FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Samúel Þór Guðjónsson

Samúel Þór Guðjónsson

Profile picture of Samúel Þór Guðjónsson
Virkur síðast fyrir 8 years, 7 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 141 through 160 (of 1,024 total)
← 1 … 7 8 9 … 52 →
  • Author
    Replies
  • 24.09.2012 at 12:49 #757973
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Þetta eru ágætis vangaveltur, og hægt að spekúlera hvað sé að valda því að klúbburinn sé að lognast útaf, ef fólki finnst það. Mér finnst satt að segja vera nokkuð líf í félagsskapnum enn, að minnsta kosti sýndi nýyfirstaðin vinnuferð með Skálanefndinni uppí Setri það! :)

    En alltaf má betur gera og klúbburinn á alveg að sæta (málefnalegrar) gagnrýni og endurskoðunar, enda verða hlutirnir ekki betri nema um það sé rætt. Þess má geta að spjallið er nú opið öllum, ekki bara félagsmönnum. Þó að Innanfélagsmál séu enn bara sýnileg þeim sem eru skráðir meðlimir.
    Vil einnig skora á félagsmenn sem [b:3ixz1950]ekki sjá Innanfélagsmálin að hafa samband við Vefnend til að fá úrlausn sinna mála.[/b:3ixz1950]
    Það sem gerir félagstarf í svona klúbb öflugt, er áhöfnin um borð, því veltur það einnig á félagsmönnum að taka þátt í að móta klúbbinn til framtíðar, og taka þátt í að efla hann með því að skipta sér af félagstarfinu, taka þátt í vinnuferðum, mæta á fundi og kíkja á opin hús, bjóða sig fram í nefndir og skipta sér af. :)

    Eftir því sem ég best veit er slóðinn uppá Fimmvörðuháls lokaður sökum deilna landeiganda varðandi staðsetninguna á veginum, mér skilst að hann vilji fá veginn frá heimkeyrslunni sinni, ósköp skiljanlegt sjónarmið útaf fyrir sig. En ég veit ekki nógu mikið um það til að geta fullyrt neitt um það.

    Varðandi utanvegaakstur og akstur á tímum aurbleytu, þá veit ég ekki til þess að það sé mikið af þeim aðilum í stjórn eða nefndum sem eru þungaviktamenn í ferðaþjónustu akstri. Persónulega er ég á móti því að menn aki þegar vegir eru lokaðir en á hinn bóginn finnst mér Vegagerðin stundum annsi kræf á að loka vegum sem eru fullfærir. Ég ætla mér þó ekki að vera að úthúða ferðaþjónustu aðilum í heild sinni, það eru svartir sauðir á öllum stöðum þjóðfélagsins og sjálfsagt eru flestir ferðaþjónustuaðilar ábyrgir ferðamenn. Flestum þykir nú vænt um landið sitt.

    Ég get tekið undir að félagslífið virkar oft dauft á köflum, opin hús hafa verið hálf dræm undanfarið. Það er stefna stjórnar Ferðaklúbbsins og Húsnefndar að efla opin hús í vetur og reyna að gera þau meira spennandi, að þau hafi það aðdráttarafl og ljóma sem þau eitt sinn höfðu.
    Séu einhverjir sem hafi áhuga á að taka þátt í að hressa uppá Opin hús hvet ég viðkomandi að setja sig í samband við stjórnina og/eða Húsnefnd. :)

    Sean: Ég er alveg sammála þér varðandi þitt innlegg, persónulega fannst mér þetta mistök á sínum tíma, en athugum samt að stjórn þess tíma glímdi við erfiða ákvörðun og hér logaði allt í illdeilum. Við skulum reyna að gera spjallið að betri stað. Reyndar finnst mér þær umræður sem hafa orðið hve fjörugastar hér undanfarið hafa farið afskaplega málefnalega fram.

    Jæja, ég læt þessa langloku duga í bili, áður en ég fer að þvaðra um og of. :)
    Virðingarfyllst, Samúel Ú. Þór, stjórnarmeðlimur í Ferðaklúbbnum 4×4.





