FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Þorvaldur Sigurðsson

Þorvaldur Sigurðsson

Profile picture of Þorvaldur Sigurðsson
Virkur síðast fyrir 9 years, 6 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 261 through 280 (of 373 total)
← 1 … 13 14 15 … 19 →
  • Author
    Replies
  • 07.12.2005 at 16:33 #534832
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Vegna þess að þá hefði ég engan frið fyrir gestagangi af allskonar furðufuglum sem kæmu í naflaskoðun. Á Mælifellshnjúknum gæti ég séð þá um suðurgluggann án þess að verða fyrir átroðningi. Kveðja á Hrossatangann; Þ





    07.12.2005 at 12:28 #534824
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Til þess að leggja orð hér í belg, og verða ekki minni maður en þeir ágætu félagar sem það hafa gert, lýsi ég því yfir að ég styð heilshugar þá tillögu sem hér er reifuð ögn framar; nefnilega að gerð verði skoðanakönnun um það hvar miðja landsins verður fastákveðin. Margt færi nefnilega betur í stjórn heimsmálanna ef menn gerðu sér grein fyrir því að sannleikurinn verður best fundinn með því að greiða atkvæði um hann. Og þar með myndu þeir sem flestir yrðu sömu skoðunar ráða fyrir okkur og færi vel á því, enda mætti þannig spara rándýrar mælingar og rannsóknir. Og þar með legg ég til að nafli alheimsins verði á Mælifellshnjúk.
    Lifið öll heil ef meirihlutinn kýs svo!
    Þ





    20.11.2005 at 16:46 #533158
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Heyrðu Flosi!
    Áður en þú ákveður að kaupa kraftaverkasíu skaltu gá að því að þær gera ekkert gagn nema orginal sían takmarki loftflæði. Þetta geturðu prófað með því að taka loftsíuna úr bílnum, að vísu skaltu ekki gera það nema á malbiki og í röku veðri til að hann éti ekki of mikið ryk á meðan þú prófar, og skoðaðu svo hvort afkastaaukningin er veruleg. Og mundu að kraftaverkasíur gera aldrei betur en engin sía, hvað sem sölumenninrnir segja, því öll síun hlýtur að hægja á loftflæðinu. Og ef um er að ræða dísilbíl verður líka að auka olíuflæðið frá olíuverkinu, annars gerist ekkert. Og kannski hefði þá dugað að skrúfa upp í verkinu og mátt spara síukaupin. Og skrúfirðu upp ertu farinn að taka meiri orku út úr vélinni en hún er hönnuð fyrir og þar með áttu á hættu að minnka endinguna verulega, eins og margir limir 4×4 hafa fundið á eigin skinni. En þetta geturðu sem sagt allt prófað áður en þú ferð í stór fjárútlát.
    Libbðu heill; Þ





    17.11.2005 at 12:32 #532318
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Gættu að því að leyfður heildarþungi F-150 er svo lítill að þegar þú verður búinn að breyta honum með öllu tilheyrandi má hann ekki bera nema kannski 1 – 2 farþega með öllu hinu og kannski ekki það. Skynsamlegra væri að skoða 250 bílinn og þannig sleppa við mikið skriffinnskuvesen og allskonar leiðindi.
    Góða skemmtun;
    Þ





    05.10.2005 at 17:52 #528756
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Er ekki einfaldast að kalla þetta "dýpt"? "Hvað er felgan djúp?" í staðinn fyrir "hvað er bakkspeisið í felgunni?"
    Lifið heilir Þ





    02.10.2005 at 15:05 #528362
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    er ekkert nýtt sbr. þennan þráð https://old.f4x4.is/new/forum/?file=bila … ingar/5008.





