Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
04.12.2007 at 01:14 #605372
Ertu nokkuð með vitlaust charset í vafranum hjá þér benedikt?
Mig grunar að ég hafi klúðrað einhverju þegar ég smíðaði rörið undir (enda kannski ekki beint vanasti maður slíkum breytingum…).Eins líka finnst mér alltaf vera högg á sjálfa hásinguna, eins og hjóllegan hægra megin sé laus, en ég hef margskoðað hana og aldrei fundið neitt athugavert.
Þetta er btw ný lega síðan í haust.
kkv, Úlfr
E-1851
04.12.2007 at 00:41 #605360Það var svona nokkurnvegin pælingin hjá mér. Var búinn að hafa samband við þá hjá Halla hjá K2.
Hann ætlaði að svara mér á morgun hvað kitið sjálft kostaði, en ég þarf að finna annan kassa sem passar…kkv, Úlfr
04.12.2007 at 00:27 #605356Tja, þar sem ég á einn kassa úr 4cyl bílnum, var ég að pæla í að nota hann. En pælingin hjá mér var að útbúa 2faldan skriðgír, s.s. 2x milligírar og svo venjulega lága drifið. En það er kannski svolítið skot yfir markið.
er samt eiginlega að spá í að hafa bara einn skriðgír með 4,7 hlutfalli.
Ég er btw á 4,56:1 og með 3l TDI 4runner (verðandi) á 44".
En þá er önnur spurning sem þið fróðu menn ættu kannski að geta svarað mér, er hægt að breyta kassa úr hilux sem er með samtengdum "shifter" (skiptistöngin f. fjórhjóladrifið á gírkassanum sjálfum og með stangir aftur í milligírinn) yfir í kassa með sjálfstæðum "shifter"?
kkv, Úlfr í pælingum
04.12.2007 at 00:16 #605368Já, ég var að vonast til að geta sloppið við að splæsa í ný dekk (vildi slíta þessum aðeins betur) en það lítur allt út fyrir að það sé það eina sem virðist ætla að laga þetta.
Ekki þar fyrir að mér finnst að stýrisgangurinn ætti að geta haldið við þó að dekkin séu eitthvað furðuleg.Dekk eru jú misjöfn í smíðum og gæðum.
kkv, Úlfr
E-1851
03.12.2007 at 18:38 #201309Úps, ýtti óvart tvisvar… Helv. óþolinmæði að fara með mann.
En fyrst í óefni er komið, hafið þið einhver ráð við jeppaveiki í 4runner sem kominn er á framhásingu undan 70 cruiser.
Nýjar fóðringar í stífum, nýr OME stýrisdempari og allt nýtt í hásingunni sjálfri.
kkv, Úlfr óþolinmóði
E-1851
03.12.2007 at 18:38 #201308Sælir félagsmenn, nú er ég búinn að setja sjálfan mig á haus yfir skriðgírspælingum. Þar sem ég sé fram á kúplingsskipti á næstunni ætla ég að nýta tækifærið og setja skriðgír í dolluna.
Ég hef verið að skoða þessi kit frá MC. Þau fást einnig hjá K2 á akureyri.
Pælingin hjá mér er sú að setja 2faldan skriðgír í jeppann, og nota þá 2 kassa úr 4cyl hilux/4runner.
Hvernig hafa þeir sem hafa verið að snikka þetta í hjá sér verið að útfæra þetta?
Notið þið orginal lága kassann úr 4runner aftan á þessa tvo kassa úr 4cyl bílnum og svo keðjudrifna millikasann (4wd) úr 4runner eða notið þið þrjá 4cyl kassa og svo gírdrifna kassann úr 4cyl bílnum?Með von um góð svör.
kkv, Samúel Úlfr Þór.
E-1851
03.12.2007 at 18:17 #605344Ertu búinn að prófa að lesa út úr ECU-inu?
Mig minnir amk að það sé bilanaleitatölva í 22RE
Gæti verið einhver skynjari að stríða þér. Svo er nátturulega spurning um kveikjuna eða eitthvað í því.kkv, Úlfr.
30.11.2007 at 12:33 #605068Ég er mótfallinn því að almenningur megi setja inn 4×4 rásir.
Frekar finnst mér að fara ætti á leit við PFS eða ríkið að styrkja uppbyggingu endurvarpa sem væru á sér rás og ætluð sem ,,neyðarrás“ fyrir almenning.kkv, Úlfr.
E-1851
29.11.2007 at 12:43 #604938Enn sem komið er, er of lítil reynsla komin á kerfið á hálendinu til að ég geti mælt með því að fólk fari að koma sér upp TETRA stöðvum. En, ég mæli frekar með stöðvum sem geta virkað sem endurvarpi. Motorola t.d. styðja það ekki enn.
