Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
18.09.2007 at 02:24 #597282
Þakka skjót svör.
Skilur mig samt hálfpartinn eftir á meiri villigötum, þyrfti að kíkja á verkstæðið hjá Árna.
kkv, Úlfr á Undanfara II.
17.09.2007 at 12:41 #597258eins lítið og ég veit um díselvélar, þá gæti þetta hljómað eins og eitthvað í olíulögninni væri ekki alveg að virka rétt. Langt síðan það var skipt um hráolíusíu?
Annars getur verið svo margt að.
Ef vélin nær ekki upp réttum olíuþrýstingi fer hún ekki í gang held ég alveg örugglega.
Eflaust fleiri ástæður sem gætu verið að stríða þér.Vona að þetta færi þig eitthvað örlítið nær…
kkv, Úlfr
P.S. getur verið að það sé raki í olíutankinum? Eða að olían sé jafnvel byrjuð að vaxast (skiljast að) og eitthvað sé stíflað?
17.09.2007 at 11:27 #200806G’daginn félagar,
Ég er með 4Hlaupara á leið á rör, og búinn að lesa alla þá pistla sem ég finn hér á síðunni framm og aftur og hafa þeir komið mér annsi langt, en nú er lokaspretturinn eftir.Ég er með rör undan 70 cruiser, og fer framhásingin um 50mm framar. Hvernig hafa menn verið að mixa saman stýrisganginn? Get ég notað stýrisstöngina úr 70 cruisernum og orginal arminn á stýrisdælunni sem er á klafabílnum?
Eitt enn, hvaða ráð hafa menn brugðið á til að breikka hásingarnar?
Annars fer þetta vonandi bráðum að smella saman og ég get farið að nöldra yfir hve leiðinlega svagur bíllinn er orðinn yfir því að vera kominn á gorma og hvað þetta sé höst fjöðrun og blablablabla… (það er mánudagur… hehe)
Kkv, Úlfr á Undanfara II
10.09.2007 at 00:03 #596338En ef mig misminnir ekki þá er kúplingshúsið mismunandi.
Þessar vélar eru eins en nógu mismunandi til að passa illa saman, held ég.kkv, Úlfr
06.09.2007 at 20:16 #596138Ég er með 4runner TD, og setti gorma undan 80krúser aftan undir hann, og sömuleiðis fara 80 krúser gormar undir að framan. Þeir eru nokkuð stífir og bíllinn verður ekki eins leiðinlega svagur án jafnvægisstangar og hann var á gömlu gormunum. (Þeir eru líka töluvert lengri en orginal gormarnir undir 4runnernum, ekki það að það skipti þig miklu máli svosem þar sem þú smíðar allt dótið undir sjálfur hvort eð er.)
Spurning bara hvort hiluxinn sé ekki of léttur að aftan fyrir þá.
kkv, Úlfr
01.09.2007 at 01:08 #595760Ég vann nú við þetta fyrir nokkrum árum (má að vísu ekki koma nálægt þessu núna), en þetta er frekar einfalt.
Bónar mótið.
sprautar Gelcoat á það, leyfir því að þorna og plastar svo eitt lag af þunnri mottu á, og svo nokkur lög af þykkari mottum, fer eftir hve þykkt lag þú vilt hafa, bara muna að lofta vel og bera nóg plast í motturnar.
Eða þannig var þetta gert í þá daga…
veit nú ekki hve mörg lög þeir eru að setja í jeppakanta en 4-5 lög gæti mér dottið í hug. Þetta ætti ekki að vera svo mikið mál amk.P.S. Ég er ekki svo viss um að það borgi sig neitt að plasta þetta sjálfur ef þetta er einn kantur. Og alls ekki ef þú þarft að búa til mót fyrst.
kkv, Úlfr
01.09.2007 at 00:52 #595744Þær eru færðar upp svo að það tapist ekki styrkur á festingu boddís við bíl, t.d. ef þú lendir í árekstri, gæti boddíð rifnað af ef boltarnir rifna. Þeas útaf vogarátaki sem lengingin veldur.
