FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Samúel Þór Guðjónsson

Samúel Þór Guðjónsson

Profile picture of Samúel Þór Guðjónsson
Virkur síðast fyrir 8 years, 7 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 961 through 980 (of 1,024 total)
← 1 … 48 49 50 … 52 →
  • Author
    Replies
  • 23.12.2006 at 13:18 #572418
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Er búinn að redda skynjaranum, bara eftir að setjann í og sjá hvort þetta hafi verið vandamálið eða hvað…
    Þakka skjót svör og þakka þeim sem hringdu í gærkveldi og létu mig vita af varahlutasalanum. :)

    Með bestu jólakveðju, Úlfr Þ.





    22.12.2006 at 22:07 #572022
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Hér er tengill inná síðu sem listar C4 skiptingu, vona þetta komi að gagni.

    [url=http://www.answers.com/topic/ford-c4-transmission:p3pbk9ed][b:p3pbk9ed]Linkurinn[/b:p3pbk9ed][/url:p3pbk9ed]

    Þessar skiptingar virðast vera notaðar í Drag racing og ýmsum átakssportum, svo ég býst við að þetta sé sterk skipting.





    22.12.2006 at 22:04 #572420
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    2 hlutir eru algengastir. Annars vegar að vírar séu að fara í sundur við tengið, eða í því. Þeas tenginu sem er við rafmagnsmótorinn sjálfan. Þetta er vanalega útaf illa frá gengnum breytingum.

    Annars vegar getur rafmagnsmótorinn setið fastur í stæðinu, sökum tæringar ef vatn kemst að, og hinsvegar ef hann hefur ekki verið notaður í nokkurn tíma, og situr þá fastur. Lítið mál ætti að vera að taka mótorinn af og liðka upp á honum, og svo að skoða tengingarnar og mæla jafnvel út vírana.

    Það var einhver góður félagsmaður með tengimynd af svona mótor hérna á síðunni undir myndasíðunni sinni.

    kkv, Úlfr Þór





    22.12.2006 at 21:03 #199220
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Sælir félagar, nú er félagi minn í nettum vandræðum.
    Vill svo til að skynjari framan á vélinni brotnaði og bíllinn fer ekki í gang. Er einhver þarna sem lumar á viðgerðarbók sem hann getur lánað okkur eða lumar á vitneskju um þessa skynjara?

    Neyðarþjónustan hjá IH kostar sitt og við þurfum að vita alveg 100% hvað okkur vantar, því umboðið er lokað til 27. des.

    Ef einhver getur aðstoðað okkur með vitneskju eða bók væri sú aðstoð vel þegin, (aldrei að vita hvað jólasveinninn gæti gefið í skóinn 😉

    kkv, Úlfr Þór
    S: 848-2317





    22.12.2006 at 18:40 #572260
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég hef nú enga tröllatrú á 8" toy hásingunum, en ég veit til þess að 4runner með 350 í húddinu hafi verið með þessar hásingar, og það hélt bara þónokkuð vel. Auðvitað þarf maður að huga aðeins að því að kaupa almennilegt í þetta, það er að segja, ekki orginal f. þetta, heldur frekar Turbo eða jafnvel eitthvað ,,aftermarket“ dót.

    Því eftir allt saman, verð og gæði eiga voðalega oft samleið…

    kkv, Úlfr (votta toyota ) xP





    22.12.2006 at 18:32 #572408
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Tja, ég held að þér ætti nú að vera óhætt að fjarlægja þetta, ég býst ekki við að þú sért að fara að reyna að taka beygjurnar á 90…
    Annars veit ég um nokkra sem hafa fjarlægt jafnvægisstöngina að aftan og finna lítin mun nema aukna fjöðrun. (Því stöngin hengir náttúrulega gormana…)

    kkv, Úlfr





    22.12.2006 at 04:47 #572162
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Þetta er nú meiri þvælan, hvaða vald hefur PFS til að varpa þessu á klúbbinn? Maður spyr sig, og aðra.
    Ég myndi kalla þetta helber ólög, að ætla að rukka klúbbinn f. alla notkun félagsmanan og annara! Réttast væri að kasta þessu beint í hausinn á PFS og krefjast skýrra svara varðandi þetta mál.
    Hvað næst? Á að rukka klúbbinn f. notkun félagsmanna á SSB tíðnunum, eða notkun NMT eða IRIDIUM? Ha?! Næst setja þessir skrattar stefgjöld á GPS og þá verður ekkert fyrir okkur að nota nema kort og áttavita. Ég get vart orðum bundist yfir þessum ógjörningi. Þetta er gjörsamlega fyrir neðan allar hraunhellur! >:/
    Spurning ef allir félagsmenn ferðaklúbbsins sendi kvörtun á PFS. Hvort það hafi eitthvað um málið að segja…
    kkv, úlfr, sem er æfur útí PFS!