    25.09.2005 at 19:42 #527816
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Sæll!
    Þú gætir líka lesið Popular Mechanics, sem er afar virt tæknirit, septemberheftið 2005. Þar er gerð könnun á nokkrum af þessum undratólum sem spara bensín, auka afl og lækna getuleysi, þ.á.m. Tornado. Og niðurstaðan er sú að í besta falli er þetta allt gagnslaust en sumt eykur eyðslu og minnkar afl.
    Kv





    22.09.2005 at 10:31 #527352
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Og skiptu endilega um leguna sem er aftan í sveifarásnum, þessa sem heitir pilot bearing á ensku. Hún kostar svosem ekkert á móti hinu dótinu, en fylgir yfirleitt ekki með í kúplingssetti, en afar hvimleitt ef hún gefur sig. Það getur verið bras að ná henni ef ekki er notuð rétt aðferð. Þú fyllir holuna í miðjunni á henni með koppafeiti, passar bara að ekkert fari á svinghjólið, og allt holrúmið á bak við hana. Svo færðu þér sívala spýtu sem passar í gatið á legunni og rekur í það með hamri og þá á legan að koma út þegar þú pressar feitina inn.
    Góða skemmtun Þ





    07.09.2005 at 09:57 #526320
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Af því ég lét það einu sinni frá mér fara á þessum vettvangi að ég kynni stafsetningu til hlítar þá rennur mér blóðið til skyldunnar. Ritstjórn Setursins má prófa að hafa samband við mig þegar næsta tölublað er í burðarliðnum og skal ég reyna að útrýma prentvillum. Heimilisfangið er einhversstaðar í bókhaldi félagsins. Lifið heil- hálf, eða í pörtum.
    Þorvaldur Sigurðsson





    16.08.2005 at 12:38 #525724
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Sæll!
    Þegar olíuverk eru skrúfuð upp og niður ber að fara sérlega varlega. Kaninn ráðleggur að skrúfa kvarthring í einu og prófa svo. Sennilega væri heppilegt fyrir þig að skrúfa hálfhring og fara svo og prófa með því að aka á svona 70 í efsta gír og botna snögglega. Ef hann reykir lítið og hættir fljótt ertu í lagi, mikill reykur þýðir of mikla olíu og ef hann reykir ekkert ertu búinn að skrúfa of mikið út og þá skrúfarðu kvarthring til baka. Svona heldurðu áfram þangað til þú ert ánægður, en mundu að til að fá skoðun er betra að gera of mikið en of lítið; þú getur skrúfað ögn inn þegar þú ert kominn heim aftur. Sömuleiðis er gott að muna að gjarnan er skrúfað allt of mikið upp í olíuverkum og niðurskrúfun getur minnkað eyðsluna verulega án þess að vinnsla minnki svo neinu nemur.





    10.07.2005 at 11:32 #524804
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Páll Ásgeir fjallar um þennan stað í bókinni sinni um fjallaferðir. Farið er að honum af Hellisheiðarveginum til norðurs rétt þar fyrir austan sem slysavarnaskýlið stóð. Annars er best að lesa lýsingu Páls; hún er býsna nákvæm.
    Og hreinlæti er dyggð
    Þ





    04.07.2005 at 23:12 #524728
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Vill einhver viðurkenna að hann hafi kosið einhvern þessara lagasmiða? Ekki getum við viðurkennt að við veljum mestu hálfvita þjóðarinnar til að stjórna okkur, það væru ekki sérstaklega skemmtileg meðmæli með okkar eigin gáfnafari, eða hvað? Sem sé; það er margt til í hinu fornkveðna að sérhver þjóð fái þá leiðtoga sem hún velur og á skilið. Og úr því allt er í kaldakoli ætti skynsömum mönnum ekki að verða skotaskuld úr því að bjóða olíugjaldsflokkinn fram næst og kippa málum í lag. X-O
    Lifið; Þorvaldur





