Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
02.03.2007 at 01:35 #582920
Mæli með (Heh heh) að kaupa bara orginal flotholt og tengja það í gegnum 2ja stöðu rofa í mælirinn sem fyrir er. Annars fást mælar í þetta í til dæmis Aukaraf og Bílanaust, en allt rándýrt ef ég man rétt.
kkv, Úlfr
24.02.2007 at 10:34 #581986Ískraft er án efa verslunin sem ég mæli með.
kkv, SÚÞ
07.02.2007 at 20:21 #579400Ég er umhverfisverndarsinni, og þar af leiðandi vil ég spara rafmagnið…
(ekki taka mig of alvarlega, ég er bara sérvitur varðandi bíla…)
kkv, SÚÞ
07.02.2007 at 13:11 #579394Dagljósabúnaðurinn er að mig minnir undir stýrinu.
Lítill segulrofi sem auðvelt er að fjarlægja ef ég man rétt.Dagljósabúnaður getur stundum verið örlítið böggandi, t.d. þegar maður vill geta slökkt öll ljós en leyft vinnuljósum að loga.
Amk þykir mér þægilegra þegar þetta er ekki til staðar… Þarf einmitt að kippa þessu úr hjá mér.
Á líka viðgerðarbók hérna einhverstaðar og get hent í þig þessum upplýsingum í kveld ef þú verður ekki búinn að ráða fram úr þessu.með Rafmagnskveðju, SÚÞ
31.01.2007 at 18:07 #578324Kannski maður ætti að bjóða í og fara útí fjarskiptarekstur, hoho.
Annars þykir mér áhugavert að vita hvaða aðilar bjóða í þetta tíðniband og hver meining þeirra sé varðandi nýtingu þess.
kkv, S. Úlfr Þ.
28.01.2007 at 13:37 #577698Nota menn yfir höfuð A/C eitthvað á Íslandi fyrir annað en loftdælur? Kemur þetta einhverntíman að notum í þessum veðurbrigðum sem maður býr við? Bara smá vangaveltur.
Annars veit ég ekki hvar fólk setur reimadrifnar loftdælur í Patrol, lítið pláss í húddinu eins og fyrrnefndur gat til.
Annað veit ég að það hefur verið gert eitthvað af því að setja þetta inn fyrir innréttingu aftur í og hafa úttak hjá áfyllingunni á Olíutankinn.kkv, SÚÞ
26.01.2007 at 20:19 #577526Ég veit nú ekki hvernig jökla þú hefur verið að sniffa, en þetta er annsi mikið.
En svona svo við höldu okkur við efnið, þetta er kjánalega líkt Mýrdalsjökli…
kkv, SÚÞ
24.01.2007 at 21:37 #576996Þessi umræða minnir mig á þegar ég fór fyrstu ferðina á 4hlauparanum uppá langjökul, var eitthvað að spara bæjarloftið og sat fastur í brekkunni á leiðinni upp frá Jaka. Uppgötvaði síðan að ég svíndreif ef ég bakkaði, og tók framúr ferðafélögunum bakkandi upp brekkuna….
Verst að drifið þolir ekki mikil átök aftur á bak ;P
Bakkkveðja, SÚÞ
18.01.2007 at 16:42 #199427Daginn,
ég er að velta fyrir mér hvort einhverjir hérna hafi lagst útí boddískipti á 2. kynslóð af 4runner.
Jafnvel þá að setja 1. kynslóðar boddí á 2. kynslóðar grind. Eru það bara boddífestingarnar sem þarf að færa eða er meira maus í kringum þetta? Þarf ég að lyfta boddíinu eitthvað meira til að koma 3VZ mótornum fyrir í húddinu eða er enginn sjáanlegur munur á 2,4EFI og 3VZ hvað varðar húddpláss? (aðalega hæðina býst ég við)Með beztu kveðju, SÚÞ
18.01.2007 at 14:12 #575096Mikið er ég feginn að eiga ekkert sjónvarp og sleppa þar við þessa sálarangist að hafa týnt fjarstýringunni.
