Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
25.11.2011 at 01:25 #742505
Hér ljáðist mér að setja inn tengil á skráninguna, en hún er [url=http://f4x4.is/index.php?option=com_seminar&Itemid=285:8qb92udi][b:8qb92udi]hér[/b:8qb92udi][/url:8qb92udi]
Kynningarkvöld fyrir ferðina ásamt nýliðanámskeiði verður síðan Miðvikudagskvöldið 30. Nóvember í félagsheimili ferðaklúbbsins 4×4 að Eirhöfða og hefst stundvíslega klukkan 20:00.
Vil minna á að allar fyrirspurnir má senda á hjalparsveit@f4x4.is sem og á samuel@ulfr.net
kkv, Samúel Úlfr
24.11.2011 at 19:05 #221396Nú fer að líða að nýliðaferðinni.
Skráning er hafin og má nálgast hér neðst á síðunni undir „skráning í ferðir“ eða á forsíðu vefsins.
Líkt og áður hefur verið auglýst verður Nýliðaferð Ferðaklúbbsins 4×4 helgina 2-4. Desember næstkomandi. Þetta er að sjálfsögðu snjóalögum háð. En það stefnir í mikinn snjó miðað við veðurspá og verður þetta að öllum líkindum hin mesta skemmtun! Mæli ég því eindregið með að taka þátt.
Stefnan er tekin á skála félagsins, Setrið sem staðsettur er suðvestur af Hofsjökli, með viðkomu í Hólaskógi.
•Föstudagur 2. Desember: Farið verður frá Stöðinni (Skeljungi) á Vesturlandsvegi í tveimur hópum, kl 17:00 og kl 19:00
•Laugardagur 3. Desember: Lagt af stað úr Hólaskógi árla morguns og stefnan tekin á Setrið.
•Sunnudagur 4. Desember: Tekið til í skála og lagt af stað úr Setrinu og stefnan tekin á láglendið.
Áætlaður kostnaður á mann er 5500kr, fyrir gistingu og einnig verður sameiginleg máltíð á laugardagskvöld í Setrinu. Drykkjarföng verður þó hver og einn að taka með sér.Einungis verður pláss fyrir 20 jeppa, að hámarki 2 í bíl. Fararstjórar taka ákvörðun um hæfni bíla og þáttakanda í ferðina. Lágmarks kröfur eru þó:
•VHF og GPS tæki séu til staðar
•Þáttakendur séu lítt vanir fjallaferðum í snjó.
•Jeppinn sé á dekkjastærð sem beri viðkomandi þyngd í snjó.
•Jeppinn sé útbúinn fyrir ferðalög á hálendinu í snjó.
•Viðkomandi þátttakandi sé greiddur félagi í Ferðaklúbbnum 4×4. Sértu ekki félagsmaður en vilt koma með, er hægt að skrá sig í klúbbinn fyrir ferðina.
Nýliðakvöld verður haldið í vikunni fyrir ferðina og verður það auglýst síðar bæði í þræði fyrir nýliðaferðina hér á spjalli klúbbsins sem og á vefsíðunni.Séu einhverjar spurningar varðandi gjaldgöngu í ferðina eða aðrar fyrirspurnir er bent á veffangið hjalparsveit@f4x4.is eða samuel@ulfr.net
22.11.2011 at 01:41 #742047Mikið rosalega er ég ánægður með ykkur í vefnefndinni!
Fín síða þó eitthvað eigi eftir að fínpússa hana.kkv, Samúel Úlfr
09.11.2011 at 15:12 #732995Ég hef nú ekki farið þennan veg í lengri tíma, en gaman að heyra að fólk hefur enn áhuga á að aka hann.
Væri ekki ráð að skella sér þarna upp eftir í góðri sumarblíðu og laga veginn aðeins til?
Eða þarf það kannske að fara í umhverfismat?kkv, Samúel Úlfr
24.10.2011 at 16:07 #739977Allt klafadótið frá 88 til 97 (og jafnvel í nýrri hiluxum líka, eða fram til 2006, 4runner fær nýjan fjöðrunarbúnað um 97) er það sama í þessum bílum, eða betur veti ég allavegana ekki. Klafadótið undan mínum fór allavegana í hilux og ég hef notað klafadót úr hilux í 4runner.
