Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
16.11.2007 at 01:10 #603536
Ég á viðgerðarbók f. þessa bíla sem sýnir raflagnateikningu. Svolítið flókið að útskýra þetta yfir netið, en þér er velkomið að bjalla í mig eftir kl 1600h á morgun og fá að líta á hana ef þú vilt.
En annars finnst mér lang líklegast að segulrofinn (relay) sem stýrir hvenær rafallinn byrjar að hlaða sé bilaður.
Minnir að hann sé með í öryggjaboxinu frammí húddi.kkv, Úlfr.
10.11.2007 at 19:11 #602672Hvernig færðu út að ríkið stórgræði á hækkununum? Þeir taka bara x fjárhæð af hverjum lítra, þar af leiðandi fylgir þetta ekki hækkunum á heimsmarkaðsverði.
En hvað er díselfólk að væla? Er einhver ástæða til þess að fólk á díselbílum eigi að fá niðurgreitt eldsneyti á meðan bensínbílarnir (sem blæða nóg fyrir) borga fullt verð fyrir eldsneytið sitt?
Ég vil taka það fram að ég ek á díselbíl, ekki bensínjálk.kkv, Úlfr
09.11.2007 at 21:29 #602614En ég held að Toyotu mafían hafi alltaf kæft patrol…
(nú þori ég ekki að segja meir)kkv. Úlfr (sem er í felum)
09.11.2007 at 19:36 #602354Menn taka nú misjafnt á bílum. Svo eru til missterk eintök af bílum líka. Veit um patta sem hefur keyrt fleirihundruð og fimmtíuþúsund km án þess að svo mikið hafi verið litið á heddið í bílnum. En svo veit ég um patrol sem hefur farið oftar í vélarupptekt en góðu hófi gegnir, þetta voru eins bílar n.b.
Vil einnig minna á að bílar hafa kosti og galla. Ef til væri ofurjeppi þá myndi fólk eflaust kaupa hann.
Mestu máli skiptir að skoða sem flesta bíla og finna einhvern sem maður er sáttur við. Ég er t.d. afar sáttur við 4runner (er búinn að eiga þónokkur eintök af þeim bíl, bæði 3l bensín og dísel). Líkar lang mest við díselinn. Þeir á 44" eru þónokkuð skemmtilegir grunar mig. (á enn eftir að troða blöðrunum undir og prófa).kkv, Úlfr.
07.11.2007 at 22:22 #602468Hef heyrt að AT séu þrusugóð keyrslu- og snjódekk. Bælast vel og hafa reynst mönnum ágætlega. Flestir af þessum bílum hafa verið í kringum 2-2,5t svo að ég veit ekki hvernig þau eru undir þyngri bílum.
Held að næstu dekk sem ég fengi mér væru AT ef ég ætlaði að vera á 38" á annað borð. (stefni á gleðigúmmíið).Félagi minn á GH og hafa þau reynst ágætlega, svolítið veghljóð í þeim og virðast vera stífari en t.d. Mödderinn. (gumbo monster mudder)
kkv, Úlfr.
07.11.2007 at 22:08 #602318Óþarfi að æsa sig yfir þessu.
Ok, kostir gallar sem ég veit eða hef heyrt af LC60, LC80 og svo Patrol.
LC60 gallar: Hef þess heyrt getið að öxlarnir í hásingum séu ekkert of sterkir.
Eru svolítið afturþungir en það er bara að færa afturhásinguna aftur úr öllu valdi býst ég við.
Kostir: Kosta yfirleitt ekki svo mikið, en nokkuð erfitt að ná í gott eintak af þessum bílum.
Sterk drif í hásingum.LC80.
Gallar: Framdrifin eiga það til að smyrjast í sundur sé tekið á þeim, sérstaklega í bakki. (eru 8" reverse ef ég man rétt, sama og er í LC70)
Erfitt að fá góð eintök sem kosta ekki annan handlegginn og gott betur en það.
