Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
21.10.2016 at 00:48 #940956
Ekki ef þú ert með snorkel sem passar. Það eru til nokkrar útgáfur, Safari snorkelin passa víst best en það eru til aftermarket útgáfur sem passa jafnvel.
20.10.2016 at 23:04 #940955Opin hús hefjast klukkan 20:00 að staðartíma og ljúka oftast um 22:00.
Þetta er í Síðumúla 31, það er gengið inn bakatil, getur verið smá maus að finna en þetta er s.s. innkeyrslan hægra megin.
19.10.2016 at 23:32 #940952Velkominn í klúbbinn!
Beinu rásirnar (45,47-54) eru mest nothæfar milli bíla í sjónlínu eða allt að því. Endurvarparásirnar eru hentugar þegar þú þarft að ná lengra, t.d. 42, 44, 46 og 58. Þá ertu í raun að tala í gegnum endurvarpa sem sitja hátt uppi og hafa mun betri sjónlínu en þú.
Ég mæli einnig með að mæta á opin hús á miðvikudagskvöldum og vera ekki feiminn við að henda fram spurningum þar. Þannig komst ég inní klúbbinn á sínum tíma.Til að komast í radíóamatörana þarftu að sækja um hjá ÍRA (http://ira.is/) og þreyta námskeið. Slík námskeið eru alla jafnan haldin á haustin og auglýst um seinni part sumars eða snemma hausts.
11.07.2016 at 01:57 #938267Búið að prófa varalykil? Þetta hljómar eins og bíllinn sé ekki að lesa flöguna í lyklinum og þar af leiðandi ákveður að drepa strax á sér eftir ræsingu.
11.07.2016 at 01:55 #938266Þetta hljómar eins og eðlileg virkni, enda þarf heitur mótor ekki forglóðarhitun (eða ætti ekki að þurfa þess).
Það væri gott að vita meiri upplýsingar um hvaða árgerð af mótor þetta er.
12.04.2015 at 00:34 #778979Eðlilega, ef þú tekur loftnet með hærra Q en venjuleg loftnet, þá færðu slæma standbylgju utan þess tíðnisviðs sem það virkar. Það merkir samt *ekki* að það virki betur en loftnet með lægra Q á þeirri tíðni!
Flest commercial net eru gerð fyrir 10-15MHz bandbreidd og hafa þar af leiðandi lágt Q, en góða bandbreidd (útgangurinn svitnar ekki eins).
Commercial net mun að sjálfsögðu gefa þér örlítið betri nýtni en ekkert sérstaklega mikið m.v. Qið sem það hefur.
Eina leiðin til að mæla þetta af einhverju viti er að mæla útgeislað afl, annað gefur þér ýmsar mismunandi *misvísandi* niðurstöður.
10.03.2015 at 00:23 #777256Þessi tafla kom út i ruglinu. Þú gætir lagfært hana með því að kópípastað hana undir „Texti“ í ritlinum.
09.03.2015 at 14:48 #777251Það ætti að fylgja með skurðarmiðið sem segir til um lengdina.
Mig minnir að það sé 123cm (eða var það 132cm?) frá EFRI brún gormsins.Ef þú skoðar blaðið, þá ætti að vera mæling m.v. 153MHz. Sem er skurðartíðnin sem þú vilt miða við.
26.02.2015 at 20:28 #777028Eitthvað hefur fyrri póstur minn misfarist.
Mér tókst auðvitað að týna tölvupóstlistanum sem ég safnaði mér á námskeiðinu.
En hvað um það, ég set inn glærurnar hérna, þær segja eitthvað en ekkert á við að mæta á námskeiði sjálft.
Í lokin ætlaði ég að fjalla aðeins um ferilvöktun, og fylgja þær glærur með, ég náði því miður ekkert að fara yfir það en tek kannske sér kveld i það einhvern daginn.
(Er max file limit í alvörunni 5000KB? á hvaða öld lifum við eiginlega?
En fyrirlesturinn má finna hér.
17.02.2015 at 23:42 #776854Jæja. Þađ reyndist fàmennt en gòđmennt hjà okkur og mögulega mà kenna veđrinu um.
Èg held ađ allir hafi nù lært eitthvađ af þessu.
Ef einhverjir sem komust ekki hafa áhuga à öđru nàmskeiđi þà er èg til ef 6-10 manns fàst ì hòp til ađ mæta.
11.07.2014 at 05:59 #769958Eina skoðun mín á þessu er að þetta þverbrýtur fagurfræðileg viðmið, en það er alveg í lagi, jeppar eiga að vera praktískir. Ég myndi smíða einhverja grjótgrind yfir kælinn og reyna að verja hann eins mikið og mögulegt er.
2-4 púðar ættu að duga, en ég sé ekki afhverju 6 ætti að vera neitt verra, svo lengi sem þetta gefur dáldið mikið eftir og gæta að því að hafa gúmmíhosur eða sílikon hosur á milli þannig að víbringur frá mótor sé einangraður m.v. grind.
26.05.2014 at 15:31 #768885Nýtt framboð í Umhverfisnefnd.
Snorri Ingimarsson býður kost á sér í Umhverfisnefnd.
21.05.2014 at 10:07 #768714Það má einnig minnast á það að nú líður að aðalfundi Ferðaklúbbsins 4×4, og ekkert eins skemmtilegt eins og að bjóða sig fram í einhverja skemmtilega nefnd til að koma sér á fullt í starf klúbbsins og kynnast öllum þeim skemmtilegu aðilum sem vinna sjálfboðaliðastarf fyrir klúbbinn. 😉
21.05.2014 at 10:05 #768713Í stjórn
Sveinbjörn Halldórsson – formaður Gefur kost á sér áfram
Elín Björk Ragnarsdóttir – á 1 ár eftir.
