Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
12.12.2006 at 21:43 #571170
Án þess að ég ætli að gefa mig út fyrir að vera spesíalista í öðru en stafsetningu og Njálu held ég að þú ættir að finna þér aðra ráðunauta í tæknimálum en þá sem svona halda fram. En, ég á segularmband og voltakross sem ég gæti selt þér. Hver veit nema ég gæti líka útvegað þér kínalífselixír. Og svo veit ég um stórkostlegt viðskiptatækifæri í Nígeríu. Ha; hvað segirðu.
Þ
09.12.2006 at 19:47 #570794En Gjábakkahraunið?
17.10.2006 at 16:29 #563756Hvað ætli Jón vilji ræða við mig, ég þekki hann ekki neitt og á hvorki dana 35 né 44" dekk! Og svo er ég í símaskránni!
Kv þ
16.10.2006 at 18:39 #563518Þótt hér hafi hver snillingurinn af öðrum spjallað um eðli festinga eætla ég ekki að blanda mér í það mál, enda umdeilt hvort ég sé snillingur. Hins vegar er ég svo lánsamur að vinna með manninum sem kennir Íslendingum netagerð og fékk hann til að splæsa svona fléttað tóg fyrir mig. Og til að gera smá athugasemd við gulu lykkjuna sem öryggislínan endar á þá lét minn maður engan enda standa út úr tóginu í lokin, heldur skildi lausa endann eftir inni í því; sem sagt hann þræddi lausa endann inn í mitt tógið langsum og þar með var hann horfinn. Miklu snyrtilegra! Og engin hætta á að hann krækist i eitthvað og verði til leiðinda eða trosni þegar teipið er farið af.
Sem sagt; Sælir
Þ
05.10.2006 at 16:33 #561954Sæll Þorkell!
Þegar maður stundar trúboð suður með sjó er bara tími til að skjótast í mýflugumynd í Skagafjörðinn og moka þar skít og drífa sig suður aftur. En;gott erhjá góðum að eiga heimboð!
Þ
05.10.2006 at 11:41 #561950Sælir!
Í mínum huga hefur lengi verið að gerjast mynd af Möðrudalsöræfunum í sambandi við veginn og sú mynd rímar gersamlega við kortið frá Rúnari hér á undan. Hvað brúna snertir og Ólsarinn kannast ekki við á myndunum hjá Óskari (sama brúin er á báðum myndunum) er ég sannfærður um að er af Öxnadalsá skammt fyrir neðan Bakkasel. Sú brú var síðar flutt á Köldukvísl og enn síðar jörðuð þar einhversstaðar með viðhöfn. Og svo er það önnur saga að rétt er að engin svona brú hefur verið á Héraðsvötnum, en samskonar brú var á Jökulsá vestari hjá Goðdölum og er þá skylt skeggið hökunni. Þá brú reif ég með eigin hendi en pabbi gamli flutti Öxnadalsárbrúna á Köldukvísl þegar hann hafði byggt þá sem enn stendur þótt ekki sé hún lengur í notkun.
Kv; Þ
09.06.2006 at 10:11 #553798Þótt ekki sé vænlegt að kíta um einstakar tölur þá langar mig til að bera saman fullyrðingar tveggja manna, Hrafnkels Sigtryggssonar og Kristjáns Grétarssonar. Hrafnkell segir: "Áætlaður fjöldi hjóla er ríflega 3000 torfæruhjól á hvítum og rauðum númerum. Undanfarin 5 ár (ekki 2 ár) er áætlað að ríkið hafi haft hátt í 2ja milljarða tekjur af vélhjólaíþróttinni í gegnum aðflutningsgjöld, virðisaukaskatt, vegagjöld og aðra skattheimtu." Kristján segir: "Áætlaðar tekjur ríkissjóðs á síðasta ári, fyrir utan 6hjól og alla aukahluti á hjól, er:
1.700.000.000kr"
Þetta kemur ekki alveg heim og saman?Aðalmálið er þó það að þótt torfæruhjólamenn séu vafalaust hið besta fólk upp til hópa mega þeir ekki falla í þann pytt að ætla sér að nota upphæðina sem þeir greiða til að réttlæta að ekki sé farið að lögum. Auðvitað ættu þeir rétt á fyrirgreiðslu og brautagerð, en þangað til verða þeir að fara að lögum rétt eins og aðrir. Og þótt hestamenn og jeppamenn séu ekki endilega allir hvítskúraðir englar, að maður tali ekki um verktaka og bændur, -þótt yfirgnæfandi meirihluti þessara hagi sér eins og menn, sem betur fer,- þá gefur villimennska eins ekki öðrum leyfi til að haga sér eins og svín.