    20.09.2012 at 23:23 #757513
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég mæti + eitt stykki frændi. Verðum því 2 í bíl og stefnum á að leggja af stað úr bænum uppúr 18:00 að staðartíma og stefnan sett á Gljúfurleitin. Á hvaða rás verða menn? Ef einhvern vantar far er pláss fyrir 2 netta í bílnum hjá mér, en ég vara samt við að þetta er bara 4runner :(





    20.09.2012 at 12:45 #757343
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Stjórnin sem slík er ekki að vinna að þessu, en þetta er allt saman í ágætis ferli. Á von á því að athugasemdunum verði skilað inn á Mánudaginn næstkomandi ef ekki fyrr. :)





    12.09.2012 at 20:41 #757477
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég hef hug á því að koma uppeftir aðra helgi (21-23) en kemst ekki þá næstu..





    04.09.2012 at 11:14 #757307
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég er byrjaður að týna saman greinar úr breytingartillögunni sem við þurfum að skoða. Ágætt væri ef meðlimir á spjallinu sæju sér fært að aðstoða við þá vinnu sem það er að yfirfara þessi lög, með málefnalegri umræðu á spjallinu.

    Hér er hægt að ná í skjölin frá mér: https://www.dropbox.com/sh/sjo6lfpumwlvax3/DGAmY24mxc

    Endilega gera athugasemdir.

    Greinar sem ég er búinn að reka augun í sem skipta okkur máli eru t.d

    Áhugaverðar greinar sem mögulega snerta F4x4 í nýjum náttúruverndarlögum

    Ákvæði til bráðabirgða.
    12. gr. Fræðsla.
    13. gr. Yfirstjórn ráðherra og hlutverk stofnana.
    17. gr. Umhverfisþing.
    18. gr. Réttindi og skyldur almennings.
    19. gr. Umferð gangandi manna.
    20. gr. Umferð hjólandi manna og ríðandi (?)
    22. gr. Heimild til að tjalda.
    23. gr. Takmarkanir á heimild til að tjalda.
    25. gr. Takmörkun umferðar.
    29. gr. Úrlausn um ólögmætar hindranir.
    30. gr. Heimildir til að bæta aðstöðu til útivistar.

    Og þetta sérstaklega:
    [b:2vikoczw]V. kafli. Akstur utan vega og á vegslóðum.[/b:2vikoczw]

    31. gr. Akstur utan vega og á vegslóðum
    32. gr. Kortagrunnur um vegi og vegslóða

    IX. kafli. Friðlýsing vatna- og jarðhitasvæða og fleira.

    90. gr. Spjöll á náttúru landsins
    91. Grein – Refsiábyrgð

    Hér má svo finna Árósasamninginn
    http://www.althingi.is/altext/126/s/1032.html

    kkv, Samúel





    03.07.2012 at 19:08 #755391
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Það eru í grunnin þrjár tegundir loftneta sem menn eru að nota fyrir VHF; 5/8 bylgjulengd sem eru þessir "löngu" toppar með lítillri spólu neðst; 1/4 bylgjulengd sem eru "stuttar" stangir (46cm c.a.) og með enga spólu undir (en geta þó verið með gormi, sem er ekki það sama og spóla); dípól net sem eru með rosalega háar gain tölur og virka hundruði kílómetra og yfir öll fjöll og uppúr öllum dölum og ég veit ekki hvað og hvað, en þurfa ekki "groundplane" (stál undir sér til að mynda hinn hlutann á loftnetinu). Það merkir það að loftnetið getur verið staðsett nánast hvar sem er á bílnum án þess að útgeislikúrfan breytist mikið.

    Þess má geta, fyrir þá sem vilja vita meir, að hefðbundið 1/4 net hefur mikla geislun upp, sem hentar vel í samskiptum í gegnum endurvarpa. Þó má benda á að endurvarpinn er yfirleitt mun betur staðsettur en maður sjálfur svo munurinn á milli 1/4 og 5/8 er tæplega mælanlegur. Það hefur þokkalega bandbreidd (lægra VSWR yfir breiðara tíðnisvið) og ávinning uppá um ~2dBi (fer mikið eftir hve gott groundplane er undir því)

    5/8 hefur flatari útgeislunarkúrfu, hentar verr fyrir endurvarpa (en dugar okkur þó vel), þrengri bandbreidd, sem merkir hærra VSWR á endurvarpatíðnum en betra VSWR á beinu rásum, eða eftir því hvernig netið er skorið.
    Ávinningur er um ~4dBi (fer mikið eftir groundplane)

