Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
19.08.2007 at 10:36 #594850
Það er auðvitað hið versta mál að vera staðinn að því að bulla, en ég hef það mér til afbötunar að vera illa að mér í grísku. Hitt er svo annað mál að einangrunarfeiti á ekki heima inni í tengi heldur utan á. Þótt það sé auðvitað alveg rétt að rafleiðni fæst með því að málmur snerti málm þá er alltaf einhver hreyfing á tengjum sem stungin eru saman og þar með á feitin möguleika á að renna á snertifletina og koma í veg fyrir rafleiðni; ekki endilega strax heldur þegar verst gegnir.
Þ
18.08.2007 at 18:31 #594846"Einfaldast og einna best er að nota Vaselin á tengin"
Jæja? Vasilín hefur marga ágæta eiginleika og einn þeirra er sá að það einangrar rafurmagn, enda td notað til að einangra símalagnir. Þess vegna er ekki skynsamlegt að bera það innan í tengingar sem eiga að leiða. Það er ágætt utan á en innan í ávísun á vandræði; það veit ég af eigin raun, m.a. eftir að frændi minn smurði geymasamböndin á rútunni sem ég var á innan og utan með spenafeiti. Það var ekki mjög traustvekjandi þegar túrhestarnir voru settir í að ýta í gang. Kvöldið fór svo í að þrífa pólana og skóna með bensíni, svo farþegarnir þyrftu ekki morgunleikfimi daginn eftir, og hefur sá bíll farið í gang síðan. Kanverjar og sjálfsagt einhverjir Mörlandar selja rafleiðandi feiti, dielectric grís, og er sjálfsagt að nota hana.
Libbðu svo heill
Þ
07.06.2007 at 20:24 #592272Eins og ég hef oft nefnt þurfa spurningar að vera þannig orðaðar að aðeins eitt svar sé rétt. Svarið við þessari, miðað við forsendurnar, gæti verið t.d. fellibylur, krabbamein, löggur, brotin brú, slagsmál osfrv, osfrv. Það er alltént útilokað að halda því fram að krap sé eina rétta svarið.
17.05.2007 at 21:51 #591294Ætli þú þurfir ekki að bíða nokkra daga enn ef þú vilt ekki þurfa að spjalla við borðalagða menn á heimleiðinni. Skoðaðu bara heimasíðuna hjá Vegagerðinni og þá sérðu að allt hálendið er lokað, nema vegurinn í Þórsmörk.
09.05.2007 at 08:37 #590758Og hvaða niðurfærsla er í þessu dæmi?
23.04.2007 at 18:48 #589146Þegar demparar væru komnir hingað, leggst á verðið að meðtöldu flutningsgjaldi 7,5% tollur; 15% vörugjald þar á ofan og svo 24,5% vaskur á allt saman + svo einhver tittlingaskítur td gerð tollskýrslu og umbúðaförgunargjald. Og þá má fara að reikna.
08.04.2007 at 22:39 #587422Þegar litið er í Orðabók Menningarsjóðs er ljóst að það sem þar stendur á einungis við fólk eða aðrar skepnur. Þar stendur orðrétt: óhapp, áfall; atvik sem veldur (stór)meiðslum eða dauða. Í orðsifjabók Ásgeirs Blöndals stendur: óhapp, áfall sem veldur (stór)meiðslum eða dauða. Og í O.M. er við so. slasa (sem hlýtur að gerast í slysi og hvergi annars staðar): meiða, beinbrjóta, skadda stórlega. Þá segir enn í lögum um almannatryggingar: Með orðinu slys er átt við skyndilegan utanaðkomandi atburð sem veldur meiðslum á líkama þess sem tryggður er og gerist án vilja hans.
Af öllu þessu er fráleitt að halda því fram í alvöru að slys sé þar sem gler brotnar eða blikk beyglast; amk. er það gríðarleg gengisfelling á orðinu og ekki heppileg ef menn vilja forðast misskilning. Það væri þannig sennilega ekki skynsamlegt að fjasa í talstöð um slys, ef björgunarsveitamenn eða slysavarna, væru að hlusta ef það eina sem gerst hefur er það að einhver hefur brotið drif eða misst flösku í kamarinn. Og mér er enn í minni, þótt þrjátíu ár séu liðin, yfirhalningin sem félagi minn fékk á Löggustöðinni við Hlemm þegar hann kom þar inn og tilkynnti um sviplegt slys, þegar vakthafandi lögga áttaði sig á að það var fólgið í því að bíllinn sem við vorum á hafði verið læstur inni í portinu við Egil Vilhjálmsson meðan við vorum í Stjörnubíói sáluga.