Kostir: Mér hefur sýnst þeir vera nokkuð rúmgóðir og þægilegir að innan. Ágætis aðgengi um þá.
Vél sem rótvinnur en ég þekki vélahliðarnar á þessum bílum ekki nóg til að geta verið marktækur á það. Mæli með að fletta í gegnum spjallið og leita að einhverju um þá.Patrol nýrra boddí m. 2,8.
Gallar: Leguvandamál að framan á 44".
Svolítið óþægilegt aðgengi um þá en þó nokkuð rúmgóðir. Finnst óþægilega þröngt um mann þegar maður er við stýrið.
2,8l er glataður mótor sem hreyfist varla úr stað á 44" (ég á eftir að verða krossfestur fyrir að segja þetta…)
Eru nokkuð þekktir fyrir heddvandamál en mig grunar að það sé meira eða minna útaf of miklum hita á afgasi, annars þekki ég það ekki nóg.Kostir: Nokkuð rúmgóðir (þrátt fyrir bílstjórasætið).
Sterk drif og flest allt í bílnum nokkuð sterkbyggt að sjá.
Mér hefur alltaf þótt ágætt að ferðast í þessum bílum og hefði ekkert á móti að eiga patrol (reyndar eldra boddíið) á 44" með mótor oní húddinu. (4l vélin er víst tuddaöflug, en fæst því miður ekki orginal hér á landi nema í einhverjum sem hefur verið skipt um held ég eða örfá eintök).Svo eru fleirir bílar sem eru til 44" breyttir. LC70, Defender, Econoline, F-250+ og Dodge Ram 2500+, 4Runner (ég er á einum svoleiðis, þarf reyndar að skipta út framstellinu til að höndla 44" eða alvarlegar breytingar), Ford Aerostar, Chevrolet Aeris (eð’hvað það nú heitir, svipað og Aerostar).
Það eru endalausir möguleikar í stöðunni.Vona að mér takist með þessum pistli að hrista aðeins uppí umræðunni, og athugið að allt í pistlinum er byggt á persónulegri reynslu, og getur vel verið að ýmislegt mætti orða eða segja á annan máta.
kkv, Úlfr
04.11.2007 at 01:40 #601836Ég ætla ekki að fullyrða að þær sögusagnir séu sannar sem ég hef heyrt um að þetta hafi gerst.
En væntanlega með niðursíkkun á pitman arminum færðu meira vogarafl á öxulinn sem aftur á móti kemur út á að minna átak þarf til að geta skemmt hann.Sennilega er það alveg rétt að þetta þykir ekki góð breyting, betra sé að snúa við endum eða síkka maskínur (ef það er fyrir hendi).
kkv, Úlfr
P.S. [url=http://www.mmedia.is/gjjarn/sjeppar/styrigr/styriindex.htm:3njqjaoi]Hérna er linkurinn í allri sinni dýrð[/url:3njqjaoi]
03.11.2007 at 15:07 #601774Er mjög umhverfisvænt að prófa bíla á elgum? Er ekki þá orðið eitthvað fátt um elgi í svíþjóð? Kannski þetta próf verði alltaf þýðingarminna eftir því sem þeir keyri fleiri niður… Nei maður bara spyr…
(ekki taka mig of alvarlega, í guðanna bænum)
Sjá samt þessar skurðarskífur sem eru undir þessum bílum orginal, mér þykir þetta ekkert voðalega skrítið.
kkv, Úlfr.
P.S. 4runner þótti nú á sínum tíma mjög valtur og stórhættulegur bíll hér vestanhafs.
03.11.2007 at 14:47 #601228Já, það er oft til leiðinda. 😛
Áhugaverð bilun samt.
kkv, Úlfr
30.10.2007 at 02:28 #601328…er þegar þrennt er.
Er biskupsembætti farið að troða sér inná vefinn? Fólk er orðið svolítið mikið fyrir að þrítaka sig. Nei maður bara spyr.