Allavegana, það er öruggara að færa amk 1 par af festingum upp, ef ekki fleiri. Ég lét mér nægja að færa festinguna sem er fyrir aftan framhjólin, þá líka þarf ekki að snikka úr henni fyrir dekkinu.
Reyndar sleppur það með 35" held ég.
Klossana er líka ágætt að smíða úr nylon öxli, gerði það amk hjá mér og það ríghélt.Ef þú vilt skoða þetta eitthvað og ert á höfuðborgarasvæðinu er þér velkomið að gera það.
Er í símum 848-2317 og 821-1189.
kkv, Úlfr
30.08.2007 at 02:42 #595550Ég væri til í að vera með ef það væri einhverskonar hóppöntun á snorkelum, þó ég hafi lítið verið að skoða þetta, er með 4runner ’94.
kkv, Úlfr
30.08.2007 at 02:38 #595738Ég mæli með að hækka bílinn um 50mm á boddy.
Þá er komið nóg pláss fyrir 35" (og hugsanlega 38" ef fólk vill seinna meir stækka).
Þetta er frekar einföld aðgerð, og betri en að setja klossa undir því þá krukkar maður sem minnst í fjöðruninni, og eins og allir vita er hún ekki alveg sú besta að framan.Klossa milli boddýfestinga og færa tvær eða fleiri festingar upp.
Gæta bara að, að það þarf að lengja áfyllingarlögnina fyrir bensíntank og gæta að einhverjum rafmagnstengjum, sem og gírstöng og þetta vanalega.kkv, Úlfr
27.08.2007 at 19:54 #595524Getur þú ekki séð þetta hjá umboðinu bara?
kkv, Úlfr
15.08.2007 at 15:30 #594684menn eru í pælingum… Þá mæli ég með að athuga þetta með loftjakkinum hjá kliptrom á aGureyri (Akureyri).
Örugglega svipaður peningur þegar allt kemur til alls.
kkv, Úlfr.
14.08.2007 at 19:31 #573356Tja, kraftmikið og ekki kraftmikið, Trooperinn var fyrsti jeppinn til að koma með Common rail innspýtingakerfi. Og þótti rosa sprækur, þar til Landcruiserinn kom með common rail…
(mér finnst amk LC 90 sprækari en Trooper)
ágætis bílar samt bæði tvennt, hálfgerðir fólksbílar samt.kkv, Úlfr semveitaðhannvaraðkastasprengju
31.07.2007 at 23:03 #594228En Guðmundur.
Hvar er það skilgreint í lögum? Og hver er þá munur á kösturum (sem eru tengdir eins og aukaháljós) og aukaháljósum?
Þetta þykir mér allt hálf loðið.kkv, Úlfr
31.07.2007 at 18:39 #594222Aukaháljós eru nefnd í reglugerð um gerð og búnað ökutækja númer 822 frá árinu 2004.
Þar segir:,,Auka háljósker: Ljósker skulu tengd öðrum háljóskerum og kvikna skal á þeim samtímis áskildum
háljóskerum eða um sérstakan rofa. Þegar um er að ræða tvö pör aukaháljósa mega þau ekki loga samtímis.
Þegar skipt er af háljósum á lágljós skulu öll háljósin slokkna samtímis. Aukaháljós skulu staðsett framar en
ökumaður. Að öðru leyti gilda sömu ákvæði og um áskilin háljósker. “Nú get ég ekki betur séð en ef maður kallar þetta aukaháljós, þá þurfi maður ekki að setja hlíf yfir þetta?
Þessar reglur eru hálf loðnar, því annar staðar í sömu reglugerð er talað um kastara.
Þar segir:
,,(11) Ljóskastarar.
Litur: Skal vera hvítur eða gulur.
Dreifing: Ljós skal lýsa fram á við.
