úr hnefa á öðrum landsmönnum? En kannski þeir bæti upp með andlegu atgervi það sem skortir á hið líkamlega? Kannski væri ráð að spyrja Eyfirðinga og Múlsýslunga og ekki að efa að þaðan fengjust greinargóð svör um útlit og innræti húsvískra og nærsveitamanna. Gleðileg jól annars!
    Þ





    08.12.2004 at 12:58 #510254
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Skoðaðu þá hérna!
    http://www.pajero.dn.ru/pdf/sport/

    kannski er eitthvað þar
    Þ





    25.11.2004 at 11:41 #509474
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Sæll!
    Ef bremsurnar virka eftir pumpun er líklegt að þurfi að herða út í að aftan. Þar er að sönnu sjálfvirk útíhersla en hún virkar ólíklega. Prófaðu það.
    Þ





    20.11.2004 at 09:27 #509074
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Sæll!
    Fáðu einhvern kunnáttumann til að líta á díóðurnar í alternatornum. Hjá mér kom svona smáljós og smám saman tæmdist geymirinn. En þar sem ég er svo lánsamur að vinna með rafvirkjum skoðuðu þeir þetta og skiptu svo um díóðubrú og síðan hefur minn ágæti alternator ekki slegið feilpúst. Kostar ekki mikið.
    Þ





    04.11.2004 at 10:30 #507788
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Halló! Eru konurnar í þinni fjölskyldu semsagt ekki menn? (létt spaug)
    Friður með öllum mönnum (og þar með töldum konum auðvitað)
    Þ





    03.05.2004 at 20:58 #501137
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    ?Gangi þér vel við lesturinn, þetta verður pósturinn langi?. Einhvernveginn býður mér í grun að hrútnum leiðist það alls ekki. Sumir eru nefnilega þannig að þeim finnst gaman að sjá aðra slást. Sumir þeirra fara á völlinn, aðrir horfa á karatemynd. Og enn aðrir slá fram sakleysislegum spurningum á spjallþráðum og fyrr en varir logar allt í illdeilum. Og upphafsmaðurinn fitnar eins og púkinn á fjósbitanum og slær sér á lær af gleði. Nú er það auðvitað fjarri mér að ætla háæruverðugum Hrútnum slíkar hvatir og verð því að telja að árangurinn af fyrsta bréfi hans á spjallinu, sem finnst enn ef einhver nennir að leita, hafi verið tilviljunin einber og honum fjarri að efna til hjaðningavíga meðal lesenda. Hann er ugglaust drengur góður og aðeins forvitinn. Svarið því af hógværð og notið frumstig lýsingarorða enda ekki annað sæmandi drengskaparmönnum, öfugt við það fyrirbæri sem Kanverjar kalla ?troll? en mætti þýða á ástkæra ylhýra málið ?púki?, en eins og þegar hefur fram komið held ég alls ekki að þráðarhefjandi sé slíkur. Telji hins vegar einhver að tíma sínum sé vel varið til að deila um keisarans skegg eða aðra þá hluti sem ekki næst niðurstaða um þá þeir um það því eins og einu sinni var sagt, og sletti ég nú útlensku mér þvert um geð: De gustibus non disputandum.
    Og lifið heilir!
    Þ





    02.05.2004 at 20:32 #501051
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Sæll!
    Er ekki skynsamlegast að fara t.d. í Bílanaust og kaupa sér viðgerðabók frá Heynes sem er eitt ágætt bókaforlag í útlöndum. þar stendur allt, og þá meina ég allt, um það sem þú þarft að vita um bílinn, vélina og öxulhosurnar. Og svo kostar þetta svipað og 1 klukkutími á verkstæði og er fljótt að margborga sig sérstaklega vegna þess að þú þarft aldrei að sitja framar við tölvuna og bíða þess að einhver mannvitsbrekkan leysi frá viskuskjóðunni. Góða skemmtun.
    Þ





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 281 through 300 (of 373 total)
← 1 … 14 15 16 … 19 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.