    21.12.2006 at 02:11 #572052
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Heilar og ekki heilar, datsuninn er svo máttlaus að það er ekkert gaman að þessu hvort eð er, svo hverju skiptir það hinn almenna patrol eiganda hvort vélin bilar eða ekki? 😀

    JólaToyotaKveðjur, Úlfr Þ.





    20.12.2006 at 20:33 #572016
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég get litið á þetta hjá þér við tækifæri.
    sími: 848-2317
    kkv, Úlfr Rafeindavirkjanemi.





    14.12.2006 at 01:50 #571482
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ekki veit ég hvaða pinnar eru skástir á fjöllum. En hitt veit ég að það er nauðsynlegt að taka rafgeymana úr sambandi frá bílnum. Oftast er nóg að slökkva bara á honum, en ég mæli með hinu. Ef að hlutirnir geta farið úrskeiðis, þá fara þeir úrskeiðis. 😉

    kkv, Úlfr





    13.12.2006 at 03:09 #571144
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég veit ekki með slunkaríki, en ég var upp við Jaka síðasta laugardag, nokkuð þungt færi. Fór ekkert ofar þar eða ég var með dísel í spotta …
    kkv, S. Úlfr





    13.12.2006 at 03:02 #532588
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég er einn af vitleysingunum sem eiga bensínháka en ekki dísel eðalvagna sem framleiða olíu. (heh heh)
    Bíllinn hjá mér er að fara með 18-20l innanbæjar og 12-16utanbæjar. Er með hann á 38" á upphaflegu hlutföllunum, ég veit að það þarf að stilla vélina, skoða eitt kerti og líklegast athuga með spíssa, svo og helv. pústflæðiskynjarinn er eitthvað fönkí. Ég hef náð eyðslunni neðar, og hef einnig náð henni ofar.
    Þegar öllu er á botninn hvolft er það ekki bensíneyðslan sem er vandamálið, heldur þessir kettlingatankar sem eru í 4runnerum. (veit ekki með hiluxa, hef ekki átt slíkan grip)

    4hlaupara kveðja, Úlfr á Undanfara.





    13.12.2006 at 02:29 #571162
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Keypti þessar fínu gulu perur hjá Bílarausn um daginn. (fokdýrt ég veit…) en svínvirka, redduðu mér á leiðinni frá Langjökli um helgina. Og þær eru bara kollöglegar 55/60. Því maður jú, notar háa geislann lítið í mikilli ofankomu eða þoku, þó það geti skapast stundir sem það er kostur hafa að hafa háa geislann á. Frekar nota ég bara kastarana en að setja 100W perur í aðalljós, enda getur þessi kraftur eytt upp spegilnum inn í ljósinu.
    En annað, mér þykir mjög ólíklegt að vírarnir fari að skemmast eitthvað nema þeir séu veikburða fyrir, svo dæmi sé tekið eru 100W að nota um 8A (100/12). Í aðalljós eru oftast 1-1,5q vírar, með straumþol vel yfir 10A. Hinsvegar veit ég ekki um segulrofann/rofann f. ljósin, þeir eru líklegast jafn misjafnir og þeir eru margir.

    En nóg af þessari andsk. langloku.

    kkv, S. Úlfr Þór





    13.12.2006 at 02:21 #571186
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég var einmitt að spá í svona f. nokkru. Á endanum ákvað ég að ég skyldi frekar fara í ódýrt tæki með skjá og tengja tölvuna við það, þá veit maður allavegana staðsetninguna sína þegar tölvan bilar.
    Já, ég segi *þegar* tölvan bilar, því þetta eru tölvur, og þær bila, því miður. ;(

    Og já, ég er ekki tölvufatlaður, svo það eru ekki fordómar í mér varðandi þetta mál.

    kkv, S. Úlfr Þór rafeindavirkjanemi. ;p





    08.12.2006 at 22:40 #563808
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Eitt sem ég hef verið að velta smá fyrir mér, er að leggja kapal bara meðfram hurðafölsunum og reyna að forðast að bora.
    Svo færi þetta bara f. innan innréttinguna inn að rofa. Hugmyndin var síðan að vera með nett tengibox sem er vatnshelt á toppnum og deilir þar síðan út á vinnuljósin.