Lifum heilir
Þ
06.06.2006 at 21:35 #553750"aðflutningsgjöld og tollar
5. júní 2006 – 22:01 | Kristján Grétarsson, 225 póstarÁ síðustu tveim árum reiknast aðflutningsgjöld og tollar um og yfir 2.000.000.000kr"
Án þess að ég ætli að blanda mér í þessa umræðu að öðru leyti en því að ég hef skömm á umhverfissóðum hvernig sem þeir koma til, þá er ég afar skeptískur á þá fullyrðingu að aðflutningsgjöld og tollar af torfæruhjólum nemi um eða yfir tveim milljörðum króna á tveimur árum. Og þá síðan í framhaldi af því að svona feikilegir framleggjendur til samfélagsins eigi að fá leyfi til að skíta þar sem þeim sýnist af því að þeir hafi borgað svo gríðarlega fyrir það. Með sömu röksemdafærslu ætti Björgólfur að fá að keyra eins hratt og honum sýnist og aðrir að aka eins fullir og framast er unnt. Þá er og augljóst að þeir sem ríkir eru ættu að fá að vera miklu oftar veikir en aðrir og eiga miklu fleiri börn í skólum. Í lýðræðisþjóðfélagi verða vitaskuld að ríkja ákveðnar leikreglur til þess að varðveita frelsið. Frelsi eins takmarkast nefnilega af frelsi annars. Vilji einhver freta feikilega hefur hann auðvitað frelsi til þess en hann verður að gera það einhversstaðar þar sem hann takmarkar ekki frelsi annarra til að njóta fersks lofts. Og þar sem fretendur eru mun færri en þeir sem anda verða þeir að semja sig að þeim takmörkunum, jafnvel þótt þeir hafi borgað feikna upphæðir fyrir gasaukandi mataræði. Sem sagt; fretum á takmörkuðum svæðum og líðum ekki þá skítbuxa sem fara út fyrir. Og sú röksemd er afar veik að ef aðrir haga sér eins og hálfvitar þá megi ég, og sé næstum skylt, gera það líka.
Lifum svo heil í gróðursælu landi
Þ
13.05.2006 at 23:51 #552536Með 36" dekkjum er bíllinn nánast eins og original í gírun ef þú setur 1:5,275 (7:37 tannafjöldi) drif í hann. Mæli sterklega með því af eigin reynslu því lágadrifið í þessum bílum er ekki verulega lágt. Þetta drifhlutfall er í einhverjum MMC bílum og finnanlegt á partasölum, t.d. japönskum vélum (eða hvað þeir nú heita þeir ágætu menn), en fjandanum dýrara í Heklu.
Góða skemmtun!
Þ
25.02.2006 at 13:32 #544310Einmitt!
Þ
25.02.2006 at 09:34 #544302Sæll!
Auk undangenginna ráða er þjóðráð að auka loftræsingu í húsinu þannig að rakainnihaldandi loft fari út. Til þess er ágætt að setja útsogandi vindrellur á þakið og síðan göt á húsið að framanverðu, milli bíls og húss, þannig að ekki rigni inn. Þar mætti setja stillanlega rimlagrind til að loka í mikilli snjókomu. Vindrellur fást í Bílanausti og Bílasmiðnum og eru ekki dýrar og fara ekki illa á bílnum. Þetta gerði ég á minni fjallabifreið og var mikill munur.
Góða skemmtun; Þ
19.02.2006 at 17:16 #542902Ef hann reykir rösklega kaldur og er í lagi að öðru leyti er ekki alveg óhugsandi að það þyrfti að athuga tímann á honum. Skakkur tími gæti stafað af slakri tímakeðju eða að hann hefði hoppað um tönn á reim.