Sem sé; tölum jafn varlega og við ökum.
26.03.2007 at 10:28 #586140Þegar ég var að leita endaði ég hjá Benna og þar voru þau á góðum prís og bara snotur. Að sönnu þurfti að smíða festingar, því það sem með fylgdi sýndist ekki til stórræðanna, en það stendur ekkert í laghentum mönnum.
24.03.2007 at 19:56 #585904Þeir fyrir westan brúka sumir hituð þurrkublöð. T.d. everblades.com. Wafalaust er þetta hið mesta thing thwí þótt gott geti werið að skrúfa niður hitann í bílnum er rúðan aldrei alweg snjólaus, og þaðan af síður móðulaus, ef eitthwað hreyfir wind, fyrir þwí hef ég áratuga reynslu, mann fram af manni allt frá ´46 willys um Gaz 69 ´57, fólkswagni af ýmsum sortum og til þessa dags. Kannski wæri bara skynsamlegt að prófa, þetta er ekki svo ókristilega dýrt.
27.02.2007 at 21:32 #582440Það er sem fyrr, spurningin getur snúist um næstum hvað sem er. Það sem er sjaldgæft hér á landi en menn geta lent í gæti verið stórhríð, fellibylur, sjávarflóð, að hitta Mick Jagger á Ísafirði, árekstur á jarðýtu og svo mætti lengi telja. Spurningar verður að semja þannig að aðeins eitt svar sé rétt!
Kannski á mhn við hillingar.
27.02.2007 at 16:02 #582344Það verður aldrei nógsamlega brýnt fyrir mönnum að orðalag spurninga verður að vera þannig að ekki sé hætta á misskilningi. Það kemur ekki fram í spurningunni um brýrnar að þær þurfi allar að vera á sama stað. Að sönnu var ekki byggð nema ein brú 1883, en 1930 nokkrar og margar 1972. Þess vegna eru rétt svör við spurningunni jafnmörg og fjöldi brúa 1930 margfaldað með brúafjölda 1972, eða sem sagt allmörg hundruð. Og allir geta haft rétt fyrir sér.
25.02.2007 at 14:22 #580618Sælir/ar!
Ég sendi þeim háu herrum fyrirspurn og fékk svar sem hér fer á eftir. Nú geta snjóakstursmenn skoðað hvort þetta myndi henta þeim:
Azorvaldur,Thank you for your interest in the MATTRACKS product.
For your Dodge Dakota, you would use models from the MATTRACKS 105 Series. This series has six (6) models in its lineup. Four (4) of the models have steel frames and two (2) of the models feature our molded, heat treated, aluminum alloy frame. Here is a brief breakdown on each of the model.
105 M1. Solid-Rail, Steel Framed Model. This model has a 10,500 lbs. Gross Vehicle Weight Capacity. The 105 M1 has a retail price of $24,500.00 US Dollars.
105 M1-A1-SA-M. Steel Framed, Split Set. This model has a 10,500 lbs. Gross Vehicle Weight Capacity. This model has a pair of Model 105 M1-A1 Suspension on the front with Steering Assist, and a pair of solid rail Model 105 M1 on the rear. This helps keep the price down verses a complete suspension package. The 105 M1-A1-SA-M has a retail price of $28,500.00 US Dollars.
105 M1-A1. Suspension, Steel Framed Model. This model has a 10,500 lbs. Gross Vehicle Weight Capacity. It also has an Offset Oscillating Rocker Arm Suspension for smooth ride and better shock absorption. The 105 M1-A1 has a retail price of $29,500.00 US Dollars.