Friðrik Halldórsson – á 1 ár eftir
Árni Bergsson – Gefurkost á sér
Samúel Þór Guðjónsson – Gefur ekki kost á sér.
Gunnar Ingi Arnarson – Gefur kost á sér í stjórn
Varamenn
Bæring Björgvinsson – Gefur kost á sér
Logi Már Einarsson – Gefur kost á sér
Rúnar Sigurjónsson – Gefur kost á sérUmhverfisnefnd
Hjörtur Sævar Steinason.- Gefur kost á sér.
Þórarinn Garðarsson. – Gefur kost á sér.
Anna Brynhildur Steindórsdóttir. – Gefur ekki kost á sér.
Jón Guðmundsson. – Gefur kost á sér.
Jón G Snæland. – Gefur kost á sér.
Trausti Gylfason. – Gefur kost á sér.
Bergur Pálsson. – Gefur kost á sér.
Snorri Ingimarsson – Gefur kost á sér.Fjarskiptanefnd
Kjartan Gunnsteinsson – Gefur ekki kost á sér.
Snorri Ingimarsson – Gefur ekki kost á sér
Hlynur Snæland – ?
Jóhannes Jónsson – ?
Sigmundur Sæmundsson – Gefur kost á sér
Árni Þór Ómarsson – Gefur kost á sérSkálanefnd
Rúnar Sigurjónsson – Gefur ekki kost á sér
Logi Már Einarsson – Gefur ekki kost á sér
Jón Emil Þorsteinsson – Gefur ekki kost á sér
Guðmundur Geir Sigurðsson – Gefur kost á sér
Ómar Wieth – Gefur kost á sér
Styrmir Frostason – Gefur kost á sér
Jón Óskar Valdimarsson – Gefur kost á sér
Baldur Harðarson – Gefur kost á sér
Einar Sólonson – Gefur kost á sérVefnefnd
Hafliði Sigtryggur Magnússon – Gefur kost á sér.
Sigurður Bjartmar Sigurjónsson – Gefur kost á sér.Skemmtinefnd
Einar Sólonsson – Gefur kost á sér.
Ágúst Birgisson – Gefur kost á sér.
Guðmundur Sigurðsson – Gefur kost á sér.
Kristján Gunnarsson – Gefur kost á sér.
Sveinbjörn Halldórsson – Gefur kost á sér.
Logi Ragnarsson – Gefur kost á sér.Litlanefnd
Gnýr Guðmundsson – eitt ár eftir
Þórarinn Guðjónsson – eitt ár eftir
Baldur Steingrímsson – eitt ár eftir
Pétur Hans Pétursson – búinn, gefur ekki kost á sér
Sigurður Pálmason – búinn, gefur ekki kost á sér
Sigurður G Magnússon – gefur kost á sér
Árni Braga – gefur kost á sérHúsnæðisnefnd
Einar Sólonsson – Gefur kost á sér sem formaður húsnefndar.Hjálparsveit
Pétur Þórðarson – Gefur kost á sér
Stefán Baldvinsson – Gefur kost á sér
Hjörtur Steinason – Gefur kost á sér
Gunnar Hróðmarsson – Gefur kost á sér
Baldur Harðarson – Gefur ekki kost á sér
20.05.2014 at 23:32 #768712Sæl öll. Nú líður að aðalfundi. Skipa þarf í nefndir klúbbsins. Þeir aðilar sem áhuga hafa á að gefa kost á sér í nefndarstörf vinsamlega hafið samband við formenn nefnda. Ef farið er inn á „NEFNDIR“ á forsíðu og valin nefnd þá eru upplýsingar þar að finna.
Eftirfarandi nefndir og einstaklingar skulu tilkynna þáttöku í nefndum.
Stjórn
Ferðafrelsisnefnd
Ferlaráð
Fjarskiptanefnd
Hjálparsveit
Húsnæðisnefnd
Hústrukkanefnd
Litlanefnd
Ritnefnd
Skálanefnd
Skemmtinefnd
Tækninefnd
Umhverfisnefnd
Ungliðanefnd
Vefnefnd
17.05.2014 at 16:51 #768398Velkominn í klúbbinn! Flottur Hilux, þeir eru seigir og traustir bílar, gangi þér vel með gripinn!
Endilega kíkja á opin hús og taka þátt í starfi klúbbsins, það er margt skemmtilegt í gangi, og þó vetur sé nú liðinn þá er starfið framundan í sumar margþætt, sérstaklega í landgræðsluferðum, stikuferðum og vinnuferðum í Setrið sem verða klárlega skemmtilegar!
08.04.2014 at 01:09 #456319Vélar ná þessu alltaf nákvæmara myndi ég halda.
Er ekki viss um að þú finnir þetta undir þessu verði hér heima, gætir prófað t.d. Fossberg.
(Myndi samt kanna fraktina á þessu áður en þú pantar…)
06.03.2014 at 12:15 #453713Töff!
Það er mjög hentugt að geta merkt auglýsingar að hlutirnir séu seldir, eða að maður hafi fundið það sem maður leitar að þegar óskað er eftir einhverju.
06.03.2014 at 12:11 #453712Bjarni, fáðu þér bara alvöru reiðhjól, þá kemstu auðveldlega uppí Breiðholt sama hvernig viðrar!
Annars mæli ég með því að hleypa úr þar til þú drífur!
P.s. Mig rámar eitthvað í að hafa séð reiðhjól með drifi að framan og aftan á jeppasýningu fyrir mörgum árum við hliðinná Ýktum, er þetta ímyndun í mér?
21.02.2014 at 09:39 #452730it’s also worth the try to use „smaauglysingar“ section in the forums here to advertise for fender flares that would fit your car. Someone might have some used one for sale.
-
AuthorReplies