FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Samúel Þór Guðjónsson

Samúel Þór Guðjónsson

Profile picture of Samúel Þór Guðjónsson
Virkur síðast fyrir 8 years, 7 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 921 through 940 (of 1,024 total)
← 1 … 46 47 48 … 52 →
  • Author
    Replies
  • 27.07.2007 at 19:14 #593978
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Fá sér bíl með fjöðrun?
    Ég hef verið á subaru á fjallvegum í 15psi, 32" á 12psi og fleiri smádekkjajeppum og samt verið fínt að keyra þessi þvottabretti…

    Góðar stundir, Úlfr





    02.07.2007 at 19:16 #592846
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Frændi minn á eitt stykki trooper ’99 og sá er á 38" groundhawg, beinskiptur. Minnir að ég hafi reiknað hann út milli 11-12l blönduðum akstri. Finnst það samt grunsamlega lágt svona miðað við aðrar tölur sem ég er að heyra.
    kkv, Úlfr.





    02.07.2007 at 18:59 #593078
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ef mig misminnir ekki, þá var bara hægt að fá Hilux V6 í X-tra cab útgáfu. Annar gírkassi er við V6 en 2,4 eða 2,4 Dísel. Minnir að það sé sami kassi og var í 4runnernum.
    Sé það rétt munað hjá mér er einnig annar millikassi, en það er keðjudrifinn millikassi í stað gírdrifins. (Gæti reyndar vel verið að 2,4 dísel sé með keðjudrifnum kassa eftir ’89)
    Einnig ef mig misminnir ekki var eitthvað tvöfalt fjöðrunarkerfi að aftan í þessum bílum, þeas gormur og fjaðrir í sama pakkanum. (séð þá annsi marga þannig allavegana)
    En sama framhjólastell er í þeim öllum eftir 86.
    Annars er örugglega eitthvað sniðugt um þetta á [url=http://en.wikipedia.org/wiki/hilux/:17ser8cz]wikipedia[/url:17ser8cz]

    En svona í grunninn er þetta sami bíll sama grind og svo framvegis.

    Togogýta kveðja, Úlfur.





    30.06.2007 at 15:57 #592972
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Þið kunnið ekki á google!

    [url=http://jeppar.is/?PageID=1216:3my04sov]Hér er sagt um þetta á heimasíðu AT[/url:3my04sov]

    og [url=http://www.corvusexpedition.com/:3my04sov]hér er síðan sjálf[/url:3my04sov].

    kkv, Úlfur
    (ætli maður sé ekki of ungur fyrir svona lagað. :/ )





    20.05.2007 at 22:25 #200342
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Góðan daginn.
    Nú erum við frændurnir í smá málum, en það er framhjólastellið í ’99 Trooper, eftir smá málaþóf hefur verið ákveðið að það er ódýrara að setja hásingu undir heldur en að gera við framhjólastellið.
    Svo nú spyr ég, hvaða hásingar hafa menn verið að setja undir þetta? Mér best vitanlega er 10 bolta GM að framan og D44 að aftan í þessum bílum (án þess að vera viss þó).

    Pælingar hjá mér hafa verið um að setja LC80 hásingu undir, en ég veit ekki með breiddina, né hlutföllin. (Hef heyrt af einum með þannig uppstillingu hjá sér)

    Allar upplýsingar um röravæðingu á trooper eru vel þegnar.

    Með kveðju, Samúel Ú. Þór.





    16.05.2007 at 20:32 #591238
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Virðast vera með eitthvað í þessum dúr.
    [url=http://arb.com.au/kaymar-rear-bars-and-wheel-carriers.php:255arn5m]hérna er t.d. nokkuð af grindum aftan á bíla.[/url:255arn5m]

    kkv, Úlfr





    15.05.2007 at 20:02 #590922
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Intercooler veldur auknu loftmagni inn á vél (kælir loft þar af leiðandi pressast saman). Og með auknu loftmagni þarf að stilla olíuverkið. Meira veit ég ekki um þetta enda ekki mjög fróður um grútabrennara (búinn að eiga minn fyrsta í fáeina mánuði).