Ég hef aldrei spáð í það hvort gormurinn í snerilfjöðruninni sé misjafn eftir hvaða vél er í húddinu. Það gæti mögulega verið munur á því.
kkv, Samúel Þór
21.10.2011 at 20:47 #739973Ég held að Jón Snæland sé með þetta svona á bílnum hjá sér.
Annars grunar mig að þetta sé spurning um að smíða þetta bara nógu massíft og hafa stífurör upp með til að koma í veg fyrir að tjakkurinn fari að dansa.
Ég hef líka séð svona fest á afturstuðarann lárétt en það er ekki góður staður ef þú lendir í því að sökkva bílnum í krapa og þurfa að komast að tjakknum, hef sjálfur persónulega reynslu af því að kafa oní krapa eftir honum og það var ekkert fjör…
Hendi auðvitað inn myndum af verknaðinum þegar þetta er búið.
kkv, Samúel
20.10.2011 at 22:51 #739967Sæll.
4Runner eru mestu gæðingar, á sjálfur nokkra og hef átt dágott safn í gegnum tíðina.
Afturhlerinn er krónískt vandamál, ég hef nú alltaf náð að redda þessu saman á einhvern hátt en nú er svo komið að ég ætla að smíða hlera aftan á hann í staðinn fyrir þetta helv… rafmagnsdrasl. Ég hafði hugsað mér að finna einhverjar góðar lamir og smíða rammann og allt sjálfur bara, líst eiginlega ekkert á hilux hlera þarna aftan á.
Það er einn sem smíðaði bara hurð aftan á bílinn og reif hlerann og allt burtu, það er að vísu svolítið smíðavinna.Varðandi festingarnar á drullutjakk og skóflu og þessu, það eru nokkrar leiðir færar, ég sjálfur er með toppgrind sem ég geymi dótið á (mjög hentugt þegar maður festist í krapapytt) en ég hef t.d. séð á nokkrum þar sem smíðuð hefur verið festing út frá grindinni að aftan þannig að tjakkurinn standi upp með bílnum við hliðiná afturstuðarahorninu. Svipað væri hægt að gera með skóflu ofl.
kkv, Samúel
20.10.2011 at 00:51 #737707Sæll.
Þetta er góð spurning og ég velti þessu aðeins fyrir mér.
Einfaldasta leiðin er að fara eftir þeim hluta leiðbeininganna sem talar um OziExplorer með smá breytingum, það er, sleppa "pack" flagginu. Þannig færðu hvern feril sem einn plt fæl, svo er hægt að umbreyta þeim skrám yfir í gpx eða gdb eftir þörfum. Svolítið seinleg leið en ég veit ekki um aðra betri nema að vinna þetta í Mapsource.
Í mapsourcer hægt að velja eina leið og afrita hana yfir í nýja skrá með því að velja leiðina, velja "copy", búa til nýja skrá og velja "paste" þar.
Endilega láttu mig vita hvort þú rekist á einhver vandamál þessu tengdu.
kkv, Samúel
14.10.2011 at 03:38 #739345Ég fór þarna uppeftir og kíkti á þetta. Tók einhverjar örfáar myndir sjá
[url=https://picasaweb.google.com/104457734088121315112/DropBox?authuser=0&authkey=Gv1sRgCMGZ2oCx0_vQdw&feat=directlink:nm4pr1a9]hér[/url:nm4pr1a9]Þetta er afar flott hjá þeim, væri gaman að fá þá svo til okkar á mánudagsfund við tækifæri þegar þeir snúa aftur.
Miðjuhásingin er með "millistykki" þar sem tekið drifúttak er að ofanverðu á hásingunni, gleymdi að taka almennilega mynd af því.
kkv, Samúel
25.09.2011 at 16:44 #737841Sæll.
Það kom eitthvað af þessu orginal með. Mig minnir að nýrri LC90 mótorinn hafi verið með eins dælu og svipuðum festingum en ég þori ekki að fullyrða það.
Annars er ég með sama mótor í 4runner og ég mixaði bara gamla York stimpildælu úr plymouth, það var lítið vesen m.v. margar aðrar dælur. Gallinn við margar snigildælur er sá að þær eru svo langar að þær henta illa á þennan mótor.
kkv, Samúel
23.09.2011 at 02:37 #220495Sæl öll.
