Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
29.11.2012 at 18:33 #759383
Brynjar, ég sendi póst á alla sem eru skráðir með þessum upplýsingum sem Þröstur setti inn hér að ofan, einnig ferla og annað sem gott er að vita.
endilega sendu póst á samuel@ulfr.net með réttu email ef uppgefið email er ekki rétt.
Sjáumst hress á morgun.
25.11.2012 at 22:54 #760905Þetta er alveg óþolandi að menn geti ekki látið svona vera.
Smá forvitni samt, er akstur á snjó í Bláfjöllum bannaður? Eða er þetta bara "vinsamlegast ekki skemma fyrir okkur" pólísía?
Er þetta spurning um að t.d. Ferðaklúbburinn í samvinnu við þá hagsmunaaðila sem þarna eru, taki sig til og setji upp skilti og/eða eftirlit?
Eina leiðin til að stoppa svona lagað er að við leggjumst öll á árara um að siða og leiðbeina þeim sem ekki geta virt þetta. Nú er Breiðdalur t.d. ekki langt frá Bláfjöllum, fínt útivistarsvæði fyrir jeppa til að leika sér nálægt höfuðborginni. Nú eða jafnvel Þúsundvatnaleið.
24.11.2012 at 23:56 #7593752 Hafa tilkynnt forföll. Eru því laus pláss fyrir 2 bíla að svo stöddu.
23.11.2012 at 10:29 #224993Það kom að því, að frumvarpið kom fram.
http://www.althingi.is/altext/141/s/0537.html
Mér sýnist í grunninn það vera nákvæmlega eins og drögin, á þó eftir að skoða það betur.
23.11.2012 at 00:37 #759369Tölvupóstur vegna ferðarinnar er farinn á alla þáttakendur.
Vil minna menn á að greiða sem fyrst þáttökugjaldið.
Einn þáttakandi hefur boðað forföll og getum við því bætt við okkur einum bíl.Minni á gátlista og aðrar nytsamlegar upplýsingar á síðu Hjálparsveitar F4x4:
https://old.f4x4.is/index.php?option=com_con … Itemid=128Minni einnig á kynningarkvöldið næstkomandi miðvikudag.
21.11.2012 at 20:39 #224979Meðfylgjandi er fundargerð landsfundar Ferðaklúbbsins 4×4 sem haldinn var í skála félagsins, Setrinu þann 6. október 2012.
21.11.2012 at 18:12 #759365Miðað við snjóalög síðustu helgar má búast við spennandi ferð inní Setrið um aðventuhelgina.
Vil minna þáttakendur á [url=http://f4x4.is/index.php?option=com_content&view=article&id=1824:afslattarkvoeld-hja-intersport&catid=152:tilkynningar&Itemid=313:339cmo9k]Afsláttarkvöld hjá Intersport[/url:339cmo9k]. Góð hugmynd að næla sér í vetrarfatnað og annað sem gæti vantað uppá í vetrarferðir fyrir Nýliðaferðina.
19.11.2012 at 18:10 #224956Sameiginlegur félagsfundur Ferðaklúbbsins 4×4, Ferða og útivistarfélagsins Slóðavina, Landssambands íslenskra vélsleðamanna (LÍV) og Skotvís verður haldinn mánudaginn 26. nóvember klukkan 20:00 á Hótel Natura (Loftleiðir).
Dagskrá fundarins:
· Reynsla ameríkana af stjórnun vegslóða (Russ og Tom – NOHVCC)
Til landsins hafa verið fengnir þeir Russ Ehnes og Tom Crimmins til að miðla af reynslu sinni. Russ Ehnes er framkvæmdastjóri NOHVCC samtakanna (http://www.nohvcc.org) og hefur áratuga reynslu af stjórnun umferðar á fáförnum ferðaleiðum. Tom Crimmins er fyrrverandi starfsmaður US forest service til 32 ára og með 20 ára reynslu af stjórnun vegslóða. Tom er einnig höfundur bókarinnar Management Guidelines for OHV recreation.
Efni fyrirlestrarins verður meðal annars :
· Geta vegir og vegslóðir verið umhverfisvænar?
· Er hægt að samnýta vegslóðir fyrir ólíka ferðahópa?
· Hvað er vegur og hvað er vegslóð?
· Breidd vegar/vegslóðar. Þarf vegur að vera fyrir alla umferð ?
· Viðhald og sjálfbærni eða lokun?
· Hvað þarf til að halda umferð á vegi/vegslóð?
· Hverjar eru þarfir þeirra sem nýta vegi?
