Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
31.10.2012 at 00:04 #759283
Eitthvað hafa samningar varðandi veðurfarið gengið illa eftir. Hefur því verið ákveðið að fresta ferðinni fram til fyrstu helgar í Desember (eða þeirrar seinustu í Nóvember?) [b:1lolemgy] 30. Nóvember til 2. Desembers[/b:1lolemgy]
Kynningarkvöld verður haldið fyrir ferðina, nánar auglýst síðar. Verð fyrir ferðina verður stillt í hófi, reiknað er með að ferðin kosti um 5000kr og er það með gistingu og sameiginlegri máltíð á laugardagskveldinu.
Reiknað er með að opið verði pláss fyrir um 15-20 bíla, hámark 2 í bíl.
[b:1lolemgy]
Ferðaplan eins og það lítur út í dag (athugið, að það gæti breyst, og er ekkert endanlegt fyrren ferðin verður farin):[/b:1lolemgy]30. Nóvember:
Opinberlega verður lagt af stað á milli 17:00 og 18:00 frá Skeljungi á vesturlandsvegi, farði verður beint uppí Setur, líklega Sóleyjarhöfðann.
Þó verða undanfarar sem fara af stað uppúr hádegi, þeir sem kjósa heldur að taka sér frí eftir hádegi og aðstoða við að kynda upp skálann fyrir hinum er velkomið að slást með í för.1. Nóvember.
Túristaferð í kringum Setrið. Grillað að kveldi og nýliðar fræddir um yfirburði Toyota fram yfir aðra bíltegundir (Eða allavegana í þá átt).2. Nóvember.
Skemmtilegasta heimferðin.
25.10.2012 at 14:25 #759771Við megum ekki líta á þennan samning sem eitthvað endanlegt plagg, né að þetta sé einhver eilífðarbinding fyrir ferðaklúbbinn, við leyfum þessu að þróast og gerjast meðal félagsmanna í vetur, síðan þarf að endurskoða þetta mál í vor, og kanna hvort breytinga sé þörf á samningnum, hvort áhugi sé fyrir því að halda þessu samstarfi áfram og svo framvegis.
Persónulega finnst mér ýmislegt þurfa að breytast í samningnum, og það er eitthvað sem vert er að skoða í vetur.
Mér finnst hinsvegar alveg kórrétt að skrifa undir, enda setur það ákveðna festu í málið, og tryggir að það verði áframhaldandi vinna við verkefnið.
24.10.2012 at 23:39 #759717Fyrir utan allt lagalega bullið í kringum þetta, þá þarftu að gæta að því að einhver geti forritað stöðina, að hún ráði við tiltekið tíðnisvið og hvort hún styðji ýmsa fídusa t.d. sítóna.
20.10.2012 at 14:29 #759079Ég myndi nú ekki fara alveg á límingunum þó ekki séu komnar upp auglýsingar fyrir stórferðina. Hún hefur verið undanfarið og engin lát á því. 😉
Í atburðardagatalinu hér á síðunni má sjá að Stórferðin er áætluð þann 15-17 mars.
18.10.2012 at 19:46 #759443Annars svona í fullri alvöru.
Áttu við aukarafkerfi í bíl? Ef svo er, þá er eiginlega engin leið að finna ákveðna teikningu af því. Þetta er eitthvað sem maður verður að setjast niður og pæla í hvern bíl fyrir sig.
18.10.2012 at 19:43 #759441Hér er smá auka-rafmagn.
[img:ai1p3mnx]http://blogs.dickinson.edu/mindmeetsmatter/files/2010/11/circuit.gif[/img:ai1p3mnx]
17.10.2012 at 14:24 #224677ATH Breytingar!
Nýliðaferð Ferðaklúbbsins 4×4 verður haldin helgina 30. Nóvember til 2. Desember. Ef færð og veður verður orðið nógu slæmt. Stefnan er tekin á Setrið, sem staðsett er undir Hofsjökli.Nánari ferðatilhögun, skráning, verð, veður og fleira verður auglýst síðar.