105 M1-A1-SA. Suspension, Steel Framed Model with Steering Assist. This model has a 10,500 lbs. Gross Vehicle Weight Capacity. This model has an Offset Oscillating Rocker Arm Suspension for smooth ride, plus TRACKSTEER Steering Assist for ease of steering. This system allows for easier steering on hard surfaces. The 105 M1-A1-SA has a retail price of $31,500.00 US Dollars.
105 M1-A2. Suspension, Aluminum Framed Model. This model has a 10,500 lbs. Gross Vehicle Weight Capacity. It also has a Cushioned, Offset Oscillating Rocker Arm Suspension for smooth ride and better shock absorption. The 105 M1-A2 has a retail price of $32,000.00 US Dollars.
105 M1-A2-SA. Suspension, Aluminum Framed Model with Steering Assist. This model has a 10,500 lbs. Gross Vehicle Weight Capacity. This model has a Cushioned, Offset Oscillating Rocker Arm Suspension for smooth ride, plus TRACKSTEER Steering Assist for ease of steering. This system allows for easier steering on hard surfaces. The 105 M1-A2-SA has a retail price of $34,000.00 US Dollars.
Shipping and handling is additional. We would be happy to provide you with a quote.
For many applications we recommend the Model 105 M1-A1, the Model 105 M1-A1-SA, the Model 105 M1-A2, and the Model 105 M1-A2-SA. Here are the reasons for the recommendations.
1) All the models mentioned above, feature an internal, offset oscillating, suspension. In addition, the aluminum models also feature a cushioned internal, offset oscillating, suspension. This provides a smoother ride and allows the track system to follow the contours of the surface. This will also allow the track system to work well in rough and uneven areas, keeping a large footprint on the ground and providing increased stability. Rarely do you travel in just snow, or just mud. Ice chunks can be hidden in the snow. Rocks can be hidden in mud, tree stumps can be hidden in a marsh or swamp. The most popular models in the MATTRACKS product line feature internal suspension. The internal suspension provides two very important features. It provides a smoother ride, and it provides more stability and traction. We will explain.
The sidewall of the tires provides a cushion that absorbs the bumps you would feel going over rocks and moguls (depressions) on the surface you are driving on. If your track system does not have an internal suspension, all those jolts and bumps are transferred right to the vehicle’s hub, spindle, and wheel bearings. With out an internal suspension, you are also asking the road wheels and their axles to absorb the shock and impact of the rock or mogul. This can lead to damaged road wheels or bent road wheel axles. The MATTRACKS Suspension Models feature an internal offset oscillating rocker arm suspension that will help absorb road bumps, rocks, and moguls.
These models also have increased traction and stability. When your road wheels are mounted to a solid frame rail, they do not have the ability to contour or form to the surfaces shape. If you are driving over an obstruction with a solid frame track system, you will come to a pivot point (like a child’s teeter totter). At that point, you will lose stability (teetering at the pivot point), and lose traction (smallest amount of track in contact with the ground at that time). The MATTRACKS Internal Suspension Model contours (forms) more to the surface. This keeps more track in contact with the ground for better traction and stability!
2) The Model 105 M1-A1-SA and the Model 105 M1-A2-SA features our exclusive TRACKSTEER Steering Assist feature. This provides for one handed steering while standing still on hard surfaces. What TRACKSTEER does is to use the vehicle’s power steering system to power a hydraulic cylinder that pushes down on one of the offset oscillating arms and shorten the footprint of the front tracks. It is similar to going from the flat of your foot to the ball of your foot and being able to pivot. Without TRACKSTEER you would need to be in motion to steer because of the very large track contact area. TRACKSTEER adds to the maneuverability of the vehicle once on a hard surface.
The MATTRACKS System has a large footprint that will provide you with increased floatation, traction, and mobility in snow, sand, and mud. Another real benefit that the MATTRACKS System provides is the ability to go back and forth between tires and tracks on a vehicle that you already own. After initial installation, it takes as little as 30 minutes to go from tires to tracks, or back. No other system out there offers this feature.
We look forward to your reply. Let us know how you wish to proceed!
With regards,
Tom Wollin
International Sales
MATTRACKS® International, Inc.