    Dípól net er í raun bara 2x 1/4 bylgjulengdar net þar sem vír upp og vír niður mynda dípólinn á móti því að stöngin i mótvægi við þak bílsins mynda loftnetið í fyrsta dæminu. Ávinningur er 2.15dBi

    Þess má geta að 3dB munur á merki er tæplega heyranlegur, en getur þó haft ýmislegt að segja þegar merkin eru orðin mjög dauf. Fyrir þá sem ekki þekkja dB skalann, þá er hann lógórithmískur, og tvöföldun á afli eða merkisstyrk eru 3dB.

    kkv, Samúel úlfr





    03.07.2012 at 13:07 #755387
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Stutt svar: Það á alltaf að standbylgjumæla eftir loftnetsísetningu ef það er hægt!
    Standbylgja á 5/8 neti á að vera 0.1-3W af 25W út m.v. að stillt sé á beina rás (ekki endurvarpa)
    Mig minnir að það sé um 122,8cm frá spólu.
    Ef þú færð hærri standbylgju, t.d. 4W + þá er netið vitlaust skorið eða annað að!
    Það getur haft áhrif ef málmhlutir eru nálægt loftnetinu,. t.d. kassar á topp eða annað.

    Gæta þess einnig að loftnetsbotninn nái góðri jörð.

    kkv, Úlfr





    12.06.2012 at 00:28 #755011
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Gróflega áætlað og miðað við minni, þá minnir mig að 4l I6 mótorinn sé rúmlega 300kg og 3Vezen sé um 220kg eða um það bil sama og 350 með áli heddum og þessháttar. Þetta er það sem mig minnir, sjálfsagt skeikar þetta einhverju. Minnir líka að þetta sé með dótinu utaná en ekki tómur mótor, en aftur, minnið gæti verið að svíkja mig.
    Það var fín síða með þessum upplýsingum á, en ég virðist ekki geta fundið hana núna.

    kkv, Samúel Úlfr





    03.06.2012 at 11:06 #754701
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Þetta er dálítið opin spurning, og mörg svör við henni til.

    Þú gætir náð í kort af vef Landmælinga í lágri upplausn á jpeg formi til að skoða eingöngu, eða keypt kort af Garmin til að nota Mapsource til að skoða landslagið. Kortið frá Garmin er vektor kort og gefur möguleikann á að leita að staðarheitum, götuheitum og fleira. Persónulegra er ég hrifnari af kortum landmælinga.

    Ef þú ert að leita að kortaplotter til að keyra eftir þá þarftu GPS tæki sem þú getur tengt við tölvuna annarsvegar og forrit sem býður upp á þann möguleika. Þau eru mörg til og hafa misjafna eiginleika. T.d. NRoute frá Garmin, OziExplorer (mitt persónulega uppáhald), eða Navtrek. Til að geta notað OziExplorer þarftu að finna þér kaliberuð kort. Ozi kostar einhverja örfáa dollara en er alveg þess virði, en hægt er að fá fría útgáfu til prófunar.

    kkv, Samúel





    06.03.2012 at 19:08 #751161
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég myndi veðja á fastan segulrofa. Prófa að fara yfir þá og ef einhver þeirra er volgur viðkomu, prófaðu þá að kippa honum úr sambandi. Þetta verður að sjálfsögðu auðveldara ef þú ert með rafmagnsteikningar af viðkomandi bíl.

    Jarðsamband finnst mér hæpið, enda líklegra að bíllinn myndi þá drepa á sér í tíma og ótíma eða hreinlega ekki fara í gang. Þó myndi ég ekki algjörlega útiloka það, en það væri þá einhverstaðar nærri þessum stýringum.

    Hvernig drepur þú á bílnum þá? Tekur strauminn af geymnum, þá deyr á honum svo þegar straumurinn er settur aftur á er vandamálið horfið?

    kkv, Samúel Úlfr





    22.02.2012 at 12:27 #222678
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Sælir félagar, datt í hug að vekja athygli á þessu fyrir ykkur sem hafa áhuga á að þreyta próf til amatörs.

    http://ira.is/pages/viewpage.action?pageId=5178418

    Það er s.s. próf 28. Apríl næstkomandi, og verða fyrir það einhver upprifjunarkvöld, síðan er stefnt á að halda námskeið næstkomandi haust.

