Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
08.10.2006 at 03:46 #562732
Eitt sem mig langar að benda á í umræðu um virkjanaleiðir.
Kjarnorka er einn af vistvænari orkugjöfum heims, sé staðið rétt að úrvinnslu kjarnorkuúrgangs. (Þó vildi ek ekki sjá slíkja virkjun hér á landi…)
Sjávarfallavirkjanir eru vel hugsanlegar og vel framkvæmanlegar, Ísland gæti sómað sér vel sem land á fremsta sviði í þróun þeirra virkjannamála. Einnig vil ég benda á að Ísland hentar mun betur f. sólarorkuframleiðslu en önnur suðrænni lönd (sem þó hafa meiri sól) sökum þess hve breið og góð sólarbirta er hér! Þó svo að við höfum sólina takmarkað yfir vetrartímann.
Virðingarfyllst, S. Úlfr Þ.
27.09.2006 at 23:40 #561684Ekki veit ég nú um hvað átt sé við því, en ég er heldur ekki með mestu reynsluna.
Eina sem ég veit um drifgetu klafabíla er það að klafarnir ryðja ekki snjó yfir sig, líkt og hásing gerir, heldur þjappar það henni niður eða ýtir á undan sér, og vill oftar festa sig á þeim rökum.
Aftur á móti, eru klafar með mun mýkri fjöðrun heldur en hásingarbílar (mín reynsla og umsagnir annara, endilega leiðréttið mig ef þið hafið annað um málið að segja).
Af þeim sökum myndi ég búast við því að klafabílar ættu í raun að drífa ágætlega því þeir hafa meiri fjöðrunareiginleika og "dúmpa" ekki eins oní færið líkt og hastari bílar gera.
En eru þetta ekki líka hálfgerð trúarbrögð, líka?kkv, Úlfr Fjórhlaupari (klafadýr)
27.09.2006 at 23:10 #561614Já, smá smámunasemi í mér, eftir minni bestu vitund er það ,,Úlfarsfell“ en ekki ,,úlvarsfell“.
kkv, Úlfr
Toy 4hlaupari
27.09.2006 at 17:52 #561550Það væri líklega skóstækkun og breytingar, og eflaust ferðir. Ef maður á fé eftir allar þessar breytingar… 😛
27.09.2006 at 17:02 #561606Ég mæti!
– Úlfr :Toy 4hlaupari
12.09.2006 at 03:52 #559876Jahérna, þykir mér nú djúpt í árinna tekið.
Ég tók æfingaakstur minn á 38" patrol, ég er ekki frá því að ég hafi orðið betri ökumaður fyrir vikið.
Vissulega er aðeins "öðruvísi" að aka um á bíl á 38" dekkjum fremur en á bíl á fólksbíladekkjum. En það breytir því ekki að við aksturinn þarf maður líka að nota svolítið sem kallast heili. Og það er eitthvað sem alltof fáir ökumenn á íslandi virðast tileinka sér…
Ef maður á eftir að keyra stóra bíla stuttu eftir bílpróf, á maður að æfa sig á þeim, þá er maður einnig undirbúinn undir minni bílana…Auk þess heitir þetta æfingaakstur af ástæðu…
kkv, Úlfr.
23.08.2006 at 03:08 #558490Tja, mér gæti helst dottið í hug að þú fyndir svona hluti í Miðbæjarradíói og Íhlutum í Skipholtinu.
Segulrofana og box amk, einnig fást ágætis rakaþétt box í Ískraft í kópavogi.
09.06.2006 at 01:03 #554086Tja. Þó ég sé ekki skráður meðlimur í 4×4 (hef samt ferðast með þeim síðan klúbburinn á akranesi fæddist) þá væri ég alveg til í að leggja hönd á plóg.
(Þó ekki um næstu helgi, þar sem þessu hefur verið frestað, og það er allt brjálað að gera.kkv. Úlfr
26.05.2006 at 17:01 #553202Einhverjir að fara á laugardaginn?
Spurning að skutlast uppá jökul og sjá hvað dollan drífur.
(Fór nú langleiðina innað Þursaborgum áður en ég ákvað að snúa við til að aðstoða félaga minn til að komast til baka niður af jökli.)Er á Toyota 4runner 32" :þ
17.05.2006 at 20:23 #552612Ekki af þessari tengingu eins og ég geri þetta.
En það er eflaust hægt að finna tengimyndir á netinu hvernig tengja eigi kastara.Ég myndi teikna eina inná tölvuna ef ég hefði forrit til þess.