202 Cleveland Avenue East
Karlstad, MN 56732
USA
01 (218) 436-7000 Phone
01 (218) 436-7500 FAX
21.02.2007 at 17:29 #580606En hefur enginn reynt að komast að því hvað svona myndi kosta? Ef þetta gæti komið í veg fyrir að menn þyrftu að breyta bílunum sínum þangað til þeir verða ónothæfir til alls venjulegs brúks þá má þetta kosta marga hundraðþúsundkalla.
21.02.2007 at 17:24 #581708Kannski er ekki sniðugt að hafa eldsneyti þar sem öruggt er að tankurinn springur við árekstur. Og það þarf ekkert að vitna í það að menn séu með brúsa bæði aftan og framan á, það er heldur ekkert sniðugt. Allar aðrar staðsetningar olíugeyma eru semsagt skynsamlegri, nema kannski í stigbrettunum því þau brotna fyrst við hliðarárekstur. Eldsneyti er best geymt undir miðjum bíl og á milli grindarbita og alls ekki skagandi niður úr. Það er nefnilega betra að þurfa að taka eldsneyti ögn oftar en að fara olíuleginn til himna.
21.02.2007 at 11:32 #581650Góð!
16.02.2007 at 11:57 #580576Án þess að ég ætli að gera lítið úr spurningakeppni Magnúsar, verður hann að orða spurninguna þannig að hægt sé að svara. Orðalag síðustu spurningar gat átt við hvað sem er, td símann, ljósaperuna, örbylguofninn, öngulinn, hamarinn, öxina, etc. Í spurningu verða að koma fram atriði sem útiloka allt annað en það sem spurt er um. Annars fer eins og þegar séra Pétur spurði á prófi: Hver sagði hin frægu orð, og hver voru þau? Vafðist nemendum tunga um höfuð, en rétt svar var auðvitað: Lúther og Hér stend ég og get ekki annað.
Sem sé: Hnitmiða!!
29.01.2007 at 18:55 #577902Settu vélina á merki, bæði að ofan og neðan og passaðu að hún haggist ekki eftir það. Kasthjólið er ekki skynsamlegt að taka burtu því til þess þarftu að taka vélina úr og það borgar sig ekki. Trissuhjólið framan á vélinni, eða í þínu tilfelli hægra megin af því að vélin er þversum, þarf hins vegar að losa af. Heppilegast er að losa boltann með loftlykli þótt hægt sé að nota venjulegan topplykil. Þegar boltinn er laus fullvissarðu þig um að vélin sé á merkjum og tætir svo í sundur. Skynsamlegt er, úr því þetta er allt sundurflakandi, að skipta um pakkdós á sveifarásnum.
Góða skemmtun!
Þ
13.01.2007 at 19:53 #575294Hvar er aftur vegurinn á Lyngdalsheiðinni? Ég gat ómögulega fundið hann á kortinu!
Látið mig endilega vita þegar búið verður að teikna hann inn á það.
Þ
13.12.2006 at 17:40 #571282Þarf framar vitnanna við um nauðsyn hugarfarsbreytinga í umferðinni?
12.12.2006 at 23:28 #571180Sá eðaldrykkur var seldur á voru landi, Íslandi, fyrir sirka 100 árum og tryggði drekkendum eilíft líf, eða að minnsta kosti stórbættar hérvistarstundir. Efasemdamenn héldu því hins vegar fram að megininnihald hans og virkasta efnið væri spíritus. Að minnsta kosti eru sennilega allir þeir sem hann hafa smakkað dauðir.
Ætli þurfi ekki annars að vera gervitunglaviðtæki í tölvunni, og því ættu ekki að vera nein tæknileg vandkvæði á að koma fyrir einhversstaðar, en kannski er hægt með þar til gerðu forriti að breyta hljóðkortinu í svoleiðis, nú eða þá einhverju öðru apparati þarna innan í. Guð veit að nóg er af þeim. Ég veðja samt á að einhverju gerðu úr prentrásum og smárum og svoddan dóti þurfi að koma fyrir, hvort sem er innan eða utan tölvunnar, en forritin berrössuð dugi ekki.
Svo var líka til bramalífselixír og hann virkaði miklu betur. Það sögðu umboðsmennirnir. En þeir eru sömuleiðis löngu dauðir.
-
AuthorReplies