    Hvet þá sem hafa hafið námskeið og hætt á lokametrunum eða telja sig hafa næga þekkingu á efninu að kanna þetta.

    kkv, Samúel Úlfr (73 de TF2SUT)





    16.02.2012 at 10:21 #750077
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég held að menn eigi nú ekki að líta svo á að þeir séu skyldugir til að halda sig utangátta og innan á sínum deilarþráðum, hinsvegar er má líta svo á að þarna fá deildirnar sitt "pláss" til að skjóta inn þráðum sem tengjast meira sinni deild, ræða sín á milli og svo geta að sjálfsögðu allir almennir félagsmenn fylgst með því og tekið þátt í umræðunni.

    Séu menn frekar sáttir við að nota almenna spjallið undir þræði sem tengjast frekar deildunum, er það sjálfsagt mál að nýta það. Vefsíðan er fyrir félagsmennina sem nota hana og um að gera að skjóta athugasemdum að sem fyrst, í þessu opna samráðsferli, svo ekki þurfi að gera athugasemdir við breytingar sem þegar er búið að gera. 😉

    kkv, Samúel





    12.02.2012 at 02:35 #749342
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Líst vel á þetta hjá ykkur! Glæsilegt framtak, stefnir í spennandi ferð.
    Annars er þetta ekkert mál með bingóspjöldin, bara ljósrita nóg… 😉
    Það fer að stefna í að maður verði að hafa með sér smíðaefni og hefja viðbyggingu við Setrið til að komast með í ferðir! :) (Eða breyta setu í matsal/gestahús haha)

    Svo er það að sjálfsögðu hughreystandi fyrir Setursfara að Kvennaferðin verður inná hálendi og því ekki langt að sækja aðstoð ef illa gengur að komast inní Setur.

    kkv, Samúel Úlfr





    23.01.2012 at 12:08 #746405
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Prófaði rás 58 um daginn. Var uppá Háaleitisbraut og náði ágætu sambandi við Hlöðufellið. Sá sem ég ræddi við var niður í Grímsnesi norðan Selfoss.

    Er eitthvað að frétta af rás 46 í Bláfjöllum?

    kkv, Samúel Þór





    23.01.2012 at 10:04 #747935
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Álagsaukningin af völdum millileggjanna (e. spacer) er hverfandi m.v. breikkun felgunnar. (úr 8" yfir í 13-14" :) Ef maður er að hugsa þetta fyrir 38" með c.a. 13-14" breiðri felgu ætti þetta að vera lítið mál. Persónulega myndi ég reyna að komast hjá því að nota millilegg, en ef þetta er þokkaleg smíði þá ætti það ekki að vera neitt vandamál ef rærnar eru hertar rétt.

    kkv, Samúel.





    08.12.2011 at 18:54 #742909
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég held að menn þurfi aðeins að slappa af. Við getum ekki bæði verið að berjast innbyrðis sem og út á við, það eyðir öllum kröftum og er einungis til þess fallið að draga úr þreki viðkomandi aðila sem standa í þessu.

    Það er mikið í gangi, og á eftir að koma betur í ljós á næstunni. Ég og Didda áttum t.d. ágætan fund með Samgöngu- og umhverfisnefnd á miðvikudagsmorgun ásamt fulltrúum Útivistar og FÍ. Augu stjórnvalda virðast vera að opnast hægt og rólega fyrir mikilvægi þess að samráð sé haft við alla hópa. Við megum ekki gleyma því heldur að náttúruvernd tengist ekki bara okkar hagsmunahópum heldur einnig skógræktarfélögum, náttúrufræðistofnunum og þess háttar hópum.

    Ég mæli með að fólk lesi umsagnirnar sem komið hafa fram á vef Alþingis er varða ný náttúruverndarlög. Þarna er meðal annars kallað á akstursbann á Langjökli. Þetta verður að taka alvarlega og skoða til hlítar.
    [url=http://www.althingi.is/dba-bin/erindi.pl?ltg=140&mnr=225:2hyq4rqr]Hér má sjá umsagnir þeirra sem sent hafa inn.[/url:2hyq4rqr]
    Þess má geta að okkar athugasemdir eru ekki þarna inni, en engu að síður hafa þær komist til nefndarinnar í gegnum fundinn sem ég minntist á hér að ofan.