Ég eins og eflaust fleiri, nota ekki endilega Garmin Mapsource þegar ég vinn með ferlana mína. Ég nota aðalega OziExplorer og notaði þar áður (og nota stundum enn) Nobeltec. Þó þessir ferlar séu ekki ætlaðir til að aka eftir, heldur fremur að nota sem yfirlitsgögn um hvaða leiðir eiga að haldast opnar og hverjar þeirra ættu að vera lokaðar. En það breytir ekki því að sum okkar nota OziExplorer eða önnur forrit til að skoða ferlana.
Fyrst smá upplýsingar um hvað GDB er í raun og veru. GDB stendur fyrir Garmin Data Base eða Garmin gagnagrunn. Þetta skráarsnið átti að leysa GPX af hólmi sem geymsluform fyrir ferla (e. Track), staðarpunkta (e. Waypoint) og rútur (e. Route). Þar sem GPX er XML staðlað form, getur það orðið óheyrilega stórt þegar margir ferlar eru saman komnir í eina skrá. Sem dæmi getur GDB skjal orðið næstum 10 falt stærra sem GPX skjal og töluvert þyngra í vinnslu. GPX er hinsvegar mikið notað þegar færa þarf á milli ýmsa skráarsniða t.d. fyrir mismunandi tegundir GPS tækja.
Þar sem ég veit að nokkrir hafa lent í vandræðum með að skoða ferlana og einnig lent í vandræðum með að koma þeim yfir lesanlegt form fyrir OziExplorer. Ozi býður upp á að lesa GPX skrár, en ekki GDB. Reyndar hafa tilraunir sýnt að Ozi virðist oft misskilja eða allavegana, ekki túlka GPX skjölin alveg rétt. Í þau hefur vantað ferla og ýmsar upplýsingar.
Ég fór á stúfana og skoðaði forritið GPSbabel.
Þarna er mjög einfalt að breyta GDB yfir í GPX, PLT eða hvaða annað skrársnið sem manni sýnist, svona upp að vissu marki. Það má lesa meira um það á síðu GPS babel sem ég vísaði í hér á undan.
Ekki skemmir úr vegi að GPSBabel keyrir á Windows, Mac Os X (hef ekki prófað það sjálfur) sem og, á mínu eftirlæti, linux.Uppsetning
Ef þú notar Windows, þá skellir þú þér bara á heimasíðuna http://www.gpsbabel.org/ og nærð í windows útgáfuna, setur hana upp og byrjar að notaÉg hef ekki prófað GPSBabel á Mac Os X en það ætti að vera mjög einföld uppsetning sem skýrir sig. Ef einhver er búinn að prófa það á Mac Os X mætti viðkomandi endilega láta mig vita svo ég geti uppfært þetta.
Ef þú ert að nota Ubuntu GNU/linux þá opnar þú útstöð (e. terminal) sem er undir applications -> Accessories.
Skrifar þar inn skipunina:sudo apt-get install gpsbabel
klárar uppsetninguna og þá ættir þú að vera með GPSbabel inni, flest öll önnur GNU/Linux kerfi sem hafa pakkakerfi t.d. Fedora með yum ættu að styðja þetta einnig, þó hef ég ekki prófað það.
Á síðunni býðst einnig að ná í kóðann í tarbolta og ætti að vera hægt að vistþýða forritið á flestum stýrikerfum sem byggja á *nix grunni. Ég ætla ekki nánar út í það.Windows
Notkun GPSBabel á windows stýrikerfinu er ósköp einföld.
Eftir að þú opnar forritið ætti gluggi að birtast með ýmsum valmöguleikum.
Inngangshlutinn (e. Input)
Fyrst, velur þú skráarsniðið sem þú vilt breyta frá, í okkar tilfelli GDB eða GPX, það er undir ‘format’ í efsta glugganum.
Síðan velur þú skránna sem þú vilt breyta, í okkar tilfelli B-f4x4.gdb (notaði hana sem test skrá)
Þú getur einnig valið hvort þú vilt ná í einstaka punkta, ferla eða rútur. Skiptir ekki máli í okkar tilfelli þar sem við erum einungis að vinna með ferla. Síðan eru fleiri valmöguleikar sem fólk verður að fikta með eftir sínu skapi. Fer ekki nánar útí það.Næst er það útgangs hlutinn (e. Output)
Þar gerir þú hið sama með ‘format’ hlutann, í okkar tilfelli veljum við OziExplorer. Hægt er að velja GPX eða hvaða annað skráarsnið sem forritið býður uppá, en við prófum með Ozi.