    Kkv, SÚÞ





    08.05.2007 at 21:06 #590718
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég myndi mæla með þjófavörn hreinlega.
    Eða jafnvel að tengja einhvern skynjara við hvert hjól, og svo láta pípa ef skynjarinn yfirgefur bílinn. (þeas, fær ekki lengur jarðtengingu í gegnum hjólaskálina.

    kkv, Úlfr.





    20.04.2007 at 20:17 #588886
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ætli við rugludallarnir með gufunesstöðvarnar séum ekki með stærstu loftnetin. Veit ekki til þess að nokkur sé að nota neitt tíðniband neðar en MF. (því neðar sem tíðni talstöðva er, þeim mun stærri loftnet þurfa þær)

    kkv, Úlfr sem er alveg jafn sambandslaus og kalli þrátt fyrir stórt loftnet.





    18.04.2007 at 21:12 #588788
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    …það þeir sem eru týndir hvert sinn sem þeir fara á fjöll?
    kkv, S. Úlfr Þór





    18.04.2007 at 20:58 #588808
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Nú er spurning, hver metur það hvort kastaragrind valdi meiri eða minni skaða við árekstur?

    Auðvitað er minna sem getur krumpast saman á framenda bíls,
    en aftur á móti grunar mig (án þess að hafa nokkra vísindalega sönnun á bakvið mig) að kastaragrind geti einnig leitt til minni meiðsla en ella.

    Svo er náttúrulega bara steypa að vera með einhverja atgeira framan á bílnum, eins og sumir virðast vilja hafa…

    En þetta er bara mín kvartkróna.

    kkv, SÚÞ





    08.04.2007 at 16:04 #587464
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Tja, ef það boðar einhverju betra skyggni á morgun væri ég alveg til í að kíkja upp á jökul.

    kkv, SÚÞ
    848-2317





    02.04.2007 at 23:46 #586838
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    …er að velta fyrir mér að fara eitthvað. Spurning bara hvort maður nái að redda einu dekki fyrir páskana svo ég geti sett 38" undir, bölvanlegt að vera á þessum 35" görmum…

    Hvernig er annars færðin á votlendinu (hálendinu)?
    Með ferðakveðju, Samúel Úlfr





    31.03.2007 at 02:40 #586596
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Má vera að ég sé vitleysingur, en það að ég taki fram að svo langt sem vitneskja mín nái, séu þetta léleg vinnubrögð, nokkurnveginn tekur fram að þetta sé mín SKOÐUN Á HLUTNUM. Ekki mín alhæfing um vanhæfni lögreglu…
    Þú ættir kannski að lesa þetta yfir aftur, og leggja höfuðið í krapa.
    kkv, SÚÞ





    30.03.2007 at 23:21 #586590
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    ,,Ég vil svosem ekkert vera að efast um hæfileika lögreglunnar til að sinna skyldum sínum… En þetta voru án efa verstu vinnubrögð sem ég hef séð hvað varðar að stöðva bíl…“

    Ég hélt ég hefði tekið fram að þetta hefði verið mín skoðun. Ekki að ég væri sérfræðingur í því að elta bíla né sérfræðingur í störfum lögreglu. Bara svona til að hafa hlutina á hreinu…

    Og kalli, síðast þegar ég gáði hét ég Samúel, ég veit ekki til þess að það hafi neitt breyst, bara að í heilnafnið hafi bæst. 😉

    kkv, SÚÞ





    30.03.2007 at 21:33 #586582
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég get ekki betur séð en að eitt af stóru nöfnunum í reglu sófariddarana sé mætt á þráðinn, (nefni engin nöfn).

    Og þið hljótið að sjá það að stoppa þennan bíl hefði ekki verið mikið mál ef þessir menn hefðu viljað það. Þeir lögðu lögreglubílum þvers og kruss á göturnar en gáfu þeim fínt svigrúm til að keyra framhjá.

    En ég er nú bara að benda á þetta því ég vildi síður fá einn svona framan á mig (eða í hliðiná eða aftan á mig) þegar ég er úti að keyra í hádegishléinu mínu….

    Það er ekkert að smá gagnrýni, sérstaklega þegar líf fólks er í húfi.

    Kv, Úlfr sófariddari.