    Það er líka þannig að mikið mæðir á fáum einstaklingum sem eru að vinna að þessum málum, samanber hvítbókina, það vantar fleiri til að lesa yfir og skoða þessi mál. Við erum því miður ekki öll lögfræðilega menntuð og ekki með stjórnsýslukerfið á tæru en það vantar meiri mannskap. [b:2hyq4rqr]Því hvet ég alla þá sem hafa áhuga á málinu að skipta sér af eins og þeir geta, lesa hvítbókina, finna athugasemdir sem við eiga og koma þeim á framfæri við stjórn, umhverfisnefnd eða ferðafrelsisnefnd.[/b:2hyq4rqr]
    Það er líka mikið meiri kraftur í því ef samtök senda frá sér umsagnir, mótmæli eða athugasemdir heldur en ef einstaka aðilar séu að því, án þess að ég sé að mæra það starf, allt hefur einhverskonar áhrif og ættu einstaklingar vel að geta sent inn athugasemdir og haft áhrif.

    Ég vil þó biðja alla um að vera málefnalegir og reynum að aðstoða hvort annað í að koma okkar sjónarmiðum á framfæri. Sameinuð stöndum við, en sundruð föllum við.

    kkv, Samúel Úlfr Þór.





    06.12.2011 at 01:16 #743139
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Fínn fréttaflutningur hjá þér Hjörtur! þakka þér kærlega fyrir það.

    Ferðin tókst í heildina ágætlega þrátt fyrir ýmis vandræði.
    Ég held að flestir ef ekki allir hafi lært eitthvað af þessari ferð. Auðvitað er það miður að sumir hafi lent í meiri vandræðum en aðrir en því miður er sú hætta fyrir hendi í þessum jeppaferðum að alvarlegar bilanir koma fyrir og erfiðarar er að eiga við þær þarna upp frá.

    [b:1oze3gen]Myndakvöld verður haldið næsta fimmtudag á opnu húsi, sem hefst klukkan 20:00 og hvet ég alla þáttakendur ferðarinnar til að kíkja við og blanda geði og sýna myndir. Tölva verður á staðnum og skjávarpi og eina sem menn þurfa að gera er að mæta með myndirnar sýnar á USB lyklum[/b:1oze3gen]

    Áhöfnin á Undanfara II, Samúel Úlfr & Andrea Ágústa, þakka kærlega fyrir ferðina enn og aftur. :)





    30.11.2011 at 00:07 #742523
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Leitt að heyra Árni, við sjáumst þá bara hressir síðar!

    Vil benda á að þar sem nóg er af plássi eru gamlir nýliðar velkomnir með!
    Kynningarkvöld fyrir ferðina verður haldið Miðvikudaginn 30. Nóv, kl 20:00 í félagsheimili 4×4 að Eirhöfða 11

    Kkv, Samúel Úlfr





    29.11.2011 at 02:27 #742517
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Nú fer að styttast í ferðina, kynningarkvöldið [b:1m07thiy]hefst stundvíslega klukkan 20:00 á miðvikudaginn næstkomandi [/b:1m07thiy]í félagsheimili klúbbsins að Eirhöfða.

    [b:1m07thiy]Skráning lýkur á Miðvikudagskvöld![/b:1m07thiy]

    Fararstjórar eru eftirfarandi:
    Samúel á 44" 4Runner grænn
    Stefán á 38" Pajero
    Pétur á 38" Comanche rauður og svartur
    Hjörtur á Jakanum 49" Ford/Chevy, Hvítur

    kkv, Samúel





    26.11.2011 at 14:44 #742511
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Klárlega ein af skemmtilegri ferðum sem ég hef farið eru nýliðaferðir, og eru þetta stórfínar ferðir til að læra að aka jeppanum sínum í snjó þar sem reynir á ökumann og jeppa.

    Hlakka til að sjá sem flesta og ekki vera feimin við að skrá ykkur eða senda okkur fyrirspurnir á samuel@ulfr.net eða hjalparsveit@f4x4.is ef þið hafið efasemdir um að þið náið kröfunum sem settar eru fram!

    kkv, Samúel





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 141 through 160 (of 1,024 total)
← 1 … 7 8 9 … 52 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.