17.05.2006 at 18:59 #552608Það sem ég notaði í rafkerfið hjá mér:
5 vara öryggjabox (fæst í bílanaust t.d.)
2 segullrofa (relay) sem þola þann straum sem kastarnir taka. (Einn fyrir hvert kastarapar)
2-3m af 1q vír fyrir stýringuna frá rofa að segulrofa. Ath, þú þarft tvöfalt af þessu fyrir eitt par, sinn hvorn litinn helst.3-6m af rauðum 1,5q til 2.5q vír fyrir kastarana.
Smá bút (c.a. 1m) af svörtum vír í sama sverleika fyrir jörð frá kastara.Svo er það straumfæðingin að öryggjaboxi. Ég nota yfirleitt 10q vír (gefinn upp fyrir 63A en þolir talsvert meira sé meðtekið það að kæling er á vírnum, þeas að þetta sé í húddinu og ekki í röri)
Tekur þetta frá geymi að öryggjaboxi.
Getur Jafnvel tekið saman í lítið vatnsþétt box og látið 5 enda standa útúr því yfir í öryggjaboxið. Þeas af grennri vír (1,5q-4q)Þægilegast að vera með einn bolta og ró og svo kapalskó á endana á vírunum og festa þá saman á bltann. Boltinn VERÐUR AÐ VERA ÚR SVÖRTU STÁLI. Má alls ekki ekki vera galvaniserað eða ryðfrítt.
Og svo tengingarnar, muna að kastarar verða að tengjast gegnum háuljós, og þokuljós tengjast í gegnum stöðuljós (parkljós).
Fínt að kaupa box af tengjum frekar en að verzla þetta í stöku, minnir að Ískraft í kópavoginum selji þetta í boxum á frekar sanngjörnu verði.
(Þori ekki að fullyrða það þó)Getur líka haft samband við mig ef einhverjar spurningar vakna eða þig vantar aðstoð.
emailið mitt er ulfr.thor at ulfr.net
12.03.2006 at 16:47 #546204Ótrúlegt hvað ég sé orðið marga fara yfir á rauðu ljósi. Mér krossbrá um daginn þegar ég fékk næstum Land Rover Defender á 44" í hliðiná mér, ætlaði að taka framúr mér á beygjuakrein. Ók svo sami bíll yfir á rauðu stuttu seinna, hefði ekki mátt muna miklu að árekstur varð í það skipti.
Ég get vel ímyndað mér hvernig það hefði farið, jeppi á 60+ í hliðná litlum fólksbíl. Fær mann til að hugsa sig um hvort ekki ætti að setja sér próf á breytta bíla. (Ekki einusinni víst að það hjálpi neitt, við sjáum hvernig vörubílarnir eru að bruna yfir á rauðu.)kkv. Samúel Ú. Þór (vonandi) ábyrgur jeppaunglingur.
08.03.2006 at 19:34 #545756Allir notendur þessa vefs sem hafa áhuga á að skipta sér af meiga skipta sér af…
Þetta var nú að mestu skrifað í gríni hjá mér, en ef þetta er ekki grín hjá honum?
Er þetta ímynd jeppamanna (og jeppakvenna) sem við viljum henda framan í unga jeppamenn sem hafa áhuga á þessu sporti?
Að maður þurfi að eiga glænýjan jeppa (að eiga eða "eiga"?) til að taka þátt í jeppaferðum uppá fjöll?P.S.
Þeir sem eru að skilja þetta sem væl í mér útaf umsögn myndarinnar þá er það miskilið
06.03.2006 at 19:02 #197478Rakst á annsi skemmtilega mynd af okkur félögunum, sem ferlega góður bílstjóri tók.
Umsögnin: „nokkrir unglingar saman (4) á leið inná jökul á einhv sem átti að kallast bíll,, jeppi .. eitthv.. og vatnskassinn sprakk í andlitið á þeim,, við hjónin buðu fram aðst,, en vitiði,, þeir afþökkuðu ….. sögðust nebble vera me gsp tæki mar (já GSP TÆKI MAR)… vara í í fíli mar… ekki svitna yfresssuummar,,, þannig að upp fór rúðan og setti Bangsapabba í gir og meiri voru þau afskipti ekki.. þessir gaura fengu DOCTORINN í dag… þvílikir SNILLINGAR… eru sennilega enn uppí brekku,,,“
Svo ég leiðrétti þig, þá voru þetta Ford Bronco II á 33″ og Toyota 4Runner á 32″.