    P.S. mínir menn fóru á stúfana og grófu það upp að ökumaðurinn hafi verið að bryðja eitthvað sem okkur leyfist ekki að smakka. (ekki þar fyrir að nokkrum hérna veitti ekki af andstæðu þess… eða einum köldum kannske?) Heh heh…
    Góða helgi. 😉





    30.03.2007 at 16:57 #586574
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég vil svosem ekkert vera að efast um hæfileika lögreglunnar til að sinna skyldum sínum… En þetta voru án efa verstu vinnubrögð sem ég hef séð hvað varðar að stöðva bíl…
    Í tvígang (ef ekki oftar) fengu þeir gott tækifæri til að maula bílinn, en slepptu því.

    Ég held að þeir hefðu betur sleppt því að elta bílinn. Miðað við að guttinn keyrði aftan á annan bíl á 100km/h.
    Sem betur fer var sá stór jeppi en ekki einhver Aygo…

    Ég veit svo sem ekki um forsendur eltingarleiksins, en ég held að þetta sé svolítið smánarlegt fyrir lögreglu að þurfa slys til að stöðva band brjálaða ökumenn.

    Fyrir mér var þetta einn stór leikur hjá þessum drengjum í lögreglunni. Enginn vilji til að stöðva bílinn…

    Alls ekki taka þessu sem einhverju skítkasti á hendur lögreglunnar, ég trúi að þeir geti unnið vinnuna sína. :)
    Þeir meðal annars fundu verkfæratöskuna mína nú í morgun sem einhver krimminn hafði hnuplað í gær…

    kkv, Úlfr gagnrýnari

    PS. Davíð, sé ekki betur en að þetta sé grind fyrir tjaldhús á pallinum þarna… En hvað í ósköpunum þessir drengir voru að gera af sér, það langar mig að vita. Hvað ætli hafi réttlætt þennan eltingarleik?





    24.03.2007 at 19:30 #581334
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég er svosem enginn rafeindavirki, en það mætti nú reyna að finna út tíðnina á truflununum og útbúa síu á spennirinn eða útvarpið. Líklegast er þetta spenna sem er að hanga á rafkerfi bílsins frekar en útvarpsbylgjur. (Þó það geti vel verið samt)

    Svo er líka hugmynd að skella bara síu á útvarpið sem klippir allt fyrir ofan DC (0Hz). :)

    kkv, Úlfr rafmagnsviti.





    21.03.2007 at 00:45 #585378
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    3VZ-E er ekkert voða góður kostur.
    En líklegast skárri kostur en margt annað. Man ekki hvernig það er með að kassinn af 22R passi á 3VZ, en mótorpúðana þarf að smíða uppá nýtt, munar samt bara nokkrum sentimetrum ef ég man rétt.

    Vatnskassinn ætti að duga ágætlega held ég.

    Annars á ég hugsanlega 3VZ-E mótor sem er til sölu… Tekinn upp fyrir ekki svo löngu síðan. Annars er eitthvað um þræði hérna á 4×4 síðunni sem fjalla um þetta…

    Svo er það náttúrulega að finna bara einhverja dísel rellu og henda oní þetta (ekki undir 3lítrum), eða smallblock chevy’ 😀

    Með GrútarKveðju, Úlfr
    ulfr.thor@ulfr.net





    11.03.2007 at 12:13 #584104
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Þarna er sagt frá aðferðum lögreglunnar…
    ,,Að sögn Svans Kristinssonar, varðstjóra hjá lögreglunni á Selfossi, fóru lögreglumenn á fólksbíl á vettvang á sunnudag en sáu ekkert nema hjólför í fjörunni. Sennilega hafi þeir ekki komist á bílnum að þeim stað þar sem ummerkin eru mest. “

    Nenntu mennirnir ekki að labba? Voru þeir þá ekki að stunda utanvegarakstur? Og afhverju í ósköpunum er minnst á að þetta hafi verið fólksbíll…. *andvarp*

    ,,Að sögn Hrafnkels hefur ekki dugað að koma til móts við þessa ökumenn með því að útbúa sérstaka ökubraut í nágrenninu.“
    Er þessi ökubraut vel merkt, er hún opin öllum, bæði jeppamönnum og vélhjólafólki?

    Annars finnst mér óþolandi að fólk geti ekki hugsað aðeins og sleppt því að spæna upp landið. Þetta kemur óorði á okkur jeppamenn.

    kkv, Úlfr





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 921 through 940 (of 1,024 total)
← 1 … 46 47 48 … 52 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.