Annars, eitt gott ráð, hafa alltaf fjarstýringuna í vasanum , hvert sem farið er. Þá tekur hana enginn af manni…
kkv, Úlfr
13.01.2007 at 16:48 #575274Ég viðurkenni fúslega, ég er ekki alltaf með báðar hendur á stýri. Ofanábætandi, held ég ekki að ökumenn séu neitt ábyrgari þó þeir lími sig fasta við stýrið. Ég held að ábyrgir ökumenn séu þeir sem aka samkvæmt aðstæðum, fara eftir lögum um hámarkshraða og taka gott tillit til annara vegfaranda, sérstaklega þeirra sem ferðast á tveim jafnfljótum. Og að sjálfsögðu, bera virðingu fyrir ökutæki sínu og annara…
kkv, Úlfr
13.01.2007 at 16:41 #575282Hugtakið ,,að taka upp mótor“ fær nýja merkingu þegar maður les um svona vélar. Alltaf hressandi að geta staðið inní cylindranum meðan maður hreinsar sót og annað…
kkv, Úlfr
11.01.2007 at 19:35 #574910Tja, einhverntíman unnið á steypubíl?
Þetta er keyrt sáralítið miðað við þann tíma sem þeir eru að nota þetta sem vinnutæki, s.s. steypa.
Sama með kranabíla. Oft séð slík tæki notuð í snatt? ;P
En þetta er örugglega bara tóm steypa hjá mér…
kkv, Úlfr
31.12.2006 at 16:12 #572806Nú er veðurspáin f. morgundaginn þokkaleg.
Ætla einhverjir uppeftir á morgun?
(ég veit ég veit, nýársdagur, þynnkudagur ársins f. alkana)með ferða- og nýárskveðju, Úlfr.
29.12.2006 at 23:28 #572900Naffok, óþarfa nafnaköll þyki mér í þessari annars (mis)málefnalegu umræðu.
Og það að einn keyri hratt gefur hinum ekki leyfi að keyra hratt, er það?
Sama með ÁTVR, þó það þeir einoki áfengi og tóbak er ekki þar með sagt að það sé sanngjarnt eða vænlegt f. neytendur.kkv, Úlfr Þór
29.12.2006 at 23:07 #572892Ég er alveg sammála Ara hér á undan, það ætti að setja björgunarsveitina á laun og gera þetta að ríkissveltu fyrirbæri… *andvarp*
Það þyrfti þá að tryggja að næg væru fjárlögin.
kkv, Úlfr Þór
29.12.2006 at 23:01 #572796Fór þangað uppeftir í dag, áin var blíð og jökullinn vel fær.
Held það ætti ekkert mál að fara yfir brúnna með smá ,,vegagerð“ og tilfæringum.
,,Vaðið“ að ánni er c.a. 50m f. ofan brú, eða eins langt og hægt er að keyra án þess að keyra á stærðarinnar grjótbakka.Vill samt benda fólki á að fara ekki veginn sem liggur um Kaldadal að Lundarreykjadal frá jöklinum (báðar áttir að sjálfsögðu, er bara ekki viss hvað þessi slóði kallast)
Hann er EKKERT nema aurbleytur og forarsvæði. Hætta á að skemma veginn (meira) ef farið er þarna um.
Svo er skipulögð ferð Vesturlandsdeildar á morgun þangað uppeftir og ég verð líklegast á ferðinni þarna um 9-10 leitið á morgun.
kkv, Úlfr Þór
29.12.2006 at 22:52 #572882Ég er kannski leiðinlegur að segja þetta, og kalla alla félagsmenn upp á móti mér f. að vera á móti þeirra skoðunum… En afhverju eiga björgunarsveitir að fá að okra á landsmönnum? Mér þykir þetta hræsni. Til eru fjölskyldur sem eru fátækar, og eiga jafnvel ekki efni á flugeldum, eða jólatré, afhverju eiga björgunarsveitirnar að hindra það?
Nei ég segi svona, en afhverju í ósköpunum eiga þær að fá að okra, þegar við fussum og svei-um yfir kostnaðinum á hinu og þessu.
Auðvitað er ég ekki að segja að þetta sé ekki góður málsstaður, en afhverju mega landsmenn ekki hafa val hvort þeir styrki björgunarsveitina, eða ekki?
kkv, Úlfr (sem kaupir ekki flugelda yfir höfuð!)
29.12.2006 at 02:26 #572792Sælir, fóruð þið eitthvað upp á jökulinn? Ef svo er, hvernig er færið?
kkv, Úlfr
25.12.2006 at 00:57 #572468Mér fannst nú betri myndin þegar dekkið grófst á kaf oní snjóinn… Hehe.
kkv, Úlfr
-
AuthorReplies