· Þarf umferð að geta verið á skilgreindum svæðum utan vegakerfis?Fyrir Alþingi liggja drög að frumvarpi til Náttúruverndarlaga þar sem gerðar eru miklar breytingar á hvernig löglegir vegir og vegslóðar verða skilgreindir. Í stuttu máli stendur til að gefa út kortgrunn með vegum utan hins almenna vegakerfis sem löglegt verður að aka eftir. Akstur eftir öðrum vegum verður skilgreindur sem utanvegaakstur.
Félögin sem standa að þessum félagsfundi hafa áhyggjur af því að mikið magn leiða muni lokast, jafnvel leiðir sem notaðar hafa verið til ferðalaga um áratuga skeið.
Félögin standa fyrir röð fyrirlestra þar sem stjórnsýslufólki er boðið að hlusta á fyrirlesara frá NOHVCC samtökunum í Bandaríkjunum, m.a. Akureyri, Reykjavík, Selfoss og Borgarnes.
Fyrirlestur Russ og Toms fer fram á ensku.
Með von um að sjá sem flesta,
Ferða og Útivistarfélagið Slóðavinir
Ferðaklúbburinn 4×4
Landsamband Íslenskra Vélsleðamanna
Skotvís (Skotveiðifélag Íslands)
16.11.2012 at 00:42 #760451Það er kannske rétt að fyrirbyggja misskilning. ef vegur er merktur "ófær / Impassable" er hann eins og segir, ófær en ekki lokaður. Sé hann hinsvegar með rauðum hring með gulu inní er hann lokaður allri umferð. T.d. í vorleysingum þegar vegir eru viðkvæmir.
Það þykir góður siður, að losa um keðjuna, keyra í gegn og setja keðjuna á sinn stað þegar ekið er í gegn. Svo má hinsvegar velta fyrir sér hversu gáfulegt það er að vera með keðjuna þegar langt er liðið á vetur og farið að snjóa vel. Spurning að vefja henni utan um staurinn? Maður gæti jú lent í því að keyra á hana í gáleysi ef hún rétt stendur uppúr. Ég hef heyrt um slík dæmi en ekkert sem endaði neitt sérlega illa þó.
16.11.2012 at 00:31 #759357Fer einmitt könnunarleiðangur um helgina með skálanefndinni. Hef heyrt af "ófærð" þarna uppfrá. Þetta gæti orðið nokkuð hress nýliðaferð.
Reikningsupplýsingar, nánari ferðatilhögun og annað verður sent hér bráðlega.Hugmyndin eins og hún er í dag:
Lagt verður af stað í 2 hollum. Undanfarar og ruðningslið fer af stað c.a. milli 13:00 og 14:00 á föstudeginum. Seinni hópur (fyrir vinnualkana sem hætta aldrei að vinna fyrren seint á föstudögum) verður c.a. 17-18 á föstudegi.
Stefnan verður sett beint á Setrið.Endilega, látið vita ef þið hafið áhuga á að fara með fyrri hópnum, væri ágætt að vita hverjir hafa áhuga á hvorri tímasetningunni.
16.11.2012 at 00:28 #760733Til hamingju með félagsaðildina. Vona að þér líki félagsskapurinn.
Gaman að sjá að þú ert á góðum jeppa, Toyotur bera af öðrum tegundum, að minnsta kosti hef ég ekki séð neina ástæðu til að skipta!
15.11.2012 at 00:18 #759353[b:3nyd615u]Þáttökulistinn[/b:3nyd615u]
Kjartan Björnsson +1 LC80
Eggert Stefán Sverrisson +1 Grand Cherokee
Árni Jóhannes Reyndal Bragason +1 Patrol
Einar Bergmann Guðmundsson +1 LC80
Valtýr Gunnlaugsson +1 Galloper
Brynjar Pétursson +1 LC90
sigurdur grétar magnùsson +1 Hilux
Jón Þór Guðmundsson +2 Defender
Haukur Eggertsson +1 Jimny
Guðbjörg Rósa Ragnarsdóttir +1 Hilux
Þröstur Sigurðsson +1 LC80
Hákon Þór +1 Rocky
Krystian +1 Patrol
Ingólfur Árnasson +1 LC60
Klemenz Geir Klemenzson +1 Patrol
Styrmir Frostason +1 4Runner
Telma +1 F350Ef einhverjar villur eru í þessu, endilega látið vita. Ég fattaði það áðan að ég virðist ekki getað séð í skráningarforminu hverjir skráðu hjá sér farþega, ég gerði því +1 á alla með einni undantekningu. Endilega látið vita ef þetta er rangt hjá mér!
Þarna eru 17 bílar skráðir (þó 15 hafi verið hámark), allir sem skrá sig hér eftir lenda á biðlista.
12.11.2012 at 00:21 #759341[quote="Bazzi":3h403ztx]Smá pæling….
Nýliðaferð.
krafan er um fjarskipti og gps.