Verð um 5000kr per mann. Innifalið, gisting í Setri, sameiginleg máltíð á laugardagskveldi. Annan mat, drykki, nesti ofl taka menn með sér sjálfir.
Pláss er fyrir 15 bíla.
Skilyrði:
Vera greiddur meðlimur í F4x4. (Getið haft samband við Rögnu á skrifstofu klúbbsins ef þið viljið skrá ykkur í klúbbinn)
Jeppinn þarf að vera búinn VHF talstöð, GPS tæki með korti eða kortaplotter, skófla og spotti.
Hámark 2 í bíl!Þyngdartakmarkanir.
undir 2.000 kg 35″ dekk eða stærra
2-3 tonn, 38″+
3 tonn, 44+
Þetta miðast við c.a. eiginþyngd, ef þáttakendur eru ekki vissir hvort þeir séu gjaldgengir, ekki vera feimnir að spyrja hér á þræðinum eða í email til hjalparsveit@f4x4.isPóstið með skráningu:
Nafn
Farþegi já/nei
félagsnúmer
bíltegund og dekkjastærð
12.10.2012 at 11:09 #757521Um þessa grein má ýmislegt segja. Flestir sem eru á móti umhverfisspjöllum hljóta að fagna þessari grein, en því miður virðist sem svo að gleymst hafi algjörlega, að fleiri en bara ökumenn geta valdið tjóni á náttúrunni og í raun er næstum hægt að sjá að þarna felist ákveðið hatur í garð ákveðinna útivistahópa. Fyrir utan það hve slæm skilgreining á brotinu er! Þarna er verið að fela dómara algjörlega að ákveða hvað sé vítavert og hvað ekki.
Miðað við reynslu úr umferðarlögum, þar sem svipað ákvæði er til staðar varðandi eignarupptöku ökutækja vegna vítaverðs aksturs og/eða ölvunaraksturs þá er ekki hægt að fella dóm eins og ákvæðið er núna. Þar þurfti umtalsvert skýrari mörk en voru til staðar í upphafi þegar sú grein var samin.
12.10.2012 at 11:06 #757519[b:319vp537]91. gr. Refsiábyrgð.[/b:319vp537]
Brot gegn lögum þessum og stjórnvaldsfyrirmælum settum samkvæmt þeim varða
sektum eða fangelsi allt að tveimur árum. Nú hljótast af broti alvarleg spjöll á náttúru
landsins og skal brotamaður þá sæta sektum, að lágmarki 350.000 kr., eða fangelsi allt að
fjórum árum. Lágmarksfjárhæð sekta skal taka mánaðarlegum breytingum samkvæmt
vísitölu neysluverðs. Gera má jafnt lögaðila sem einstaklingi sekt vegna brota á lögum
þessum. Sektir má ákvarða lögaðila þótt sök verði ekki sönnuð á fyrirsvarsmenn eða
starfsmenn hans. Sektir renna í ríkissjóð.
Þegar alvarleg spjöll verða á náttúru landsins við akstur eða hann telst sérlega vítaverður
að öðru leyti má gera upptækt með dómi vélknúið ökutæki sem notað hefur verið við
framningu brots gegn ákvæðum laga þessara, nema ökutækið sé eign manns sem ekkert er
við brotið riðinn.
Tilraun til brota og hlutdeild í brotum gegn lögum þessum og reglugerðum sem settar
eru samkvæmt þeim er refsiverð eftir því sem segir í III. kafla almennra hegningarlaga.[b:319vp537]Greinargerð:[/b:319vp537]
[b:319vp537]Um 91. gr. [/b:319vp537]
Greinin fjallar um viðurlög við brotum gegn ákvæðum frumvarpsins. Tekur hún mið af þeim
breytingum sem gerðar voru á ákvæðum gildandi laga með lögum nr. 20/2012. Breytingarnar
lutu m.a. að þyngri refsingum ef alvarleg spjöll hljótast af broti, sbr. 2. og 3. málsl. 1. mgr.
greinarinnar. Sérstaklega er tekið fram að sektir megi ákvarða lögaðila þótt sök verði ekki
sönnuð á fyrirsvarsmenn eða starfsmenn hans. Ýmis dæmi eru um ákvæði um refsiábyrgð án
persónulegrar sakar í íslenskum rétti, en sem dæmi má nefna 35. gr. laga um rannsóknir og
nýtingu á auðlindum í jörðu nr. 57/1998, og 32. gr. laga um leit, rannsóknir og vinnslu
kolvetnis nr. 13/2001.