Næst er að velja skráarnafnið, (e. File Name). Þar í raun velur þú bara möppu, og skrifar svo nafnið á skránni sem þú vilt fá út. t.d. B-f4x4 og það kemur þá út sem B-f4x4.PLT.Þú vilt endilega nota valmöguleikann ‘pack’ ef þú ert að færa yfir í Ozi, annars færðu hvern feril sem eina skrá, og endar þar með einhverja tugi eða hundruði skráa eftir því hve margir ferlar eru í hverri skrá. Getur hentað stundum þó, til dæmis til að slíta í sundir skjal með mörgum ferlum.
Hér er síðan mynd af því sem ég var að kynna hér fyrir ofan. Til útskýringar, þó þarf sennilega að smella á myndina til að sjá hana í almennilegri upplausn.
[attachment=0:1lf1xgco]gpsbabel_windows.png[/attachment:1lf1xgco]Mac Os X
Þar sem ég hef ekki möguleikann á að prófa þetta á Mac Os X get ég ekki sagt neitt um það, en ég geri ráð fyrir að það sé annaðhvort grafískt viðmót eða skipanalínu viðmót. Hvort sem heldur er ætti önnur hvor útskýringin fyrir Windows eða linux að gilda.GNU/Linux
Þar sem ég sjálfur nota linux í mest alla vinnslu með GPS gögn og flest allt sem ég geri daglega, ætla ég að hafa einnig smá kynningu á því hvernig GPSBabel er notað í GNU/Linux.
Stærsti munurinn á Windows útgáfunni og Linux útgáfunni er sá að Linux býður bara upp á notkun í skipanalínu að sinni. En örvæntið ekki, man síðurnar segja ykkur helling sem og upplýsingar á vefsíðu GPSBabel.Ég vænti þess að flestir sem nota linux kannist við útstöðina (e. Terminal).
Þegar þú hefur opnað útstöð þá þarftu að fara í viðkomandi möppu sem geymir gdb skjalið sem breyta á.
Þetta er gert með cd skipuninni, í mínu tilfelli geymi ég ferlana undir Ferlun/Ferlar/Ferlasafn F4x4/cd Ferlun/Ferlar/Ferlasafn F4x4/
Næst er það að finna skránna sem við viljum breyta.
ls ./
Þá sjáum við á skjánum nöfnin á GDB skránum t.d. A-f4x4.gdb
Þá er komið að hinni torskiljanlegu skipun til að breyta gdb yfir í plt skjal.gpsbabel -i gdb -f A-f4x4.gdb -o ozi,pack -F A-f4x4.plt
Þá ætti að birtast skjal sem heitir A-f4x4.plt og má sjá með skipunnini
ls *.plt
Það sem birtist á skjánum ætti að vera
ulfr@ulfr-laptop:~/Ferlun/Ferlar/Ferlasafn f4x4/gpxplt$ ls *.plt
A-f4x4.plt
ulfr@ulfr-laptop:~/Ferlun/Ferlar/Ferlasafn f4x4/gpxplt$Það sem skipunin merkti var að:
gpsbabel (keyrir GPSBabel)
-i gdb (-i skrársnið inngangsskjals, í þessu tilfelli gdb skráarsniðið)
-f A-f4x4.gdb (-f skjalið sem við notum til að færa úr)
-o ozi,pack (skráarsniðið sem við viljum fá út, í þessu tilfelli ozi með aukaskipun pack sem gefur okkur alla ferlana í eitt skjal, ef pack skipunin er ekki notuð þá fáum við út eitt plt skjal fyrir hvern feril)
-F A-f4x4.plt (Nafnið á skjalinu sem kemur út sem plt skjal)Þetta ætti þá að vera komið. Ég ætla ekkert að fjalla um forrit til að skoða gögnin á linux þar sem það kallar á aðra eins grein ef ekki lengri.
Ég vona að þetta veiti mönnum smá innsýn í GPSBabel sem er stórsniðugt forrit fyrir alla þá sem hafa gaman af því að grúska í GPS gögnum. Ég tek vel í alla gagnrýni svo lengi sem hún er á málefnalegum nótum og þakkir eru alltaf vel þegnar. 😉
Vona að þetta gagnist fleirum!