    02.04.2005 at 14:17 #520320
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Sælir/ar!
    Það að hafa texta sem ætlaður er til opinberrar birtingar og kynningar á klæúbbi sem vill sýnast vandur að virðingu sinni villulausan ætti að vera svo sjálfsagt mál að það þarfnaðist ekki umræðu. Annað sýnir svo mikið metnaðarleysi að það er fyrir neðan virðingu þeirra sem að standa. Menn geta auðvitað sagt sem svo að innihaldið breytist ekki þótt stafsetningin sé á reiki en þetta er auðvitað spurning um að leggja metnað í störf sín. Alveg eins mætti segja sem svo að útlitsatriði hjá iðnaðarmönnum skipti ekki máli, það sé styrkur smíðinnar sem gildi. En hver vill eiga hornskakka eldhúsinnréttingu eða hafa lakkið á bílnum sínum út á rúðurnar?
    Öðru máli gegnir auðvitað um óopinbert vefspjall sem menn eru að setja saman sér til yndisauka og öðrum vonandi til fróðleiks og skemmtunar. En það sem sett er á forsíðu og aðrar klúbbsíður VERÐUR að vera "rétt" stafsett enda er það engin kúnst, treysti menn sér ekki til þess sjálfir þá fá þeir einhvern annan til að snurfusa það. Það er svona ámóta sjálfsagt og að sá sem þarf að láta stilla inn drif fær auðvitað einhvern annan til þess treysti hann sér ekki til þess sjálfur. Í því felst engin niðurlæging eða dilkadráttur; hlutirnir liggja einfaldlega misvel fyrir mönnum. Ég kann t.d. stafsetningu til hlítar, en ég get ekki gert upp gírkassa og ekki sprautað bíl.
    Með von um að sá metnaður sem ætti að blunda í okkur öllum blómstri á öllum sviðum:
    Þ





    12.02.2005 at 16:12 #516612
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    mun greiða 26900 gránd hogg.
    Þorvaldur Sigurðsson 8916968
    R-3054





    09.02.2005 at 14:12 #516344
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Sæll. 14% vaskur + tollskýrslugerð sem kostar eitthvað innan við 2000 kallinn ef þú nennir ekki að gera þetta sjálfur 16×63+14%+2000=?
    Kannski borgar þetta sig ekki
    Þ





    08.02.2005 at 21:32 #516278
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Ég hef kannski misskilið hlutina eitthvað en ég hélt að þegar menn kaupa kannski 200, 250 stk í einu að búast megi við meiri afslætti en 6,4%. Mín þátttaka í þessu dæmi miðaðist við að barðarnir fengjust á 20-25 þúsund kr. en ekki 33000 eða 8-13000 krónum meira. Ef við reiknum með lægri tölunni þá munar einmitt ca. einu dekki á ganginum miðað við Bennaverð. Og væri sú hærri tekin þá munar 50000 kalli eða í kringum einu og hálfu. Svoddan peningum kæri ég mig ekkert sérstaklega um að spreða. Ég legg því til að hinn ágæti Theódór, sem stýrir þessum málum af röggsemi, leggist enn undir feld og kanni málin betur. Var ekki annars ætlunin að ef ekki byðist viðunandi verð hér heima að flytja þau inn sjálfir? Að sönnu er mér ljóst að það er talsverð vinna en ekki sæi ég eftir því að Theódór, sem vonandi sæi um það, hefði eitthvað fyrir sinn snúð. Fengi hann t.d. sinn gang gratís ylli það ekki nema um eða innan við 2% hækkun á verði til hinna sem varla gæti talist óhófleg verslunarálagning.
    Hugsum um þetta
    Með vinsemd og virðingu;
    Þorvaldur Sig





    08.02.2005 at 09:22 #516088
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Já. Já.
    Þ





    07.02.2005 at 22:21 #515744
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    sæll!
    Með skábít!!
    Þ





    07.02.2005 at 10:31 #515740
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Sæll!
    Yfir stilliskrúfunni er trúlega hetta sem þú þarft að losa fyrst og sú hetta er væntanlega fest með innsigli (af því að það er illa séð að menn séu að fikta í þessu) og þessvegna þarftu að ganga frá aftur þannig að ekki beri mikið á að við þetta hafi verið átt þegar skoðunarmenn kíkja á bílinn. Mundu svo að gera lítið í einu (1/4 úr hring) og prófa hvort hann reykir undir álagi og fari hann að reykja við lítið álag að skrúfa þá til baka. Og olíueyðslan mun fara verulega upp hjá þér en það er óhjákvæmilegt. Gangi þér vel!!
    Þ





    07.02.2005 at 10:23 #515616
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Sæll Theódór!
    Ég þarf vonandi ekki að grátbiðja um að fá að vera með? En gerist þess þörf, þá sniff-sniff!!
    4 radial mudder fyrir mig
    Þorvaldur Sigurðsson
    8916968
    thorsig@fss.is





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 261 through 280 (of 373 total)
← 1 … 13 14 15 … 19 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.