Svo er víst að koma ný lína af stöðvum hjá flestum fyrirtækjum eftir áramót, sem eiga að vera eitthvað ódýrari skilst mér, og ef mig misminnir ekki, með endurvarpa fídusnum.Radíókveðjur, Úlfr.
28.11.2007 at 12:26 #604886Ég ætla nú ekki að segja að ég sé alreyndasti K&N síu maður, en eitt veit ég, að í loftinntakinu mínu var ryk í á meðan K&N sían var í.
Og ég fann engan mun þegar ég setti toyotu síuna í. Gæti verið slöpp sía, en ég þreif hana nú reyndar þegar ég fékk bílinn.En þetta er bara mín reynsla. Hef ekki átt bílinn nema í tæpt ár, gæti vel verið að ég setji K&N síuna aftur í einhvern daginn og prufi.
Einhverstaðar las ég að K&N olían ætti að virka niður í nokkuð háa mínus gráður, en kannski er hægt að sjá það á heimasíðunni þeirra?
kkv, Úlfr
E-1851P.S. það á að þrífa þær á 10-15þús km fresti samkvæmt miðanum sem klístrað var á loftinntakið mitt þegar K&N sían fór í bílinn, ef mig misminnir ekki.
28.11.2007 at 12:20 #604878Ég hef líka séð tjakkinn staðsettann á millibilstöngina, þá festur með u-boltum (vírlásum) á stöngina. Hef séð slíkan búnað bæði undir hilux og 4runner, sem og undir 44" breyttum F-250.
Hef aldrei vitað um að það hafi gefið sig, bara hafa 2 vírlása og hafa þá nokkuð massíva.
Færð tjakk hjá landvélum held ég og slöngurnar gerðar hjá Barka.Kosturinn við að hafa þetta á millibilstönginni er sá að þá er hægt að hafa stýrisdempara (sem er bara til bóta að hafa bæði, minnkar álag á tjakkinn og eykur endingu) og ef að pitman armurinn fer á maskínunni þá kemur ekki ofur álag á festingar tjakksins (því þær þurfa jú að halda stönginni líka uppi ef armurinn fer).
En þetta eru svo sem engin staðfest vísindi hjá mér, heldur meira hvernig ég hugsa að hlutirnir séu eða væru best frágengnir. Endilega ef einhver getur leiðrétt mig væri það fínt.
Stýrismaskínuna getur þú fengið boraða hjá stál og stönsum eða fundið leiðbeiningar um á netinu.
Minnir að á síðu gemlingana séu einmitt upplýsingar um hvernig bora skal maskínu. (það skiptir svolítið miklu máli hvernig það er gert).
Með kveðju, Úlfr,
E-1851
27.11.2007 at 18:13 #604722Valið á milli 5/8 loftnets og 1/4 ræðst aðalega af staðsetningu, ef loftnetið nær að vera hæsti punktur bílsins (svona c.a.) þá ,,ætti“ að vera betra að vera með 1/4 loftnet.
Ef loftnet er staðsett aftan á bíl, eða á frambretti, er 5/8 loftnet betra sökum hæðar.
sigfushar; hvar er loftnetið þitt staðsett á bílnum? Er sléttur málmur í 20cm radíus (a.m.k.)?
Loftnet verða mjög stefnuvirk eftir jarðtengingu sinni.
Friðrik, ég mæli ekki með að hafa drullutjakkinn mjög nálægt en það sleppur sennilegast ef hann nær ekki mjög hátt m.v. loftnetið. Hafa hann samt allavegna 20cm frá.
Og svo er nú stóra spurningin strákar, hafið þið látið standbylgjumæla loftnetið og stöðina?
kkv, Úlfr
27.11.2007 at 14:28 #604708Ég má náttúrulega ekki segja skoðun mína á Nesradíó, EN, hitt veit ég að staðsetning skiptir langmestu máli.
Ég hef heyrt margar sögur af því að fólk hefur farið með stöðvar í viðgerð hvað eftir annað og jafnvel skipt um stöðvar með tilheyrandi kostnaði sökum lélegs merkis þegar staðsetningu eða frágangi loftnets eða loftnetskapla var um að kenna…
kkv, Úlfr
P.S. Ég get nú kíkt á loftnetið hjá þér Púki ef þú vilt.
27.11.2007 at 13:09 #604702Hún skiptir líka máli. Öll venjuleg VHF loftnet sem seld eru á íslandi eru 0dB (hlutlaus) en t.d. kústsköftin eru að ég held 3-6dB sem er töluvert meiri mögnun.