23.09.2011 at 00:29 #736737Þó að vandamálið sé leyst, þá langaði mig að deila smá húsráði sem oft gleymist, hef lent í því oftar en einusinni að eldsneytistappinn fyrir tankáfyllingu hleypir ekki lofti í gegn. Þá hverfur öndunin og erfitt verður fyrir fæðidæluna að draga olíu úr tanknum.
kkv, Samúel.
22.09.2011 at 15:52 #737313Ótvíræður kostur við GPSBabel er einnig sá að það keyrir á flestum stýrikerfum í dag.
Til er pakkaútgáfa í amk ubuntu og má nálgast hana með skipuninni
‘sudo apt-get install gpsbabel’kkv, Samúel
22.09.2011 at 00:39 #737307Ein lausn, fá vin til að converta þessu í Mapsource yfir í GPX og þaðan yfir í Ozi.
Annars heyrði ég smáfuglana kvaka á þá leið að GPX skjölin væru mögulega í uppsiglingu, þori ekki að staðfesta eitt né neitt.
kkv, Samúel
21.09.2011 at 10:53 #736705Kynningarkvöldið er væntanlega í kvöld, miðvikudaginn 21.9?
Er komin einhver tala á þá sem eru skráðir í ferðina?
kkv, Samúel Úlfr
21.09.2011 at 00:23 #737547Sæll
Ég er með mapsource version 6.13.7 og get opnað þetta fínt.
Hvaða version ert þú með?
Mögulega er hægt að snara þessu yfir í GPS skráarsnið og opna það þannig í hvaða mapsource version sem er.
kkv, Samúel
20.09.2011 at 23:26 #737299Frábært framtak.
Nú þurfum við félagsmenn að vera virkir í starfinu! T.d með að finna rök með og á móti lokun/opnun einstaka leiða, sem og hugmyndum að betrumbætingu gagnagrunnsins og framsetningu hans.
Það eru nokkrir hlutir sem mér dettur strax í hug sem ég væri til í að sjá betrumbót á.
Möguleikann á stærri mynd af svæðaskiptingunni fyrir okkur sjóndöpru einstaklingana, hehe. T.d. sem PDF skjal, ef það er til.
Eyðublað með föstum reitum til að senda inn athugasemdir, eða ámóta gagnvirkt kerfi.
Fleiri vetrarferla, og betur uppfærða. Það væntanlega kemur en það byggist svolítið á því að við félagsmenn séum virkir að fara yfir þessa ferla og senda inn leiðréttingar ef við á og með góðum rökstuðningi.
Umræðu um hvert svæði/ferla innan þess svæðið eða einstakan feril.
Annars vil ég hrósa klúbbnum og þeim sem stóðu að þessu fyrir þetta frábæra framtak!
Kkv, Samúel Úlfr
08.09.2011 at 21:08 #736955Nú man ég ekki alveg hvernig fjöðrunarbúnaðurinn er að aftan í Grand vitara, en ef það er þverstífa þá myndi ég skoða hana vel sem og grindina í kringum þverstífuturninn.
Ef þetta er 4link með A stífu þá myndi ég skoða vel fóðringarnar þar. (efri stífan)
kkv, Samúel Úlfr
05.09.2011 at 13:18 #735611Þakka kærlega fyrir ferðina og vil minna á opið hús í Setrinu á vegum skálanefndar næstu helgi. (10.9.2011)
Tilvalið tækifæri til að skoða þessar fjallmyndarlegu stikur á leiðinni!
kkv, Samúel
02.09.2011 at 00:51 #736293Sæll, það fer svolítið eftir hvar þú ætlar að festa það, hvernig loftnet það er o.s.f.v.
Fyrir það fyrsta verður það að vera úr málmi, silfur væri best og þar á eftir gull en það er kannske ekki alveg praktískt.
Ef þú ert að spá í festingu sem festist á innanvert bretti eða einhvern vinkil undir loftnetsfót mæli ég með ryðfríu efni, hvað tæringarmyndun varðar.
Mikilvægt er að gera sér grein fyrir að staðsetning loftnets er afar krítísk og án efa best að staðsetja það sem næst miðju bíls á toppnum. Sé það ekki fyrir hendi skal amk reyna að hámarka málmflöt undir loftneti, og alls ekki gleyma að jarðtengja flötinn sem loftnetið hvílir á (sé hann ekki beintengdur við boddí/grind bílsins) og hafa þann vír eins stuttan og sveran og praktískt þykir.
kkv, Samúel Úlfr
-
AuthorReplies