Rétt er að geta þess að í 179. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 er mælt fyrir um
refsinæmi meiri háttar brota gegn lagaákvæðum um verndun umhverfis og hefur greinin að
geyma þrenns konar verknaðarlýsingu. Ákvæði 3. tölul. þeirrar greinar tekur til þess þegar
valdið er verulegu jarðraski þannig að landið breytir varanlega um svip eða merkum
náttúruminjum er spillt. Refsimörk greinarinnar eru fjögurra ára fangelsi. Í þessari grein
almennu hegningarlaganna er áskilið að háttsemin sé andstæð umhverfislögum og er miðað
við gildandi lög til verndar umhverfi og náttúru á hverjum tíma. Háttsemin gæti þannig einnig
leitt til refsiábyrgðar á grundvelli viðkomandi laga en ef um er að ræða alvarlegt brot eða
„meiri háttar“ verður það fellt undir 179. gr. almennra hegningarlaga.
2. mgr. hefur að geyma heimild til upptöku ökutækis og er það samhljóða 76. gr. a
gildandi laga, sbr. lög nr. 20/2012.
Í 3. mgr. er fjallað um tilraun til brota og hlutdeild og vísað um þau efni til III. kafla
almennra hegningarlaga.
12.10.2012 at 11:02 #224629Mér datt í hug, í tilefni þess að eitthvað er um Radíóamatöra í klúbbnum, að skjóta í einn þráð þar sem við myndum kynna okkur og okkar búnað, sem og ef einhver áhugi er fyrir því að taka radíóþema á opnu húsi fyrir.
Ég heiti Samúel Þór og er með kallmerkið TF2SUT.
Búnaðurinn sem ég er með er að mestu leyti í bílnum mínum.
Icom IC-706MK2 með VHF neti, neti fyrir 6metrana (50MHz) og síðan gömlu gufunesneti tjúnað inná 3637kHz sem er innanlandstíðni IRA.Við þetta dót er ég með tengt TinyTrak APRS módem sem sendir út staðsetningarupplýsingar, og í framtíðinni ætla ég mér að tengja það við tölvuna í bílnum til að geta móttekið skilaboð í gegnum APRS kerfið.
Ég er einnig með stafvarpa (stafrænan endurvarpa) fyrir APRS uppá Akranesi undir kallmerkinu TF2SUT-3.
Væri gaman að heyra hvað aðrir eru með í bílunum eða heima hjá sér!
12.10.2012 at 10:23 #758917Þetta með fjölskylduna er samt dálítið afstætt, einhvernveginn tókst bróður kærustu minnar að ferðast með þrjá krakkagríslinga í súkkunni sinni í ferðalögum. Hann var að vísu með annsi stóra kassa á toppnum undir dót, en allt er hægt ef nægjusemin er næg. 😉
11.10.2012 at 02:10 #758897Sæll og velkominn í klúbbinn.
Súkkur eru mjög fínir bílar til að ferðast á, léttir, sterkbyggðir og temmileg stærð. Átti sjálfur súkku og þvældist talsvert á henni.
11.10.2012 at 02:05 #758769Þetta með tjöldunina er algjör steypa, eins og fram hefur komið. Réttast væri að talað væri eingöngu almennt um tjöld og tjöldun, en ekki verið að reyna að flokka þetta niður í lögunum sjálfum, enda, hverju skiptir hvaða tjald maður er að nota þegar maður tjaldar? Hvort ætli nú séu meiri ummerki um tjaldvagn eða tjald?