Fólk gæti spurt þá hversvegna mögnun ætti að hafa áhrif á drægni, jú, því að ef að VHF merkið er ekki mjög gott þá lokar stöðin á það.
Sé inngangsmerkið sterkara og betra eru meiri líkur á að stöðin grípi það. (Ekki samt taka þessu eins og stöðvarnar séu gallaðar af því að þær loki hluta af merkjum úti, það er einmitt sá eiginleiki sem gerir þær svona "hreinar" og "tærar" að tala í)Þannig að gerð loftneta getur skipt töluverðu máli.
Nú held ég að Benedikt karlinn ætti að geta sagt okkur hvað þessi kústsköft eru í dB því ef ég man rétt var hann að flytja þetta inn.kkv, úlfr
27.11.2007 at 12:55 #604700Hún skiptir líka máli. Öll venjuleg VHF loftnet sem seld eru á íslandi eru 0dB (hlutlaus) en t.d. kústsköftin eru að ég held 3-6dB sem er töluvert meiri mögnun.
Fólk gæti spurt þá hversvegna mögnun ætti að hafa áhrif á drægni, jú, því að ef að VHF merkið er ekki mjög gott þá lokar stöðin á það.
Sé inngangsmerkið sterkara og betra eru meiri líkur á að stöðin grípi það. (Ekki samt taka þessu eins og stöðvarnar séu gallaðar af því að þær loki hluta af merkjum úti, það er einmitt sá eiginleiki sem gerir þær svona "hreinar" og "tærar" að tala í)Þannig að gerð loftneta getur skipt töluverðu máli.
Nú held ég að Benedikt karlinn ætti að geta sagt okkur hvað þessi kústsköft eru í dB því ef ég man rétt var hann að flytja þetta inn.kkv, úlfr
27.11.2007 at 12:45 #604698Loftnet á frambretti verða alltaf mjög stefnuvirk, og útsýnið, ef mætti kalla það svo, verður mjög takmarkað.
1/4 bylgju loftnet virka yfirleitt betur sökum þess að þau taka jafn vel á móti og þau senda.
Besta mögulega staðsetning á bíl er á miðjum toppi. En oft þarf að vera með málamiðlanir, ég er t.d. með loftnetið mitt aftarlega á þakinu, fyrir aftan þakbogana og fyrir miðju séð að aftan.
Hef lítið sem ekkert prófað það í ferðum, (var að setja það á) en við innanbæjarprófanir virkaði það mjög vel og var lítið sem ekkert stefnuvirkt.
Loftnetið hjá mér er klippt niður í 44cm.
Kkv, Úlfr.
P.S. Mestu skiptir að það sé málmur í kringum loftnetið í c.a. 20cm radíus.
Púki; ég myndi fara varlega í að trúa þeim sem tala um að það skipti engu máli hvar loftnet eru staðsett.
27.11.2007 at 10:49 #604690VHF loftnet eru alltaf klippt niður í ákveðna lengd fyrir það tíðnisvið sem rásirnar á stöðinni sem mest notaðar eru á.
1/4 bylgjulengdar loftnet eru að virka nógu vel, en það eru til hvítu ,,kústsköftin“ sem eiga að virka betur. Hef ekkert kíkt á það svo ég get lítið sagt um það.
Staðsetningin og lagnirnar skipta lang mestu máli myndi ég segja fyrir mitt leiti.
kkv, úlfr.
24.11.2007 at 15:13 #604316Þeir eiga spindla, kosta tæplega 4þús stykkið held ég.
Svo er fínn 4×4 afsláttur þar sem bætist oná…
Og annað en N1 spindlar þá endast þessir.kkv, Úlfr
23.11.2007 at 01:53 #604258Það liggur við að maður setji jeppann á sölu og fái sér Yaris.
Þessi láglendis- og einkavæðingarstefna er komin útí hött.
Tala nú ekki um ef við göngum í ESB og jeppar verða bannaðir með öllu, þá eigum við rúmlega 20.000 ólöglega bíla sem eru verðlausir með öllu, nema kannski í varahluti og brotajárn, en það verður náttúrulega búið að banna allt slíkt þegar til þess kemur…Það að ætla að byggja einkavæddan veg yfir mið hálendið er bara fásinna, og mér þykir að við félagsmenn í 4×4 ættum að taka okkur til og halda uppi kröftugum mótmælum.
kv, Úlfr.
E-1851
20.11.2007 at 18:37 #604092Mátt senda senda þetta á mig ef þú nennir.
ulfr.thor hjá ulfr.net
-
AuthorReplies