    Annars er líka alltaf hægt að bora og setja nippil á og þétta þetta með kítti eða einhverju gúmmíföndri.

    kkv, úlfr





    08.12.2006 at 02:01 #570710
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Þetta er samsæri gagnvart okkur sem erum hluti af íhaldinu (ESSO), mér líst ekkert á þetta. ;p

    Samsæriskveðjur, Úlfr Undanfari (loksins kominn á 38"!!!!11)





    02.12.2006 at 21:09 #570080
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    En Dabbi, ég sá hjá félaga mínum að hann hafði sett þetta fyrir ofan gírstöngina, þar var bara skrúfað í panelinn og svo ein stöng niður sem studdi almennilega við þetta.
    Svo hef ég líka séð þar sem rör var fest í gólfið hægra megin við miðjustokkinn. Svo kom bara rör uppúr því uppí plötu sem hélt tölvunni. Einfalt að taka úr. Ég hugsa að ég fari þá leiðina í tölvuborði.
    kkv, S. Úlfr Þór

    P.S. maður verður að passa sig að gera festingarnar ekki of massífar. Því þá lendir maður í vandræðu með að vera að brjóta innréttinguna eins og sumir hafa víst verið að lenda í.





    02.12.2006 at 13:42 #199082
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Góðan daginn.
    Ég er búinn að vera að standa í því undanfarið að vera að breyta honum f. 38″ og hlutirnir gengið ágætlega, hækkaður upp á boddí um 50mm og 25mm c.a. á grind (var upphækkaður á grind þegar ég fékk hann). Nú er komið að lokafrágangi, og ég er að velta fyrir mér nokkrum atriðum.
    Eftir að hafa lamið svolítið inn í innri brettin til að mynda smá pláss f. dekkin, þá hef ég eyðilaggt plássið fyrir tölvuna (tók hana þó úr áður 😛 ). Hvar hafið þið verið að setja tölvurnar, og hafa þær verið til friðs þar?
    Og svo annað, mér hefur verið tjáð að jafnvægisstöngin að aftan sé til bölvaðan ama og var mér ráðlagt að fjarlægja, hana. Kannast einhverjir við þetta vandamál að jafnvægisstöngin sé að hefta fjöðrunina?
    En svona að lokum, fyrir ykkur áhugasömu, hér eru myndir af gripnum.

    kkv, S. Úlfr Þór.





    29.11.2006 at 16:14 #568830
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég ætla nú ekki að fara að hrauna yfir einn né neinn. En mín reynsla, þó lítil sé, af nöglum og svo aftur á móti flipaskornum dekkjum, er að tjöruþvottur og skynsemi í akstri kemur manni lengst. Sama hversu negld eða ónegld dekkin eru.
    Auðvitað geta alltaf komið upp aðstæður þar sem maður spólar bara í glæru og kemst ekki rass áfram né afturábak, þá oftast útá hlið. Ég held ég fái mér keðjur f. slíkar uppákomur.
    Ég, líkt og siggias treysti á naglana um grip. Þó kyssti ég grjótgarðinn eitt sinn (þó var ég ekki nema á 30km/h) í glæra hálku. Eftir að ég fékk mér jeppann, keyrði ég eingöngu á flipaskornum dekkjum og hef aldrei lent í vandræðum vegna hálku. Núna þegar jeppinn hefur verið inni er ég búinn að vera á sumardekkjum á súkkunni sem ég er á, enn hef ég ekki klesst neitt né lent í vandræðum.
    Ég er ekki að segja að ég sé einhver ofur ökumaður sem geti ekki lent í tjóni eða neinu veseni, alls ekki.
    Maður verður bara að haga akstrinum svolítið eftir aðstæðum, það hjálpar.
    Jæja, nú megið þið hrauna yfir mig f. að aka á ónegldum dekkjum…

    kkv, Úlfr





    23.11.2006 at 02:17 #568906
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Tja, ég tek nú alltaf fram áður en ég dreg fólk að það ber *sjálft* ábyrgð á því ef eitthvað fer úrskeiðis. Er þó ekki viss hvernig það færi frammi fyrir lögum.
    Ég ætla ekki að standa upp með brotna framrúðu í splunkunýjum Yaris eða öðrum bíl og þurfa að borga það.
    Hinsvegar skal ég glaður hjálpa hverjum sem er uppúr festu. Ekki virtist nú vera mikil hjálparlund í mörgum jeppamönnum í reykjavík þegar ég sat fastur uppá umferðareyju (ekki það að ég hafi verið að stytta mér leið) En þeir hafa sjálfsagt haft mikið að gera við að hjálpa skyldmennum, enda var Grafarvogurinn ekkert grín þarna á sunnudaginn.
    Annars, hafið þið tekið eftir því hvað það er erfitt að losa glænýja bíla? Maður þarf að gramsa í hálftíma í skottinu til að finna þessa fínu "lykkju" sem er síðan skrúfuð í bílinn…

    Með bestu kveðju, S. Úlfr.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 961 through 980 (of 1,024 total)
← 1 … 48 49 50 … 52 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.