Ef akstur utan vega er bannaður, afhverju breytir það þá máli hvort heimilt sé að tjalda einu tjaldi á einum stað eða öðru tjaldi á öðrum stað? Auðvitað ætti að heimila tjöldun svo lengi sem ekki hljótast náttúruspjöll af. Síðan mætti tilgreina ákveðin svæði staðbundið hvort heimilt sé að tjalda þar eða ekki, sé þess rík ástæða t.d. á afar viðkvæmum svæðum. En það á ekki að vera gert í náttúruverndarlögum.
10.10.2012 at 20:12 #758615Sæll
Gormavæðing fyrir hilux hásingu er ekkert óyfirstíganlegt verkefni þó það kalli á smá föndur. Þetta gæti kostað skilding eða tvo á verkstæði, en ég myndi byrja á því að kanna verð hjá til dæmis Fjallabílum Stál og stönsum, Jeppasmiðjunni á Ljónstöðum, Breyti eða fleiri verkstæðum.
Það sem þarf að gera til að koma gormum undir framhásinguna er eftirfarandi:
Þú þarft stýrisnekkju úr klafabíl með breyttum pitman arm sem er með kón í stað stýrisendans sem er orginal í klafabíl, arminn getur þú fengið á marlincrawlers.com.
Til að breyta stýrisganginum þarftu annan stýrisarm á hásinguna hægra megin. Þetta er til á marlin crawlers og er kallað high steer conversion.
Í raun ættir þú að geta pantað "kit" til að breyta þessu öllu og þá þarftu bara að finna þér stýrissnekkju úr klafabíl.Þig vantar einhverjar stífur fyrir framhásinguna og myndi ég mæla með að finna úr LC70, 80, patrol eða Range rover. Range rover stífurnar færðu líklegast uppí BSA, og þurfa ekkert endilega að kosta neitt alltof mikið.
Það gæti verið góð hugmynd að finna sér aðra hilux hásingu og gera hana klára til að setja undir.
Gorma getur þú fengið í BSA eða undan t.d. LC70.
Gormaskálarnar þarftu að smíða, ásamt stífuvösum fyrir langstífur og þverstífuna.
Ég mæli með þverstífu úr LC80 því hún er með stífum fóðringum sem halda jeppaveikinni í skefjum.
Sjálfsagt er fullt fleira sem þarf að gera, þetta er það sem ég man í augnablikinu.
08.10.2012 at 23:38 #758611Þetta er ömurlegt að heyra, vonandi finnst ökuníðingurinn.
Er búið að kæra þetta til lögreglu? Slíkt gæti þurft til að geta nálgast upptökur úr öryggismyndavélum.
07.10.2012 at 18:26 #729419Þetta var nú meiri ferðin…
05.10.2012 at 17:30 #758425Tja, mér þykja 3m af snjó hálf lygilegt…
04.10.2012 at 20:58 #758417Ég hef hugsað mér að fara af stað á föstudeginum, líklegast seinnipartinn ef jeppinn leyfir. Það stefnir samt í augnablikinu í að mig gæti vantað far…
Hefur einhver frétt af færðinni þarna innfrá?
30.09.2012 at 17:51 #757425Þessi súkka þín er orðin mjög svo skemmtileg samsuða úr hinu og þessu! Líst vel á þetta.
Eitt sem ég rak augu í hjá þér er festingin á fartölvunni, gat ekki betur séð en að hún sé bara fest niður með frönskum rennilás. Ef þetta er ennþá svona í dag, mæli ég með að þú setjir einhverskonar vinkla eða annað sem heldur henni niðri, það er mjög hvimleitt að fá þetta í andlitið í veltu eða öðrum hamagangi.
Annars hef ég bara eitt um þetta að segja: "keep up the good work!"
26.09.2012 at 08:44 #758093Þakka góða vinnuferð. Alltaf gaman að líta uppí Setur og dytta að hlutum.
-
AuthorReplies