Ford eru framleiðendur á meðal annars jeppum, sömuleiðis Toyota. Þessar tegundir hafa nú verið nokkuð vinsælar til fjallaferða.Önnur leiðrétting, vatnskassinn sprakk ekki, heldur losnaði uppá klemmu og slangan losnaði af, með tilheyrandi sýningu. Minnstu munaði að frændi minn yrði fyrir gusunni en það slapp.
Með þessa aðstoð sem þessi maður bauð, þá var þetta ekkert boð um aðstoð svo ég tæki eftir, „er ekki alltí lagi“ var spurt, og svarað að við redduðum þessu, sem og við gerðum, heldum áfram eftir áfyllingu og komumst til byggða líka, ótrúlegt en satt, miðað við lýsingar. Þrátt fyrir að Broncoinn hafi þegið drátt frá vinalegum jeppamanni upp brekku á leið heim.
Með GSP tæki, ég veit ekki betur en að eina tækið sem ég man eftir nálægt þeirri skammstöfun sé GPS, og það stendur fyrir Global positioning System.
Og eitt enn, ég er búinn að vera á fjöllum meira en minna á fjöllum síðan ég fæddist.
Ég er ekki að æsa mig yfir þessari mynd, tek þessu sem góðlátu gríni, sem ég vona að Birgir geri einnig með þessa grein.
Hinsvegar vil ég setja spurningarmerki hvort svona tal eigi að líðast á vef ferðafélagsins 4×4?
Er þetta myndin sem eldri félagar 4×4 vilja henda framaní unga áhugamenn um útivist?– Samúel Ú. Þór.
04.02.2006 at 14:24 #541422Það er náttúrulega til háborinnar skammar, að þetta skuli viðgangast.
EN, mér þætti fremur að herða refsingu á barnaníðslu, og lofa þessu að sitja á hakanum.
(ég á eftir að móðga marga, en það verður að hafa það)
Þið eigið að tryggja jeppana ykkar sjálfir! setja þjófavarnakerfi (ekki bara ýlu, heldur það að það sé ekki hægt að ræsa bílinn).
Og það að skipta um cylindra í skránum þegar þeir eru orðnir slappir.Og það að einstakling sé sleppt eftir yfirheirslu merkir ekki að hann sleppi við dóm, hann er einfaldlega ekki talinn hættulegur samfélaginu né líklegur til að flýja.
Sé persónulega ekkert að því að fólki sé sleppt eftir játningu nema það sé þeim mun alvarlegra mál.
30.01.2006 at 19:35 #540640Straumtaka voltmælis er nánast því engin.
Inngangsviðnámið er mjög hátt og straumnotkun einhverstaðar í kringum 24uA. (0,000024A, parkljós t.d. nota c.a. 0,5A)Sé hinsvegar ljós í mælinum má gera ráð fyrir 10-50mA straumnotkun.
(m = milli = 1/1000 , u = micro = 1/1.000.000 (til að forðast misskilning))Þá er orðin einhver hætta á að þetta klári rafgeyminn á þónokkrum tíma.
27.01.2006 at 18:11 #540388"Eitt kerti er auðvitað ekki það sama og mörg kerti en mér finnst skeggið ansi skylt hökunni enda ljósmagn gjarnan mælt í fjölda kertaljósa hvort sem þau standa nærri eða fjarri."
http://en.wikipedia.org/wiki/Lux
Lux = ljósstyrkur á einn fermeter.
Lumen = ljósstyrkur á x gefinn fermetrafjölda.1000 lux á 1 fermeter == 100 lux á 10 fermetra.
26.01.2006 at 18:16 #540362Kelvin er mælieining á hita.
Lux og lumen er EKKI það sama.
Lux er einfaldlega mæling á styrk ljóss, meðan lumen tekur inn dreifingu með.
21.01.2006 at 01:29 #539746Ég stoppa nú nánast undantekningalaust ef fólk er í vandræðum. Samt alltof margir sem láta sig ekkert varða um aðra en verða svo allra mest pirraðir ef enginn hjálpar þeim.
12.01.2006 at 22:12 #538724Á meðan erlendis eru þessi fyrirtæki rekin á brott, þá eru þau velkomin á Íslandi.
Margt er öfugt farið hér á landi, sé tillit tekið til landa umhverfis okkur.
-
AuthorReplies