Með heilagri kveðju, Úlfr. (Má þetta?)
29.10.2007 at 20:26 #601318Ég komst að sjálfsögðu ekki uppá jökul sökum ófærðar. (bíllinn fer bara beint áfram eða afturábak)
Þetta fer að verða lengsta röravæðing sem sögur fara af…
*andvarp*Hvernig er annars færið þarna upp eftir? Allt grjóthart og fært Renault á skurðarskífum?
kkv, Úlfr.
29.10.2007 at 00:24 #601274Ég man ekki betur en að hjólabil á 4runner og hilux X-cab sé það sama. Húsið er bara minna á X-cab…
Grindin í 4runner f. ’97 og hilux D-cab / X-cab er sú sama að nánast öllu leyti.
Myndi stökkva út og mæla ef mitt væri ekki búið að færast um helling. 😛
kkv, Úlfr
29.10.2007 at 00:22 #601242Óþarfi að taka hlutina of alvarlega. 😉
Með kærri kveðju, Úlfr.P.S. Ert kominn með fína auglýsingu Þorsteinn. 😉 Fjöldi manns að ræða um hana.
28.10.2007 at 19:30 #601230..einmitt að hugsa þetta, hann er sennilega frekar ,,desperate“ á að selja þetta. Hehe.
kkv, Úlfr
28.10.2007 at 19:28 #601224Getur verið að það sé einhver skynjari að stríða þér?
Nú þekki ég þessa vél voða lítið (hvort það sé tölva fyrir vélina), en ef það eru einhverjir skynjarar þá gæti það verið hugsanleg ástæða. Finnst samt ólíklegt að það sé tölva fyrir vélina í þessari árgerð.
Hugsanlegt að spíssarnir séu orðnir slappir?kkv, Úlfr
28.10.2007 at 18:29 #597314Ég er búinn að breikka hásinguna (notaði speisera frá K2)
Vandamálið er að færa stýrismaskínuna framar (Já ég veit það er dragliður í maskínunni).
Spurning að setja LC70 stýrismaskínu (eða 60) í staðinn fyrir gömlu klafamaskínuna.
kkv, S.Ú.Þ. á Undanfara II
22.10.2007 at 21:10 #597302Elliofur, hvað færðir þú framhásinguna langt fram? Mín fór rúmlega 70mm.
Og Nú er spurning, ég notaði stýrismaskínuna sem var í 4runnernum (klafa) og lét bora út arminn fyrir stýrisenda… Mér sýnist á öllu að ég neyðist til að láta lengja öxulinn bara.
Eða máta úr 80 krúsernum. Gæti verið að hún sé nægilega löng.
kkv, Súþ
21.10.2007 at 22:59 #597294Nú þarf ég að fara að leita… Heh. Þakka samt skjótt svar.
Kkv, Súþ
21.10.2007 at 22:31 #597290Jæja, nú er draslið komið undir en staðsetning á skástífuturninum er enn að bagslast fyrir mér. Það sem ég er að spá í núna er að færa maskínuna alveg eins framarlega og hægt er. En, vandamál með stýrislengingu, er hægt að nota stýrisöxul úr t.d. LC80 og setja í staðinn, eða hreinlega að lengja öxulinn.
Einhverstaðar las ég að Stál og stansar gætu gert slíkt, en ég er að velta fyrir mér hvort það sé til betri og ódýrari lausn. Ekki er hægt að nota stýrislengingu frá AT því þær eru hreinlega ekki nógu langar.
kkv, Samúel Ú. Þór.
P.S. Endilega ef þið hafið lausn hringið í síma 848-2317
04.10.2007 at 13:21 #598664Mig minnir að það sé 54mm toppur á nafrónum á þeim.
Ég á topp sem passar á það, sem þú gætir fengið lánaðan.
En hann fæst í bílanaust og er tommumál, og það þarf að slípa aðeins innan úr honum.
kkv, Úlfr
s: 848-2317
-
AuthorReplies