Menn sem eru spenntir fyrir ferðinni, og klúbbnum sjá sér ekki fært að mæta vegna þess að þeir eru ekki með gps.
Mér þykir sanngjarnt að hver og einn sem er að ferðast á hálendinu að vetrartíma eigi skilirðislaust að vera með gps. En væri ekki æskilegt að reyna að koma á móts við menn sem eru nýliðar og eru jafnvel ekki búnir að koma sér upp eða kunna nægilega mikið á búnaðinn sem þeir eru með í bílunum hjá sér.[/quote:3h403ztx]Þetta er klárlega punktur sem er vert að spá í, en þá er það önnur spurning, er þetta hlutur sem er að stoppa menn í að koma í nýliðaferð? Eru ekki langflestir sem hyggjast ferðast eitthvað á fjöll að vetri til með GPS tæki?
Ef þú veist hinsvegar um dæmi að einhver er að láta þetta stoppa sig, þá er um að gera að hafa samband við okkur, við hljótum að geta fundið eitthvað útúr því ef GPS tækið er það eina sem vantar uppá.
11.11.2012 at 20:32 #760443Stóð "lokað" eða "Ófært" á skiltinu?
08.11.2012 at 09:59 #759333Ég verð að segja pass með 35" Patrol (Þó hann sé Y60), því miður. Hinsvegar minni ég á Litlunefndarferðina um þarnæstu helgi.
Eru menn ekki orðnir spenntir fyrir ferðinni?
07.11.2012 at 00:20 #760327Snævarr ætti að geta skráð sig inná síðuna og tjáð sig líkt og aðrir.
Áhugavert að frétta og gaman að vita að einhver er að spá í þessu, ég persónulega hef lítið pælt í þessu síðan síðasta vetur, en kominn tími til!
Varðandi GPS tækin, ég veit ekki betur en að Rikki hjá Garmin hafi verið að valsast í þessum málum með að koma jöklakortunum í garmin tækin. Líklega væri best að senda fyrirspurn beint á garmin?
04.11.2012 at 23:42 #759311Mig langar til að biðja þá sem hafa skráð sig á skráningarforminu um að laga þær upplýsingar sem vantar (email og gsm).
Gaman að sjá að viðtökurnar fyrir ferðinni eru góðar, vil hinsvegar minna þá "reynslumeiri" á að gefa nýgræðingunum færi á að mæta. Engum verður hinsvegar meinað að taka þátt svo lengi sem skálinn rúmar.
Ég gleymdi að minnast á að samningsviðræður við veðurguðina virðast ætla að ganga vel. Það verður ágætis veður á föstudag og laugardag, sól og heiðskírt, en von á snjókomu og leiðindum á sunnudegi. (Maður getur ekki haft allt fullkomið…)
04.11.2012 at 02:22 #759303Eitthvað er tæknin að stríða mér. Skráning fer því bara fram hér á[b:1xilw0h1] þræðinum.[/b:1xilw0h1]
Pláss er fyrir 15 bíla.
Skilyrði:
Vera greiddur meðlimur í F4x4. (Getið haft samband við Rögnu á skrifstofu klúbbsins ef þið viljið skrá ykkur í klúbbinn)
Jeppinn þarf að vera búinn VHF talstöð, GPS tæki með korti eða kortaplotter, skófla og spotti.
Hámark 2 í bíl!Þyngdartakmarkanir.
undir 2.000 kg 35" dekk eða stærra
2-3 tonn, 38"+
3 tonn, 44+
Þetta miðast við c.a. eiginþyngd, ef þáttakendur eru ekki vissir hvort þeir séu gjaldgengir, ekki vera feimnir að spyrja hér á þræðinum eða í email til hjalparsveit@f4x4.isPóstið nafni, nafni farþega, félagsnúmeri, bíltegund og dekkjastærð með skráningu.
01.11.2012 at 00:14 #759297Okkur þykir miður að hafa þurft að breyta áætlunum.
Skráning opnar annað kvöld.
31.10.2012 at 00:08 #759285[quote="hjaltisig":138yirks][quote="Ulfr":138yirks]Nýliðaferð Ferðaklúbbsins 4×4 verður haldin helgina 16-18. Nóvember ef færð og veður verður orðið nógu slæmt. Stefnan er tekin á Setrið, sem staðsett er undir Hofsjökli.
Nánari ferðatilhögun, skráning, verð, [u:138yirks]veður[/u:138yirks] og fleira verður auglýst síðar.[/quote:138yirks]
Er ekki komin ákvörðun um hvernig veðurspáin á að vera ?[/quote:138yirks]
Veðurspáin verður mjög góð. Kafbylur, snjókoma, frost og almenn ófærð. Lagt er upp með að vera komin yfir Hellisheiðina fyrir Laugardagsmorgun. 😉
-
AuthorReplies