Tenging: Ljóskastarar skulu tengdir háljóskerum um eigin rofa og samtengdir gaumljósi í mælaborði.Notkun: Ljóskerin má einungis nota:
– utan alfaravega
– í ófærð á vegum utan þéttbýlis þegar aðalljós koma að takmörkuðum notum vegna snjólags eða
skafrennings.
Ljóskerin skulu vera byrgð þegar þau eru ekki í notkun. “Einnig segir í grein 07.10:
,,(2) Leyfð ljo?sker:
– aðalljósker; tvö eða fjögur aukaljósker fyrir háljós “Og á þetta við um bifreið. Allar bifreiðar mega því vera með auka háljós.
Einnig segir í sömu grein:
,,(5) Annað af tveimur pörum háljósa má fylgja beygjuhreyfingum framhjóla.“
Smá útúr dúr en samt áhugavert.Nú velti ég fyrir mér, hver er munurinn á aukaháljósum og kösturum?
Get ekki séð í þessari reglugerð að nokkur munur sé á, en endilega ef lögfróðari menn geta frætt mig um það væri það bara gott mál.Reglugerðina má nálgast á heimasíðu umferðarstofu.
kkv, Úlfr
31.07.2007 at 18:21 #594124Hvoru megin er drifkúlan á Terracaninum?
kkv, Úlfr
31.07.2007 at 02:20 #594216Ef ég man rétt þá mega vera auka parkljós eins mikið og maður vill.
En allt annað þarf að sæta reglum.Annars er hægt að nálgast reglugerðina mjög auðveldlega [url=http://us.is/id/1074:204uzsej]hér í lagasafni umferðarstofu[/url:204uzsej].
kkv, Úlfr.
30.07.2007 at 19:12 #594120Fyrst í óefni er komið, þá má nú alveg reyna að bæta þetta.
Ég veit nú ekki um einn einasta Hyundai á röri að framan, en er ekki spurning um að mæla hjólabilið, skoða amerísk eða japönsk rör og athuga hvort þau passi á breiddina séð, og með drifkúluna. Líklegast þarf að láta sér smíða stýrisganginn alveg.Annars held ég alveg 100% að ég fari með rétt mál að alveg sama hve mikið klafinn er skrúfaður upp (ef þetta er torsion-bar suspension) að hann fjaðri alltaf jafn mikið, bara mismunandi mikið niður eða upp. Þeas meiri uppskrúfun þá fjaðrar hann meira upp en niður.
kkv, Úlfr.
30.07.2007 at 19:02 #594212Þarft bara að tengja parkljósin inn á parkið í bílnum, það ætti að vera nóg.
Maður þarf bara að vera með hlífar yfir kösturunum innanbæjar útaf því að þetta eru KASTARAR.kkv, Úlfr rafapi.
P.S. held það sé samt best að ræða við þann aðila sem skoðar bílinn þinn um þetta, hann gæti amk sagt þér hvort þú þurfir hlífar eða ekki, en ég held samt að maður þurfi hlífar sökum þess að þetta eru jú aukaháljós.
27.07.2007 at 20:38 #594082Hvernig fór þetta? Fór einhver með kross inn eftir eða?
kkv, Úlfr
27.07.2007 at 19:36 #593912Heyrði brot af viðtali við umræddan mann um daginn.
Þar stungu mig orð úr munni hans er hann skilgreindi utanvegaakstur einnig sem akstur á slóða eða vegi sem er ei merktur inn á kort.
Nú vil ég vitna í svar Landmælinga hér fyrr um árið að þeir hefðu ekkert dómaravald yfir því hvaða vegi mætti aka og hvaða ekki, og vísuðu þessum orðum sýslumanns á bug.
Svo sé ekki talað um að vegur er ágætlega (þó svolítið grátt og loðið) skilgreing í lögum. Fyrsta eða önnur grein umferðarlaga ef ég man rétt.Með innanvegsaksturskveðju, Úlfr á Undanfara II.
(sem er glæpamaður samkvæmt sýsla)
-
AuthorReplies