Og reyklausar kveðjur;
Þ
18.02.2006 at 11:58 #543140Eins og alkunna er finnst allt á netinu. Prófaðu að fikta þig áfram í þessum þræði: http://www.pajero.dn.ru/pdf/
Ef þú lendir á stað þar sem beðið er um lykilorð þá er það manual og leyniorðið er lc190
Góða skemmtun!
Þ
11.02.2006 at 09:31 #541218Er ekki dáltið snúið að koma stimplum í neðan fyrir? Ætli sé gott pláss þeim megin fyrir hringaklemmu?
Með gleðikveðju; Þ
09.02.2006 at 20:00 #542186Er hann ekki bara rafmagnslaus? Eða að geymasamböndin svo skítug að hann fær ekki nóg rafurmagn? Kannski gætu kolin verið búin? Og jafnvel að segulrofinn á startaranum sé spanskgrænaður? Er jörðin á vélinni í lagi? Vélin föst?
Þ
08.02.2006 at 11:21 #542070Einfaldast er að taka moggann þegar þú ert búinn að lesa hann og setja undir motturnar. Svo ferð þú á þínum bíl bísperrtur og næsta morgun þegar þú ferð í vinnuna kemur næsti moggi en sá sem fyrir var fer í ruslið rennblautur. Og smám saman þurrka blöðin bleytuna og þú fylgist með og skiptir eftir þörfum. Þeir sem fylgja Baugi grúpp geta notað fréttablaðið og svo mætti nota íslendingaþætti tímans (dödens magasin) ef einhver lumaði á þeim eftir afa sinn. Önnur aðferð væri að skafa snjóinn vandlega af fótunum á sér áður en sest er inn og enn mætti hafa rafmagnsofn í bílnum á nóttunni. En; moggaaðferðin er heilladrjúg og þá kemur blaðið að góðu gagni, bara að muna að skipta reglulega eftir því sem hann blotnar!
Kv Þ
05.02.2006 at 22:23 #541560Sælir!
Einhver allra fróðasti Íslendingur um flugvélaflök heitir Eggert Norðdahl og lúrir nærri örugglega á upplýsingum um öll finnanleg og fundin flök hérlendis. Eggert er næsta örugglega í símaskránni. Þá hefur Hörður Geirsson á Akureyri átt vænan þátt í uppgrefti slíkra flaka og er maður vænn viðtals.
Góða skemmtun og góða nótt; Þorvaldur
26.01.2006 at 21:48 #540368"Kelvin er mælieining á hita.
Lux og lumen er EKKI það sama.
Lux er einfaldlega mæling á styrk ljóss, meðan lumen tekur inn dreifingu með."
Nú veit ég ekki hversu Ulfr er að sér í latínu, en hann hefur að sönnu að nokkru rétt fyrir sér að "lux" og "lumen" séu ekki algjörlega það sama. "Lux" er nefnilega "ljós" á latínu en "lumen" er hins vegar fleirtalan; "mörg ljós". Eitt kerti er auðvitað ekki það sama og mörg kerti en mér finnst skeggið ansi skylt hökunni enda ljósmagn gjarnan mælt í fjölda kertaljósa hvort sem þau standa nærri eða fjarri. Og eins og félagi Lalli segir, og stendur í lýsingarfræðunum sem kennd eru í mínum skóla, þá sýnir Kelvin tala ljóss hversu gult eða hvítt það er og því hvítara sem talan er hærri.
Og lifið heilir Þ
26.01.2006 at 18:00 #540360"Þetta er sko alls engin brella ljósmagnið á þessum ljósum sem Stilling er að selja er 6800 K (Kelvin)"
Hér er eitthvað málum blandið, 6800K táknar litinn á ljósinu en ekki styrkinn, sem mældur er í lumen (í eintölu "lux" )
Lifið heilir að öðru leyti!
Þ
13.12.2005 at 15:18 #535956Af því að ég kann að setja fram alvöru gæsalappir ætlaði ég að sýna ykkur þær. En andskotans tölvan var með leiðindi þannig að þið verðið bara að taka mín orð fyrir því að ég kunni það; hún vill ekkert svoleiðis bull inn í sig, enda eru gæsalappir danskar!
-
AuthorReplies